Morgunblaðið - 18.09.1992, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992
47
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA
Ekki sáttur
við úrslitin
- sagði Ingi
Björn Albertsson
„ÉG er mjög sáttur við leik
minna manna en ekki með
úrslitin. Viðfengum góð
færi til að skora úr og auk
þess sem við áttum að fá
vítaspyrnu,11 sagði Ingi
Björn Albertsson, þjálfari
Vals.
Ingi Bjöm sagði að leikmenn
yrðu að nýta færin þó ekki
væri nema eitt af fímm. „Sták-
arnir spiluðu eins og fyrir þá var
lagt. Við vorum búnir að skoða
þetta portúgalska lið á mynd-
bandi og leikur þess kom okkur
því ekki á óvart. Við erum alls
ekki úr leik þó svo að leikurinn
í Portúgal verði erfiður. Við höf-
um áður spilað við portúgalskt
lið, Benfica, og gerðum þá
markalaust jafntefli hér heima
en töpuðum 8:1 á útivelli og látum
það ekki koma fyrir aftur,“ sagði
Ingi Bjöm.
Höfum vilja til að vinna
„Við fengum færin en þeir
voru meira með boltann. En þvi
miður vantaði að nýta færin okk-
ar. Ég bjóst við þeim beittari en
þeir verða örugglega erfíðari
heima. Ég er þó ekkert hræddur
við seinni leikinn því við sýndum
að við höfðum í fullu tré við þá.
Við höfum vilja til að vinna og
komast áfram í aðra umferð,"
sagði Ágúst Gylfason.
Svekktur
„Við lékum skynsamlega. Þeir
voru með boltann sjötíu prósent
af leiknum en við fengum þijú
dauðafæri til að gera út um leik-
inn í lokin. Ég er svekktur yfir
að hafa ekki náð að nýta eitt
þeírra. Það jákvæða er að við
fengum ekki á okkur mark og
ég er sannfærður um að við náum
að pota inn marki í Portúgal,"
sagði Antony Karl Gregory, sem
var fyrirliði Vals í stað Sævars
Jónssonar sem tók út leikbann.
Þettaerhægt
„Þessi leikur sýnir okkur að
þetta er hægt ef menn leggja sig
fram. Ég er ánægður með barátt-
una í liðinu. Við vorum óheppnir
að ná ekki að skora og svo sleppti
dómarinn augljósri vítaspyrnu.
Leikurinn ytra verður erfiður en
ef við leikum eins og í dag er
ekkert ómögulegt. Það er aðeins
hálfleikur núna og staðan er jöfn
og við erum tilbúnir í seinni hálf-
leikinn," sagði Steinar Adólfsson.
Sátturvið úrslKin
Manuel José, þjálfari Boavista,
var ekkert of ánægður með sína
menn. „Við vorum betri í sjötíu
mínútur en náðum þó ekki að
skora. Valsmenn léku stífan
vamarleik og það er oft erfitt að
eiga við. Ég er sáttur við úrslitin
þvf Valsmenn gátu gert út um
leikinn í lokin. Við náðum ekki
að sýna okkar besta leik en von-
andi verður annað upp á teningn-
um á heimavelli okkar þar sem
aðstæður eru allt aðrar og betri,“
sagði Manuel José. Hann hældi
Bjama Sigurðssyni og Antony
Karl Gregory og sagði að þeir
hafi leikið best Valsmanna.
ÚRSLIT
Knattspyrna
Evrópukeppni bikarhafa:
Aþenu, Grikklandi:
Olympiakos — Chemomorets (Úkra.)..0:l
UEFA-keppnin:
Guimaraes, Portúgai:
Vitoria — Real Sociedad (Spáni).3:0
Kupresanin Dane (15., 76.), Pedro Barbosa
(28.). 18.000.
Handknattleikur
Reykjavíkurmót kvenna:
KR sigraði Vfking 19:18 og tryggði sér þar
með Reykjavíkurmeistaratitilinn í meistara-
flokki kvenna 1992. Fram varð í öðru sæti
og Víkingur í þriðja.
Valur hársbreidd frá sigri
ÞAÐ er sjaldgæft aö íslenskt
lið er ósátt við jafntef li í Evr-
ópuleik, en sú varð raunin í gær
er Valur og Boavista gerðu
markalaust jafntelfi á Laugar-
dalsvelli í skemmtilegum leik.
Valsmenn léku skynsamlega
og sköpuðu sér mörg góð
marktækifæri og hefði ekki ver-
ið ósanngjarnt að þeir hefðu
sigur. En svona erfótboltinn
að ekki fer alltaf eins og menn
hefðu helst kosið.
Leikur Vals og Boavista var fjör-
ugasti Evrópuleikurinn af
þessum þremur sem fram hafa far-
ið hér síðustu daga
og grátlegt að ekki
fleiri áhorfendur
fengu að njóta hans,
en aðeins um 400
greiddu aðgang. Portúgalska liðið
er létt og leikandi og brá oft fyrir
skemmtilegum leikköflum, en sókn-
ir þess brotnðu flestar á vörninni
og það sem fór í gegn sá Bjami
Sigurðsson um að veija. Valsmenn
léku stífan varnarleik aðeins með
Antony Karl í fremstu víglínu. Þeir
gáfu gestunum miðjuna eftir og
voru þolinmóðir - lokuðu svæðum
og létu þá koma. Þegar þeir nálguð-
ust vítateiginn tóku þeir á þeim og
byggðu á stórhættulegum skyndi-
sóknum.
í fyrri hálfleik náðu Valsmenn
að skapa sér tvö góð marktæki-
færi. Fyrst Antony Karl eftir fyrir-
gjöf frá Jóni Grétari, en Castro
markvörður varði vel skalla hans.
Skömmu síðar kom önnur álíka
sókn - Jón Grétar gaf fyrir frá
hægri og Antony Karl hugðist
skalla í markið en í sama mund var
hann keyrður niður aftanfrá og
hefði því réttilega átt að fá víti, en
dómarinn var ekki á sama máli.
,jÞetta var ekkert annað en víti.
Ég ætlaði að skalla boltann en var
keyrður niður aftan frá,“ sagði
Antony Karl. Gestimir fengu nokk-
Valur B.
Jónatansson
skrifar
Morgunblaðið/Kristinn
Valsmenn vildu fá dæmda vítaspymu er Anthony Karl Gregory var keyrður
niður aftanfrá í fyrri hálfleik rétt áður en hann náði að skalla fyrirgjöf Jóns-
Grétars Jónssonar. En. dómarinn var ekki á sama máli.
ur færi en Bjami sýndi hversu hann
er megnugur í þrígang.
Portúgalamir réðu ferðinni
fyrstu 30 mínúturnar í síðari hálf-
leik, reyndu þá að skjóta fyrir utan
vítateig en flest skot þeirra voru
hættulaus. Valsmenn fengu síðan
þijú sannkölluð dauðfæri tii að gera
út um leikinn síðasta stundarfjórð-
unginn. Fyrst Porca er hann var
einn og óvaldaður fyrir opnu marki
en markvörðurinn varði gott skot
hans í hom. Antony Karl var ná-
lægt því að skora úr vítateignum
eftir hornspymu og Steinar var
óheppinn að skora ekki er fimm
mínútur vom eftir. Hann fékk bolt-
ann við markteigshornið hægra
megin, snéri laglega á varnarmann
en enn einu sinni var portúgalski
markvörðurinn á réttum stað.
Valsmenn eiga hrós skilið fyrir
góðan leik. Þeir börðust vel og
sýndu að með skynsamlegum leik
er hægt að velgja bestu liðum Evr-
ópu undir uggum. En nú er aðeins
hálfleikur og það verður á brattan
að sækja í Portúgal. Með svipuðum
leik ættu þeir að geta komið á óvart
þ.e.a.s. ef þeir ná að nýta færin sem
kunna að skapast.
Laugardalsvöllur, Evrópukeppni bik-
arhafa, fyrri leikur -1. umferð,
fimmtudaginn 17. september 1992.
Aðstæður: Sunnan kaldi, hiti um 8
stig. Völlurinn blautur.
Gult spjald: Rui Bento (50.), Manuel
Guimaraes (80.), Jón S. Helgason
(75.). Allir fyrir brot.
Dómari: J.L.F. Van Vliet frá Hol-
landi.
Áhorfcndur: 780, þar af greiddu 400
aðgangseyri.
Valur: Bjami Sigurðsson - Izudin
Dervic, Einar Páll Tómasson, Jóna
S. Helgason, Jón Grétar Jónsson -
Ágúst Gylfason, Gunnlaugur Einars-
son, Steinar Adólfsson, Ágúst Gylfa-
son, Baldur Bragason, Salih Porca -
Antony Karl Gregory.
Boavista: Alfredo Castro - Antonio
Caetano, José Tajares, Rui Bento,
José Garrido - Marion Brandao (An-
tonio Santos 35.), Manuel Guimaraes,
Mamadu Djalo, Ruimannel Casaca -
Erwis Fredins, Richard Onwubokiri.
ÓLYMPÍUMÓT ÞROSKAHEFTRA l' MADRID
Sigrún Huld vann tvenn
gullverðlaun í gær
- hún setti heimsmet í 200 m skriðsundi og var í sigursveit íslands í 4x50 m skriðsundi
SIGRÚN Huld Hrafnsdóttir
bætti tveimur gullverðlaun í
safnið á Ólympíumóti þroska-
heftra í Madrid í gær og hef ur
því unnið þrenn gullverðlaun
og ein silfurverðlaun. Hún
sigraði í 200 metra skriðsundi
á nýju heimsmeti, 2.44,14
mín. og var í sigurveit íslands
í 4x50 metra skriðsundi.
Fyrir hádegi fór fram keppni
um að komast í úrslitakeppn-
ina síðar um daginn í 7 sundgrein-
_■■■■■ um og áunnu
Sigurður krakkamir sér rétt
Magnússon til þátttöku í 5
skrifar greinum með þess-
fra Madrid um árangri;
50 m baksund kvenna:
Gull: Briscan Olimpia, Rúm., 37,04.
Silfur: Guðrún Ólafsd., ísl. 42,54.
Brons: Ana Pena, Uruguay, 42,87.
■Tími Guðrúnar er jafnframt nýtt ís-
landsmet.
100 m flugsund karla:
Gunnar Gunnarsson varð þar f 4. sæti á
eftir keppendum Ástralíu sem voru í 1.
og 2. sæti og Argentínu sem varð í 3. sæti.
200 m skriðsund kvenna:
Gull: Sigrún Huld, ísl. 2.44,14.
Silfur: Patti Mason, Kan., 2.49,53.
Brons: K. Johansson, Svíþjóð, 2.53,20.
■Timi Sigrúnar er íslands-, Ólympíu-
og heimsmet.
200 m bringusund kvenna:
Gull: Katarina Johansson, Svíþjóð,
3.18,81.
Silfun Guðrún Ólafsdóttir, ísl. 3.36,75.
Brons: Birgitte Middendorp, Holl.,
3.59,48.
4x50 m skriðsund kvenna:
Gull: ísland, 2.27,96 mfn.
Silfur: Uruguay, 2.29,64 mín.
Brons: Ástralía, 2.31,01 mín.
■í okkar sveit voru Bára, Katrín, Guðrún
og Sigrún Huld.
Þetta var mest spennandi sund
dagsins. Þijár fyrstu í sveitinni
héldu nánast alveg jöfnu við Ur-
uguay-sveitina eða þangað til kom
að lokaspretti Sigrúnar Huldar,
sém skilaði sér 4-5 metrum í
mark á undan næsta keppanda
og nýtt Ólympíumet leit dagsins
ljós.
Uppskera gærdagsins: íslenski
þjóðsöngurinn leikinn og fáni okk-
ar dreginn að hún tvisvar.
Frjálsíþróttir
Aðalsteinn hefur tekið þátt í
hástökki, 200 m hlaupi, lang-
stökki og 100 m hlaupi. Stefán
hefur tekið þátt í 100 m, 200 m,
400 m og 800 m hlaupum og lang-
stökki frá því leikamir hófust.
Báðir bættu þeir árangur sinn,
Sigrún Huld Hrafnsdóttir hefur staðið sig frábærlega í sundi.
nema í langstökki, en ekki það
mikið að þeir kæmust neins stað-
ar í útslitakeppni.
Þórður Hjaltested aðalfarar-
stjóri sagði í stuttu spjalli að
íþróttaleg framkvæmd leikanna
hefði farið fram með ágætum, en
að ýmsu mætti fínna varðandi
gistibúnað og mataræði. Enginn
væri þó að kvarta og samheldnin
og keppnisgleðin réði ríkjum.
í lok þessa ánægjulega dags
hitti ég allar stelpurnar sem unnu
til verðlaunanna og hugðist óska
þeim til hamingju með handa-
bandi og kossi á kinnina. Þær
máttu ekkert vera að því að bíða
eftir svoleiðis formlegheitum,
heldur komu að fyrra bragði og
föðmuðu mann að sér. Þeirra
þakklæti og gleði er oft ólýsanleg.
í dag heldur sundkeppnin
áfram í mörgum riðlum í 7 mis-
munandi greinum. Okkar fólk er
með í einum 10 tilvikum og við
sjáum hvað setur.
Bestu kveðjur frá öllum í hópn-
um.