Morgunblaðið - 18.09.1992, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992
45
Innilegt þakklœti til allra þeirra, sem sendu mér
skeyti oggáfu mérgjafir á 70 ára afmœli mínu.
GuÖ blessi ykkur öll.
Jón Gunnarsson.
ZANCASTER
LEIÐRÉTTINGAR
Guðfinna,
ekki Guðríður
í Morgunbtaðinu á miðvikudag var
frásögn fréttaritara blaðsins í Vest-
mannaeyjum af hjónum sem ræktað
hafa upp gróðurlund á nýja hrauninu
á Heimaey. Hjónin heita Erlendur
Stefánsson og Guðfinna Ólafsdóttir.
I frásögninni var Guðfinna sögð heita
Guðríður. Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á misrituninni.
Haustskip Morgunblaðsins
Plastprent hf.
hefur ekki keypt
Hverfisprent hf.
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi athugasemd frá Ólafi Magn-
ússyni hjá Hverfisprent.
„Frétt í Viðskiptablaði Morgun-
blaðsins í gær um að Plastprent hafi
yfirtekið Hverfísprent hf. er ekki
rétt. Eins og skýrt var frá í Við-
skiptablaði Morgunblaðsins í júlí í
sumar keypti Umbúðamiðstöðin hf.
vélar og tæki Hverfisprents hf. og
yfirtók starfssamninga við starfsfólk
fyrirtækisins frá 15. september, en
þá átti afhending að fara fram. Plast-
prent hf. hefur ekki yfirtekið neina
samnigna við Hverfisprent hf. Hins-
vegar mun Plastprent hf. hafa keypt
af Umbúðamiðstöðinni hf. þær vélar
og birgðir sem fyrirtækið eignaðist
við samninga við Hverfisprent hf. í
júlí sl.
Hverfisprent hf. er áfram starf-
andi, en á öðrum vettvangi en fyrr.“
Frá Frá Kristni Hugasyni:
í Morgunblaðinu hinn 8.
september sl. birtist greinarkom
sem ber heitið „Haustskipsferð
Hrossaræktarinnar" og er eins
konar ritfregn eða „ritdómur“ um
Hrossaræktina 1991, ársrit Bún-
aðarfélags íslands um hrossarækt.
í feitletruðum inngangi greinar-
innar segir m.a.: „Ritsjórinn,
Kristinn Hugason, varð enn einu
sinni að standa eftir á bryggju-
sporðinum með sárt ennið og horfa
í kjölfar vorskipsins fara frá landi
án Hrossaræktarinnar. Þannig að
nú kom ritið með haustskipi."
Höfundur greinarinnar, sem
væntanlega er Valdimar Kristins-
son, umsjónarmaður hestaefnis
hjá Morgunblaðinu, er þama að
vísa til þess að undirritaður segir
í formála umræddrar bókar að
ekki hafi tekist að koma henni út
„með vorskipunum".
Þetta er hins vegar málum
blandið. Hrossaræktin 1991 fór í
almenna dreifingu hinn 8. júlí sl.
Að vísu sýndi sumarið ekki sínar
bestu hliðar að þessu sinni en þó
telur undirritaður ofmælt að það
séu haustskip sem komi að landi
viku af júlí. Það er aftur annað
mál að Morgunblaðið gat ekki um
útkomu bókarinnar fyrr en 8. sept-
ember, eða „með haustskipum“.
Þessu tvennu má þó ekki blanda
saman.
Um hitt erum við greinarhöf-
undur sammála að ritið þurfi að
koma fyrr út enda er að því stefnt
að svo verði þegar á næsta ári,
eins og réttilega kemur fram í
greininni.
KRISTINN HUGASON,
hrossaræktarráðunautur Bún-
aðarfélags íslands og ritsjóri
Hrossaræktarinnar.
HYGEA, Kringlunni; HYGEA, Austurstræti; SARA Bankastræti, Snyrtistof-
an MANDÝ, Laugavegi; LIBIA, Laugavegi; Snyrtivöruversl., Laugavegi 76;
Snyrtivörudeild SAUTJÁN, Laugavegi; ÁRSÓL, Grímsbæ; NAN’A, Lóuhólum;
Snyrtistofa SIGRÍÐAR GUÐJÓNS, Eiðistorgi; BYLGJAN, Hamraborg; RÓS,
Engihjalla; SELFOSS APÓTEK; RANGÁR APÓTEK, Hellu; RANGÁR
APÓTEK, Hvolsvelli; VÖRUSALAN, Akureyri; NINJA, Vestmannaeyjum.
VELVAKANDI
GLERAUGU
Armani-gleraugu töpuðust í
sumar. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í síma
18290.
SLÆÐA
Slæða með gullþráðum tapað-
ist við Ingólfsstræti eða Lindar-
götu. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 43379.
SKOR
Uppháir Mike-herraskór með
rauðum röndum, númer 42'A,
töpuðust í bókasafninu í Gerðu-
bergi hinn 11. september.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 76499. Fund-
arlaun.
ISSKAPUR
Gamall ísskápur í góðu lagi
fæst gefins. Upplýsingar í síma
19595.
KETTLINGAR
Gullfallegir átta vikna kassa-
vandir kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 641616.
HJÓL
Gult Muddy Fox reiðhjól var
tekið við Sogaveg fyrir þremur
vikum. Annað hjól fannst við
Sogaveg fyrir skömmu. Upplýs-
ingar í síma 38709.
Blátt og svart DBS-karl-
mannshjól, 21 gírs, hvarf frá
Skálaheiði í Kópavogi á fimmtu-
dagsmorgun. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 45817.
líLÆsru shellsTöð
ensm
800 SKEljuh*'