Morgunblaðið - 10.01.1993, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 10.01.1993, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 10. JANÚÁR 1993 B 25 Hamingjudagar í Karíbahafi Þeim bar saman um að þetta hafi verið hamingjudagar með Heims- klúbbi Ingólfs. Á myndinni standa undir „ferðapálmanum“ frá vinstri: Guðbjörg og Ari Singh, Inga og Ottó Guðmundsson og Guðný og Jóhannes Stefánsson. Hitinn hefur verið 25-30 gráður og liturinn sýnir sig eftir rúmlega vikudvöl. Frá Ásu Maríu Valdimarsdóttur: FJÖLDI fólks bíður í eftirvæntingu frétta af nýjum áfangastað íslend- inga í Puerto Plata í Dóminikana Karíbahafi. Það er skemmst frá því að segja að fólk er orðlaust af hrifn- ingu og fylgja hér nokkrar tilvitnan- ir úr umsögnum fyrstu farþeganna: „Við þjófstörtuðum aðeins og fór- um á annan í jólum nokkur saman. Staðurinn er stórfenglegur, aðstað- an glæsileg og verðið allt að því hlægilegt- fyrir allt sem er innifalið. Þetta er algjör hamingja,“ segja hjónin Guðný og Jóhannes Stefáns- son, veitingamaður. „Við treystum ekki alltaf myndum en hér er veruleikinn fallegri en myndirnar. Þetta er staðurinn sem allir eru að leita að til að eyða fríinu sínu á. Allur aðbúnaður er til fyrir- myndar og maturinn frábær. Þetta er draumabrúðkaupsferð,“ segja brúðhjónin Anna María og Wolfgang Roling. „Við völdum ferð Heimsklúbbsins úr mörgum tilboðum og sjáum sann- arlega ekki eftir því. Við hefðum ekki getað fundið neitt betra. Þetta er líkara draumi en veruleika og allt meiriháttar!“ segja Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Brynja Þórarins- dóttir úr hópi nýstúdenta úr MH. „Hér er enginn svangur né þyrst- ur og allar veitingar eru innifaldar. Ósjálfrátt er maður búinn að taka upp budduna en þarf svo ekki að nota hana! Mér reiknast svo til að miðað við meðalneyslu íslendings í Frá Kristni Jóni Bjarnasyni: FÉLAG heyrnarlausra sendi beiðni til útvarpsráðs þess efnis að settur yrði texti á áramótaskaupið 1992 og bauðst til að greiða allan kostn- að, en útvarpsráð synjaði beiðninni á þeirri forsendu að það truflaði skaupið. Ekki sá útvarpsráð sér heldur fært að endursýna það með texta. Á nýársdag flytur forseti íslands nýársávarp bæði í sjónvarpi og út- varpi. Undanfarin ár hefur þetta ávarp verið túlkað á táknmáli í Rík- issjónvarpinu og samkvæmt dagskrá sem birtist í dagblöðum átti þetta að vera óbreytt í ár. Við vorum fimm heyrnarskert ungmenni sem eyddum áramótunum saman í sumarbústað í Borgarfirði, ijarri heyrandi ættingj- um og vinum. Á nýársdag settumst við fyrir framan sjónvarpið og hugð- umst njóta þess sem forsetinn hafði fram að færa eins og aðrir Islending- ar gera þennan dag. En viti menn, allt í einu er klippt á túlkinn í miðri setningu, þulurinn segir eitthvað sem ekkert okkar skildi og enginn heyrandi nálægur sem hægt væri að spyija hvað væri um að vera. Og ekki nóg með það. Þennan sama dag, nýársdag, voru fréttir á tákn- máli líka felldar niður án þess að um það væri haft samráð við Félag heyrnarlausra. Allt var þetta gert vegna þess hve dagskráin var löng. Mér er spurn, vissu sjónvarpsmenn ekki lengd dagskrárinnar fyrir, var eitthvað þar sem kom á óvart og ef eitthvað þurfti að fella niður, hvers vegna þessa tvo stuttu þætti sem ætlaðir eru heyrnarlausum? Hvers vegna voru þessir þættir felld- ir niður fyrirvaralaust? Hví voru engin skilaboð um það til okkar? Vita sjónvarpsmenn ekki að við skilj- um ekki talað mál? Ríkisútvarpið auglýsir að það sé útvarp allra landsmanna. Við sem erum heyrnarskert eða heyrnarlaus getum ekki fylgst með töluðu máli, hvorki í sjónvarpi né útvarpi. Þessi auglýsing er því mjög villandi. Samt er okkur gert að greiða hálft afnota- gjald. Þá er ástæða til að geta þess að ef birta á óvenju margar auglýs- ingar í sjónvarpinu eða ef dag- skránni seinkar um það leyti sem táknmálsfréttir eru, þá eru tákn- 2ja vikna „hefðbundnu“ fríi erlendis, lækki þetta verðið um u.þ.b. 70.000 kr.,“ segir Bjami Dagbjartsson, Keflavík. Það er mun ódýrara en Kanaríeyjar. „Við höfum ferðast dálítið um eyjuna og séð staði sem eiga sér enga sína líka hvað fegurð snertir og höfum við þó víða ferðast um heiminn," segja Guðbjörg og Ari Singh. „Golfvöllurinn héma er sérdeilis fagur og hentar öllum golfumm mjög vel,“ segir Óskar Friðþjófsson golfari. málsfréttaþulir beðnir að stytta fréttatímann sem er þó nógu stuttur fyrir í stað þess að sleppa t.d. einni teiknimynd. í apríl 1991 skipaði þáverandi menntamálaráðherra nefnd til að fjalla um þjónustu Ríkissjónvarpsins við heyrnarlausa og koma með til- lögur til úrbóta. Nefndin lagði til að allt innlent efni yrði endursýnt með texta, fréttir á táknmáli lengd- ar í tíu mínútur (eru nú 4 mín.), laun táknmálsþula lagfærð og fréttastofa sjónvarps bætti skýring- artextum við fréttir þar sem því yrði við komið. Þá var og lagt til að heyrnarlausir fái vikulega 20 mín. fréttaskýringaþátt fyrir sig utan venulegrar dagskrár. Ekkert af þessu hefur verið framkvæmt. Öft finnst okkur sem illa heymm að við séum útlendingar í eigin landi, þó borgum við skatta eins og aðrir og njótum engra bóta frá trygging- um ef við höfum atvinnu. Það sem gerðist á nýársdag vom ekki mistök, enginn getur talið okk- ur trú um það. Þetta hlýtur að hafa verið gert með fullu samþykki yfir- manna stofnunarinnar. KRISTINN JÓN BJARNASON Veghúsum 7, Reykjavík Frá Skúla H. Norðdahi FORSETAVALDIÐ felst í því m.a. að forseti einn og óstuddur tekur sínar stjórnvaldsákvarðanir í ljósi þekkingar og mati á málefnum og samkvæmt samvisku sinni og emb- ættiseiðum um varðveizlu stjórnar- skrár og trúnað við þjóðinav Þjóðin hefur nú á annan áratug sýnt núverandi forseta vomm tiltrú og trúnaðartraust, sem forsetinn hefur á margan hátt endurgoldið með framkomu sinni og störfum. Það er því mikill misskilningur, þó skiljanlegur sé, að hópar al- mennra borgara senda forsetanum bænaskjöl um að forseti beiti valdi sínu, þegar Alþingi hefur hafnað óskum um lýðræðislegri meðferð stórmáls á Alþingi, eins og gerst hefur. Þeir, sem þetta gerðu, hefðu Það er ekki ofsögum sagt að hér er gott að vera og öllum líður vel. Veðrið er gott, gróðurinn er falleg- ur, sjórinn tær og fólkið vingjarn- legt. Við emm komin á annað menn- ingarsvæði þar sem „stress“ hefur ekki verið fundið upp ennþá. Ef til vill er það næg ástæða til að heim- sækja þessa dásamlegu eyju í Karíbahafinu! Með sólarkveðjum. ÁSA MARÍA VALDIMARSDÓTTIR, fararstjóri. Pennavinir 26 ÁRA ísraelskur guðspekinemi óskar eftir bréfaskiptum við íslend- inga á aldrinum 18—26 ára. Hann hefur áhuga á menningu gyðinga og íslendinga svo og sálarfræði. Heimilisfang hans er: Uri Barak Ma’alot Dafnu 131/14 Jerusalem Israel 18 ÁRA FRANSKUR piltur vill eignast íslenska pennavini. Hann hefur mörg áhugamál og sérstakan áhuga á íslandi. Heimilisfang hans er: Jerome Baloge 70, Cheminde Miseré 79260 La Creche France LEIÐRÉTTING Olíutankarnir víða í Reykjavík Rangt var farið með í Morgun- blaðinu í gær að olíutankar, sem grafnir voru í jörð 1967 og fyrr og á að grafa upp að kröfu heilbrigðis- nefndar Reykjavíkur, væm í Öskju- hlíð. Hið rétta er að olíutankarnir em víða í Reykjavík. Þá var sagt að Skeljungur ætti eftir að grafa upp sex tanka af fjórtán, en þeir munu hafa verið fleiri en fjórtán. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum. betur látið það ógert og þess í stað sýnt forsetanum fullt trúnaðar- traust til embættisverka, án utan- aðkomandi þrýstings. í þessu ljósi finnst mér yfirgengi- leg framkoma, þegar oddvitar á Alþingi stíga fram og gefa forsetan- um fyrirmæli um embættishegðun, eins og Björn Bjarnason gerir í grein í Morgunblaðinu (tilvitnað í Staksteinum 6. janúar sl.). Hér verður ekki rætt um þær óskráðu forsendur, sem liggja að baki ákvæðum í 26. gr. stjómar- skrárinnar um áhrifavald forsetans á gerðir Alþingis, en ég vek at- hygli á, að samkvæmt 2. gr. stjórn- arskrárinnar fer forseti með lögjaf- arvaldið ásamt Alþingi. SKÚLI H. NORÐDAHL, Víðimel 55, Reykjavík. Fyrir hverja er Ríkissj ónvarpið? Forsetavaldið BYRJAR Á JMORGUN 10-60% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM /OgUe) BÚÐIRNAR 50% afsláttur af öllum okkar vörum í aðeins 5 daga Barnafataverslunin Bimbó, Háaleitisbraut 58-60, sími 38260. Opiðfrá kl. 10-18 Ódýr vorum við fyrir, en núna! ríUDDSKÓLI RAFríS QEIRDALS NUDDNAM 1. Nuddkennsla 500 kennslustundir. Kenndar eru helstu aðferðir í almennu líkamsnuddi: Slökunarnudd, klassískt nudd, íþróttanudd, heildrænt nudd og nudd við vöðvaspennu. Einnig er kynning á svæðanuddi og síatsú. Áhersla er lögð á fræðslu um helstu vöðva líkamans. Einnig er fræðsla um heilbrigði, bæði útfrá hefðbundum og óhefðbundum sjónar- miðum. 2. Starfsþjálfun 500 klukkustundir. Sveigjanlegur þjálfunartími. Fer fram innan nuddskólans. Þjálfun þarf að Ijúka inn- an tveggja ára frá upphafi náms. 3. Bókleg fög 494 kennslustundir. Öll kennsla í bóklegum fögum fer fram í fjölbrautaskólum landsins og má taka áður, meðfram eða eftir nuddnám, en sé lokið innan tveggja ára frá upphafi náms: Líffæra- og lífeðlisfræði (LOL 103, 203), líffræði (LÍF 103), heilbrigðisfræði (HBF 102, 203), líkamsbeiting (LÍB 101), næringarfæði (NÆR 103), skyndihjálp (SKY 101). Löggiltir heilbrigðisstarfsmenn fá sína bók- legu menntun metna til fulls og hluta af starfsþjálf- un. Námið er alls 1.494 stundir. Nemandi, sem stenst öll skilyrði skólans, útskrifast með viðurkenningu sem nuddfræðingur og hefur rétt til sjálfstæðra starfa. Námið er viðurkennt af Félagi íslenskra nuddfræðinga. Nám hefst: Hópur 1, dagskóli, hefst 11. janúar 1993. Hópur 2, kvöld- og helgarskóli, hefst 1. febrúar 1993. Hópur 3, dagskóli, hefst 14. apríl 1993. Hópur 4, dagskóli, hefst 1. september 1993. Hópur 5, kvöld- og helgarskóli, hefst 1. september 1993. Hópur 6, dagskóli, hefst 10. janúar 1994. Hópur 7, kvöld- og helgarskóli, hefst 10. janúar 1994. Velja má um einn af þessum hópum. Upplýsingar og skráning í símum 676612 og 686612 Smiðshöfða 10, 112 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.