Alþýðublaðið - 13.11.1920, Side 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Aígreið^ia
blaðsÍK'i er í Aiþýðuhúsinu við
Ingólfsstræti og Hverfisgötu.
Sími 988.
Auglýsingum sé skilað þangað
«ða í Gutenberg í síðasta lagi kl.
10 árdegis, þann dag, sem þær
aiga að koma f blaðið.
Askriftargjald ein íir. á
mánuði.
Auglýsingaverð kr. i,SO cm.
aindálkuð.
Utsölumenn beðnir að gera skil
ai afgreiðslunnar, að minsta kosti
ársfjórðungslega.
vatnaleið verði gerð frá Madrid
(höfuðborginni) til hafs; því næst
íér hann um England, Þýzkaland
og Holland, en þá kemur franska
byltingin, sem hann þó tekur eng
an þátt í og er heldur fjandsam-
legur.
Á byltingartímabilinu missir fjöl-
skylda hans eignir sínar, og til
þess að afla sér fjár, svo hann
-geti framkvæmt hugmynúir sínar,
íilær hnnn í félag við prússneskan
stjórnmálamann og stofnar til
gróðafyrirtækis, en það fer svo,
að félagi hans situr einn uppi
með gróðann, en Saint Simon verð-
ur því nær slippur eftir vegna óeig-
ingírni sinnar. Þá verður hann að
taka við illa Iaunaðri stöðu og
iifir við fátækt úr því, unz nokkr-
ir lærisveinar hans taka hann að
sér síðustu ár æfi hans. Fórnfýsi
hans var við brugðið alla tíð.
ÆUun Saint-Simons var, að
safna um sig lærðum mönnum,
stofna til háskóla í þjóðfélags-
máium og gefa út nýja alfræði-
bók til þess að koma að í henni
hugniyndum sínum og fyrirætlun-
um. Ritstörf hóf hann ekki að
neinu ráði fyr en seinni hluta æfi
sinnar, en þá tók hann líka til
óspiltra málanna, og reit hverja
bóldna eftir aðra.
Fyrsta ritið: Letters d un habi-
tant de Genéve á ses contempo-
rains, (Bréf frá íbúa í Genf til
samtíðarmanna hans), kom út 1803
og ræddi að^llega um politík og
vísindi. í L’Industrie (Iðnaðurinn)
sem út kom 1817 byrjaði hann
fyrst að setja fram jafnaðarhug-
tnyndir sínar.
Hér verður ekki farið nákvæm
lega út í hugmyndir og staðhæf-
ingar Saint Simons, en að eins
skal það tekið fram að hann er
hinn fyrsti í röðinni af endurbóta-
mönnum 19. aldaricnar, ogeinhver
hinn frumlegasti þeirra og meðal
þeirra fremstu. Áhrifa hans gætir
víða. Comté (frægur franskur heim-
spekingur) var lærisveinn hans, og
er höfuðatriðið í heimspekisskoð
un hans beinlínis ávöxtur af því
fræi er Saint Simon sáði. Hann
var brautryðjandi nútíma þjóðfé
lagsfræði og leggur drögin til
þess, að jafnaðarstefnan verður
að ákveðinni þjóðhagslegri kenn-
ingu. Sjálfur er hann raunveru-
lega ekki jafnaðarmaður, því hon
um var ekki Ijóst hið öfuga hlut-
fall milli vinnu og auðs. Hann er
frekar málsvari smáborgaranna og
iðnaðarmanna, en verkamanna
beinlínis, gagnvart yfirdrotnun léns-
veldisins og klerkaveldisins.
Hugsun Saint-Simons var ekki
Ijós og lítt skipulagsbundin. Bæk-
ur hans voru mest megnis sí end
urteknar hugmyndir hans, en hugs-
anir hans voru ætíð smellnar og
frumlegar, og hafa sem áður er
sagt haft mikil áhrif á hugsana-
gang eftirmanna hans. I. J.
Bruni.
Pósthúsið í Borgarnesi brenn-
ur til kaldra kola.
Póstur brennur og skjöl
sýslumanns.
í gærdag, á 5. tímanum, kvikn-
aði eldur í pdisthúsinu í Borgarnesi
og brann það til kaldra kola á
skammri stundu. Húsið var stórt
tvílyft timburhús með risi og há-
um kjallara og stóð rétt við það
nýsmíðað ullarþvottahús, sem einn-
ig brann. Sagt er að allmikið hafi
brunnið inni af pósti og einnig
töluvert af skjölum sýslumannsins.
Pósthúsið var eign Jóns Björns-
sonar kaupmanns, sem bjó í hús-
inu ásamt bróður sínum, Guðm.
Björnssyni sýslumanni, einnig
héldu nokkrir smiðir til á efsta
Iofti.
Ekki er oss kunnugt um upp-
tök eldsins, en húsið var orðið'
all gamalt og alt lagt pappa, svo
eldurinn læsti sig um það á ör-
skömmum tíma.
Skaði mun allmikill hljótast af
brunanum, ekki sízt vegna bruna
póstsins og skjala sýslumanns,
íbúðarhúsið mun hafa verið vár-
trygt, en þó ekki hátt.
€rlettð simskeytl
Khöfn, 13. nóv
Kóbelsrerðlaunin.
Frá Stokkhólmi er símað, 28’
Knut Hamsun hafi hlotið bók-
mentaverðlaun Nobels fyrir árið'
1920 og Svisslendingurinn Carlv
Sgitteler fyrir árið 1919.
Iloyd George
tekur þátt í þjóðasambandsfundin~
um í Genf.
Erlend mynt
Khöfn 13. nóv.
Sænskar krónur (100) kr. 143,29
Norskar krónur (100) — 100,00
Dollar (1) — 7,69
Pund sterling (1) — 25.73
Þýzk mörk (100) — . 900
Frankar (100) — 44,25.
öni daginn 09 npL
Kveikja ber á hjólreiða- ogl
bifreiðaljóskerum eigi síðar en kl-
4 i kvold.
Bíó'n. Gamla bíó sýnir: „Tígul-
ás“. Nýja bíó sýnir: „Stjarnam
frá Yukon".
Sainbandsþingið var sett í gær
og var ákveðið, að framhalds-
fundur, sem hefst á morgun kl-
6 síðdegis, verði opinn félags-
mönnum úr sambandsfélögunum.
sem sannað geta félagsvist sína>
meðan húsrúm leyfir. Funduriutt
verður í Góðtemplarahúsinu niðri-