Morgunblaðið - 07.10.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1992
C 7
Manuekla til baga við
útgerð og fískvinnslu
Ekkert atvinnuleysi
er í Grundarfirði
ar minni saltfiskverkunarstöðvar.
út frá Grundarfirði á handfæri og
á staðnum. Atvinnuleysi er ekkert.
í Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar
er unnin bolfískur og hörpudiskur
jafnhliða. Togarinn Klakkur SH 510
sér vinnslunni fyrir hráefni. Hann
var nýlega keyptur til staðarins frá
Vestmannaeyjum og hefur í alla
staði reynst ágætlega. Togaranum
fylgdi nokkur kvóti og er nú heild-
arkvóti hans rúmlega 1.800 þorskí-
gildi. Framkvæmdastjóri frystihúss-
ins segist skipta talsvert við fisk-
markaðinn þegar hráefni togarans
þrýtur og verður vinnslan þannig
stöðug.
Hundrað spurðu um vlnnu
í Sæfangi er unnin fiskur úr tog-
aranum Runólfi SH 315. Afkoma
fyrirtækisins hefur verið mjög góð
það sem af er þessu ári og alltaf
er nóg að gera fyrir starfsfólkið.
U.þ.b. áttundi hluti hráefnisins er
keyptur á fiskmarkaðnum, því þótt
verðið sé hátt á markaðnum er, þeg-
ar allt kemur til alls, ódýrara að
kaupa það en að stöðva vinnsluna.
í Fiskverkun Soffaníasar
GRUNDARFJÖRÐUR - I
Grundarfirði er talsverð út-
gerð og fiskvinnsla. Þijú all-
stór fiskvinnslufyrirtæki eru í
fullum gangi og að auki nokkr-
Allmargir smábátar eru gerðir
línu. Fiskmarkaður er starfandi
Cecilssonar er eingöngu unnin rækja
þessa dagana. Afkoma
rækjuvinnslunnar er heldur léleg.
Til stendur að hefja vinnslu
hörpudisks fljótlega samhliða
rækjuvinnslunni. Mannekla hefur
verið til baga, og nýlega var auglýst
eftir starfsfólki í dagblöðunum. Það
vakti athygli að 100 fyrirspumir
bárust vegna þessarar auglýsingar
og voru ungir karlmenn í miklum
meirihluta því yfir 90 karlmenn
sóttu um vinnu, en aðeins 6 eða 7
konur. Eftir þessu að dæma er
atvinnuleysi nú meira hjá
karlmönnum en hjá konum.
Framkvæmdlr á vegum
sveltarfélagsins
Nokkur atvinna er við laxeldi hér
í Gmndarfirði. Frá laxeldisstöðinni
við Lárós er slátrað hafbeitarlaxi
og hann sendur flugleiðis á markað
erlendis. Talsverð vinna er við að
pakka laxinum og ganga frá honum
til flutnings. Hafbeitarlax er einnig
reyktur hér og grafínn og er honum
síðan pakkað í neytendaumbúðir og
seldur víða um land.
Sveitarfélagið hefur staðið í tals-
verðum framkvæmdum vegna sjáv-
arútvegsins. Dýpkað hefur verið
meðfram norðurgarðinum þar sem
togararnir leggjast að, en svæðið
virðist fyllast smátt og smátt af
gijóti. Mun það hafa komið fyrir að
togararnir hafi tekið niðri í stór-
straumsfjöru. Ennfremur er verið
að ganga frá viðbót við flotbryggju
fýrir smábátana. Mjög þröngt var
orðið um litla báta í höfninni og má
í því sambandi nefna að í sumar
voru 20 bátar í plássi sem ætlað var
8 bátum. Viðbótin verður u.þ.b. 20
bátapláss. Endurbætur á grjótvöm
hafnarinnar standa fyrir dyram á
næstunni. Ný tölvustýrð hafnarvog
var tekin í notkun fyrir nokkram
dögum og aðstaða hafnarvarða end-
urbætt.
Atvinna er næg í byggðarlaginu
pg sums staðar vantar fólk í vinnu.
í mörgum tilvikum kýs fólk frekar
vinnu í fiski en í öðram störfum, svo
sem afgreiðslu og skrifstofustörfum.
Hér kemur ýmislegt til og á notkun
flæðilínu eflaust sinn þátt í þessu.
Vinnuaðstaða hefur batnað og bónus
er hærri. Þannig verða laun fyrir
fiskvinnslu hærri en í ýmsum öðram
störfum og vinnuaðstaða betri.
Staðínn verði vörður
um auðlindir siávarins
Nokkrar ályktanir á ársfundi
Alþjóðasamtaka í sjávarútvegi
ALÞJÓÐA-
SAMTÖK í
sjávarút-
vegi, ICFA,
skora á rík-
isstjórnir víða um heim að grípa tafarlaust til nauðsynlegra aðgerða
til að vernda og efla auðlindir sjávarins, sem eru í senn mikilvæg
fæðuuppspretta og efnahagslegur grundvöllur margra þjóða. Segir
svo í lokaályktun samtakanna en ársfundur þeirra var haldinn i
Reykjavík í september.
Aðilar að ICFA eru samtök í sjáv-
arútvegi og fiskiðnaði níu stórra
fiskveiðaþjóða, Þýskalands, Tæ-
vans, Kanada, Íslands (Samtök at-
vinnurekenda í sjávarútvegi), Jap-
ans, Bandaríkjanna, Nýja Sjálands
og Noregs. Á ársfundinum gerðu
fulltrúar grein fyrir stöðu veiða og
vinnslu í sínum löndum og höfðu
flestir þá sögu að segja, að fram-
leiðslan færi minnkandi vegna
slæms ástands fiskstofna og tak-
markana stjórnvalda. Þá var einnig
vakin athygli á því, að sjávarafurð-
ir samsvara 16% af neyslu eggja-
hvítuefna úr dýraríkinu og veiðar,
vinnsla og dreifing veiti milljónum
manna atvinnu víða um heim. -
Framtíð fískveiða stafar nú ógn
af vaxandi mengun, umhverfís-
breytingum um allan heim, eyði-
leggingu á hrygningar- og uppeldis-
slóðum og einnig af pólitískum
ákvörðunum, sem halda aftur af
framleiðslu eða viðskiptum með
fískafurðir. Skorar ICFA því á ríkis-
stjómir að draga úr hömlum að
þessu leyti og bæta almenna físk-
veiðistjóm hvað varðar einstök lönd
og í alþjóðlegu samstarfí.
Á ársfundinum var vakin sérstök
athygli á uppgangi selastofna í
norðurhöfum en áætlað er, að þeir
vaxi um 7-12% árlega. Bendir flest
til, að áhrif þessa á fískstofnana
séu mjög alvarleg og hvetur ICFA
til, að nýtingu sjávarspendýra sé
hagað með tilliti til ástandsins á
hveijum stað. Þá skora samtökin
einnig á allar þjóðir að forðast að
reyna troða skoðunum sínum og
gildum yfír á aðrar og-hafna setn-
ingu einhliða laga eða efnahags-
þvingana, sem bijóti gegn gildandi
alþjóðasamningum. t
Stærð: 5.9 brúttótonn
Lengd: 7.99m, Breidd: 3.0m.
Vél: YANMAR 170 hö.
Ganghraði: 17 sjómílur.
Ný kynslóð
ÍSFELL TEKIÐ TIL STARFA
■ FYRIRTÆKIÐ ísfell hf. var formlega opnað sl. föstudag en
meginstarfsemi þess er veiðarfærasala og einkum togveiðibúnað-
ar. Af þessu tilefni efndi ísfell til kynningar og sýningar á ýms-
um söluvörum sinum, sem allar eru viðurkenndar um borð í ís-
lenskum fiskiskipum, og voru viðstaddir hana fulltrúar fimm
erlendra framleiðenda og útgerðarmenn víðs vegar að af land-
inu. Á meðfylgjandi mynd eru þeir Jón Leósson, Páll Gestsson,
Hólmsteinn Björnsson og Pétur Björnsson en þeir eru eigendur
ísfells. Er fyrirtækið í eigin húsnæði á Fiskislóð 131A í Reybjavik.
Sjóf ryst beita
Beitusmokkurinn var veiddur í sumar og er
því einn sá ferskasti á markaðnum.
- Ferskleiki og gæði beitunnar eru undirstaða
árangurs.
- Seafreeze uppfyllir óskir kröfuharðra sjómanna
með því að sjófrysta beituna um borð í togurum
útgerðarinnar.
Bjóðum beituna í handhægum 12 kg pakkningum.
Verð: „M“-stærð: „S<f-stærð:
Afgreitt úr Hofsjökli 58,00 kr./kg 57,00 kr./kg
Afgreitt frá lager 62,00 kr./kg 59,00 kr./kg
Afgreitt er frá lager á eftirtöldum stöðum:
Eimskip, Hafnarfirði sími 91-652888
Hraðfrystihús Hellissands, Rifi sími 93-66614
Tryggvi Tryggvason, ísafirði sími 94-4555
Valdimar Snorrason, Dalvík sími 96-61880
Fjörður hf., Seyðisfirði sími 97-21555
Borgey, Höfn sími 97-81116
„Beitan er ein sú ferskasta og ódýrasta á markaðnum11
JÍIUI
Seafreeze Ltd.
Umboðsaðili á íslandi: Jöklar hf., Aðalstræti 8,
sími 91-616200, myndsendir 91-625499.
Aðalfundur
Fiskifélagsdeild Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og ná-
grennis heldur aðalfund fimmtudaginn 8. október
1992 kl. 20.30 í húsi Fiskifélagsins, Höfn við Ingólfs-
stræti.
Dagskrá fundarins:
1. Fundarsetning, kosning fundarstjóra og ritara.
2. Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram.
3. Tillögur að nýjum samþykktum fyrir deildina.
4. Kosning formanns.
5. Kosnir 4 meðstjórnendur og 4 til vara.
6. Kosnir 2 endurskoðendur og 2 til vara.
7. Kosnir 4 Fiskiþingsfulltrúar og 4 til vara.
8. Ávarp Þorsteins Gíslasonar, fiskimálastjóra.
9. Þórður Ásgeirsson, fiskistofustjóri, ræðir um
starfsemi Fiskistofu.
10. Málefni til 51. Fiskiþings.
11. Önnur mál.
Stjórnin.
m
KVÖTABANKINN
Höfum til sölu varanlegan kvóta og leigukvóta.
Einnig síld. Aðstoðum þá sem vilja framselja úthlutun
Hagræðingarsjóðs.
Sími 656412, fax 656372, Jón Karlsson.