Morgunblaðið - 18.09.1992, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992
Róið og gert út á sömu
mið - sjóndeildarhringinn
eftir Skúla
Alexandersson
í Morgunblaðinu 10. júní sl. birt-
ist grein undir nafninu „Að gera út
á sjóndeildarhringinn" eftir prófess-
or við Verslunarháskóla Noregs í
Björgvin, Rögnvald Hannesson, og
í Morgunblaðinu 17. júní kom svo
önnur grein, sú hét „Róið á sömu
mið“ og var höfundur hennar pró-
fessor í fiskihagfræði við viðskipta-
og hagfræðideild Háskóla íslands,
Ragnar Árnason.
Báðar voru greinarnar tilskrif til
Kristins Péturssonar á Bakkafirði
út af grein hans í Morgunblaðinu
23. apríl sl. Ég ætla ekki að blanda
mér í deilur þessara greinarhöfunda
við Kristinn Pétursson. Greinar og
kenningar Kristins um ýmis málefni
nú undanfarið hafa vakið mikla eft-
irtekt. Þær hafa komið af stað nauð-
synlegri umræðu um stjórn fisk-
veiða. Slik umræða virðist þó ekki
falla öllum jafn vel.
Það voru tvö atriði úr greinum
þeirra félaga, prófessoranna, sem
sérstaklega vöktu athygli mína.:
Komum fyrst að þætti Ragnars.
Hann segir um grein Kristins: „Inn-
tak greinar þessarar var að miklu
leyti skammir um mig og aðra vís-
indamenn.“
Það er fráleitt að Ragnar Árnason
geti kallað sig vísindamann á þess-
um vettvangi, um stjórn og skipu-
þagningu fiskveiða á íslandsmiðum.
Ég hrökk við þegar hann lyfti sér
upp í þær hæðir. Það er nokkuð
annað hvort menn hafa lært til þess
að eiga möguleika á að starfa sem
slíkir eða þeim áfanga er náð með
vinnu og árangri. Menn kalla sig
ekki skipstjóra fyrr en þeir stjórna
skipi þótt þeir hafí próf upp á skip-
stjórnarréttindi.
Ragnar Árnason hefur aftur á
móti verið kenningasmiður og stuðn-
„Miðstýring og réttur
ríkisvaldsins til að
fylgja fram núverandi
kvótakerfi í fiskveiðum
er grundvöllur þeirrar
stefnu. Gamla liðið í
Sovétríkjunum sem nú
andæfir var alið upp
þar á bæ við innrætingu
um hinn algilda sann-
leika sem miðstýringin
byggðist á.“
ingsmaður afmarkaðra kenninga um
stjórn fiskveiða. Þar hefur hann beitt
sér af miklum áhuga. Kenningar
hans í þeim málum eru ekkert frek-
ar vísindi en kenningar mínar sem
falla ekki saman við hans. Hvorugur
okkar getur kallað sig vísindamann
á þessum vettvangi ef við viljum
láta taka mark á okkur.
Það er gagnrýnisverð málsmeð-
ferð þegar hann eða aðrir reyna að
setja vísindayfirbragð á kenningar
sínar eða skoðanir með nafngiftum
á sig sjálfa eða á annan sambærileg-
an hátt.
Þeirrí málsmeðferð hefur því mið-
ur veríð beitt m.a. á þann máta að
fræði Ragnurs o.fl. eru kennd við
Háskóla Islands og bækur með kenn-
ingum þeirra og skoðunum notaðar
sem kennslugögn. Háskólastofnanir
annast útgáfu a.m.k. sumra slíkra
kennslugagna. Er ekki full ástæða
til að vara við svona vinnubrögðum?
Undir áhrifum af samanburðar-
fræðum Rögnvaldar Hannessonar,
sem ég kem að hér á eftir, rifja ég
upp eftirfarandi um „vísindi". Sú var
tíð að kennisetningar Karls Marx,
aðlagaðar að alræði og miðstýringu,
voru taldar vísindi. í háskólum nokk-
Skúli Alexandersson
urra þjóða var sú vísindagrein í há-
vegum höfð. Öll mistök og afieiðing-
ar stefnunnar voru réttlætt með
„vísindalegum" útskýringum. Hin
hroðalegustu mistök og afleiðingar
þeirra yrðu öll bætt með smá breyt-
ingum og tilfærslum innan alræðis-
ins og miðstýringarinnar. Öll vitum
við hver reynslan er af vísindalegri
útfærslu þeirra kennisetninga. Sem
betur fer er þetta ekki samanburðar-
hæft við íglenskan raunveruleika,
„en til þess eru vítin að varast þau“.
Þá kem ég að því sem mér finnst
nokkuð vafasöm samlíking í grein
Rögnvaldar Hannessonar. Það er í
lokakaflanum. Þar segir:... í hin-
um fyrrverandi Sovétríkjum hafa
verið gerðar tilraunir til að selja land
til einkaaðila, í því skyni að auka
framleiðslu á landbúnaðarafurðum.
Þetta hefur gengið misjafnlega vel,
af ástæðum sem ekki eru með öllu
ólíkar hugmyndum Kristins Péturs-
sonar og ýmissa annarra um at-
vinnuréttindi í fiskveiðum. Eftir her-
ferð Stalíns á þriðja áratugnum var
einkaeign á landi afnumin í Sovét-
ríkjunum. Tvær kynslóðir fólks voru
síðan aldar upp í Sovétríkjunum í
þeirri trú, að einkaeign á landi væri
einn af höfuðókostum skipulags,
sem byggði á arðráni manna af
manni og dæmt væri til að hrynja
fyrr eða síðar. Ýmsir þeir sem keypt
hafa land eftir að markaðsbúskapur
og kapítaiismi hófu innreið sína í
hin fyrrverandi Sovétríki hafa lent
í þeim erfiðleikum, að verkalýður á
samyrkjubúum hefur alls engan
skilning á réttmæti slíks skipulags,
en lítur á það sem stuld á sameigin-
legri auðiind og ógnun við atvinnu-
réttindi sín. Hinn 13. maí sl. birti
brezka blaðið „Financial Times“
greinaflokk um efnahagshorfurnar
í Rússlandi. Þar var viðtal við einn
af hinum nýju einkabændum þar í
landi. Hann plægði og sáði gras-
fræi, og nú beita samyrkjubændur
kúm sínum á land hans, sem þeir
líta á sem sameiginlega auðlind.
Skilti með textanum „Einkaeign"
hafa í tvígang verið rifin niður og
eyðilögð. Hann ætlar samt ekki að
gefast upp og hefur leigt sér vopn-
aða lögregluverði, sem nú eru til
sölu eins og margt annað í hinum
fyrrverandi Sovétríkjum, til að gæta
landsins. Einnig er sagt frá konu,
sem keypti land, og lenti í enn meiri
erfiðleikum. Eftir að hún hafði byggt
yfir sig og keypt nauðsynleg áhöld
var brenndur ofan af henni bærinn."
Rögnvaldur lætur hér að því liggja
að skoðanir okkar sem falla saman
við skoðanir Kristins Péturssonar
um atvinnuréttindi í fiskveiðum hér
við land seu ekki „með öllu“ ólíkar
skoðunum þeirra sem halda uppi
andófi gegn einkavæðingu landbún-
aðar í áður Sovétríkjum.
Rögnvaldur gengur hér nokkuð
langt og reyndar að ystu mörkum
til að leita samúðar til stuðnings sín-
um kenningum. Hann reynir að gera
okkur sem viljum leggja af miðstýr-
ingu og fámenniseign í íslenskum
sjávarútvegi að stuðningsmönnum
gamla kerfisisn í Sovét. Það væri
réttara fyrir Rögnvald að líta í eigin
barm og gera sér grein fyrir því hve
augljóslega samlíking hans á við
hans stefnu og vinnubrögð. Miðstýr-
ing og réttur ríkisvaldsins til að
fylgja fram núverandi kvótakerfi í
fiskveiðum er grundvöllur þeirrar
stefnu. Gamla liðið í Sovétríkjunum
sem nú andæfir var alið upp þar á
bæ, við innrætingu um hinn algilda
sannleika sem miðstýringin byggðist
á.
Miðstýring og tilskipanavald leiða
jafnan til efnahags- og stjórnarfars-
legra vandræða ef siíkum aðferðum
er beitt svo árum skiptir. Þegar
miðstýringarkerfi hefur verið beitt í
nokkurn tíma og gallar þess farnir
að segja til sín, verður tvennt áber-
andi í þjóðfélagsumræðu. í fyrsta
lagi verða gagnrýnisraddimar fleiri,
sumar óvæntar, harðari og bein-
skeyttari. í öðru lagi tekur sá hópur
sem að miðstýringunni stendur upp
á allskonar aðferðum til að veija
kerfið. (Dæmi: Samyrkjubændur í
fyrrum Sovétríkjum í grein Rögnv.
Hannessonar.)
Stuðningsfólk kerfisins er af ýms-
um toga. T.d. það sem hefur eða
gætir beinna fjárhagslegra hags-
muna, einnig kenningasmiðirnir sem
telja sig þurfa að veija heiður sinn.
Stærsti hópurinn er sjálfsagt það
fólk sem hefur trúað kenningunum
vegna þess að það var allskonar
ágætis fólk sem hélt kenningunum
fram.
Ragnar og Rögnvaldur eru ágætis
menn. Of margir hafa trúað þeim.
Það breytist nú óðfluga. Greinar
þeirra sem hér hefur aðeins verið
fjallað um bera þess glögg merki
að trú þeirra sjálfra er að daprast.
Efnistökin bera einkenni varnarbar-
áttu.
Vonandi hætta þeir að róa og
gera út á sömu mið, sjóndeildar-
hringinn.
Höfundur er fyrrverandi
alþingismaður
Alþýðubandalagsins og nú í stjórn
Félags uní nýja
sjávarútvegsstefnu.
Þjófar og glæpamenn
eftir Guðmund
*
Olafsson
Fyrir skemmstu birtist grein í
vikublaðinu Pressunni sem bar fyr-
irsögnina: Stakk milljónum_ undan
með „endurskipulagningu “. í undir-
fyrirsögn er því haldið fram að eigið
fé fyrirtækisins Hagvirki hf. hafi
verið jákvætt um 100 milljónir í
upphafi árs 1991 en sé nú neikvætt
um 1.500 milljónir. Þessum fyrir-
sögnum fylgir mynd af Jóhanni G.
Bergþórssyni forstjóra.
Af þessum fyrirsögnum mætti
ætla að Jóhann þessi væri einhver
magnaðasti þjófur Islandssögunnar.
Þegar meðfylgjandi grein er lesin
kemur hins vegar í ljós að með end-
urskipulagningu á umræddur Jó-
hann að hafa „'stungið undan“ 700
milljón króna skuldum, þ.e. tekið á
sig 700 milljónir. Það er með öðrum
orðum ekki einasta að maðurinn sé
stórglæpamaður heldur virðist hann
samkvæmt þessu einnig vera mikið
geðbilaður. Sé lesið ögn lengra kem-
ur í ljós að skuldir eru 1.500 milljón-
ir króna en eignir 1.000 milljónir og
er þá 1.500 milljóna neikvætt eigið
fé í fyrirsögn dottið ofan í 500 millj-
ónir og lesandinn er farinn að efast
um eigin geðheilsu.
Nú er það svo að vikuritið Pressan
er almennt ekki talin vönduð heim-
ild, einkum og sérílagi hvað snertir
viðskiptalífið. Flest þjóðfélög virðast
hafa að geyma einstaklinga sem
þörf hafa fyrir blaðamennsku af því
tagi sem þar er ástunduð. Af umfjöll-
un blaðsins um atvinnulífið má ráð
að þeim sem vegnar vel séu þjófar
en hinir sem verða fyrir skakkaföll-
um hljóti að vera glæpamenn. Mætti
ætla að ekki þyrfti að leiðrétta rang-
færslur og ósannindi fjölmiðils með
jafnf rumstæð sjónarmið. Því miður
virðist svo ekki vera. Hér á landi
eru viðhorf af þessu tagi of út-
breidd, ekki síst hjá stjórnmála-
mönnum. Þess vegna er þessi grein
skrifuð.
Hin glæpsamlega
endurskipulagning
Haustið 1990 réðust verktakafyr-
irtækin Hagvirki hf. og Hagvirki-
Klettur hf. (áður Hraunvirki hf.) í
endurskipulagningu í nánu samráði
við sína helstu lánardrottna. Til-
gangurinn var ekki síst að tryggja
hag lánardrottna og koma í veg fyr-
ir að íbúðakaupendur og aðrir verk-
kaupar yrðu fyrir tjóni ef Hagvirki
hf. lenti í erfiðleikum. Raunar stóðu
þá fyrir dyrum virkjanaframkvæmd-
ir og álversbygging og í alla staði
betri tíð. Því er fjarstæða að tengja
endurskipulagninguna undanskoti
eigna (hvað þá skulda!). Helsti lánar-
drottinn fyrirtækjanna, íslandsbanki
hf., lét fara fram vandað mat á þeim
eignatilfærslum sem áttu sér stað
milli Hagvirkis og Hagvirkis-Kletts
og komst að þeirri skjalfestu niður-
stöðu að þær væru láriardrottnum
Hagvirkis hf. heldur í hag ef eitt-
hvað váeri,- enda hefði bankinn ekki
tekið þátt í þeirri fjárhagslegu end-
urskipulagningu sem í kjölfarið
fylgdi hefði ekki allt verið með felldu.
.Vorið 1991 virtust markmið
skipulagsbreytinga ætla að skila
árangri enda fyrirtækin þá aðilar
að lægsta boði í Fljótsdalsvirkjun
og komin í samstarf við erlend fyrir-
tæki vegna fyrirhugaðra áíversfram-
„Helsti lánardrottinn
fyrirtækjanna, Islands-
banki hf., lét fara fram
vandað mat á þeim
eignatilfærslum sem
áttu sér stað milli Hag-
virkis og Hagvirkis-
Kletts og komst að
þeirri skjalfestu niður-
stöðu að þær væru lán-
ardrottnum Hagvirkis
hf. heldur í hag ef eitt-
hvað væri, enda hefði
bankinn ekki tekið þátt
í þeirri fjárhagslegu
endurskipulagningu
sem í kjölfarið fylgdi
hefði ekki allt verið
með felldu.“
kvæmda. Upp úr áramótum 1992
var orðið einsýnt að hið ólíklega
hafði gerst, stórframkvæmdum sleg-
ið á frest um ófyrirsjáanlega framtíð
og djúp kreppa farin að gera vart
við sig í efnahagslífinu. Þá, en ekki
fyrr, var ástæða til þess að óttast
um afdrif Hagvirkis hf. enda hafði
Morgunblaðið viðtal við Jóhann G.
Bergþórsson í apríl sl. þar sem hann
lýsti hreinskilnislega vandamálum
fyrirtækisins opinberlega. Þeir sem
dylgja nú um óheiðarleika, undan-
skot eða glæpsamlegt athæfi eru því
annað hvort mannleysur eða kjánar
eða hvoru tveggja.
Guðmundur Ólafsson
Þjófar og glæpamenn
Hagvirki-Klettur hf. á uppruna
sinn í byggingu Hrauneyjarfoss-
virkjunar. Kostnaðaráætlun hennar
var 4.7 milljarðar króna. Erlendir
aðilar eða íslenskir leppar þeirra
buðu lægst 6.7 milljarða í verkið en
Hagvirki-Klettur hf. (þá Hraunvirki)
bauð 2.7 milljarða og fékk verkið
og lauk því með sóma. Þar með
voru íslendingar lausir undan þeim
nýlenduklafa að láta útlendinga
byggja fyrir sig stórmannvirki á
uppsprengdu verði. Ekki er vafi á
að Hrauneyjarfossvirkjun á drýgstan
þátt í að nú efast menn ekki lengur
um að íslendingar geti tekist á hend-
ur stórframkvæmdir sjálfir. Hag-
virki hf., sem stofnað var í kjölfar
virkjunarframkvæmda við Hrau-
neyjafoss, hefur átt mikinn þátt í
að nú eru flestar verklegar fram-
kvæmdir boðnar út, skattgreiðend-
um og öðrum verkkaupum til mikils
hagræðis frá því sem áður var.
Þrátt fyrir glæsilegan feril hafa
fyrirtækin oftast átt í höggi við
stjórnmálamenn og embættismenn
sem margir eru helteknir öfugsnún-
um viðhorfum gagnvart atvinnu-
rekstri einstaklinga. Menn sem telja
velgengni einkafyrirtækja jafngilda
þjófnaði en væna stjórnendur þeirra
um glæpastarfsemi þegar illá árar,
hafa seilst ótrúlega langt til þess
að koma höggi á fyrirtækið og er
þar skemmst að minnast söluskatts-
málsins alræmda. Þá var fyrirtækið
ólöglega knúið til að greiða sölu-
skatt sem það hafði ekki innheimt
af ríkinu, skatt sem útlendingarnir
sem unnu við hliðina á fyrirtækinu
í Hrauneyjum þurftu ekki að greiða.
Fórnarlamb hugleysis?
Hagvirki hf. hefur þannig orðið
fórnarlamb ákvarðana stjórnmála-
manna með frumstætt og forneskju-
legt viðhorf til atvinnulífs og einka-
rekstrar. Þannig standa mál nú að
ef Hagvirki hefur betur i þeim mál-
um sem ágreiningur er um við ríkis-
valdið, þá kemst það hjá gjaldþroti
og á auk þess um 50 milljónir króna
í eigið fé. Kröfur ríkisins eru sam-
tals um 340 milljónir króna en kröf-
ur fyrirtækisins á hendur ríkinu eru
um 540 milljónir. Fórnarlambið hf.,
áður Hagvirki hf., hefur orðið fyrir
barðinu á röngum ákvörðunum
stjórnvalda sem útilokuðu skynsam-
lega stjórnun fyrirtækisins. Þess er
nú beðið hvort núverandi stjórnvöld
treysta sér til að leiðrétta mistök
fortíðar eða hvort Fórnarlambið hf.
verði einnig fórnarlamb hugleysis
nútíðar.
Höfundur er hagfræðingur og
fjármálastjóri Fórnarlambsins hf.
I
N
æ
Q
i,
(
«
€