Morgunblaðið - 18.09.1992, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992
Áform um að breikka skattstofn fyrirtækja og lækka tekjuskatt
Frádráttur vegna arð-
greiðslna úr 15% í 10%
ÁFORMAÐ er í frumvarpi til fjárlaga 1993 að afnema heimild
fyrirtækja til að leggja hlutaaf hagnaði fyrir skatta í fjárfestingar-
sjóði. Áætlað er að þetta skili rikissjóði 200-250 milljónir króna.
Þá er heimild til skattafrádráttar fyrirtækja vegna arðgreiðslna
lækkuð úr 15% í 10% og heimildir til að færa risnu sem rekstrar-
kostnað minkaðar.
Að sögn Steingríms Ara Ara-
sonar, aðstoðarmanns fjármála-
ráðherra, er einnig fyrirhugað að
þeir bílar sem skráðir eru í eigu
fyrirtækja og þau fá endurgreidd-
an virðisaukaskatt af fái sérstakar
númeraplötur í öðrum lit en al-
mennu númeraplötumar. Er til-
gangurinn sá að koma í veg fyrir
að slíkir bílar séu hafðir til einka-
nota og þannig verði bæði dregið
úr endurgreiðslu á virðisauka-
skatti og aukið við tekjuskatt þar
sem möguleikar á að færa kostnað
vegna bfla á rekstur fyrirtækja.
Er talið að þetta skili ríkissjóði
um 50 milljónum króna í auknum
tekjum.
Steingrímur sagði í kjölfar
þessa yrði haft eftirlit með að bfl-
amir væra ekki misnotaðir en
fyrst og fremst yrði treyst á að
merkingarnar einar og sér veittu
aðhald.
Þá er fyrirhugað að afnema
heimild fyrirtækja til að leggja
hluta hagnaðar fyrir skatta í fjár-
festingarsjóð. Samkvæmt núgild-
andi skattalögum er fyrirtækjum
heimilt að leggja 10% af hagnaði
fyrir skatta í fjárfestingarsjóð og
hefur það hlutfall farið lækkandi
á undanfömum áram. Á þetta að
skila ríkissjóði 200-250 milljónum
króna. Einnig er áformað að
minnka heimild til skattafrádrátt-
ar vegna arðgreiðslna úr 15% í
10%. Er talið að það auki tekjur
ríkissjóðs um 50-100 milljónir
króna.
Loks er áformað að herða regl-
ur um gjaldfærslu risnu í rekstrar-
kostnaði fyrirtækja. Steingrímur
Ari sagði að ekki lægi fyrir í smá-
atriðum hvemig þær reglur verða,
og ekki hefur verið áætlað hvað
tekjur ríkisins gætu aukist mikið
vegna þess.
VEÐUR
VEÐURHORFURIOAG, 18.SEPTEMBER:
YFIRUT: Um 500 km suðvestur af Reykjanesi er 977 mb iægð sem
hreyfist vestur og síðar suður en 1.025 mb hæð yfir Norður-Grænlandi.
SPA: Suðaustankaldi eða stinningskaldi með skúrum sunnanlands og
vestan en nokkuð björtu veðri norðanlands fram eftir degi, síðan vax-
andi austanátt og rigning um sunnanvert landið en þykknar smám sam-
an upp um landið norðanvért. Hiti 9-15 stig, hlýjast norðanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Austan- og suðaustanátt á landinu, víða
nokkuð hvasst. Skúrir sunnanlands, rigning norðanlands í fyrstu, en létt-
ir svo til. Hiti á bilinu 6-14 stig, hlýjast norðanlands og vestan.
HORFUR Á SUNNUDAG: Áframhaldandi suðaustlæg átt, fremur hæg í
fyrstu en vaxandi er líður á daginn. Skúrir við suður- og suðausturströnd-
ina, en þurrt og víða bjart veður norðan- og vestanlands. Hiti 5-12 stig.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 890600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
v ^ ý
Skúrir Slydduél
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig..
10° Hitastig
v Súld J
= Þoka ^
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 8 alskýjað
Reykjavík 11 rigning
Bergen 12 skýjað
Helsinkl 12 rigning
Kaupmannahðfn 16 léttskýjað
Naresarssuaq 10 hátfskýjað
Nuuk 1 vantar
Ósló 16 léttskýjað
Stokkhólmur 12 skýjað
Pórshöfn 8 rigning
Algarve 26 mistur
Amsterdam 17 skýjað
Barceiona 26 þokumoða
Berlín vantar
Chlcago 20 skýjað
Feneyjar 25 þokumóða
Frankfurt 19 heiðskírt
Glasgow 14 mistur
Hamborg 16 hálfskýjað
London 21 mistur
LosAngeles 18 léttskýjað
Lúxemborg 20 léttskýjað
Madríd 31 heiðskirt
Malaga 26 mistur
Mallorca 27 léttskýjað
Montreal 21 mistur
NewYork 21 mistur
Orlando 24 léttskýjað
Parls 25 léttskýjað
Madelra 23 skýjað
Róm vantar
Vín 20 léttskýjað
Washington 19 þokumóða
Winnipeg 5 alskýjað
Mikið framboð af fólki tii vinnu
Selfossi.
SLÁTRUN hófst á Suðurlandi í gær. Gert er ráð fyrir að slátrað
verði að minnsta kosti 125 þúsund fjár á þessari sláturtíð í fimm
sláturhúsum. 265 manns hafa verið ráðnir til sláturhúsanna á Suður-
landi vegna sláturtíðarinnar.
Að sögn forsvarsmanna slátur-
húsanna gekk mjög vel að fá fólk
til starfa og færri fengu en vildu.
Sláturhús Sláturfélags Suðurlands
er með stærstan hlut í sauðfjár-
slátruninni. Þar gerðu menn ráð
fyrir að slátra rífiega 50 þúsund
ijár. Féð kemur að hluta úr Kjósar-
sýslu og síðan ur Ámes- og Rang-
árvallasýslu. Hjá SS voru 90 manns
ráðnir til starfa. Þetta starfsfólk
kemur af öllu Suðurlandi og for-
svarsmenn sláturhússins höfðu úr
nægum mannskap að velja.
Hjá Höfn-Þríhymingi er slátrað
í tveimur sláturhúsum, á Selfossi
og í Þykkvabæ. Á Selfossi er gert
ráð fyrir að slátra 15 þúsund fjár
og ríflega 20 þúsundum í
Þykkvabæ. Á Selfossi voru 35
ráðnir vegna sláturtíðarinnar og
40 í Þykkvabæ. Til Hafnar-Þrí-
hymings kemur fé til slátrunar úr
Ámessýslu, af Reykjanesi og úr
Kjósarsýslu. Féð sem slátrað er í
Þykkvabæ kemur úr Rangárvalla-
sýslu.
Hjá Sláturhúsi SS í Vík í Mýrdal
er áformað að slátra um 20 þúsund
fjár og þar hafa um 50 manns
verið ráðnir til að vinna verkið.
Svipuðum fjölda verður slátrað í
sláturhúsi félagsins á Kirkjubæjar-
klaustri, eða um 18 þúsund fjár.
Enn sem fyrr er hressileikinn
ráðandi í sláturtíðinni og fólkið
keppist við vinnuna enda er gang-
urinn góður og afköstin eftir því.
Sig. Jóns.
Felix verðlaunin
Unnið af kappi við slátrun í Sláturhúsi SS á Selfossi.
Um 125 þúsund fjár
slátrað á Suðurlandi
Tvær myndir valdar
FRAMLAG íslands til evrópsku Felix-verðlaunanna verður í ár leikna
kvikmyndin Svo á jörðu sem á himni eftir Kristínu Jóhannesdóttur og
heimildarmyndin Verstöðin ísland - Ár í útgerð eftir Erlend Sveinsson.
Að mati dómnefndar, sem skipuð
var af samtökum kvikmyndagerðar-
manna og í sátu Ari Kristinsson,
Edda Þórarinsdóttir, Valdimar Leifs-
son, Viðar Víkingsson og Þorgeir
Gunnarsson, er Svo á jörðu sem á
himni áhrifamikið verk sem fléttar
saman séríslenskum efnivið og evr-
ópskri sammannlegri skírskotun.
Auk þess státi myndin af leiktúlkun,
kvikmyndatöku og tónlist, sem lík-
legt megi teljast að hljóti tilnefningar
til Felix-verðlauna. '
Heimildarmyndin Verstöðin ísland
- Ár í útgerð - dregur saman mikinn
fróðleik um líf í útgerðarbæ og lýsir
því á metnaðarfullan og hnitmiðaðan
hátt, segir í áliti dómnefndar.
Hilmar Örn Hilmarsson hlaut Fel-
ix-verðlaunin fyrir tónlistina í Böm-
um náttúrunnar árið 1991. Sigríður
SVR
11.000 græn
kort seld
STRÆTISVAGNAR Reykjavíkur
hafa selt 11.000 græn afsláttar-
kort á þeim mánuði, sem þau hafa
verið seld. Sveinn Andri Sveins-
son, stjórnarformaður SVR, segir
söluna framar björtustu vonum,
gert hafi verið ráð fyrir sölu
5-6.000 korta.
„Það var langtímamarkmið að
selja 10.000 kort á mánuði,“ sagði
Sveinn Andri við Morgunblaðið.
Grænu kortin, sem gilda í mánuð,
hafa verið á 2.000 kr. tilboðsverði
en hækka nú í 2.900 kr. Að sögn
Sveins Andra hafa SVR átt viðræður
við Félagsstofnun stúdenta og ýmsa
framhaldsskóla um afsláttarverð.
Hagalín hlaut tilnefningu fyrir leik
sinn í þeirri mynd eins og Helgi
SKúlason og Tinna Gunnlaugsdóttir
í myndinni I skugga hrafnsins árið
1988. Kvikmyndin Magnús eftir Þrá-
in Bertelsson hlaut árið 1989 tilnefn-
ingar sem besta evrópska kvikmynd-
in sem og fyrir besta handritið.
Afhending verðlaunanna fer fram
í desember í Berlín.
„Vann“ 580 millj.
Er brella
og vitleysa
ÍSLENSK stúlka sem keypti
lottómiða í Bandaríkjunum í
sumar fékk sent bréf frá
lóttóinu um að hún hefði unu-
ið 10 millj. dollara eða 580
millj. kr. á miðann. Jafnframt
var sagt að hún yrði að senda
lóttóinu miðann fyrir 7. ágúst
til að fá vinninginn. „Ég er á
þeirri skoðun að þetta hafi
verið auglýsingabrella og vit-
leysa,“ sagði hún við Morgun-
blaðið.
Stúlkan fékk lögfræðing í
New York til að kanna málið
og segir hann búinn að gefa upp
von um að hún fái krónu út úr
þessu. Af smáa letrinu megi
skilja að miðinn gefí henni að-
eins kost á að vera áfram með
í potti um þennan vinning. „Ég
er búin að afskrifa þennan vinn-
ing,“ segir stúlkan. „En ég eign-
aðist allt í einu fjöldann af vin-
um og kunningjum sem ég vissi
vart að ég hefði þekkt áður.“