Morgunblaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 8
& B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI I lll'iÞRIÐJUDAGURi
I. DESEMBER 19,92
FRJALSIÞROTTIR
Einar, Sigurð-
ur og Vésteinn
áferðogflugi
„ÞAÐ eru mörg mjög spenn-
andi verkefni framundan, en
alls veröa sextán alþjóðleg
stigamót, Grand Prix, á næsta
ári og fyrir utan það verða
Gullmótin fjögur, en það eru
fjögur mót sem allir bestu
frjálsíþróttamenn heims koma
saman. Heimsmeistaramótið
verður í Stuttgart í ágúst og
lokakeppni Grand Prix í London
í september," sagði Einar Vil-
hjálmsson, spjótkastari.
Einar sagði að þá yrði mikið al-
þjóðlegt boðsmót á Laugar-
dalsvellinum 17.júní og á mótið
kæmu margir þekktir frjálsíþrótta-
menn. „Ég reikna með að Qórir
spjótkastarar, sem eru í efstu sæt-
um heimslistans komi. Það mun
koma í ljóst hvort ég tapi í fyrsta
skipti á móti í Laugardalnum,"
sagði Einar.
Spjótkast og kringiukast verða
keppnisgreinar í Grand Prix-mótun-
um í ár, þannig að íslendingar koma
til með að eiga a.m.k. þijá afreks-
menn á mörgum mótunum, en það
eru spjótkastaramir Einar Vil-
hjálmsson og Sigurður Einarsson
og kringlukastarinn Vésteinn Haf-
steinsson. „Ég ætla að fara til
Bandarflqanna og Brasilíu til að
taka þátt í Grand Prix-mótum í San
Jose og Sao Paulo í maí. Ég hef
keppt á þessum mótum áður," sagði
Vésteinn, sem varð annar í kringlu-
HANDKNATTLEIKUR
O Grand Prix-mót
J^L Gullmótin fjögur
^ Önnurmót
asta“ sem ég man eftir - því að
Grand Prix-mótin verða sextán og
síðan úrslitakeppnin. Þá verður
heimsmeistaramótið í Stuttgart og
önnur boðsmót. Maður verður að
velja úr mót og stefna að því að
komast í lokakeppni Grand Prix í
London, sem hefst tíunda septem-
ber,“ sagði Einar.
Einar æfir á fullum krafti hér á
landi, Sigurður er í Bandaríkjunum
og Vésteinn í Svíþjóð.
HANDKNATTLEIKUR
Stórmeist-
arajafntefli
Kunnum best
viðokkurí
- og ætlum að halda því, þartil yfir lýkur,
sagði Guðjón Ámason, fyrirliði FH
FH-ingar þurftu ekki að hafa
mikið fyrir hlutunum þegar
þeir skutust upp í efsta sæti
1. deildar með stórsigri, 33:23,
á áhugalausum ÍR-ingum. Yfir-
burðir FH-inga voru miklir og
oft á tíðum sýndu þeir
skemmtileg takta í sóknar-
leiknum og var greinilegt að
þeir höfðu gaman að þvi sem
þeir voru að fást við, en sömu
sögu var ekki hægt að segja
um ÍR-inga, sem höfðu greini-
lega enga trú á að þeir gætu
lagt FH-inga að velli.
Baráttan sem hefur verið gæða-
merki ÍR-liðsins fram til
þessa, var ekki til staðar og áttu
FH-ingar auðvelt
með að leika liðs-
menn ÍR grátt. Það
var aðeins í byijun
leiksins sem lífs-
mark var með ÍR-ingum, eða þar
til staðan var 8:8. Þá fóru FH-ingar
í gang og skoruðu sex mörk í röð,
14:8. ÍR-ingar náðu ekki að skora
mark í fjórtán mín. og þá þegar
ljóst að FH færi með öruggan sigur
af hólmi.
„Við vissum að með sigri færum
við í fyrsta sæti. Við náðum upp
góðri baráttu og mikilli leikgleði.
Það færði okkur þennan sigur —•
fyrst og fremst. Nú erum við komn-
Ómar
Jóhannsson
skrifar
ir í það sæti sem við kunnum best
við okkur í og ætlum að halda því
þar til yfir likur,“ sagði Guðjón
Ámason, fyrirliði FH-liðsins, sem
var ánægður eftir leikinn. Brynjar
Kvaran, þjálfari IR, var ekki eins
ánægður. „Það er ekkert gott um
þennan leik að segja. Hann er visst
áhyggjuefni fyrir okkur. Það veldur
mér miklum áhyggjum hvað iítil
stemmning hefur verið í liðinu í síð-
ustu leikjum okkar. Kannski er það
reynsluleysið sem hefur sitt að
segja. ÍR-liðið lék í annari deild í
fyrra, en þá var lítið um harða leiki
og mótspyman minni. Andlega hlið-
in virðist ekki vera í lagi hjá mínum
mönnum. I þessum leik var það
aðeins Ólafur Gylfason sem lék af
eðlilegri getu, en aðrir leikmenn
mínir sáust ekki. Þannig framganga
gengur ekki í fyrstu deild," sagði
Bymjar.
Hjá FH bar mest á Sigurði
Sveinssyni, sem héit upp á 24. af-
mælisdag sinn á sunnudaginn
með stórleik bæði í vöm og sókn.
Hann var besti leikmaður vallarins.
Gunnar Beinteinsson var einnig
góður og skoraði mörg gullfalleg
mörk. Bergsveinn Bergsveinsson
varði mjög vel og þá sérstaklega
þegar á leikinn leið. Hjá ÍR var
Ólafur Gylfason eini leikmaðurinn
sem sýndi takta og hefði hann
mátt reyna meira sjálfur.
Sigurður Svelnsson hélt upp á
afmælisdag sinn með stórleik.
ÞAÐ var hart barist í Garða-
bænum á laugardaginn þegar
Stjarnan og Selfoss, tvö af
efstu liðum deildarinnar mætt-
ust. Leikar fóru þannig að liðin
skiptu með sér stigunum,
nokkurs konar stórmeistara-
jafntefli, og voru það sjálfsagt
sanngjörnustu úrslitin.
Heimamenn byijuðu betur og
vom yfir allan fyrri hálfleik-
inn nema rétt í lokin að Selfyssing-
ar komust í 9:8.
Mestur varð munur-
inn þijú mörk, 6:3
fyrir Stömuna um
miðjan fyrri hálf-
leikinn. Þá var Patrekur tvívegis
rekinn af velli og var fyrra tilvikið
mjög strangur dómur. Við þetta
riðlaðist auðvitað leikur heima-
manna og Selfyssingar gengu á
lagið.
Stjaman komst aftur þijú mörk
yfir í upphafi síðari hálfleiks en
Selfyssingar gáfust ekki upp og
komust skömmu síðar yfir og höfðu
framkvæðið eftir það og virtust
ætla að „stela" báðum stigunum.
Magnús Sigurðsson, hetja heima-
manna sem lék mjög vel, jafnaði
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
þegar hálf mínúta var til leiksloka.
Bæði lið léku fast, og stundum
gróft, allt frá fyrstu sekúndu og
hafði maður á tilfinningunni að það
myndi sjóða uppúr á hverri stundi,
en sem betur fer gerðist það ekki.
Dómaramir leyfðu mönnum að
leika fast og létu leikinn ganga.
Þeir höfðu samt góð tök á leiknum
og gekk vel að rata hinn gullna
meðalveg.
Stömumenn léku að venju 3-2-1
vöm og fórst það vel úr hendi að
þessu sinni og varð sóknarleikur
Selfyssinga aldrei svipur hjá sjón.
Vöm þeirra var hins vegar ágæt
en þeim gekk þó erfíðlega að hemja
Magnús Sigurðsson. Sóknarleikur
Stjörnunnar var ágætur en í fyrri
hálfleik voru það bara Magnús og
Einar sem tókst að skora. Selfyss-
ingar skiptu mörkunum bróðurlegar
á milli sín og sex leikmenn skoraðu
í fyrri hálfleik.
Magnús var bestur hjá Stjöm-
unni og Einar átti einnig góðan leik,
svo og Skúli á línunni. Þeir bræð-
ur, Siguijón og Gústaf voru bestir
í liði Selfoss ásamt Jóni Þóri, en
hjá þeim, eins og hjá Stjörnunni,
var liðsheildin sterk.
Stórsigur Víkinga
Víkingar áttu ekki í miklum erf-
iðleikum með óhemju slakt lið
HK, þegar liðin mættust í 1. deild-
inni í handknattleik
í Víkinni á sunnu-
Stefán dagskvöldið. Vík-
skrifar°n inKar Þurftu ekk> að
sýna stjömuleik til
að vinna HK með átta mörkum, en
léku engu að síður lengst af vel,
og höfðu eins og svo oft áður vera-
lega gaman af því sem þeir voru
að gera.
Leikurinn fór rólega af stað en
um miðjan fyrri hálfleik small Vík-
ingsvömin saman. í kjölfarið kom-
ust þeir í nokkur hraðaupphlaup og
fyrr en varði var munurinn orðinn
sex mörk. HK-menn vora ráðleysis-
legir í sóknarleiknum á sama tíma,
sóknir þeirra vora stuttar og enginn
leikmaður virtist hafa áhuga á að
taka framkvæðið. Staðan í hálfleik
var 14:8.
Fyrri stundarfjórðungurinn í síð-
ari hálfleik reyndi á taugar aðdá-
enda Víkings. Heimamenn gerðu
ekki nema eitt mark á fyrstu tíu
mínútunum á móti fimm mörkum
HK-manna, og skyndilega var mun-
urinn aðeins orðinn tvö mörk. En
Víkingar vöknuðu loks af blundin-
um og fímm mörk úr herbúðum
þeirra í röð slökktu allan neista í
HK-mönnum. Leikurinn endaði með
átta marka sigri Víkings, 24:16.
„Það er mikil og góð barátta í
liðinu þessa dagana, og þetta var
baráttuleikur eins og þeir hafa allir
verið. Það eru miklar sveiflur í leikj-
unum og staðan er fljót að breyt-
ast. Við vöknuðum heldur seint í
síðari hálfleik, en við náðum upp
góðri baráttu í fyrri hálfleik og viss-
um að við myndum finna hana aft-
ur,“ sagði Gunnar Gunnarsson
þjálfari og leikmaður Víkings, en
hann átti mjög góðan leik. Auk
Gunnars stóð nýliðinn Hinrik
Bjarnason sig vel, en hann kom inn
á þegar Birgir Sigurðsson meiddist
illa snemma í leiknum, og stóð sig
mjög vel í vöm og sókn. Alexander
Revine varði mjög vel, ein nítján
stykki og þar af eitt víti.
Magnús I. Stefánsson markvörð-
ur HK, var eini leikmaður HK sem
lék af einhveiju viti, en hann varði
17 skot, þar af eitt víti. Aðrir vora
ákaflega áhugalausir.