Morgunblaðið - 18.09.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992
Fómarlambið hf. úrskurðað gjaldþrota
Vanskil skatta
talin 320 millj.
FÓRNARLAMBIÐ hf., áður Hagvirki hf., var tekið til gjaldþrotaskipta
í gær með úrskurði héraðsdóms Reykjaness að loknum málflutningi
fyrir dóminum um gjaldþrotakröfu sýslumannsembættisins í Hafnar-
firði fyrir hönd ríkissjóðs. Sýslumaðurinn í Hafnarfirði hefur til inn-
heimtu kröfu vegna 320 milljóna króna vanskila fyrirtækisins á skött-
um, þar á meðal er 27,5 milljóna króna staðgreiðslufé vegna tímabils-
ins janúar-júlí á þessu ári. Um 130 milljónir af kröfum ríkissjóðs eru
vegna dráttarvaxta.
Að sögn Árna Grétars Finnssonar
hrl., lögmanns fyrirtækisins, hefur
ekki verið ákveðið hvort úrskurðin-
um verður skotið til Hæstaréttar.
Slík kæra mundi þó ekki fresta gjald-
þrotinu. Skiptastjóri þrotabúsins
hefur verið ráðinn Ragnar H. Hall
hæstaréttarlögmaður.
í úrskurði Gunnars Aðalsteinsson-
ar héraðsdómara kemur fram að
fyrir hönd Fórnarlambsins var þess
krafist að gjaldþrotakröfu sýslu-
manns yrði hrundið gegn því að
hann fengi tryggingu á hendur fyrir-
tækinu í kröfu þess á hendur ríkis-
sjóði vegna annað hvort uppgjörs á
vinnu við Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar, framkvæmdir í Helguvík eða
hvorri tveggja kröfunni.
Við þingfestingu gjaldþrotamáls-
ins setti Fómarlambið fram kröfu
um að kröfum fyrirtæksins gegn rík-
issjóði upp á samtals um 536 milljón-
ir króna vegna uppgjörs vegna Leifs-
stöðvar, Helguvíkur og endur-
greiðslu á söluskatti yrði skuldajafn-
að við kröfu ríkissjóðs. Fyrirtækið
rekur — eða hefur ákveðið að höfða
— dómsmál gegn ríkissjóði vegna
þessara uppgjöra. Sýsiumaðurinn
mótmælti kröfunum þar sem þær
væru seint fram komnar og órök-
studdar enda ættu þær sér enga
stoð. í niðurstöðum dómarans er
fallist á gjaldþrotakröfuna enda telj-
ist hún fullnægja þeim skilyrðum
sem sett séu í gjaldþrotalögum; fyr-
ir liggi árangurslaus aðfarargerð;
ekki hafi verið boðnar fram trygg-
ingar og ekki hafi því verið mót-
mælt að skattakröfur sem séu í van-
skilum hafi verið álagðar með réttum
hætti af til þess bærum yfirvöldum.
Breyttur vsk ræddur í borgarstjórn
---7------
Ráðstafanir ríkis-
stjómarinnar harð-
lega gagnrýndar
ÁFORM ríkisstjómar um afnám endurgreiðslu vsk. á þjónustuliðum
borgarinnar, svo sem sorphreinsun, ræstingu, snjómokstri, og þjón-
ustu sérfræðinga, og fyrirætlanir um að hætta að endurgreiða inn-
skatt, voru gagnrýnd harkalega á fundi borgarsljómar í gær. Tillögu
Sigrúnar Magnúsdóttur um mótmæli var vísað til borgarráðs.
Sigrún sagði að sú ákvörðun ríkis- sveitarfélaga skyldi háttað.
stjómarinnar að hætta að endur-
greiða innskatt myndi leiða til stór-
hækkunar á hitunarkostnaði í borg-
inni og væri hér um að ræða
500-600 milljóna króna viðbótar-
skattlagningu á borgarbúa. Hún
sagði hart að ríkisstjóm undir for-
sæti sveitarstjómarmanns skyldi
koma með svo íþyngjandi tillögur
fram á sveitarfélög í landinu en hún
sagðist telja að tillögumar myndu
kosta 24 þúsund krónur á ári fyrir
íjögurra manna fjölskyldu.
Markús Öm Ántonsson borgar-
stjóri sagði þá framkomu sem ríkis-
stjómin hefði sýnt sveitarfélögum
óþolandi. Hann sagði það engin
vinnubrögð gagnvart sveitarfélögun-
um að seilast í sjóði þeirra til að ná
saman fjárlögum ríkisins og ganga
þvert á þær grundvallarreglur sem
menn hefðu mótað með sér og festar
hefðu verið í lög um hvemig verka-
skiptingu og tekjustofnum ríkis og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði að
sveitarstjómarmenn gætu ekki sætt
sig við þessi vinnubrögð og þessu
yrði mótmælt. Hann sagði að alvar-
leg staða væri komin upp í samskipt-
um ríkis og sveitarfélaga ef sveitar-
stjómarmenn gætu ekki lengur
treyst samningum sem þeir gerðu
við ríkisvaldið. Þessar aðgerðir væru
ívið verri en lögguskatturinn sem
lagður var á fyrir ári þar sem sveitar-
stjómarmenn hefðu mátt ætla að
hahn stæði bara í eitt ár. Hann sagði
að ríkisstjómin væri með þessum
aðgerðum að stofna í hættu sam-
vinnu sveitarfélaga og ríkisins meðal
annars á sviði sameiningar sveitarfé-
laga. Vilhjálmur lagði til að tillög-
unni yrði vísað til borgarráðs þar sem
hægt yrði að samþykkja tillögu sem
borgarfulltrúar gætu allir staðið að
um málið eftir að hafa kynnt sér það
til hlítar.
í dag
EES ekki lokaáfanginn__________
EES verður ekki síðasti Evrópuá-
fangi íslendinga, segir Teger
Seidenfaden, forstjóri TV2 í Dan-
mörku 12-13
Skákáhugi tekur kipp___________
Einvígi Fischers og Spasskís veld-
ur því að vetrarstarf skákmanna
byrjar með hvelli 32
Valur hársbreidd frá sigri Fasteignir
Valur og Boavista gerðu jafntefli
á Laugardalsvelli 47
Leiðari _______________________
Lítil samkeppni - hátt verðlag 24
Þátttakendur á Ólympíumóti fatlaðra komnir frá Barcelona
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Ólympíufaramir ásamt Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra.
Fengu innilegar móttök-
ur við komuna til landsins
Keflavík.
ÍSLENSKU ólympíufararnir sem stóðu sig svo
vel á Ólympíumóti fatlaðra í Barcelona fengu
innilegar móttökur þegar þeir komu til landsins
í gær. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, Davíð Oddsson forsætisráðherra og Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráðherra voru á meðal
fjölmargra sem tóku á móti ólympíuförunum í
Leifsstöð i gær við stutta móttökuathöfn.
Hlý orð voru höfð um frammistöðu íþróttamann-
anna og trúlega yrði afrek þeirra seint jafnað eða
slegið. Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri
íþróttasambands fatlaðra og aðalfararstjóri hópsins,
þakkaði hlýjar og góðar móttökur. Hann sagði að
vissulega væri árangurinn góður, en á móti sem
þessu skipti þó mestu máli að vera með.
Alls hlutu íslensku keppendurnir 17 verðlaunapen-
inga, þtjú gull, tvö silfur og tólf brons. Að Ólympíu-
mótinu loknu eiga íslensku keppendurnir nú þijú
heimsmet og þijú ólympíumet auk þ_ess sem þeir
settu 34 ný íslandsmet í Barcelona. í stigakeppn-
inni hafnaði ísland í 23. sæti af 55 löndum sem
unnu til verðlauna en alls voru þátttakendur frá 84
þjóðlöndum.
-BB
Fjármagnstekjur gætu skert elli- og örorkulífeyri
Iimlánsstofnanir séu
upplýsingaskyldar
í DRÖGUM að fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir að fjármagnstekj-
ur, sem ekki eru skattskyldar, skerði elli- og örorkulíféyri almanna-
trygginga. Svo það sé framkvæmanlegt verður að leggja upplýsinga-
skyldu á herðar innlánsstofnana og fjármálafyrirtælýa. Ekki liggur
fyrir ákvörðun um þetta mál í stjórnarflokkunum en nokkur andstaða
mun vera við það innan þeirra, einkum þó Sjálfstæðisflokks.
Nú tengjast lífeyrisgreiðslur al- Til er lagafrumvarp um skattlagn-
mannatrygginga launatekjum og ingu eigna og eignaskatta þar sem
skattskyldum eignatekjum, svo sem
húsaleigu, á þann hátt að bæturnar
byija að skerðast við ákveðið tekju-
mark. Hins vegar skerða aðrar
eignatekjur sem ekki eru skattskyld-
ar, svo sem vaxtatekjur, ekki lífeyr-
inn. Nú er fyrirhugað að tengja líf-
eyrisbætumar við heildartekjur
bótaþega.
m.a. er gert ráð fyrir að skattleggja
fjármagnstekjur, en ekki er gert ráð
fyrir að það frumvarp taki gildi sam-
hliða fjárlagafrumvarpinu. Indriði
H. Þorláksson, skrifstofustjóri fjár-
málaráðuneytisins, sagði við Morg-
unblaðið að heildartekjutenging líf-
eyrisgreiðslna væri ekki háð því að-
tekinn verði upp fjármagnstekju-
skattur. Hins vegar væri hún háð
því að komið verði jipp virkri fram-
talsskyldu eigna og eignatekna,
þ.e.a.s. að greiðendur slíkra tekna,
innlánsstofnanir og fjármálastofn-
anir, verði gerðir upplýsingaskyldir
gagnvart skattyfirvöldum með hlið-
stæðum reglum og nú gilda um aðr-
ar stofnanir, fyrirtæki, félög og ein-
staklinga.
Indriði sagði aðspurður að í eigna-
tekjutengingu við lífeyrisgreiðslur
yrðu vaxtatekjur væntanlega miðað-
ar við raunvexti, þ.e. vexti umfram
verðbólgu, eins og gert er í frum-
varpinu um skattlagningu eigna og
eignatekna.
Daglegt líf
► Engar verðhækkanir. Góð
eftirspum eftir stærri eignum -
Innanstokks og utan - Lagna-
fréttír - Svæðisbundinn arkitekt-
úr - Offramboð á herbergjum.
► Fjármál heimilisins - Af síma-
dónum - Ferðamál í Afríku -
Kúveitar biðja fyrir Bush - Flug-
bangsar -Fom Willys-jeppi - við-
gerðarþáttur
SIS eykur hlutafé í Mikla-
garði um 439 milljónir
Á stjórnarfundi Sambands íslenskra samvinnufélaga í gær var
ákveðið að auka hlutafé Sambandsins í Miklagarði hf. um 439
milljónir.
Alls er fyrirhugað að auka
hlutafé Miklagarðs um 600 millj-
ónir króna. Sambandið mun leggja
fram 439 milljónir króna. Þar af
verður skuld Miklagarðs við Sam-
bandið, sem nemur um 260 millj-
ónum, breytt í hlutafé en afgang-
urinn verður fjármagnaður með
sölu eigna. Sigurður Markússon,
stjórnarformaður Sambandsins,
sagði að með þessu væri undir-
strikað að Sambandið ætlaði ekki
að taka lán til að standa undir
hlutafjáraukningunni eins og það
hefði stundum gert áður.
Því sem á vantar á 600 milljón-
imar á að safna hjá kaupfélögum
og öðrum fyrirtækjum tengdum
Sambandinu. „Ég held að þetta
hljóti að tryggja framtíð Mikla-
garðs, því þarna er um að ræða
mjög stóra fjárhæð," sagði Sigurð-
ur Markússon.
Sambandið á 94% hlutafjár í
Miklagarði hf. og er er nafnverð
þess eignarhluta 506 milljónir
króna en bókfært verð er 0 krónur.