Morgunblaðið - 07.10.1992, Page 8
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
____________________MIDVIKUDAGUR 7. OKTÓBER1932
Dregið úr
styrkjunum
FÆREYSKA landstýrið veitir nú 251
milljón færeyskra króna, um 2,5
milljörðum íslenzkra í beinan stuðn-
ing til sjávarútvegsins. í fyrra nam
þessi beini stuðningur 3,7 milljörðum
íslenzkra króna, auk 1,7 milljarða í
sérstök verkefni.
Beinn stuðningur við færeyska sjáv-
arútveginn hefur farið minnkandi á
undanfömum árum, en lögð hefur verið
áherzla á úreldingu vegna minnkandi
j afla. Þannig fór tæplega einn milljarður
, króna í úreldingarstyrki í fyrra og um
650 milljónir í aðra þætti eins og haf-
rannsóknir og veiðitilraunir á erlendum
hafsvæðum. Stuðningurinn til sjávarút-
vegsins hefur tekið mið af breyttum
aðstæðum, en sérstök ráðgefandi nefnd
hefur nú skilað áliti um styrkina. Hún
telur þá hafa unnið gegn markaðslög-
málunum og komið í veg fyrir þróun
úrvinnslunnar.
Gæðin lítil og fiskurinn
alltaf fullur af hríngormi
við hann hafa. Hann sagði einnig að
hollenzka flugfélagið KLM vildi engin
viðskipti eiga við íslenzk fyrirtæki enda
hefðu mörg þeirra það orð á sér að
geta ekki staðið við að afgreiða um-
samdar pantanir," segir Björn.
„Við áttum von á jákvæðum við-
brögðum við íslenzkum fiski og fiskaf-
urðum og því fundust okkur þessi við-
brögð kaldhæðnisleg í ljósi þess að það
vantar góðan fisk til vinnslu á íslandi.
Þetta bendir til að öll fyrirhöfn og fé,
sem varið hefur verið til kynningar á
íslenskum gæðavörum og fiski úr
ómenguðum höfum, hafí verið lögð í
rúst með útflutningi á físki, sem ekki
hefur farið um hæfar hendur starfs-
fólks í íslenzkum fiskvinnslustöðvum.
Að auki er það súrt í broti, sérstaklega
þegar gæðaátak á landsvísu stendur
yfir, að atriði eins og óáreiðanleiki í
afhendingu, skuli geta valdið þeim, sem
vilja byggja upp traust viðskiptasam-
bönd, jafnmiklum erfíðleikum og raun
ber vitni,“ segir Bjöm.
íslenzkur ísfiskur hefur
slæmt orð á sér í Hollandi
„ÞAÐ kom mer mjög a
óvart í viðræðum mínum
við hollenzkan viðskiptavin
um mögulega markaðssetn-
ingu á íslenzkum fiski og
fiskafurðum í Hollandi fyrir nokkru, að íslenzkur fiskur virtist þekktur
fyrir slök gæði á meðal kaupenda á hollenzku fiskmörkuðunum. Þegar
ég spurði hvort íslenzkur fiskur væri ekki að einhverju góðu eða sérstöku
þekktur, var svarið að gæði íslenzka fisksins væru alltaf slök og skipti
þar mestu að fiskurinn væri fullur af hringormi. Hann væri því aðeins
hæfur til mjölvinnslu. Þá olli það okkur miklum vonbrigðum að heyra
að íslenzkir sölumenn væru ekki nógu áreiðanlegir,“ segir Björn Wester-
gren, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Hugtök hf.
Bjöm segir að spumingunni um
hvort það hefði engin áhrif að fískurinn
við ísland væri veiddur úr ómenguðum
sjó, hefði verið svarað á þá leið að svo
væri ekki. Auðvitað gætu neytendur
talið að mengun væri miklu minni við
ísland en víðast annars staðar, en þeir
væm ekki tilbúnir til að greiða fyrir
það. Einn viðmælenda okkar sagði að
þeir hefðu tekið mikið af físki frá ís-
landi, einkum þorsk, á síðasta ári og
hann hefði alltaf verið fullur af ormi.
Bjöm var á ferðinni í Hollandi ásamt
Gunnlaugi Guðmundssyni frá Fransk-
íslenzku eldhúsi við markaðssetningu
afurða frá því. Einn kaupandi þeirra
sagði, að Hollendingar hefðu þá skoð-
un, að íslenzkir sölumenn væra óáreið-
anlegir. „Þessi viðskiptavinur hafði
orðið fyrir því, að þegar hann kynnti
þýzku fyrirtæki framleiðsluvörarnar
frá íslandi, vildu þeir engin viðskipti
UPPSÁTUR í ÓLAFSVÍK
Morgunblaði/Alfons
UPPSÁTUR fyrir smábáta hefur nú verið byggt við Ólafsvíkurhöfn
og er þannig bætt úr brýnni þörf fyrir eigendur smábátanna en allt
að 110 slíkir voru gerðir út frá Ólafsvík í sumar. Að sögn Stefáns
Garðarssonar er kostnaður við uppsátrið um 1,6 milljónir króna og
kóstað af bænum og Vita- og hafnarmáiastofnun. Verktaki var Jónas
Kristófersson og er hann hér við verkið ásamt lærisveinum sínum.
FÓLK
Kári sér um
fisksöluna
■ FISKMARKAÐUR
Hornafjarðar er nú að festa
sig í sessi, en þar ræður ríkj-
um Horn-
firðingurinn
Kári Söl-
mundarson.
Kári er 23
ára, borinn
og barnfædd-
ur Hornfírð-
ingur, þaul-
vanur sjó-
maður með fyrsta stig Stýri-
mannaskólans. Fiskmarkað-
urinn hóf starfsemi fyrsta júní
síðastliðinn og segir Kári að
starfsemin gangi þokkalega
miðað við áætlanir. Reiknað
hafí verið með halla í fyrstu,
enda þá meira hugsað um
markaðssókn en hagnað. Búið
er að selja um 400 tonn, mest
af bátum og fara um tveir
þriðju hlutar físksins út úr
fjórðungnum við sölu. Mest
hefur þetta verið ufsi, ýsa og
þorskur af bátum heima-
manna. Kári segir að menn
geri lítið af því að hirða furðu-
fískana svokölluðu, en þeir
hafi þó selt hámeri á dögun-
um. 69 aðilar á Höfn og ná-
grenni standa að Fiskmarkaði
Homafjarðar og er Guðmund-
ur Eiríksson formaður stjóm-
ar.
Steingrímur á
Nýfundnalandi
■ STEINGRÍMUR Her-
mannsson, fyrrverandi for-
sætisráðherra og sjávarút-'
vegsráð-
herra, var á
dögunum á
Nýfundna-
landi, þar
sem hann
kynnti sér
stöðuna í
sjávarútvegi
þar. Stein-
grímur var á ráðstefnu um
lífíð í eyríkjum á Prince Edw-
ard-eyjum í nágrenni Ný-
fundnalands og notaði tæki-
færið til að kynna sér stöð-
una. „Staðan hjá þeim er í
raun hörmuleg og það ætti
að vera okkur víti til vam-
aðar, hvemig komið er fyrir
þeim. Þorskstofninn er hran-
inn og atvinnuleysi til tveggja
ára vofír yfír þúsundum
manna,“ segir Steingrímur.
„Ég hitti nokkra menn þama
að máli, meðal annars sjávar-
útvegsráðherra ríkisins, Cart-
er og Wells forsætisráðherra,
frammámenn í sjávarútvegi
eins og Cabot Martin, for-
mann samtaka sjómanna á
grannsævi og fleiri. Það
versta við stöðuna virðist svo
vera það, að menn hafa misst
frumkvæðið og kraftinn til
athafna og segja má að mikil
uppgjöf sé ríkjandi þarna,“
segir Steingrímur.
Steingrimur
Hermannsson
Stærðir: 70, 80 og 100 lítra
LÍNUBALAR
BoRnaiplasf tiL
Sefgörðum 3, Seltjarnarnesi
Sími 612211 - Símbréf 614185
Sterkir og auðveldir að þrífa.
Gámur, 40 fet. + 2°C. Ferskur lax. Afhending Boulogne. Á mánudag kl.02:00
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM RÉR LEIÐ