Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992
19
Tekið út af sparisjóðsbók án leyfis eiganda
Óheimil úttekt eða
vanaleg leiðrétting?
MAÐUR uppgötvaði snemma í aprílmánuði að teknar höfðu verið
út 120 þúsund kr. af sparisjóðsbók hans í útibúi íslandsbanka í
Kringiunni, án þess að hann hefði veitt leyfi til þess. Um var að
ræða innlegg frá fyrirtækinu Ártaki hf. og hafði eigandi fyrirtæk-
isins fengið ieyfi gjaldkera í útibúinu að taka það út af sparisjóðs-
bókinni og bar hann því við að mistök hefðu átt sér stað. Útibús-
stjóri Islandsbanka segir að hér
ingu á rangri færslu að ræða.
Eftir að greiðslan hafði verið
lögð inn á reikning mannsins og
staðfesting þar um gefin til beggja
aðila kom upp missætti milli þeirra,
að því er fram kemur í máli Vil-
hjálms Árnasonar, formanns Neyt-
endafélags Akureyrar og nágrenn-
is, sem fjallað hefur um mál þetta.
Þremur dögum eftir að greiðslan
var innt af hendi fór greiðandinn
í afgreiðslu íslandsbanka og sagði
starfsmönnum þar að umrætt inn-
legg hans til þessa viðskiptamanns
Islandsbanka hefðu verið mistök.
Starfsmenn bankans könnuðu
hvort hann væri sá sami og lagði
inn peningana, 120 þúsund kr., og
leyfðu honum síðan að taka út alla
upphæðina.
Reikningshafinn kvartaði þegar
hann uppgötvaði þetta. Útibús-
stjórinn vísaði manninum á greið-
andann og sagði honum sjálfum
að reyna að endurheimta pening-
ana.
Björn Eysteinsson útbússtjóri
íslandsbanka í Kringlunni segir að
hér hafi verið um leiðréttingu á
færslu að ræða en ekki óheimila
úttekt. „Ártak hf., sem er í banka-
viðskiptum við Landsbankann,
millifærði af sínum bankareikningi
í gegnum tölvu, sem er tengd
Reiknistofu bankanna, kr. 120
þúsund, inn á reikning verktaka í
viðskiptum við ísiandsbanka.
Færslan var gerð á föstudegi, 10
hafi verið um vanalega leiðrétt-
mínútum fyrir lokun bankans. Kl.
9, eða 15 mínútum áður en íslands-
banki opnar næsta mánudag,
hringdi eigandi Ártaks í starfs-
mann íslandsbanka og sagðist
þurfa að bakfæra færslu sína frá
því rétt fyrir kl. 4 á föstudeginum.
Starfsmaður íslandsbanka hafði
samband við Landsbankann og
sannreyndi færsluna frá því á
föstudeginum og framkvæmdi síð-
an umbeðna leiðréttingu," sagði
Björn.
Hann sagði að nokkrum dögum
síðar hefði verktakinn haft sam-
band við íslandsbanka og farið
þess á leit við bankann að hann
greiddi sér út kr. 120 þúsund kr.
I máli hans hafi komið fram að
hann ætti í deilum við Ártak hf.
út af verklokum.
„Það er nánast daglegt við-
fangsefni í bönkum og sparisjóðum
landsins að bakfæra og leiðrétta
en slíka hluti þarf að vinna með
mikilli varúð. í umræddu tilfelli
var Islandsbanki að leiðrétta milli-
færslu skömmu eftir að uppruna-
leg færsla var gerð en ekki að
taka út af reikningi eftir marga
daga án heimildar. Þetta er kjarni
málsins," sagði Björn.
Bankaeftirlitið neitaði að tjá sig
um málið í gær en upplýsti þó að
almennt væru slíkar leiðréttingar
ekki stundaðar innan bankakerf-
isins.
Virkir-Orkint
Ljósmyndir
Lárusar Karls
í Hafnarborg
SÝNING á ljósmyndum Lárusar
Karls Ingasonar verður opnuð í
Sverrissal í Hafnarborg á morg-
un, laugardag, kl. 14.
Sýningin er sett upp í tilefni af
útkomu bókarinnar Strauma sem
geymir portrettljósmyndir af fjöl-
mörgum hafnfirskum listamönnum
ásamt texta er veitir innsýn í
hugarheim þeirra. Bókin verður til
sölu á sýningunni.
Sýningin í Sverrissal stendur til
27. september og er opin kl. 12-18
alla daga nema þriðjudaga.
(Fréttatilkynning)
♦ ♦ ♦
V eitingastaður-
inn Tunglið
Opnað á ný
eftir miklar
breytingar
Veitingastaðurinn Tunglið á
Lækjargötu opnar í kvöld á ný
eftir töluverðar breytingar.
í fréttatilkynningu frá Tungl-
ingu segir að mikið hafi verið lagt
í breytingar á húsinu og að sköpuð
hafi verið ný heildarmynd.
í tilkynningunni segir jafnframt
að ströng dyravarsla verði á staðn-
um og sé ætlunin að halda meðal-
aldrinum í kringum 25 ára og
stefnt sé að því að enginn standi
lengur en 10 mínútur í biðröð fyr-.
ir utan staðinn.
Hundaræktarfélag Islands
Tríó Reykjavíkur
Tónlistarfélagið
Margrét Bóasdóttir og
Tríó Reykjavíkur á tónleik-
um í Islensku óperunni
FYRSTU tónleikar Tónlistarfé-
lagsins á þessum starfsvetri verða
haldnir laugardaginn 12. septem-
ber í íslensku óperunni. Þá konia
fram Tríó Reykjavíkur og Mar-
grét Bóasdóttir söngkona.
Tónlistarfélagið í Reykjavík var
formlega stofnað 27. júní 1932 og
hefur félagið þvi staðið fyrir tón-
leikaröð í 60 ár. Frá upphafi hafa
kennarar Tónlistarskólans í Reykja-
vík átt virkan þátt í tónleikahaldi
félagsins og svo verður einnig á
þessum tónleikum. Tríó Reykjavíkur,
sem er skipað Guðnýju Guðmunds-
dóttur, Gunnari Kvaran og Halldóri
Haraldssyni, mun leika Tríó í c-moll
op. 1 eftir Beethoven og Tríó í C-
dúr op. 87 eftir Brahms og, ásamt
Margréti Bóasdóttur sópran, flytja
þau sjö rómönsur við ljóð eftir Alex-
ander Blok eftir Sjostakóvítsj.
Tónleikarnir hefjast kl. 14.30 og
miðasala verður við innganginn.
Margrét Bóasdóttir
20.30 OPNUNARTÓNLEIKAR.
flvtj.:
M.a. Slagverkshópurinn Spectra
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER
SALUR Verzlunarskóla Islands
Tilnefnt sem ráðgjafi í
orkumálum á Kamtsjatka
FRAMLAG ríkisstjórnarinnar til aðstoðar við fyrrum lýðveldi Sovétríkj-
anna nemur alls 17 milljónum kr. og fjölmörg verkefni eru í undirbún-
ingi í tengslum við aðstoðina. Má þar nefna starfsþjálfun fyrir hóp
manna frá Kamtsjatka þar sem lögð verður áhersla á sjávarútveg og
fiskvinnslu. Fyrirtækið Virkir-Orkint hefur verið tilnefnt sem ráðgjafi
orkumála á Kamtsjatka.
Meira en 30 fyrirtæki koma við
sögu þar sem fulltrúum fyrirtækja
frá Kamtsjatka verður kynnt allt sem
snertir rekstur fyrirtækja, rannsókn-
ir, uppbyggingu fiskvinnslu, fisk-
markaði, framleiðslu tækja og um-
búða, segir í frétt frá utanríkisráðu-
neytinu. 10-12 manna hópur frá
Kamtsjatka er væntanlegur til ís-
A HOTEL ISLANDI DAGANA
11., 12. OG 18., 19, SEPT. 1992
BORÐAPANTANIR I S: 687111
HÓTEL
VA8IPS
Á VEGGI, LOFT OG GÓLF
TRAUSTARI HUÓÐEINANGRUN,
ÞYNGRI OG STEINULL
ÞVÍ ÓÞÖRF. A FLOKKUR
ELDTRAUSTAR
VATNSHELDAR
ÖRUGGT NAGLHALD
KANTSKURÐUR SEM EGG
HOLLENSK GÆÐAVARA
►.MB6BÍM5S0N&CD
ARMULA29, SlMI 3S640
lands í októbermánuði til starfsþjálf-
unarinnar, sem skipulögð er af Út-
flutningsráði íslands.
Þá hefur fyrirtækinu Virkir-Orkint
verið veittur styrkur til að bjóða jarð-
hitasérfræðingi námsdvöl við Jarð-
hitaskóla Sameinuðu þjóðanna og til
þess að fá jarðhitasérfræðinga frá
Kamtsjatka og Georgíu hingað til
lands. I þessu sambandi má geta
þess að fyrirtækið hefur nú verið til-
nefnt sem ráðgjafi orkumála á Kamt-
sjatka, á sviði jarðhita og vatnsorku.
24 hundakyn á sýningu
HUNDASÝNING Hundaræktarfélags íslands verður
haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík sunnudaginn
13. september nk. Sýndir verða rúmlega 240 hundar
af 24 hundakynum og er þetta stærsta sýning félags-
ins til þessa. Dómarar verða þau Marianne Furst Dani-
elson og Kenneth Edh frá Svíþjóð.
í fréttatilkynningu segir: j,Sú nýlunda verður á þessari
sýningu að í fyrsta sinn á Islandi verður sýningaratriðið
Ungir sýnendur þar sem börn og unglingar á aldrinum
8-15 ára sýna hunda sína. Sýnt verður í tveimur aldurshóp-
um, 8-11 ára og 12-15 ára, og verður besti sýnandinn
valinn úr hvorum aldurshópi. I þessu atriði er hundurinn
ekki ræktunardæmdur heldur er megináherslan lögð á að
sýna tengsl barns og hunds.“
Dómar hefjast klukkan 9 og lýkur með úrslitum og verð-
launaafhendingu kl. 16. Ungir sýnendur koma fram klukk-
an 15.30.
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER
LANGHOLTSKIRKJA.
20.30
Flytj.;
Caput
20.30 STRENGJAKVARTETTAR
Flytj.:
Vertavo-hópurinn.
v •• -"A
FÖSTUDAGUR 1 1. SEPTEMBER
Langholtskirkja.
20.30 Huómsveitarverk.
Flytj.:
SlNFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS.
PRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER
LlSTASAFN ÍSLANDS.
20.30 KAMMERVERK.
Flytj.:
M.a. Blásarakvintett REYKJAVÍKUR.
Miðvikudagur 9. SEPTEMBER
Norræna húsið.
;f t ;"
Laugardagur 12. SEPTEMBER
Haskolabio, salur 2.
12.30 raftónleikar.
flvtj.:
M.a. norrænn tölvutónl. kvartett.