Morgunblaðið - 11.09.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992
15
hönnunar. Þarna er mikið í húfi
fyrir framtíð Digranessóknar.
Verði lóðinni hafnað og fram-
kvæmdir stöðvaðar, er ekki fyrirsjá-
anlegt, að önnur fáist og í öllu falli
ekki stórvandræðalaust. Þar með
væri safnaðarfundur að bregðast
þeirri lagaskyldu sinni að sjá fyrir
sóknarkirkju fyrir stærsta söfnuð
Kópavogs og einn hinn stærsta á
landinu. Slíkt slys og hneisa má
ekki henda oss.
Sóknarnefndin á heldur ekki að
þurfa að vera í neinni varnarstöðu,
heldur hefur hún mjög vandaða og
fagra kirkjuhönnun upp á að bjóða.
Að þessu vann hún af alúð ásamt
arkitekt, öðrum hönnuðum og bæj-
arskipulagi, meðan andspyrnuöflin
kostuðu kapps um að grafa undan
og rífa niður. Meðal þess, sem sókn-
arnefnd hefur verið legið á hálsi
fyrir, er að hugmyndir hafi þróast
og tekið á sig mynd stærri bygging-
ar og hærri kostnaðaráætlunar. Að
nokkru er um að ræða, að hug-
myndir voru í upphafi óljósar og
ekki nógu skýrt fram settar, saman-
ber fjaðrafokið út af kjallaranum
með sjálfsögðu þjónusturými. Frá
því varð að sjálfsögðu þróun til
fullmótunar hugmynda um þá þjón-
ustu, sem annast þarf í þágu safn-
aðarins og til að stuðla að félags-
og menningarþjónustu í bænum.
Þannig mun gefast kostur á besta
hljðmleikasal Kópavogs sem hreinni
aukagetu kirkjubyggingarinnar.
Loks er fyrirliggjandi kostnaðar-
áætlun upp á tæpar 200 milljónir
að meðtöldum öllum búnaði og
vönduðu orgeli. Hér er þó aðeins
miðað við nytsamt og vandað, en
ekkert óhóf. Að sjálfsögðu verður
farið ofan í saumana á öllum þátt-
um, þegar að útfærslu og fram-
kvæmd dregur. Að fenginni reynslu
annarra kirkjubygginga virðist
áætlunin þó viðunandi.
Sóknarnefndin skorar á safnað-
arfólk að mæta á aðalsafnaðarfund-
inn og veita þessum ágætu áform-
um brautargengi. A því veltur fram-
búðarheill kirkju- og safnaðarstarfs
í Digranessókn.
Höfundur er gjaldkeri
sóknarncfndar í Digranessókn.
--------♦ ♦ ♦--------
■ REGLULEGAR kvikmynda-
sýningar hefjast _að nýju eftir sum-
arhlé í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
sunnudaginn 20. september kl. 16
með sýningu á kvikmyndinni Upp-
hafi valdaferils , sem fjallar um
fyrstu stjórnarár Péturs mikla
Rússakeisara. Fram til áramóta
verða svo alls 13 sunnudagssýning-
ar, sem alltaf hefjast kl. 16. Sýndar
verða gamlar og nýlegar kvikmynd-
ir gerðar í Sovétríkjunum , m.a.
ýmsar myndir sem taldar voru til
klassískra kvikmynda Sovétmanna
, svo sem Baltneska fulltrúann frá
1936 ogMann með byssu frá 1938.
Einnig eru á sýningarskrá myndir
frá seinni tímum sem athygli hafa
vakið, t.d. Stríðið hefst daginn
eftir og Brautarstöð fyrir tvo .
Meðal leikstjóra sem eiga myndir á
sýningarskrá eru Sergei Geras-
símov, A. Zakhri, I. Heifits, Ser-
gei Jútkevitsj og Eldar Rjazanov.
Auk leikinna mynda verða sýndar
á síðustu sýningu fyrir jól tvær
heimildarkvikmyndir; um armenska
tónskáldið Aram Khatsatúrjan og
helgimyndamálarann Andrei
Rúbljov. Einnig teiknimynd gerð
við Hnotuhrjótinn, svítu eftir
Tsjítjkovskij. Aðgangur að kvik-
myndasýningum MIR er ókeypis
og öllum heimill meðan húsrúm
leyfír.
(Fréttatilkynning)
A HOTEL BLANDI DAGANA
11., 12. OG 18., 19, SEPT. 1992
BORÐAPANTANIR I S: 687111
HÚTEl«
______________Brids___________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Sumarbrids í Reykjavík
Gríðarleg þátttaka var í sumarbrids
síðasta mánudag. Næst besta þátttak-
an á einu kvöldi til þessa eða 53 pör.
Úrslit urðu:
Norður/suður:
Þrösturlngimarsson-RagnarJónsson 531
Helgi Hermannsson - Kjartan Jóhannsson 506
Dan Hansson - Elvar Guðmundsson 505
Sigurður B. Þorsteinss. - ísak Örn Sigurðss. 481
Guðrún Jóhannesdóttir - Jón Hersir Elíasson 463
Austur/vestur:
Guðmundur Baldursson - Guðbjörn Þórðarson 529
Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 517
AronÞorfinnsson-ÞórðurAðalsteinsson 517
Cecil Haraldsson - Sturla Snæbjömsson 487
Gunnar Þór Guðmundss. - Jón Þór Daníelss. 483
Og þátttakan á þriðjudeginum var
einnig mjög góð. 44 pör mættu til
leiks. Úrslit urðu:
Norður/suður:
JónHersirElíasson-OlafurLárusson 534
Guðrún Jóhannesdóttir—Gróa Guðnadóttir 504
Baldur Bjartmarsson - Óli Bjöm Gunnarsson 500
Magnús Aspelund - Steingnmur Jónasson 489
María Ásmundsdóttir - Steindór Ingimundarson
479
Austur/vestur:
Kristín E. Þórarinsdóttir - Jacqui McGreal 500
RagnarÞorvaldsson-JónStefánsson 490
Eðvarð Hallgrímss. - Jóhannes Guðmannss. 485
Anton Valgarðsson - Sigurður Steingrimsson 484
Baldvin Valdimarsson - Hjálmtýr Baldursson 478
Sumarbrids verður spilaður í dag
(föstudag) og hefst kl. 19 og lýkur
síðan á morgun (laugardag) og hefst
þá spilamennska kl. 13.30.
Fyrir tvo síðustu dagana (sem gefa
stig til keppni sumarsins) eru 3 spilar-
ar í sérflokki eftir sumarið. Þröstur
Ingimarsson leiðir með 815 stig.
Næstur er Lárus Hermannsson með
776 stig og þriðji er Guðlaugur Sveins-
son með 751 stig.
Bridsdeild Skagfirðinga
Skagfirðingar í Reykjavík hefja
spilamennsku eftir sumarhlé á þriðju-
daginn kemur, 15. september. Spilað-
ur verður eins kvölds tvímenningur.
Spilað er í Drangey við Stakkahlíð 17
(gegnt Tónabæ, sunnan megin Miklu-
brautar) og hefst spilamennska kl.
19.30. Umsjónarmaður verður Ólafur
Lárusson.
Bridsklúbbur Fél. eldri
borgara Kópavogi
Spilaður var tvímenningur sl. föstudag
og mættu 10 pör til leiks og urðu
úrslit þessi:
Þorleifur Þórarinsson - Þórarinn Árnason 146
Bergsveinn BreiðQörð - Kjartan Guðmundsson 120
Hannes Alfonsson - Kjartan Þorleifsson 114
Þriðjudaginn 8. september mættu
18 pör til leiks og var spilaður tví-
menningur í tveim riðlum.
A riðill:
Bergsveinn BreiðQörð - Eysteinn Einarsson 156
GarðarSigurðsson-StefánJóhannesson 137
Sveinn Sæmundsson - Gunnar Pálsson 128
B riðill:
ÞorleifurÞórarinsson-ÞórarinnÁmason 103
Helga Ámundadóttir - Hermann Finnbogason 94
Þórður Jörundsson - Hannes Ingibergsson 90
Næst verður spilað þriðjudaginn 15.
september kl. 19 að Digranesvegi 12,
Kópavogi.
Bridsfélag Suðurnesja
Vetrarstarfið hefst 21. september nk.
og verður spilaður tvímenningur með
verðlaunum fyrstu kvöldin. Spilað
verður í Hótel Kristínu í Njarðvíkum
og hefst spilamennskan kl. 19.30.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Vetrarstarfið hefst mánudaginn 14.
september nk. og verður spilað í
Iþróttahúsinu við Strandgötu og hefst
spilamennskan kl. 19.30.
Boðið verðu upp á spilamennsku
fyrir byijendur með svipuðu sniði og
á síðasta keppnistímabili en það þótti
heppnast mjög vel.
TVEIR KRÖFTUGIR
fyrir veturinn
BÍLASÝNING
um helgina
til sýnis og reynsluaksturs
SUBARU LEGACY og NISSAN PATRO Llaugard. 12.09.
Sunnud. 13.09
VOPNAFIRÐI ESSQ Kl. 10 - 12
BAKKAFIRÐI v/Kaupf. Langnesinga Kl. 14-16
KÓPASKER ESSO Kl. 10-12
RAUFARHÖFN ESSO Kl. 14-16
ÞÓRSHÖFN ESSO Kl. 18-20
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
síma 91-674000
Víkurbarðinn
HÚSAVÍK
SUBARU
LEGACY
ARCTIC EDITION