Morgunblaðið - 11.09.1992, Page 23
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Bankar og
atvinnulífið
Aundanförnum mánuðum og
misserum hefur mikið verið
rætt um málefni atvinnulífsins
og þá sérstaklega um sjáv'arút-
veginn. Raunar má segja, að
umræður um málefni sjávarút-
vegsins hafi yfírgnæft allar aðrar
umræður um þjóðfélagsmál.
Umræður eru til þess fallnar að
menn átti sig betur á kjama
vandamálsins. ^En að því kemur
að umræður duga ekki til. Raun-
verulegar aðgerðir þurfa að
fylgja í kjölfarið. Nú er tímabært
að verkin tali.
Umræður um fískveiðistjórn-
un og deilur um kvótakerfíð
varða grundvallaratriði í sjávar-
útvegi, þegar til lengri tíma er
litið. Breytt kerfí fískveiðistjórn-
unar leysir ekki aðkallandi
rekstrarvanda fjölmargra sjávar-
útvegsfyrirtækja, sem sum hver
horfa fram á rekstrarstöðvun
jafnvel á næstu vikum. Hug-
myndir innan ríkisstjórnarinnar
um styrkveitingar til sjávarút-
vegs til þess að kaupa aflaheim-
ildir hjá Hagræðingarsjóði leysa
heldur ekki brýnustu vandamál
fyrirtækja í sjávarútvegi.
Landsbanki íslands er með
langflest sjávarútvegsfyrirtæki
landsmanna í viðskiptum. Rætt
er um, að bankinn sé jafnvel með
tvo þriðju sjávarútvegsins í við-
skiptum. Þetta er auðvitað alltof
mikið álag á bankann og hefði
fyrir löngu átt að dreifa viðskipt-
um sjávarútvegsins á fleiri herð-
ar. Aðkallandi vandamál í sjávar-
útvegi og fyrirsjáanleg vandamál
á næstu misserum koma af þess-
um sökum þungt niður á bankan-
um. Þótt Landsbankinn beri
þyngstu byrðarnar eru bæði ís-
landsbanki og Búnaðarbánki
einnig með sjávarútvegsfyrir-
tæki í viðskiptum og vafalaust
standa bankarnir þrír frammi
fyrir einhveiju tapi í sjávarútvegi
á næstu árum.
Sú spurning hlýtur að vakná,
hvort það sé vænlegur kostur í
þeirri stöðu, sem sjávarútvegur-
inn og þar með lánardrottnar
hans eru í nú, að bankarnir eigi
hlut að stofnun eignarhaldsfyrir-
tækja og breyti lánum í sjávarút-
yegsfyrirtækjum að einhverju
•leyti í hlutafé. Jafnframt yrði
gerbreyting á stjórn viðkomandi
fyrirtækja og markvisst unnið
að endurskipulagningu á rekstri
þeirra til þess að gera hvoru
tveggja í senn að skapa lífvæn-
legan atvinnurekstur og koma í
veg fyrir umtalsvert tap bank-
anna.
Þau rök má færa fram gegn
slíkum aðgerðum, að tveir af
þremur viðskiptabönkum þjóðar-
innar séu ríkisbankar og hér
væri því komið á fót ríkisrekstri
í sjávarútvegi í nýju formi. Þess-
um andmælum má mæta með
því að bankarnir leiti til einkaað-
ila um þátttöku í stofnun eignar-
haldsfyrirtækja og þá ekki sízt
einkafyrirtækja í sjávarútvegi,
sem geta miðlað af þekkingu
sinni og reynslu í rekstri og
stjórnun útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækja og jafnvel haft
forystu um endurreisn þeirra fyr-
irtækja, sem eignarhaldsfélögin
tækju við.
Frá sjónarhóli bankanna kann
það að valda erfíðleikum, að þeir
gerist með óbeinum hætti keppi-
nautar ýmissa viðskiptamanna
sinna. Það fer þó eftir aðstæðum
í hveiju tilviki, hvort slík sjónar-
mið kæmu upp en auðvitað ber
að huga að þeim þætti málsins.
Staðreyndin er hins vegar sú,
að bankarnir hafa áratugum
saman verið mjög veigamikill
þáttur í atvinnulífínu sem lán-
veitendur. Á síðari árum hafa
bankarnir í vaxandi mæli tekið
upp þau vinnubrögð að fá sér-
fræðinga til þess að fara ræki-
lega ofan í rekstur viðskiptafyrir-
tækja sem eiga við vandamál að
stríða og hafa með þeim hætti
gefið fyrirtækjunum verðmætar
leiðbeiningar um rekstur. Bank-
arnir eru því í dag virkur aðili í
atvinnulífinu, þótt þeir séu í
fæstum tilvikum eignaraðili.
Sjávarútvegur á íslandi á
mikla framtíð fyrir sér, þegar við
höfum náð tökum á verndun
fiskistofnanna og skapað frið um
nýtt kerfí í fiskveiðistjórnun.
Fyrir fjárfesta, sem horfa til
lengri tíma í ijárfestingum er
íjárfesting í sjávarútvegsfyrir-
tækjum góður kostur. Myndun
eignarhaldsfyrirtækja með aðild
banka, einkafyrirtækja og hugs-
anlega lífeyrissjóða, sem hags-
muna eiga að gæta, getur átt
þátt í að koma sjávarútveginum
yfír erfiðasta hjallann. Væntan-
lega mundu bankamir í mörgum
tilvikum líta á eignaraðild sína
sem tímabundna ráðstöfun og
stefna að sölu á hlutabréfum sín-
um, þegar betur árar.
Það verður ekki undan því vik-
izt að láta verkin tala í málefnum
sjávarútvegsins. Reynsla ann-
arra þjóða af eignaraðild banka
að atvinnufyrirtækjum er í mörg-
um tilvikum góð. Eins og nú
háttar hér á landi getur hún ver-
ið leið út úr vanda, sem ella get-
ur leitt til víðtækra gjaldþrota,
mikils taps bankanna og hruns
einstakra byggðarlaga.
Heildarafkoma Flugleiða versnaði um 130 milljónir fyrstu sex mánuði ársins
Sætaframboð aukið um 8% næsta
sumar og kostnaður skorinn niður
í notkun
út
HEILDARTAP Flugleiða nam alls um 320 milljónum króna fyrstu
sex mánuði ársins samanborið við um 190 milljónir á sama tíma í
fyrra á núgildandi verðlagi. Verri afkomu félagsins má rekja til
þess að meðalfargjald lækkaði um 8% meðan farþegum fjölgaði
um 5% á tímabilinu. Rekstrartekjur drógust því saman um 5,4%
að raungildi frá sama tíma í fyrra en kostnaður lækkaði um 2,6%.
Beint rekstrartap er því 284 milljónir samanborið við 127 milljónir
í fyrra. Ákveðið hefur verið að ráðast í nákvæma endurskoðun á
öllum kostnaði félagsins á næstu vikum með það fyrir augum að
ná fram verulegum sparnaði í rekstri á næstu misserum. Þá hyggst
félagið auka sætaframboð um 8% næsta sumar.
Class-farþegum,“ sagði Sigurður.
Unnið er að því að bæta nýtingu
á Fokker 50-vélum Flugleiða yfir
vetrartímann. „Við höfum verið í
viðræðum við Grænlendinga um
mögulega meiri samvinnu um flug
milli íslands og Grænlands. Það hef-
ur verið sótt um leyfí til flugs milli
Reykjavíkur og Kulusuk til danskra
og íslenskra yfírvalda því það er eitt
brýnasta úrlausnarefni í rekstri Fok-
ker-50 vélanna að ná aukinni nýt-
ingu yfír veturinn. Við sjáum fram
á betri afkomu á innanlandsfluginu
á næsta ári m.a. vegna þess að nýju
vélarnar komu ekki að fullu inn í
reksturinn fyrr en um mitt ár. Um-
skiptunum fylgdi einnig mikill kostn-
aður sem við erum lausir við á næsta
ári.“
Söluskrifstofa úr Lækjar-
götu á Laugaveg 7
Stjórn Flugleiða samþykkti enn-
fremur í gær að kaupa neðstu hæð
hússins við Laugaveg 7 af Lands-
banka íslands og verður söluskrif-
stofa félagsins við Lækjargötu fiutt
þangað um næstu áramót.
Þriðja Boeing 757-vélin verður tekin
næsta vor en ein Boeing 737-vél leigð
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Fortíð og nútíð
Bílar þutu um Austurstræti og fólkið flýtti sér í banka en snótimar
undu sér innan um antíkmuni þrungna andrúmi stríðsáranna. Ekki
vitum við nafnið á dömunni í stólnum; en hver veit nema hún hafí
drifíð sig á sveifluball í múnderingunni.
Útlínur NAMMCO eru að skýrast
Norðmenn fengn aðalskrif-
stofuna og Færeyingar forsetann
Reksturinn kostar Islendinga 5 milljónir á ári
^ Þórshöfn í Færeyjum. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni blaðamanni Morgunblaðsins.
Á STOFNFUNDI Sjávarspendýraráðs Norður-Atlantshafsríkja
(NAMMCO) í Þórshöfn í gær var ákveðið að aðalskrifstofa ráðsins yrði
í Tromsö í Noregi. Kjartan Hoydal fiskimálastjóri Færeyinga var val-
inn forseti ráðsins til næstu tveggja ára. Áætlað er að kostnaður við
rekstur ráðsins nemi 20 milljónum islenskra króna á ári, og munu
Norðmenn greiða 10 milljónir, íslendingar 5 miHjónir og Færeyingar
og Grænlendingar 2,5 milljónir hvor þjóð. Norðmenn munu að auki
sjá NAMMCO fyrir húsnæði undir skrifstofu og sveitarfélög í Norður-
Noregi ætla að veita ráðinu styrk.
Vegna árstíðasveiflu í rekstri
Flugleiða er að jafnaði töluverður
halli á rekstrinum fyrri helming árs-
ins sem síðan er unninn upp með
hagnaði yfir sumarið. Þannig nam
tap af reglulegri starfsemi Flugleiða
alls tæpum 767 milljónum króna
fyrstu sex mánuðina samanborið við
571 milljón á sama tíma í fyrra. Með
reglulegri starfsemi er átt við beinan
rekstur og fjármagnstekjur og
-gjöld. Hins vegar er frá talið mis-
vægi vegna gengis- og verðlags-
breytinga.
Heildarfíöldi farþega var 353 þús-
und fyrstu sex mánuði ársins saman-
borið við 340 þúsund á sama tíma í
fyrra.
Að sögn Sigurðar Helgasonar,
forstjóra Flugleiða, er afkoman verri
en gert hafði verið ráð fyrir, bæði í
Evrópuflugi, Norður-Atlantshafs-
flugi og innanlandsflugi. Það stafar
fyrst og fremst af lækkandi fargjöld-
um á öllum mörkuðum og nefndi
Sigurður sem dæmi að meðalfargjald
hefði lækkað hér á landi um 23% í
júní en að móti hefði komið 20%
fjölgun farþega. Félagið hefur end-
urskoðað rekstraráætlun sína fyrir
árið 1992 og er nú gert ráð fyrir
tapi af starfseminni á árinu.
Gengislækkun dollars að undan-
fömu hefur að sögn Sigurðar haft
hagstæð áhrif á beinan rekstur Flug-
leiða þar sem kostnaður í dollurum
er meiri en tekjur. Skuldir félagsins
sem að langmestu leyti eru í dollur-
um lækka en á móti kemur að flug-
vélaeign félagsins er endurmetin að
hluta í dollurum. Lækkun á gengi
dollars rýrir eignir félagsins meira
en nemur gengishagnaði vegna
skulda og jákvæðum áhrifum á
reksturinn þannig að heildaráhrif
gengislækkunarinnar eru neikvæð
fyrir félagið.
Handbært fé frá rekstri fyrstu sex
mánuðina nam 383 milljónum sam:
anborið við 182 milljónir í fyrra. í
lok júní átti félagið 678 milljónir í
handbæru fé og sagði Sigurður að
greiðslustaðan væri ágæt um þessar
mundir.
Um miðja næstu viku verður haf-
ist handa við að móta áætlun um
að draga úr kostnaði hjá Flugleiðum
sem gert er ráð fyrir að komi til
framkvæmda á næstu misserum.
„Við erum að leggja drög að því að
fara í heildarúttekt á öllum kostnaði
fyrirtækisins. Þetta er það sem önn-
ur flugfélög eru að gera og við ætl-
um að reyna að ná árangri við að
skera niður verulega stóra upphæð
í kostnaði."
Mílanó og Barcelona í stað
Helsinki og Salzburg
Stjórn Flugleiða samþykkti í gær
flugáætlun félagsins fyrir næsta
sumar og gerir hún ráð fyrir að þijár
Boeing 757-vélar og þrjár Boeing
737-vélar verði þá í notkun. 1. júní
nk. fá Flugleiðir Boeing 757-vél úr
leigu frá breska flugfélaginu Britt-
ania en jafnframt er þá gert ráð
fyrir að félagið leigi út eina Boeing
737-vél. „Þannig höfum við meiri
möguleika í Norður-Atlantshafsflug-
inu, betri nýtingu á vélum og mann-
skap og meiri tekjumöguleika þar
sem sætaframboðið eykst um 8%.
Við fjölgum ferðum til Baltimore og
munum fljúga þangað daglega.
Einnig munum við fljúga til Orlando
yfír sumartímann sem við höfum
ekki gert áður. Þá hættum við að
fljúga til Helsinki og Salzburg en
bætum við Mílanó og Barcelona. Það
verður lögð meiri áhersla á að bæta
þjónustu á stærstu staðina eins og
Kaupmannahöfn og London með því
að nota Boeing 757-vélar á þeim
leiðum. Með 757-vélum höfum við
t.d. betri möguleika á að þjóna Saga
Gert er ráð fyrir að uppbygging
ráðsins verði með þeim hætti að það
skipi sérstakar stjórnunarnefndir til
að fjalla um þær dýrategundir sem
koma til með að heyra undir ráðið.
Nefndirnar leggi síðan til hvernig
nýtingu viðkomandi dýrategunda
verði háttað á grundvelli ráðgjafar
vísindanefndar. Ekki hefur verið
endanlega ákveðið hvort stofnuð
verði ein stjórnunarnefnd sem fjalli
um allar dýrategundir sem heyra
undir ráðið, eða hvort skipuð verði
nefnd um hveija dýrategund fyrir
sig.
Settur var á stofn undirbúnings-
hópur fyrir vísindanefnd NAMMCO
og er Jóhann Siguijónsson sjávarlíf-
fræðingur formaður hópsins. Gert
er ráð fyrir að vísindanefndin verði
byggð upp á svipaðan hátt og vís-
indanefnd Alþjóðahafrannsóknar-
áðsins (ICES), þannig að sérstakir
vinnuhópar vísindamanna fjalli um
hvern dýrastofn fyrir sig og sendi
niðurstöður sínar til vísindanefndar-
innar.
Á fundinum í gær lá frammi listi
frá Grænlendingum og Færeyingum
yfir sela- og smáhvalategundir sem
ættu að heyra undir NAMMCO. ís-
lendingar bættu við þann lista
hrefnu, háhyrningum og höfrunga-
tegundum en ekki fékkst niðurstaða
í því máli. Ákveðið var að vísindahóp-
urinn fjallaði um þetta mál og legði
fram endanlega tillögu á næsta fundi
NAMMCO sem verður í janúar.
Fjallað var um samstarf
NAMMCO við önnur samtök á borð
við Alþjóðahafrannsóknaráðið og
Alþjóðahvalveiðiráðið og var ákveðið
að leita eftir góðum samskiptum við
alþjóðasamtök á sviði sjávarútvegs.
Áheyrnarfulltrúar frá Kanada og
Rússlandi sátu fundinn í Þórshöfn
og stuðningsyfírlýsing barst frá
Shima, fulltrúa Japans í Alþjóðahval-
veiðiráðinu. Innan NAMMCO er þess
vænst að Kanadamenn og Rússar
gangi í ráðið í náinni framtíð. Aðild
nýrra ríkja í NAMMCO er háð sam-
hljóða samþykki þeirra ríkja sem
fyrir eru, en þar eru nú íslendingar,
Norðmenn, Færeyingar og Gænlend-
ingar.
í erindi sem Guðmundur Eiríksson
þjóðréttarfræðingur hélt við setn-
ingu stofnfundar NAMMCO í gær,
sagði hann að NAMMCO myndi sam-
þykkja aðildarumsóknir frá Kanada
og Rússlandi þar sem þessi ríki hefðu
tekið þátt í undirbúningi ráðsins og
ljóst væri að þau myndu uppfylla þau
skilyrði sem stofnsáttmálinn setti. Í
stofnsáttmála NAMMCO segir að
markmið ráðsins sé að stuðla að
verndun, skynsamlegri nýtingu og
rannsóknum á sjávarspendýrum í
Norður-Atlantshafí.
Guðmundur sagðist telja ólíklegt
að önnur ríki við Norður-Átlantshaf,
Bandaríkin, Bretland og Danmörk
sæktu um aðild. En ef svo færi
gæti slík aðildarumsókn gefíð til
kynna að viðkomandi ríki vildi starfa
í samræmi við stofnsamninginn og
því yrði fíallað um slíka umsókn með
jákvæðu hugarfari.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Dan Goodman fulltrúi Kanada að það
væri í athugun innan kanadísku rík-
isstjórnarinnar hvort Kanadamenn
sæktu um aðild að NAMMCO. Þegar
hann var spurður álits á NAMMCO
sagði hann, að Kanadamenn hefðu
fylgst með undirbúningi ráðsins frá
upphafi. „Ég held að það sé til marks
um áhuga ríkisstjórnar minnar á
NAMMCO,“ sagði Goodman.
Nikolaj Stertejenko áheyrnarfull-
trúi Rússa sagði að ríkisstjórn hans
myndi ákveða hvort Rússar gengju
í NAMMCO, en hann vildi ekki leggja
mat á hvort það væri líklegt.
Andstaða innan NAMMCO við að
fjalla um hrefnu að svo stöddu
Þórshöfn í Færeyjum. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni blaðamanni Morgunblaðsins.
Slys á börnum í umferðinni 1983-90
%
16
14
12
10
8
6
4
2
0
EKKI náðist samstaða um það á stofnfundi Sjávarspendýraráðs Norð-
ur-Atlantshafsríkja (NAMMCO) í Þórshöfn í gær hvaða dýrategundir
eigi að heyra undir ráðið. Islendingar vilja að auk sela og smáhvala
fjalli ráðið um hrefnustofninn, sem heyrir undir Alþjóðahvalveiðiráð-
ið. Andstaða kom fram við þetta, sérstaklega frá Grænlendingum, og
var ákvörðun frestað til næsta fundar NAMMCO, sem verður í Tromsö
í Noregi í janúar. Nýkjörinn forseti NAMMCO segist ekki búast við
að ráðið muni fjalla um stærri hvalategundir fyrr en Alþjóðahvalveiðir-
áðið hætti að virka, eða sýnt verði fram á það með óyggjandi hætti
að það valdi ekki lengur hlutverki
„Þetta tekur allt lengri tíma en
sumir vonuðu en í raun var ekki við
öðru að búast. Það þurfa að vera
fyrir hendi bæði pólitískar og tækni-
legar forsendur áður en hægt er að
tala um hrefnuveiðar við ísland. Það
komu upp vandamál í Noregi í sum-
ar í sambandi við sprengiskutla og
það er ljóst að hrefnuveiðar verða
ekki hafnar á íslandi nema með
sprengiskutlum. Slíka skutla yrðum
við væntanlega að fá frá Noregi,"
sagði Kjartan Júlíusson, varaformað-
ur íslensku sendinefndarinnar í Þórs-
sínu.
höfn.
Við hrefnuveiðar Norðmanna í
sumar bar nokkuð á því að sprengi-
skutlarnir, sem eiga að drepa dýrin
nær samstundis, virkuðu ekki sem
skyldi.
Þegar Kjartan var spurður um
andstöðu Grænlendinga við að
NAMMCO fjallaði um hrefnu, sagði
hann ljóst, að þátttökuþjóð sem væri
innan Alþjóðahvalveiðiráðsins, hefði
vissar skuldbindingar gagnvart því.
Það væri hennar að meta á hvern
hútt hún gæti leyst þau vandamái
og til þess þyrfti sennilega lengri
tíma. Grænlendingar eru aðilar að
Alþjóðahvalveiðiráðinu gegnum Dani
og fá árlega veiðikvóta hjá ráðinu á
þeim forsendum að þar sé um frum-
byggjaveiðar að ræða. Kjartan sagð-
ist hins vegar vera mjög ánægður
með NAMMCO-fundinn. Hann væri
spor í rétta átt og haldið yrði áfram
að vinna að þessum málefnum.
Konráð Eggertsson, formaður Fé-
lags hrefnuveiðimanna, sem er í
sendinefnd íslands í Þórshöfn, sagði
við Morgunblaðið að unnið yrði að
því hörðum höndum að koma hrefnu-
stofninum á dagskrá NAMMCO.
Hann sagði einnig, að ef veiðar á
smáhvölum yrðu leyfðar innan
NAMMCO myndu íslenskir hrefnu-
veiðimenn fara fram á að fá úthlutað
veiðikvóta, a.m.k. þangað til hrefnu-
veiðikvótar fengjust.
Þegar Morgunblaðið spurði Kjart-,
an Hoydal, fiskimálastjóra Færeyja:
Slysatíðni barna
mest í september
Mikið um umferðarslys milli kl. 16 og 19 á daginn
UMFERÐARNEFND Reykjavíkur hefur sent frá sér fréttatilkynningu
þar sem vakin er athygli á því að umferðarslys á börnum séu hlut-
fallslega mörg á tímanum á milli klukkan 16 og 19 á daginn, ekki síst
í september.
og nýkjörinn forseta NAMMCO,
hvort hann teldi líklegt að á fundin-
um í janúar verði samþykkt að taka
hrefnu til meðferðar, sagðist hann
ekki telja að ráðið væri komið á það
stig. „Á fundinum í Nuuk I apríl
(þar sem stofnsamningur NAMMCO
var samþykktur), var ljóst að menn
gerðu ráð fyrir að NÁMMCO yrði
viðbót við Álþjóðahvalveiðiráðið og-
fjallaði um tegundir sem heyra ekki
undir það. Ég held að það ráðist af
gerðum Alþjóðahvalveiðiráðsins hve
hröð þróun NAMMCO verður. Ef
hvalveiðiráðið hættir að virka, eða
ef hægt er að sýna fram á með óyggj-
andi hætti að það valdi ekki hlut-
verki sínu, getur NAMMCO tekið við
því hlutverki. En ég held að þau ríki,
sem eiga aðild að hvalveiðiráðinu,
meti það svo að sú stund verði að
renna upp áður en NAMMCO geti
byrjað að fjalla um stærri hvalateg-
undir,“ sagði Hoydal.
í fréttatilkynningu frá Umferðar-
nefnd segir að nú sé hafinn hættu-
legasti tími ársins í uinferðinni. Sum-
arleyfum sé lokið og skólar að byija
að nýju og því sé full ástæða til að
brýna fyrir fólki aðgát og tillitsemi
í akstri. Einnig segir að börn séu
víða á ferli og að þau þurfi ásamt
foreldrum og ökumönnum að gæta
fyllstu varúðar.
Eins og fram kemur á meðfylgj-
andi línuriti eru flest slys á börnum
í Reykjavík í septembermánuði.
Fischer bjarg-
aði í horn
Skák
Margeir Pétursson
ÞAÐ LEIT lengi út fyrir að
Bobby Fischer myndi tapa
þriðju skákinni í röð í einvíg-
inu við Boris Spasski í Sveti
Stefan. Fischer tefldi enn
einu sinni ónákvæmt í mið-
taflinu og tapaði peði. Hann
barðist síðan eins og ljón á
meðan Spasskí slakaði nokk-
uð á klónni. Það var engin
einföld vinningsleið í stöð-
unni og þegar tímamörkun-
um var náð var jafnteflið
orðið í sjónmáli hjá Fischer.
Samið var eftir 61 leik. Stað-
an er því ennþá 2-1 fyrir
Spasskí.
Sjöunda skákin í einvíginu
verður tefld á laugardaginn.
Þá hefur Fischer hvítt. Opið hús
verður hjá Skáksambandi ís-
lands í Faxafeni 12 frá kl. 15.
Búast má við því að Fischer
sæki fast og reyni að jafna
metin. Fróðlegt verður að sjá
hvort hann verður jafnfastheld-
inn á byijanir og í fyrri skákum
einvígisins. Margir þakka ör-
uggan sigur hans í einvíginu
1972 því að honum tókst að
koma Spasskí á óvart með byij-
anavali sínu og sniðganga und-
irbúning hans.
Það vekur áthygli að í öllum
skákunum sem Spasskí hefur
teflt með hvítu hefur skipst upp
á drottningum strax í byijun.
Það er greinilegt að hann tekur
enga áhættu, en lætur Banda-
ríkjamanninn um að flækja
taflið.
6. einvígisskákin:
Hvítt: Boris Spasskí
Svart: Bobby Fischer
Móttekið drottningar-
bragð
I. d4 - d5 2. c4 - dxc4 3.
Rf3 - Rf6 4. e3 - e6 5. Bxc4
- c5 6. 0-0 - a6 7. dxc5 -
Dxdl 8. Hxdl - Bxc5 9. b3
- Rbd7 10. Bb2 - b5!?
í fjórðu skákinni lék Fischer
10. - b6 sem er varkárara
framhald. Fékk þá ágæta stöðu
áður en hann fór að leika af sér.
II. Be2 - Bb7 12. Rbd2 -
Ke7 13. a4!
Spásskí sýnir strax fram á
galla þess fyrir svart að hafa
peðið á b5 í staðinn fyrir b6.
Eftir uppskiptin á peðum verð-
ur svarti fótgönguliðinn á a6
ákjósánlegt skotmark. Það er
einnig slæmur kostur fyrir
svart að leika nú 13. — b4 og
gefa eftir c4-reitinn.
13. - bxa4 14. Hxa4 - Hhb8?!
Fischer leggur út í ranga
áætlun rneð þessum klunnalega
leik. Hann vonast greinilega
eftir því að þrýstingur hans
gegn peðinu á b3 vegi upp á
móti veikleika hans sjálfs á a6,
en það er rangt mat.
15. Hcl - Bd5? 16. Re5! -
Bd6
16. - Bxb3? gekk ekki vegna
17. Rc6+ - Kf8 (Síður 17. -
Kd6? 18. Rxb8 — Bxa4 19.
Rxd7 - Rxd7 20. Re4+ og
svartur tapar manni.) 18. Ha5
og svartur tapar tveimur mönn-
um fyrir hrók eða skiptamun.
Fischer verður því að láta peð
af hendi. Að vísu munar mjóu
að hann nái hvíta peðinu á b3
í næstu leikjum, en Spasskí
tekst að valda það.
16. - a5 tapar einnig peði
vegna 17. Rxd7 - Rxd7 18.
Bxg7 því 18. - Hg8 má svara
með 19. Hg4.
17. Rxd7 - Rxd7 18. Hxa6 -
Hxa6 19. Bxa6 - f6 20. Bc4
- Bxc4 21. Hxc4 - Rc5 22.
Hc3 - f5
Það er orðið ljóst að Fischer
verður að veijast með peði
minna í erfíðu endatafli. 22. -
Ra4 væri einfaldlega svarað
með 23. Hc2 og svartur hefur
ekki snefil af mótspili. Nú tekur
Spasskí af skarið og þvingar
fram einföldun taflsins.
23. Ba3 - Re4 24. Hc7+ -
Kd8 25. Bxd6 - Rxd2 26.
Hxg7 - Hxb3 27. h4 - h5
Spasskí hefur haldið um-
frampeðinu og á vinningsstöðu,
því peðastaða hans er að auki
mun traustari. Eðlilegasti leik-
urinn, 28. Hh7, er nú sá besti,
svartur virðist ekki eiga neitt
betra en 28. - Re4 29. Be7+
- Ke8 30. f3 - Rg3 (Eða 30.
- Rc3 31. Bg5 - Rd5 32. e4
og hvítur vinnur.) 31. Bd6 -
Hbl+ 32. Kf2 - Rhl+ 33. Ke2
- Hb2+ 34. Kd3 - Hxg2 35.
Hxh5 með sigurvænlégri stöðu.
Næstu tveir leikir Spasskís
tapa báðir tíma og Fischer gefst
færi á að lagfæra stöðuna.
Taflmennska Spasskís fram að
tímamörkunum er síðan ekki
sannfærandi. Hann leggur aldr-
ei til atlögu við h-peð svarts
og nær engum árangri.
28. Bf4?! - Ke8 29. Kh2?
Aftur var 29. Hh7! sterkt.
29. - Hb2! 30. Kh3 - Re4 31.
f3 - Rf2 32. Kg3 - Rd3 33.
Bg5 - e5 34. Kh3 - Rf2+ 35.
Kh2 - Rd3 36. Bh6 - Rel
37. Kgl - Rd3 38. Bg5 -
Hbl+ 39. Kh2 - Hb2 40.
He7+ - Kf8
Frá því í 27. leik hefur Fisc-
her náð að bæta stöðuna ótrú-
lega mikið og þótt enn sé á
brattann að sækja er jafnteflið
orðið í sjónmáli. Hrókur og
riddari hans ná saman að
pijóna upp nægjanlegt mótspil.
41. He6 - Kg7 42. Kh3 -
He2 43. Hd6 - Rel 44. Bf6+
- Kg8 45. Bxe5 - Hxe3 46.
Bf4 - He2 47. Hg6+ - Kf7
48. Hg5 - Ke6
Spasskí gebtTí- ekki bætt
þessa stöðu meira. Hann verður
fyrr eða síðar að drepa á h5
og gefa g2-peð sitt. Þá nær
svartur jafntefli með eitt peð á
móti tveimur á sama væng.
49. Bc7 - Ha2 50. Bb6 - Rd3
51. Kh2 - Rel 52. Kh3 - Rd3
53. Bc7 - Hc2 54. Bb6 - Ha2
55. Kg3 - Rel 56. Hxh5 -
Hxg2+ 57. Kf4 - Rd3+ 58.
Ke3 - Re5 59. Hh6+ - Kd5
60. Bc7 - Hg7 61. Bxe5 -
Kxe5
og samið jafntefli eftir sjö
klukkustunda samfellda tafl-
mennsku.