Morgunblaðið - 11.09.1992, Side 40

Morgunblaðið - 11.09.1992, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992 ... stundum æðiþung. TM Reg. U.S Pat Off.—all rights reserved ® 1992 Los Angeles Times Syndicate ... en segðu mér hver er út- Hvernig við komumst? Auðvit- koman í heimadæminu um að um gatið í ósonlaginu ... mennina átta sem grófu 50 sentímetra? BREF TEL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Bílstjórar eru stund- umhjól- reiðamenn Frá Óskari Dýrmundi Ólafssyni: Reiðhjólið er fullkomnasta farar- tæki sem fundið hefur verið upp sagði rithöfundurinn George Orwell eitt sinn og er eflaust hægt að leiða gild rök að því. Það er fyrirferðarlít- ið, mengar ekki, styrkir heilsu not- andans og hefur verið notað af stór- um hluta mannkyns í meira en 150 ár. í 100 ár ... Á íslandi hefur verið hjólað í meira en 100 ár eða allt frá því að fyrrum borgarstjóri, Knud Zimsen, sást hér á götum Reykjavíkur á hjólhesti sín- um árið 1890. Síðan þá hefur notkun- in aukist jafnt og þétt, jafnt af böm- um sem fullorðnum. Samkvæmt inn- flutningstölum þá hafa hjólreiðar aukist hlutfallslega miðað við mann- fjölda og varð nokkurs konar spreng- ing upp úr byrjun níunda áratugar- ins. Innflutningur margfaldaðist og með þessari auknu notkun er brotið blað í sögu hjólreiða á íslandi. Yfir 120.000 reiðhjól hafa verið flutt inn síðan 1979. Áberandi er hlutur fjalla- hjólsins. En það hentar einkar vel við okkar séríslensku borgaraðstæð- ur; háar gangstéttarbrúnir, vöntun á hjólabrautum og gangstígum. Sífelld aukning á hjólreiðum á íslandi og þá sérstaklega innan höfuðborgar- innar hlýtur að vekja athygli okkar á einu lífsnauðsynlegu máli, en það em öryggismál hjólreiðamanna. Hvað er gert til að vemda hjólreiða- menn gegn hættulegri bílaumferð? Hvemig eru bílstjórar uppfræddir um eðli reiðhjólsins í umferðinni og síð- ast en ekki síst, hvemig fræðslu fá hjólreiðamenn sjálfir um það hvernig þeir eigi að haga sér í samskiptum við bílana? Þetta em allt spurningar sem við verðum að velta fyrir okkur og reyna að fá svör við. Lífið liggur við! Eins og gangandi vegfarendur þá em þeir sem hjóla algjörlega ber- skjaldaðir gegn þungum málmlíköm- um bílanna sem ná oft margföldum hraða hjólsins. Víðast hvar erlendis er umferð hjólandi og akandi aðskil- in. Ábyrgir stjórnmálamenn og skipulagsyfirvöld í þeim löndum hafa látið búa til á myndarlegan hátt sér- stakt net hjólabrauta sem liggja þá oftast nær við hlið akbrautar, að- greint með einfaldri málaðri línu. Hér er því ekki að heilsa þannig að annarra úrræða verður að leita. Fáf- amar götur og göngustígar, sem því miður em oft gallaðir fyrir hjólreiða- menn og svo almennar umferðaræð- ar eru valkostimir. Þeir sem velja akvegina era skilj- anlega í mun meiri hættu en þeir sem velja gangstígana, en þeir sem nota hjólið sem reglulegt,samgöngutæki þreytast ákaflega fljótt á háum gangstéttarbrúnum, gangandi fólki og mun lengri vegalengdum vegna skipulagningar stíganna. Því verður það oft úr að hjálmurinn er reyrður fastar á og út í umferðina er haldið. Þar mætir hjólreiðamanninum mikill hraði, mikil umferð og lítil stefnu- ljósanotkun, alltof lítil. Samkvæmt reynslu undirritaðs þá myndu nokkur einföld atriði létta hjólreiðamönnum lífíð stórlega og em eftirtalin heil- ræði ætluð bílstjórum: — Hægið ferðina þegar þið sjáið hjólreiðamann. — Akið ekki nálægt honum, gefið svigrúm. — Gerið ráð fyrir því að hjólreiða- maðurinn geti verið á miklum hraða. — Notið stefnuljósin þegarþið breyt- ið um stefnu. — Algengustu slys hjólandi og ak- andi em þegar bíllinn „svínar" fyrir. — Munið að það er lifandi og ber- skjaldað fólk á reiðhjólunum. Þú sem hjólreiðamaður Hafa ekki flestir hjólað? Mjög margir að minnsta kosti og það eru mjög margir sem hjóla í dag jafn- framt því að vera stundum bílstjór- ar. Þar sem það er verið að leggja bílstjórum reglurnar í þessum stutta pistli þá er ekki úr vegi að minna hjólreiðamenn á að: nota hjálm, fara eftir umferðarreglum, gefa stefnu- breytingar greinilega til kynna með höndum og svo auðvitað að sýna til- litssemi í umferðinni. Hvort sem þú ert bílstjóri eða hjól- reiðamaður þá verðum við öll að sýna hvort öðm mikla tillitssemi, okkur liggur ekki svo mikið á. Hjólið er komið til að vera á íslandi eins og Knud Zimsen sannaði á sínum tíma. Þetta sígiida farartæki er líka orðið heilsársfarartæki eftir að fjallahjólin komu til. Við verðum að gera ráð fyrir hjólaumferð og við verðum að gera hvort öðm kleyft að velja okkar eigin farkost án þess að öryggi okk- ar sé í stórhættu. Mundu bara að þótt þú hjólir ekki í dag þinna leiða, þá gerir þú það kannski á morgun. ÓSKAR DÝRMUNDUR ÓLAFS- SON meðlimur í samstarfshópi um auk- ið öryggi hjólreiðamanna HÖGNI HREKKVÍSI DEGI HVEBJU/M / " Víkverji skrifar Sá sem hér er Víkveiji dvaldi í Englandi fyrir nokkru. Þá sótti hann veðreiðar í Newmarket og var það í fyrsta skipti, sem Víkveiji sótti slíka keppni. Til þess að komast undir skyggni til að bráðna ekki í hitanum gerðist Víkveiji félagi í kappreiðaklúbbi Newmarket í einn dag. Kostaði það auðvitað aukaskild- inginn og einnig varð Víkveiji að kaupa bindi með merki klúbbsins, því hann var ekki með bindi, en bind- islaus fær enginn félagi að vera á kappreiðunum. (Hitt er svo aftur, að engar athugasemdir vom gerðar við það þótt Víkveiji væri á sandöl- um, í trimmbuxum og stutterma bol. Var hann því, þegar bindið hafði bætzt á hann, að vonum með virðu- legri félögum þessa merka klúbbs þann daginn!) En það voru veðreiðarnar, sem áttu hug Víkverja. Þarna var mikið spáð og spekúlerað og var mögnuð skemmtun að fylgjast með því öllu saman. Og svo auðvitað veðmálun- um. Rafmögnuð spenna lagðist yfír, þegar hlaupin hófust og hún óx alla leiðina í mark, þar sem hún braust út í sigurhrósi eða féll niður í rifinni kvittun og hvarf með glötuðu veðfé. Víkveiji tók auðvitað þátt í þessu öllu, en fór flatt á því að veðja frem- ur á hrossin eftir nöfnum þeirra en framgöngu knapa og hests. Þannig tapaðist fé, þegar veðjað var á sigur Irsku daggarinnar, þegar allar upp- lýsingar bentu til þess að hryssa þessi yrði aftarlega á merinni í hlaupinu. Hún varð svo næstsíðust! Ferðafélagi Víkveija tók hins vegar mark á öðrum staðreyndum, valdi sér sigurstranglegan knapa til að veðja á og vann tvisvar. XXX En mitt í allri þessari skemmtan varð Víkveija hugsað heim í Víðidalinn. Kappreiðar eru á stöðugu undanhaldi á Islandi og em nú varla svipur hjá sjón miðað við það sem var, þegar Víkveiji fékk áhuga á hestamennsku fyrir ekki svo mörg- um áram, hvað þá ef borið er saman við fyrri tíma. Skeiðsprettirnir virð- ast vera það eina sem enn fær fólk til að horfa á kappreiðar, en meira að segja skeiðmetin eru komin til ára sinna. Og nú höfum við misst heimsmetið í 150 metra skeiði í hendur útlendinga. Stundum hefur það komið upp í máli manna, að veðmál gætu orðið til þess að kappreiðar gengju í end- urnýjun lífdaganna. Eftir daginn í Newmarket er Víkveiji á því að það myndi verða til þess að menn gæfu kappreiðunum meiri gaum að taka aftur upp veðmál um úrslit kappreið- anna. xxx Reyndar veltir Víkveiji því fyrir sér, hvort hægt sé að stunda veðmál um úrslitin í fleiri greinum hestaíþrótta, jafnvel svo að mönnum gefist kostur á að veðja á hesta og knapa í öllum greinum móts. En af öllum greinum hestaíþrótt- anna þurfa kappreiðarnar mest end- urnýjunar við. Nú er hlé til næsta árs. Víkveiji vonar að framtakssam- ir hestamenn noti þetta hlé til að þrautkanna hugmyndina og svo verði henni hrint í framkvæmd á næsta keppnistímabili. Víkveiji er þess albúinn að veðja á hestinn Rífandi gang, jafnvel þótt knapinn sé annar en Sigurbjörn Bárðarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.