Morgunblaðið - 18.09.1992, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992
17
Úr forsal Rósagarðs.
EGV —
Rósagarður í Óðinsvéum.
Leiga á þeim er frá 34 til 43 þús-
und krónur á mánuði með hita og
rafmagni, neyðarbjöllu í hverju her-
bergi og innanhússtalkerfi í stofu
og svefnherbergi sem er tengt við
dagvakt. Úthlutun þessa leiguhús-
næðis annast sveitarfélagið.
í aðalbyggingunni er:
1) Þjónustumiðstöð, þar sem að-
aláherslan er lögð á forvarnarstarf
(plejehjemsforebyggende). Þar hafa
einnig aðstöðu vinnuhópar sem eru
í heimilishjálp og heimahjúkrun.
2) Hjúkrunarheimili, sem er tvær
deildir með samtals 57 vistrými.
Allir hafa sérherbergi. Forstöðu-
konan sagði að á deildunum væri
enginn mismunur hvað heilsufar
vistmanna snerti.
3) Dagheimili fyrir um 20 manns
á dag sem fá mat og alla þá þjón-
ustu sem þeir þarfnast.
4) Dagvist, serii getur tekið á
móti 60 manns yfir daginn. Þangað
getur fólk utan hverfisins komið,
svo og þeir sem eru á öðrum deild-
um stofnunarinnar.
5) Sjúkraþjálfun og endurþjálfun
sem stendur öllum tihboða.
6) Eldhús, sem framreiðir hátt á
annað hundrað máltíðir á dag, og
þaðan er einnig sendur matur til
aldraðra sem búa í heimahúsum í
nágrenninu.
Nálægt eldhúsinu er veitingasal-
ur með sjálfsafgreiðslu, ásamt sal
sem fólk getur fengið til afnota
fyrir veislur. Bókasafn og þjónusta
frá banka einu sinni í viku var þarna
einnig, svo og fótsnyrting, hár-
greiðsla og verslun. Forstöðukonan,
Anne-Grethe Sörensen, heldur um
stjómartaumana á þessu öllu sem
hér hefur verið upp talið og ber
ábyrgð á að sú fjárhæð sem hefur
verið áætluð til rekstursins dugi
til. Hún hefur rekstrarfræðing sér
til aðstoðar, sem m.a. reiknar út
efnið í matinn með tilliti til þess
að gæði og hollusta standist þær
kröfur sem gerðar em.
Sveitarfélög í Danmörku eru
misjafnlega vel stödd fjárhagslega
og þjónusta við aldraðra fer að sjálf-
sögðu nokkuð eftir því. Ellilífeyri
fá allir sem em 67 ára og eldri, án
tillits til tekna, um 45 þúsund ísl.
krónur á mánuði. Þeir sem sinna
ræstingum og heimahjálp þurfa nú
að hafa lokið eins árs námi, 'h ári
í skóla og 'h ári í þjálfun á hjúkmn-
arheimili fyrir aldraða.
Hjúkrunarkonur fá starfsréttindi
eftir 4 ára nánt. Þær þurfa ekki
að hafa stúdentspróf.
Þeir sem hafa vaxtatekjur greiða
60% af þeim á mánuði til sveitarfé-
lagsins, svo að mann furðar ekki á
því að nokkrar kröfur séu gerðar
til umönnunar og hjúkrunar, þegar
fólk þarf á því að halda.
Starfsfólk úr heibrigðisstéttum
og sérfræðingar í öldrunarfræðum
koma saman á óteljandi ráðstefnum
og bera saman bækur sínar í þeim
tilgangi að auka andleg og líkamleg
lífsgæði aldraðra. Eflaust hefur það
áhrif á þróun þessara mála. í huga
mínum skaut upp mynd frá heim-
sókn minni á umönnunarheimili eitt
í Kaupmannahöfn.
í rúmgóðu herbergi sat stór og
myndarleg öldmð kona í hjólastól
og pijónaði. Andlitið var hmkkótt,
en úr augunum skein mildi og hlýja.
í kringum hana var mikið af munum
og myndum frá fyrra heimili, sem
gerði herbergið vinalegt. Við fætur
gömlu konunnar lá falleg kisa sem
teygði makindalega úr sér. Yfír
báðum hvíldi heimilisleg ró og frið-
ur.
Höfundur er formaður
Samatarfsnefndar félaga aldraðra
l Reykjavík.
Dagsbrún gefur Stígamót-
um 500 þúsund krónur
STJÓRN Verkamannafélagsins Dagsbrúar veitti Stígamótum, mið-
stöð fyrir konur og börn sem orðið hafa fyrir kynferðislegu of-
beldi, nýlega styrk að upphæð 500.000 krónur til starfseminnar.
í frétt frá Stígamótum segir að
ýmis önnur félög, féiagasamtök,
fyrirtæki og einstaklingar hafi
styrkt starfsemi Stígamóta á árinu
og sé framlag þeirra allra mikils
metið.
Ennfremur segir: „Opinberir
aðilar, ríki og sveitarfélög, veita
starfsemi Stígamóta verulega
rekstrarstyrki, en án velvilja og
fjárframlaga félaga, fyrirtækja og
einstaklinga væri starfseminni
afar þröngur stakkur skorinn. Öll
þjónusta Stígamóta við þolendur
kynferðislegs ofbeldis er þeim að
kostnaðarlausu og til okkar leitar
fólk hvaðanæva af landinu. Stíga-
mót bjóða einnig faghópum, félög-
um og einstaklingum upp á fræðslu
um kynferðislegt ofbeldi og afleið-
ingar þess. Fjöldi þeirra, sem leita
þjónustu Stígamóta, hefur aldrei
verið meiri en það sem af er þessu
ári.“
Einhverfir
sýna í
Gerðubergi
Þrír einhverfír lista-
menn, þau Áslaug
Gunnlaugsdóttir, Pétur
Arnar Leifsson og Anna
Borg Waltersdóttir,
hafa opnað sýningu á
verkum sínum í Gerðu-
bergi. Þau hafa unnið
að myndlist í lengri eða
skemmri tíma og þróað
sinn sérstaka stíl. Hér
útskýrir Apna eitt verka
sinna fyrir Vigdísi Finn-
bogadóttur, forseta ís-
lands, sem er verndari
Umsjónarfélags ein-
hverfra og var viðstödd
opnun sýningarinnar.
Nú hefur verð Macintosh LC 4/40 lækkað vegna hagstæðra samninga og
nú kostar ódýrasta Macintosh-tölvan með litaskjá aðeins 119.900,- kr.
Hún er með 12" litaskjá, 4 Mb vinnsluminni og 40 Mb harðdiski, innbyggðu
m AppleTalk, m.a. til samnýtingar við
Compaq Oeikpro lH6s 2Q (386SX 20;
Macintosh Classic II
NtC PowerMate SX 20(186SX 201
AST Premium II (Í86SX 20)
IBM PS 2 iSSX (s86SX 16)
ACER 1116SX (Í86SX 16)
Compaq Deskpro 386N 20 (J86SX 16;
IBM PS 2 55SX (J86SX 16)
aðrar tölvur, möguleika á tengingu
við Novell og Ethernet, 1,44 Mb drifi
m.a. fyrir PC-diska, stýrikerfi 7 á íslensku,
vandaðri íslenskri handbók o.m.fl.
Auk þess má tengja allt að sjö
SCSI-tæki við hana (s.s. aukaharð-
disk, skanna eða geisladriO-
Skv. samanburðarrannsókn Ingram Laboratories
í Bandaríkjunum, er raunveruleg vinnslugeta
Macintosh LC-tölva meiri en flestra 386 SX tölva.
(Sjá súlurit t.v.)
Greiöslu-
kjiir til
allt ab
18 mán.
Macintosh-litatölvu
119.900,-
Apple-umboðið
Skipholti 21, sími (91) 624 800