Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 5
MORGUKBLAÐIÐ lpROTTJI^R}^^mx 1, DESEMBEH 1992 B 5 KNATTSPYRNA / V-ÞYSKALAND Glæsimark Eyjótfs - tiyggði Stuttgartjafntefli, 1:1, gegn Mönchengladbach á elleftu stundu EYJÓLFUR Sverrison var hetja Stuttgart þegar meistararnir náðu jafntefli, 1:1, gegn Mönchengladbach á útivelli. Eyjólfur skoraði jöfnunarmark- ið á elleftu stundu. „Rétt eftir að knötturinn hafnaði í netinu flautaði dómarinn til leiksloka, þannig að það mátti ekki tæp- ari standa," sagði Eyjólfur, sem hefur heldur betur verið í sviðs- Ijósinu ítveimur síðustu leikj- um Stuttgart. Hann lagði upp sigurmarkið gegn Dortmund á dögunum, en skoraði nú jöfn- unarmarkið. Það má því segja að Eyjólfur hafi tryggt Stuttgart þrjú stig. Kapphlaupið var mikið undir lokin og við reyndum stöðugt að senda knöttinn inn í vítateigin hjá Mönchengladbach. Undir lokin kom há sending inn í teig þar sem Adrian Knup var vel staðsettur náði að skalla knöttinn innfyrir vörn Mönc- hengladbach. Ég komst á auðan sjó og lagði knöttinn í netið,“ sagði Eyjólfur, sem spymti knettinum með viðstöðulausu skoti upp í vinstra hornið. Leikmenn Stuttgart fögnuð gífurlega hið glæsilega marki. „Við höfðum heppnina með okkur því að við mættum leikmönnum Mönchengladbach í miklum ham og léku þeir sinn besta leik í vetur. Strax í byijun leiks vomm við heppn- ir að Michael Frontzeck hafi ekki verið rekinn af leikvelli, en hann felldi leikmann sem var að komast inn fyrir vöm okkar. Frontzeck fékk aðeins að sjá gula spjaldið, en að ENGLAND öllu eðlilegu átti hann að sjá rautt spjald,“ sagði Eyjólfur, sem skoraði mark í fyrri hálfleik, sem var dæmt af. „Ég skoraði fullkomlega löglegt mark með skoti frá vítateig, en öllum á óvart dæmdi dómarinn markið af og dæmdi brot á einn leikmann Stuttgart inn í leik. Þetta var ekki réttur dómur, en það þýðir ekkert að deild við dómarann." Pflipsen skoraði mark Mönc- hengladbach eftir aðeins tvær mín. í seinrii hálfleik. „Við þetta urðum við að opna leikinn og fara að sækja. Það varð til þess að mótheijamir fengu nokkur opin hraðaupphlaup, en þeir náðu ekki að nýta sér færi sín og við refsuðum þeim fyrir það með því að ná að jafna." Ertu búinn að tryggja þér öruggt sæti á ný í liðinu? „Ég vona það, en það er enginn öruggur með sæti sitt. Leikmanna- • hópurinn er stór hjá Stuttgart og við emm með starkan sextán manna hóp. Eftir slæmt gengi sem kom í kjölfarið á mistökunum í Evrópu- leiknum gegn Leeds, em leikmenn nú að vakna til lísins á ný. Það er alltaf erfitt að vera meistari, því að allir vilja leggja meistarana að velli. Það er langur vegur framundan og ég hef trú á að við verðum komnir á fulla ferð í seinni hluta deildarinn- ar og náum þá nokkmm sigurleijum í röð eins og síðastliðið keppnistíma- bil,“ sagði Eyjólfur. Stuttgart leikur heimaleik gegn Saarbrucken um næstu helgi og síðan úti gegn Werd- en Bremen 12. desember, en eftir það fara knattspymumenn í Þýska- landi í vetrafrí. Forysta Norwich eykst John Barnes frábær er Liverpool burstaði Palace NORWICH er komið með f imm stiga forystu í ensku úrvalsdeild- inni, eftir frækilegan sigur á Aston Villa á útivelli. Arsenal tapaði á sama tíma heima fyrir Manchester United, 0:1 og datt niður í þriðja sæti en Blackburn fór upp fyrir Lundúnaliðið með 1:0 sigri heima gegn QPR. Endurkoma John Barnes virðist hafa skipt sköpum fyrir lið Liverpool, sem hefur ekki þótt leika vel í vetur, en tók nú Crystal Palace í bakarflð — sigraði 5:0. Barnes var frábær, en þetta var annar leikur hans eftir langt hlé vegna meiðsla. Frá Bob Hennessy i Englandi Vöm Aston Villa var ekki eins sterk og áður; saknaði greini- lega Shauns Teale, sem var meidd- ur o g Norwich skoraði tvívegis fyrsta hálftímann. Þar voru David Phillips og Darren Beckford að verki. En Villa jafn- aði — Ray Houghton minnkaði muninn rétt fyrir hlé, með fyrsta marki sínu síðan hann kom frá Liverpool sl. sumar og Gary Park- er jafnaði er aðeins 22 sek. vora liðnar af seinni hálfleik. En Adam var ekki lengi í Paradís; Darryl Sutch kom Norwich yfir aftur að- eins þremur mín. síðar og Villa tapaði í fyrsta sinn í 14 leikjum. Manchester United, sem hafði ekki skorað í íjóram leikjum í röð þar til liðið vann Oldham 3:0 um fyrri helgi, hélt áfram þá braut sem rudd var þá; sigraði Arsenal í London með marki Marks Hug- hes á 27. mín. Hann þramaði í netið eftir fyrirgjöf Lees Sharpe, sem fékk knöttinn eftir að Ryan Giggs hafði þramaði í stöngina. United keypti franska landsliðs- miðheijann Eric Cantona í vikunni og virtust framheijar liðsins tvíefl- ast við það; Cantona sat í stuk- unni en hinir djöfluðust eins og þeir ættu lífið að leysa. Vilja ekki missa sætið til Frakkans. Crystal Palace, sem vann Liv- erpool bæði heima og úti á síðasta keppnistímabili, kom í heimsókn á Anfíeld og leikmenn liðsins vora minntir á úrslitin á sama stað fyr- ir þremur áram; þá vann Liverpool 9:0 en lét fímm mörk nægja að þessu sinni. Unglingalandsliðs- maðurinn McManaman skoraði tvívegis; þar á meðal fyrsta mark- ið eftir fyrirgjöf Johns Bames, sem sendi fyrir markið eftir að hafa platað þijá vamarmenn. „Það er erfítt að nefna einhvern einn sér- staklega, en þó ekki hægt að sleppa því að nefna John Bames. Hann átti þátt í þremur markanna og ég hélt það myndi taka hann sex til sjö leiki að komast í svo góða æfingu — en hann á þó mik- ið eftir til að komast í toppæf- ingu,“ sagði Graeme Souness, stjóri liðsins. Tottenham hefur ekki fengið á sig mark í fímm leikjum, og hefur nú ekki tapað í síðustu átta leikj- um. Liðið vann Man. City á úti- velli, 1:0, með marki Terrys Phel- Eyjólfur Sverrisson gerði jöfnun armark Stuttgart. an. Norðmaðurinn Erik Thorstvedt í marki Tottenham átti enn einn stórleikinn. Neil Webb lék að nýju með Nottingham Forest, eftir að liðið keypti hann aftur frá Man. Utd., en það dugði ekki til. Liðið tapaði á heimavelli fyrir Southampton. Matthew Le Tissier náði forystu fyrir gestina en Nigel Clough jafn- aði með laglegan skalla rétt fyrir hlé. Webb kom boltanum í netið í seinni hálfleik en markið var ekki dæmt gilt vegna rangstöðu og Mickey Adams tryggði Sout- hampton svo sigurinn. Óheppnin hefur elt Forest í vet- ur og það breyttist ekki um helg- ina. Liðið lék stórskemmtilega knattspymu en náði ekki að nýta nema eitt færi. Liðið fékk svo víta- spymu á síðustu mínútunni, Stu- art Pearce, sem hefur verið mjög örugg skytta, tók vítið en Flowers í marki gestanna varði. Meistarar Leeds hafa enn ekki unnið á útivelli í vetur. Liðið mætti Chelsea í London á sunnudaginn og Andy Townsend, fyrirliði Chelsea, tryggði liði sínu þijú stig með marki á síðustu mínútunum. Leeds hefur nú tapað sex leikjum af síðustu níu. Townsend gerði eina markið er þijár mín. vora eftir af leiknum en leikmenn Leeds geta engum nema sjálfum sér kennt um tapið. Þeir fengu nokkur ákjósanleg færi til að skora en brást ætíð bogalist- in. Frá Jóni Halldórí Garðarssyni í Þýskalandi legan einleik. FOLK ■ LOTHAR Mattháus átti stórleik og skoraði annað mark sitt fyrir Bayern Miinchen, eftir að^ hann kom til félagsins á ný frá Ítalíu. Það var þriðja mark Bayern gegn Karlsruhe, sem náði að jafna, 3:3. Hann skoraði eftir glæsi- jega ■ ERICH Ribbeck, þjálfari Bay- em, var ekki ánægður. „Við lékum okkar besta heimaleik í vetur, en það dugði ekki til sigurs." Bayem hefði getað verið yfir, 6:1, í fyrri hálfleik, svo miklir voru yfirburðir liðsins. ■ RIBBECK sagði ekki vilja kenna neinum um að stig tapaðist, en sagði: „Að öllu eðlilegu hefði markvörður- inn Aumann átt að koma í veg fyrir fyrsta og þriðja markið sem Karlsru- he skoraði." ■ STEFAN Beckenbauer, leik- maður með Saarbriicken, var rek- inn af leikvelli í leik gegn Bremen fyrir að hafa spyrnu knettinum í línuvörð. „Það var alls ekki ætlun mín þruma knettinum í línuvörðinn - hann varð óvart fyrir skotinu.“ ■ BECKENBA UER var að mót- mæla dómi þegar hann spyrnti knettinum í línuvörðinn. Hann hafði fengið að sjá gult spjald fyrr í leikn- ■ K URT Reinherdt og S visslend- ingurinn Stephane Chapuisat skoruðu tvö glæsileg mörk fyrir Dortmund á lokamínútu leiksgegn Niimberg og tryggðu félagi sínu sigur, 4:2. ■ DÓMARINN sem dæmdi leik Mönchengladbach og Stuttgart, fékk lögregluvemd til að komast frá leikvelli. Heimamenn töldu að leikur- inn hafi verið löngu búinn þegar Eyjólfur skoraði jöfnunarmarkið. ■ EFTIR leikinn köstuðu óhressir heimamenn dósum inn á völlinn og Frontzeck, leikmaður Stuttgart, réðist á vallarstarfsmann. Málið er orðið lögreglumál og sagt er að Frontzeck sé ekki í góðum málum. ■ FRITZ Walter lék ekki með Stuttgart vegna meiðsla á kálfa, sem hann hlaut á æfíngu fyrir leikin i Mönchengladbach. ■ MÖNCHENGLADBACH hefur boðið Morten Olsen að gerast þjálf- ari félagsins og með hjálp danska fyrirtækisins Carlsberg er Gladbach tilbúið að borga 28,8 millj. ÍSK í árslaun. ■ BELGÍSKA félagið Anderlecht hefur einnig augastað á Morten Olsen, sem þjálfara. ' *£££&** 0ft\ó*,egt kredit*c *** merki Þ,nS Leitaðu upplýsinga hjá íþróttaiélaginu þínu. Umsóknir liggja þar [ranrni og i næsta banka, sparisjóði ogaigtviðslu Kreditkoris hf„ Armúla 28. KREDITKORT HF., ARMULA 28, 108 REYKjAVIK, SIMI 91 - 685499.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.