Morgunblaðið - 18.09.1992, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992
31
MYND, Hafnarfirði.
HJÓNABAND. Gefin voru saman
29. ágúst sl. í Bústaðakirkju af sr.
Pálma Matthíassyni Kristinn Gunn-
arsson og Hrafnhildur Hreinsdóttir.
Heimili þeirra er í Álakvísl 59, Rvík.
MYND, Hafnarfirði.
HJÓNABAND. Gefin voru saman
29. ágúst sl. í Búðakirkju á Snæ-
fellsnesi af sr. Árna Pálssyni Sig-
urður Magnússon og Erla Hall-
steinsdóttir. Þau eru til heimilis á
Gaukshólum 2, Rvík.
HJÓNABAND. 25. júlí voru brúð-
hjónin Magnea Árnadóttir og Há-
kon Guðbjartsson gefin saman í
Áskirkju af föður brúðarinnar, sr.
Árna Bergi Sigurbjörnssyni. Þau
eru til heimilis í Boston í Bandaríkj-
unum.
HJÓNABAND. Gefin voru saman
hinn 5. júlí Hany Hadaya frá Vínar-
borg og Bryndís Halldórsdóttir af
sýslumanni í Reykjavík. Þau eru til
heimilis í Rauðhömrum 5, Reykja-
vík.
Ljósmynd Ingi St. A.
HJÓNABAND. 20. júní voru gefín
saman í Garðakirkju af sr. Braga
Friðrikssyni Vilhjálmur Þór Vil-
hjálmsson og Elsa K. Helgadóttir.
Heimili þeirra er í Flúðaseli, Selja-
hverfí.
Ljósm. Sigr. Bachmann
HJÓNABAND. 9. ágúst sl. voru
gefín saman í Aðventkirkjunni af
sr. Steinþóri Þórðarsyni, Palma
Rasmussen og Stefán Kristjánsson.
Heimili þeirra er í Hrísmóum 4,
Garðabæ.
HJÓNABAND. Gefin voru saman
í hjónaband hinn 25. júlí Tone Hag-
en frá Tretten í Guðbrandsdal í
Noregi og Guðmundur E. Sigurðs-
son, Gautlandi 15, Rvík, af séra
Magnúsi Erlingssyni presti á
ísafírði. Þau eru til heimilis á Kvi-
benksg. 8, Osló.
MYND, Hafnarfirði.
HJÓNABAND. Gefín voru saman
29. ágúst sl. í Kópavogskirkju af
sr. Þorbergi Kristjánssyni Ásgeir
Gíslason og Pijitra Ampom. Þau
eru til heimilis í Hátúni 5B, Bessa-
staðahreppi.
MYND, Hafnarfirði.
HJÓNABAND.Gefín voru saman
22. ágúst sl. í Víðistaðakirkju af
sr. Sigurði Helga Guðmundssyni
Rúnar Ólafur Emilsson og Dagrún
Jónsdóttir. Þau eru til heimilis á
Miðvangi 4.
MYND, Hafnarfirði.
HJÓNABAND. Gefin voru saman
22. ágúst sl. af sr. Sigurði Helga
Guðmundssyni í Víðistaðakirkju
Guðmundur Guðmundsson og Þór-
unn Stefánsdóttir. Heimili þeirra
er í Löngumýri 18, Garðabæ.
__________Brids_____________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag Akureyrar
Vetrarstarf Bridsfélags Akureyrar
hófst þriðjudaginn 15. september.
Fyrsta mót vetrarins var eins kvöids
tvímenningur, „startmót". 28 pör tóku
þátt { mótinu og var árangur efstu
para sem hér segir:
AsgeirStefánsson-HermannTómasson 272
Sigurbjöm Þorgeirsson - Skúli Skúlason 255
ReynirHelgason-MagnúsMagnússon 252
TryggviGunnarsson-JónH.Gíslason 249
Björgvin Jónsson — Sigfús Hreiðarsson 245
Ámi K. Bjamason - Sveinbjörn Jónsson 232
Næsta mót félagsins er „nýliða-
mót“, en þar spila saman reyndir og
óreyndir spilarar. Þeir sem áhuga hafa
á að taka þátt í þessu móti en hafa
ekki spilafélaga geta snúið sér til for-
manns Bridsfélags Akureyrar, Her-
manns Tómassonar. Nú hefur verið
gengið frá mótaskrá vetrarins og er
í henni um nokkra áherslubreytingu
að ræða ef miðað er við undanfarin
ár. Áhersla verður lögð á tvímennings-
mót fyrir áramót en sveitakeppni eftir
áramót. Mótaskráin fram til áramóta
er sem hér segir:
Startmót-tvímenningur 1 kvöld
Nýliðamót-tvímenmngur 2 kvöld
BauUmót-tvímenningur 3 kvöld
Akureyrarmót í tvímenningi 5 kvöld
Hraðsveitakeppni 3 kvöld
Frá Bridsfélagi Hafnarfjarðar
Sl. mánudagskvöld, 14. september,
hófst vetrarstarfíð með eins kvölds
tvímenningi. Spilað var í tveimur riðl-
um, einum 16 para og öðrum 8 para,
sem var skipaður byrjendum að mestu
leyti. Úrslit urðu:
A riðill:
Guðlaugur Sveinsson - Guðjón Jónsson 237
Sveinn Þorvaldsson - PállÞór Bcrgsson 234
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson 230
Jón Þór Daníelsson - Halldór Þórólfsson 226
B riðill:
Margrét Pálsdóttir - Haraldur Magnússon 64
Véný Lúðvíksdóttir - Sesselja Gunnarsdóttir 62
Sófus Bertelsen — Sigríður Guðmundsdóttir 62
Nk. mánudagskvöld verður aftur
spilað með sama sniði, þ.e.a.s. eins
kvölds tvimenningur með sérstökum
byrjendariðli. Allir bridsspilarar eru
hvattir til og mæta og sérstaklega eru
byijendur boðnir velkomnir og þeim
bent á að þama er tækifæri til að
spila keppnisbrids við spilara sem era
á sama bridsstigi og þeir. Spilað er í
íþróttahúsinu v/Strandgötu og hefst
spilamennskan kl. 19.30.
Bridsfélag Tálknafjarðar
Vetrarstarf félagsins hófst fímmtu-
daginn 10. september á eins kvölds
tvímenningi. Urslit urðu þessi:
Friðgeir Guðmundsson - Bima Bendiktsdóttir 123
Guðný Lúðvígsdóttir - Ulja Magnúsdóttir 115
Guðmundur S. Guðm. - Jakobína Theodórsd. 113
ÁsthildurÁgústsdóttir-MargretÞór 113
Ákveðið var að færa spilakvöld fé-
lagsins yfir á mánudaga í vetur og
var spilaður tvímenningur mánudag-
inn 14. sept. og urðu úrslit þessi:
Friðgeir Guðmundss. - Snæbjöm G. Viggósson 82
BrynjarOlgeirssón-ÞórðurReimarsson 79
RafnHafliðason-SveinnVilhjálmsson 78
Guðný Lúðvígsdóttír - Lilja Magnúsdóttir 75
Bridsklúbbur Fél. eldri
borgara, Kópavogi
Þriðjudaginn 15. september var
spilaður tvímenningur og mættu til
leiks 16 pör og urðu úrslit þessi:
BergsveinnBreiðQörð-KjartanGuðmunds. 267
GarðarSigurðsson-EinarElíasson 247
Þorsteinn Eriingsson - Gunnþórunn Erlingsd. 240
HannesAlfonsson-ValdimarLárusson 238
BergurJónsson-KristinnEyjólfsson 233
Næst verður spilað föstudaginn 18.
september kl. 13 á Digranesvegi 12.
Og svo þriðjudaginn 22. september
kl. 19, á sama stað.
Bridsdeild Rangæinga
„Miðvikudaginn 23. september
hefst spilamennskan hjá Bridsdeild
Rangæinga. Eins og áður hefst hún
með tvímenningi. Spilað er í Ármúla
40, 2. hæð, og byrjað kl. 19.30. Nýir
spilarar meira en velkomnir. Hægt er
að skrá sig í síma 36120 (Loftur) eða
á spilastað."
Einfaldur
bakstur
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
í síðasta Heimilishomi var ein-
föld uppskrift að mjög góðri köku,
heslihnetuköku, sem virðist hafa
heppnast sérlega vel, ef marka má
símtöl við umsjónarkonu. Það þótti
að sögn gott að geta tekið tilbúna
kökuna út úr ofninum og sett á
hana ijóma og rifíð súkkulaði.
Tíminn er dýrmætur og því ekki
undarlegt að gripið sé til þess sem
er fljótlagað, nema sérstakt tilefni
sé. Það er því einfaldur bakstur á
ný i Heimilishorni dagsins.
Banana-kókoskaka
125 gsmjör
190 g sykur
2-3 egg
250 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 'A dl. mjólk
3 bananar
25 g kókosmjöl
flórsykur.
Smjör og sykur þeytt vel, eggin
sett út í, eitt í senn, og hrært vel
á eftir. Hveiti og lyftifufti blandað
saman og sett út í með mjólkinni
(sett til skiptis). Bökunarpappír
settur í ofnskúffu eða stórt form
(30x40). Bananamir afhýddir og
skornir langs, ekki mjög þunnt, og
þrýst vel ofan í deigið, ofan á er
stráð kókosmjöli. Kakan bökuð
neðst í ofninum við 200°C í u.þ.b..
35 mín.
Ávaxtakaka
200 g smjörlíki
200 g sykur
4 egg
Banana-kókoskaka.
200 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 tsk. vanillusykur
100 g brytjaðar möndlur
150 g brytjaðar þurrkaðar
apríkósur
150 g eplabitar
Smjörlíki og sykur þeytt vel,
eggjunum bætt í, einu í senn, og
blandað vel. Þurrefnin sigtuð saman
og ávextimir settir saman við.
Kakan bökuð í fbrmkökumóti, sem
hefur verið vel smurt, og bakað
neðst i ofni við 175°C í u.þ.b. 1
klst. og 15 mín. Ef kakan verður
hæfílega bökuð að ofan fyrir þann
tima þarf að setja álpappir yfir það
sem eftir er bökunartímans.
Bakarar takið ef tir
Þeir, sem hafa áhuga á að kynna sér frystihefskápana frá
STAMM INTERNATIONAL B.V., eru vinsamlegast beðnir að
hafa samband við KÆLITÆKNI, símar 614580 og 614581.
Bakaríið Austurveri og KÆL1TÆKNI verða með kynningu á
þessum tækjum í Bakaríinu Austurveri, Háaleitisbraut, laugar-
daginn 19. september kl. 14.00.
Sérfræðingar og bakarameistarar frá STAMM verða á staðn-
um.
KÆLITÆKNI
Skógarhlíð 6-101 Reykjavík