Morgunblaðið - 01.12.1992, Side 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR
1. DESEMBER 1992
KNATTSPYRNA
Ellert B. Schram, sem er for-
maður framkvæmdapefndar Evr-
ópukeppninnar, segir að þetta fyr-
irkomulag — að greiða félögum
fyrir mörk og stig — hafí verið
tekið upp til að leikmenn og félög
slái ekki slöku við í leikjum sem
skipti félögin litlu máli. „Nú hafa
félögin að einhveiju að keppa í
hveijum leik,“ sagði Ellert.
Alex Ferguson
FOLX
Ein kvöldstund
kostaði 130 milljónir
UEFA greiðir knattspymufélögum nú andvirði 10
milljóna ísl. kr. fyrir hvert mark sem skorað er. í 1.
umferð í úrslitakeppni meistaraliða voru skoruð 13
IFK Gautaborg og CSKA Moskva skomðu ekki.
2Ð . 20 . 20 . 20 .
m>"iónir mi"iónir rniHÍón,r miHÍón,r
1°
mi"iónl
bÍ P»“' Mto
40
mi"ión
-
Marco van Basten hefur skorað
grimmt fyrir AC Milan.
AC MILAN heldur enn sínu striki
í ítölsku deildarkeppninni. Vann
Juventus 1:0 á sunnudag, en
Capello þjálfari varar þó við of
mikilli bjartsýni. „Viö erum eng-
an veginn búnir að tryggja okkur
titilinn, það kemur leikur eftir
þennan, svo annar og enn aftur
annar, alveg þangað til deildinni
lýkur f vor — enginn leikur er
unninn fyrirfram," sagði hann.
Sigurinn á Juventus var sá fímmti
í röð á útivelli í vetur hjá hinu
stórkostlega Mílanó-liði og sá 45. í
röð án taps í deild-
Frá Birgi >nn>- Eftir frábæran
Breiðdal Evrópuleik í síðustu
á ítaiiu viku virtust leikmenn
Milan þó þreyttir.
Juve hóf leikinn af krafti, og eftir
aðeins stundarfjórðung var liðið ná-
lægt því að skora er fast skot lenti
í stöng.
í síðari hálfleik komu leikmenn
Milan mun ákveðnari til leiks.
Snemma átti Króatinn Boban þrumu-
skot í samskeytin beint úr auka-
spymu og það var framheijinn knái
Marco Simone sem skoraði eina
mark leiksins eftir frábæra stungu-
sendingu Bobans. Eftir leikinn hrós-
aði Simone þjálfaranum, Capello:
„hvíifkt hugrekki að setja mig í stöðu
[Frakkans] Papin.“ Undir lokin fékk
Juventus dæmda vítaspymu en Rossi
varamarkvörður varði glæsilega
slakt skot Viallis og strax á eftir frá
Casiraghi. „Ég var tekinn út úr byij-
unarliðinu eftir aðeins ein mistök,"
sagði hetja Milan fokreið eftir leik-
inn. Rossi hefur setið á bekknum
undanfarið, en kom inn á er Anton-
oli meiddist snemma leiks á sunnu-
dag.
Besti maður Juventus var Þjóð-
verjinn Jiirgen Kohler, hann gætti
Van Basten frábærlega vel.
Michel Platini, Frakkinn frábæri
sem gerði garðinn frægan með Ju-
ventus á árum áður, var í stúkunni
í Tórínó og sagði eftir leikinn: „Ég
var heppinn; í minni tíð lék Milan í
2. deild.“
Paul Gascoigne var búinn að lofa
stuðningsmönnum Lazio marki fyrir
nágrannaslaginn við hitt Rómarliðið,
AS Roma. Og sú varð raunin. Giann-
ini náði forystu fyrir Roma snemma
í seinni hálfleik en á 86. mín. barst
boltinn hátt inn í teig eftir auka-
spymu, Englendingurinn stökk
manna hæst og skallaði glæsilega í
netið. Eftir leikinn sagði hann, út-
Frá Bob
Flennessy
í Englandi
Hugrekki að setja
mig í stöðu Papins
- sagði Simone sem kom inn í lið Milan og gerði markið gegn Juve
grátinn af gleði: „Ég var farinn að
halda að ég myndi þurfa að læðast
með veggjum."
Loksins vann Napolí. Liðið lék án
Svíans Jonasar Thern en það kom
ekki að sök, því liðið burstaði Fiorent-
ina 4:1. Allt annað var að sjá til liðs-
ins nú en undanfamar vikur. „Litli
Maradona", eins og Gianfranco Zola
er kallaður, var besti maður vallarins
og gerði tvö mörk, annað beint úr
aukaspymu eins og Maradona var
frægur fyrir er hann lék með liðinu.
■ ERIC Cantona var á meðal
áhorfenda er Manchester United
vann Arsenal 1:0 á laugardaginn.
Franski landsliðsmaðurinn leikur
fyrsta leik sinn með
United gegn
Benfica í Lissabon
í kvöld.
■ LEIKURINN í
kvöld er settur á í tilefni 50 ára
afmælis gömlu kempunnar Euse-
bios, sem lék með Benfica gegn
United í úrslitum í Evrópukeppn-
innar 1968, en liðin hafa ekki
mætst síðan.
■ FYRIR leikinn mun Eusebio
og aðrir gamalkunnir kappar úr
portúgalska landsliðinu, leika
gegn heimsliðinu sem Alfredo di
Stefano mun stjóma, en í liðinu
leika kappar eins og Bobby Charlt-
on og Franz Beckenbauer.
■ DAVID Seaman, markvörður
Arsenal, hefur ekki misst úr leik
með liðinu í tvö og hálft ár, eða frá
því hann kom til Arsenal frá Q.P.R.
Hann fór meiddur útaf í leiknum
gegn Leeds um fyrri helgi en var
aftur kominn í markið á laugardag-
inn.
■ GEORGE Graham, stjóri Ars-
enal, var æfur út í framheijann Ian
Wright eftir leikinn á laugardag.
Graham hefur gagnrýnt leikmann-
inn talsvert undanfarið, og segir
að skori hann ekki í deildarbikar-
keppninni gegn Derby í kvöld verði
hann settur út úr liðinu á laug-
ardaginn.
■ RYAN Giggs, útheiji Manc-
hester United, varð 19 ára á
sunnudaginn. George Graham
sagði hann hafa verið besta mann
vallarins á Highbury á laugardag.
■ ÞORVALDUR Örlygsson var
ekki í liði Nottingham Forest gegn
Southampton á laugardag.
■ ALAN Shearer gerði 17. mark
sitt í vetur fyrir Blackburn — sig-
urmarkið gegn QPR — en varð að
fara af velli í upphafi seinni hálf-
leiks eftir gróft brot.
■ SÖGUSAGNIR eru á kreiki í
Englandi um að Steve Coppell sé
að fara frá Crystal Palace eftir
átta ára dvöl. Sunderland er sagt
vilja fá hann sem stjóra.
■ LUTON vann fyrsta heimaleik-
inn í vetur í 1. deild, en gleðin var
engin þar sem Darren Salton, bak-
vörður liðsins slasaðist mjög alvar-
iega í bílslysi í síðustu viku.
■ SALTON, sem leikið hefur í
landsliði Skota 21 árs og yngri, er
enn í dái og tengdur öndunarvél.
Reuter
Paul Gascolgne í baráttu um knöttinn við Camevale í leik Lazio og AS Roma um helgina. Englendingurinn jafnaði
þegar aðeins rúmar þijár mín. voru til leiksloka.
Hefureytt 18 millj.
punda í leikmenn
Alex Ferguson, framkvæmda-
stóri Manchester United, hef-
ur eytt tæplega 18 milljónum punda
(1,7 milljarðar ÍSK) í kaup á leik-
mönnum frá því hann tók við liðinu
fyrir fimm árum. Hann keypti
franska sóknarmanninn, Eric Can-
tona, í síðustu viku frá Leeds fyrir
1.2 milljónir punda og komu þau
kaup Fergusons sparkfræðingum
mjög á óvart.
Manchester United hefur ekki
unnið enska meistaratitilinn í 26
ár og þykir mörgum það of langur
tími. Hér á eftir fer listi yfír leik-
menn sem Ferguson hefur keypt
(kaupverð í enskum pundum):
Brian McClair frá Celtic........850.000
Jim Leighton frá Aberdeen.......470.000
Mark Hughes frá Barcelona.....1.600.000
Mal Donaghy frá Luton...........680.000
Steve Bruce frá Norwich.........780.000
Lee Sharpe fráTorquay...........150.000
Neil Webb frá N. Forest.......1.500.000
G. Pallister frá Middlesb.....2.500.000
Paul Ince frá West Ham........2.000.000
D. Wallace frá Southampton....1.200.000
Dennis Irwin frá Oldham.........700.000
A. Kanchelskis frá Donetsk......650.000
Peter Schmeichel frá Bröndby....500.000
Paul Parker frá Q.P.R.........2.000.000
Dion Dublin frá Cambridge.....1.000.000
Eric Cantona frá Leeds........1.200.000
Samtals
17.760.000
ITALIA
Ferguson
eyðslusamur
Van Basten tryggði
AC Milan 40 millj. ISK
á aðeins 28 mínútum
Þegar Marco van Basten skoraði
fjögur mörk fyrir AC Milan
gegn IFK Gautaborg í síðustu viku
itryggði hann félagi sínu „litlar"
40 milljónir ÍSK. Nýja fyrirkomu-
lagið í Evrópukeppni meistaraliða,
þar sem leikið er í tveimur fjög-
urra liða riðlum, hefur gefíð Knatt-
spymusambandi Evrópu, UEFA,
•góðartekjur. UEFA ákvað að verð-
launa félög í úrslitakeppninni fyrir
hvert mark sem þau skoruðu. Upp-
hæðin svarar til tíu millj. ÍSK fyrir
hvert mark.
Það tók Van Básten aðeins 28
mín. að skora fjögur mörk gegn
Gautaborgarliðinu, þannig að hann
færði AC Milan 1,428 millj. ÍSK á
hverri mínútu á meðan markalota
hans stóð yfír.
Alls voru þrettán mörk skoruð
í fjórum leikjum í Evrópukeppni
meistaraliða á fyrsta keppniskvöldi
átta liða úrslitanna, þannig að
UEFA þurfti að snara út 130 millj-
ónum króna á einu kvöldi fyrir
skoruð mörk og þar að auki dágóð-
um peningaupphæðum fyrir hvert
stig sem félögin fengu.