Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 16
16 3 •.----a- MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1,993 AF SPJÖLDUM GLÆPASÖGUNNAR/Abraham Ruef var meistari baktjaldamakks- — —— — ——— . ————— ins. I kosningunum 1901 kom hann Eugene Schmitz í embætti borgarstjóra. Schmitz hafði enga þekkingu á stjómmálum og strax eftir embættistökuna hóf hann að beina bitlingum og illa fengnu fé til Ruefs og skósveina hans MEISTARIBAK- TJALDAMAKKS UM ALDAMÓTIN síðustu réði ríkjum í San Francisco klíka spilltra og mútugjarnra póli- tískra framagosa sem voru í nánu sambandi við glæpasam- tökin í Barbary Coast-hverfinu, sem var alræmt fyrir spilavíti, vændi og villt næturlíf. Höfuð- paur þessarar spillingarklíku var Abraham Ruef, sonur kaup- manns af gyðingaættum og lög- fræðingur frá Hastings College í San Francisco. Þótt Ruef væri að nafninu til repúblíkani, naut hann einnig stuðnings flokks óánægðra iðnaðarmanna, Uni- on Labor Party, sem stofnaður var sumaríð 1901. Ref var meistari baktjalda- makksins. í kosningunum 1901 kom hann Eugene Schmitz fyrrum hljómsveit- arstjóra Columbia-leikhússins í embætti borgarstjóra. Schmitz hafði enga þekkingu á stjómmál- um, og enga löngun til að bjóða sig fram. En með stuðningi og til- sögn frá Ruef vann hann auðveldan kosningasigur. Strax eftir emb- ættistökuna hóf Schmitz borgar- stjóri að beina bitlingom og illa fengnu fé til Ruefs og skósveina hans. Pólitísk spilling í San Francisco varð yfirþyrmandi. Hæstu mútu- greiðslumar komu frá United Rail- road, félaginu sem annaðist rekstur sporvagna borgarinnar. Patrick Calhoun stjómaði þessu félagi, og sagt var að hann hefði látið Tirey F. Ford afhenda Ruef 200.000 doll- ara í mútur. Aðferðin við mútu- greiðslumar var afar einföld. Ruef „leigði sig“ hvequm þeim einstakl- ingi eða fyrirtæki sem hafði mútu- greiðslur að bjóða. Oft var þetta illa fengna fé falið undir heitinu „lögfræðikostnaður". Abe Ruef átti marga skjólstæðinga þau þijú Iqor- tímabil sem Schmitz var í embætti. Spillingin í borgarsijóm Schmitz hefði verið látin viðgangast ámælislítið ef ekki hefði til komið linnulaus barátta Fremonts Olders hjá dagblaðinu San Francisco Bul- letin. Frá því hann hóf störf sem ritstjóri hjá blaðinu árið 1895 barð- ist Older gegn spillingu í opinberum rekstri á sfðum blaðsins. Það þurfti dirfsku til, því Ruef naut vinsælda Abe Reuf, meistarí baktjalda- í San Francisco. Eugene Edwards Schmitz, handbendi Reufs í borgarstjórn. í Barbary Coast- hverfinu. Kvöldið sem Schmitz var fyrst endurkjörinn borgarsljóri safn- aðist hópur drukk- inna óeirðaseggja saman fyrir fram- an stöðvar blaðs- ins. Þeir bmtu gluggarúður með gijótkasti og hrópuðu ókvæðisorð að Older og konu hans er þau fóm heim. Leiddi þetta svo óhjákvæmi- lega til þess að lífi Olders var ógn- að. Til dæmis gerðist það árið 1907 að fjórir menn, sem vom með hand- tökuskipun undirritaða af dómara S Los Angeles, komu akandi og tóku Older. Sumir mannanna vom reyndar starfsmenn United Railro- ad, og var ætlunin að fara með Older í jámbrautalest til fjallahér- aðs sunnan við San Francisco og skjóta hann þar. Þessi fyrirætlun þeirra mistókst þegar farþegi í lest- inni þekkti Older og hringdi í blað- ið San Francisco Call frá næstu stoppistöð. í Santa Barbara fór hópur lögreglumanna um borð í lestina til að „handtaka" Older. Upp komst um fyrirætlanimar þeg- ar einn samsærismannanna játaði. Vom mennimir fjórir síðan hand- teknir. Árið 1905 tókst Older í fyrsta sinn af mörgum er fylgdu í kjölfar- ið að hnekkja á Ruef, Calhoun, Schmitz og stuðningsmönnum þeirra með því að afla stuðnings við borgaralega rannsókn á spill- ingunni í stjómkerfi borgarinnar. Herferðin hófst svo vorið 1906, og var kostuð með framlögum frá kaupsýslumönnunum James D. Phelan og Rudolph Spreckels. Old- er fór til Washington þar sem hann ræddi málið við Theodore Roose- velt forseta. Forsetinn féllst á að fela þekktum lögfræðingi stjómar- innar, Francis J. Heney, að kanna málið. Heney fékk sér til aðstoðar einkalögreglumanninn William J. Bums til að klekkja á Ruef og þorpurum hans. Fjöldi sönnunargagna sem Older lagði fram leiddi til þess að dóm- nefnd úrskurðaði að stefna bæri Calhoun og Ruef. Meðan verið var að velja dómendur í kviðdóm gerð- ist það að einn þeirra, Morris Haas, reyndi að myrða Heney saksókn- ara. Haas kom í dómsalinn og hleypti af skoti sem lenti í kjálka Heneys. Skotsárið var sem betur fer ekki banvænt. Haas framdi svo Skopteikningar sem áttu að lýsa stjórnmálalegum áhrifum Abe Reufs. Til vinstri heldur hann á lykli að fuglabúri sem í situr Schmitz borgarsljóri. Á hinni heldur hann á bakka með höfðum pólitískra andstæðinga sinna. sjálfsmorð í fangaklefa sínum, og var uppi orðrómur um að hann hafi verið myrtur. Hiram Johnson tók við af Heney sem saksóknari og fékk því framgengt að Ruef var sakfelldur eftir að hafa misst kjark- inn og játað á sig íjölda ásakana um mútugreiðslur og önnur afbrot sem glæpafélagar hans höfðu stundað. „Þeir voru svo gráðugir að þeir hefðu getað hámað í sig málninguna á veggjum ráðhúss- ins!“ sagði Ruef. Og lengi á eftir tíðkaðist það í San Francisco að tala um mútuþega sem „málning- arætur“. Ruef var síðar dæmdur til 14 ára fangelsisvistar fyrir mútustarfsemi. Hann afplánaði aðeins fjögur ár og sjö mánuði í fangelsi, en ferli hans í stjómmálum var endanlega lokið. Ruef var áhrifalaus í stjóm- málum Kaliforníu eftir að hann var látinn laus. Hann sneri sér að fast- eignaviðskiptum og lét lítið á sér bera. Það kaldhæðnislega var að fyirum andstæðingur hans, Frem- ont Older, sá aumur á honum. Old- er hóf baráttu í blaði sínu fyrir því að Abe Ruef yrði leystur úr haldi. Sú umræða átti án efa þátt í því að Ruef var Iátinn laus til reynslu. Schmitz borgarstjóri var dæmd- ur fyrir fjárkúgun og hrakinn úr embætti. Hann neitaði algjörlega að hafa dregið sér fé, og einnig svo til öllum öðrum ákæmatriðum. Hann hlaut einnig fangelsisdóm. Hins vegar úrskurðaði héraðsdóm- ur að hann skyldi látinn laus vegna ótrúlegs formgalla á málinu. Dóm- urinn úrskurðaði að hann væri ekki sekur um fjárkúgun, þar sem frönsku „veitingahúsin", sem hann var sakaður um að hafa hótað lok- un ef þau létu ekki fé af hendi rakna til hans, hafi í raun verið vændishús. Schmitz var því hreins- aður af allri sök á þeirri forsendu að það væri ekki fjárkúgun að hóta að framfylgja lögum. Schmitz sneri sér á ný að stjómmálum með góð- um árangri og sat mörg kjörtíma- bil í stjómamefnd San Francisco- borgar. Hámarki náði niðurlæging- in nokkrum mánuðum síðar þegar Heney bauð sig fram í kosningum til embættis umdæmissaksóknara. Hann beið lægri hlut fyrir Charles M. Fickert, sem hafði getið sér gott orð í íþróttum hjá Stanford- háskóla og átti vingott við félaga í mútuklíkunni. Eftir að Fickert tók við embætti felldi hann niður mál á hendur þeirra sem sakaðir vom um að hafa þegið mútur frá klík- unni. Ef tala má um einhvern sem sig- urvegara í mútumálunum var það Hiram Johnson saksóknari, sem hélt áfram á stjómmálabraut sinni og varð ríkisstjóri í Kalifomíu og síðar þingmaður í öldungadeild Bandaríkjaþings. Johnson var um- bótasinnaður og stuðlaði að setn- ingu nýrra laga sem bundu að mestu enda á starfsemi fjárglæfra- mannanna og lögðu grundvöll að heiðarlegri stjóm héraðsmála í Kalifomíu. UTSALAN hefst 12. janúar B O G N E R sérverslun v/Óöinstorg, sími 25177 V_______________________________________________________________________/ Vestfrost ODYRAR FRYSTIKISTUR KÆLI- OG FRYSTISKÁPAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.