Morgunblaðið - 26.02.1993, Qupperneq 1
JWurigaiínMfiljifífr
FÖSTUDAGUR
26. FEBRÚAR 1993
c
Islendingar eyðslusamari
en erlendir ferðamenn
ÍSLENDINGAR á ferð um eigið land 1992 eyddu um 7 miHjörðum kr.
og er það hærri upphæð en allir erlendir ferðamenn eyddu hér 1992,
að farmiðakaupum undanskildum. Stærsti kostnaðarliðurinn er elds-
neyti, 22,7%.
Þetta sest í ným könnun, sem
Ferðamálaráð lét gera. Um 80% ís-
lendinga ferðuðust að meðaltali í um
15 daga sl. ár. Átt er við ferðir sem
stóðu nótt og lengur. Skv. niðurstöðu
eyddu 208 þús. íslendingar að meðal-
tali 2.400 kr. á dag, heildareyðsla
því um 7,5 milljarðar.
Meðal þátta sem spurt var um var
hvemig gistingu var hagað og flest-
ir, rétt um 40% (átt er við fjölda
gistinátta) voru í tjaldi/ með hjólhýsi
á tjaldstæði, 23% í leigðu sumarhúsi
og 22% hjá ættingjum/ vinum. At-
hygli vekur lágt hlutfall í bændagist-
ingu eða 12%, með í huga þá miklu
íjárfestingu sem hefur orðið í ferða-
þjónustu bænda. Sama prósenta gisti
á Edduhótelum.
Fram kom, að meðalaldur þeirra
sem voru í fríi er 38 ár og kynjaskipt-
ing var jöfn. Algengast var að fólk
noti 3 til 4 daga til ferðar en 40%
voru lengur en viku og um 13% í
meira en 2 vikur. Níu af hverjum
10 nota eigið farartæki. Dreifing
gistinátta eftir landshlutum var mis-
jöfn, Eyjafjarðarsýsla hafði þær
flestar, 13,5% og fæstar í Dölum og
Snæfellsnesi, 3,8%.
Ástæða ferðar var hjá 84% að
njóta samvista við fjölskyldu/ njóta
náttúru og landslags. Nokkru færri
nefndu að slappa af og kynnast land-
inu. Það sem fólki mislíkaði við ís-
land sem ferðamannaland var ástand
vega, veður og verðlagið á matvælum
og gistingu.
Markmiðið var að afla vitneskju
um íslendinga á ferð um landið,
hvaða farartæki þeir nota, hvem-
ig/hvar þeir gista, með hveijum er
ferðast og hvers vegna er ferðast
um Island. Könnunin var gerð 8 daga
í júní, júlí og ágúst sl. Dreift 2.650
spumingalistum, svör fengust við
2.130 og nothæf svör 2.067. Svörun
var misjöfn eftir stöðum en algeng-
ast að hún væri um 85%. ■
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Farvís/Áfangar velur feröafrömuð ársins
I GÆR útnefndi ferðatímaritið Farvís/Áfangar Tiyggva Ámason, fram-
kvæmdastjóra Jöklaferða á Höfn í Homafirði, ferðafrömuð ársins. For-
svarsmenn Jöklaferða eru taldir hafa sýnt frumkvæði og áræði og hefur
tekist vel að markaðssetja jöklaferðir fyrir útlendinga sem íslendinga.
Fjöldi farþega með þeim var um 7 þúsund sl. ár. Á myndinni eru Þór-
unn Gestsdóttir ritstjóri og nývalinn ferðafrömuður 1993, Tryggvi Áma-
son. ■
Leiguflug til Mexíkó hefst I vor
FERÐASKRIFSTOFAN Heimsferðir hefur leiguflug
til Mexikó 24. maí nk. og verður flogið með mexí-
kanska leiguflugfélaginu Taesa til Cancun. Önnur
ferðin er 10. júní og síðan verður flogið á tveggja
vikna fresti til 19. ágúst. Sem dæmi um verð má
nefna að ferð, miðað við tvo í stúdíóíbúð, er frá
69.900 kr. og sé t.d. fjögurra manna fjölskylda á
ferð næst verð enn niður og er frá 59.900 kr.
Grand
Cherokee
jeppi ársins
Hinn nýi Grand Cherokee-
jeppi frá Chrysler var nýverið
kosinn fjórhjóladrifsbíll árs-
ins í Bandaríkjunum af
bandaríska bílablaðinu „Four
Wheeler“. Keppti Grand Che-
rokee við ýmsa jeppa sem eru
þekktir hér, Range Rover,
Toyota Land Cruiser og
Isuzu.
Það var ódýrasta útgáfa
Grand Cherokee sem keppti við
hina jeppana þijá og hlaut 4.602
stig. Næstur var Land Cruiser
með 4.504 stig, þá Range Rover
með 4.402 og Isuzu með 3.774.
Cherokee skákaði hinum á ýms-
um sviðum, er ódýrari, hefur
betra viðbragð og minni beygju-
hring en hefur næst minnst far-
angursrými. Grand Cherokee
kostar í Bandaríkjunum 23 þús.
dali eða 1,4 millj. kr. en Isuzu
kostar 1,6 millj., Land Cruiser
2,5 og Range Rover 3,1. Hér
er Cherokee á rúmlega milljón
meira en Range Rover og Land
Cruiser en nýi Isuzu-jeppinn er
enn ekki fáanlegur.
Eins og fram kom í síðasta
bílablaði hefur Chrysler-umboð-
ið Jöfur hafið sölu á Grand Che-
rokee og verður hann á sér-
stakri vetrarkynningu í Kringl-
unni um helgina. ■
Andri Már Ingólfsson forstjóri
Heimsferða sagði að þar með væri
„eiginlega komið Spánarverð á þess-
ar ferðir“. Hann sagðist hafa notið
góðs stuðnings mexíkanskra ferða-
málayfirvalda og þetta væri árangur
fimm mánaða samningaviðræðna.
Vegna stuðnings þarlendra væri lítil
fjárhagsleg áhætta í þessu. Hann
sagði að áhugi færi ekki á milli
mála, bókanir væru þegar orðnar á
fjórða hundrað.
Taesa-flugfélagið er það stærsta
í þessari grein í Mexíkó og það leigu-
flugfélag sem, að sögn Andra Más,
hefur vaxið hvað hraðast í heiminum
sl. ár og ræður nú yfir um 80 Boeing-
vélum.
íslenskir fararstjórar verða í Cancun
allan tímann. ■
BANDARIKIN
Chihuahua {
CopperCanyon i
MEXÍKÓ
Mexíkóflói
rGuadalajara
mexíkócity\ < .Cancún
ManzanSo* ^ Cozumel
Utapa-Zihuatanejo. fywm
Acapulco rtía!u'co.J V—
i / HONDURAS
GUAIEMALA ..^J
ELSALVADOR . f
KYRRA- N.CARAGUAU
fjAp costarica
PANAMA
Rannsóknir á erfðaþáttum
brjóstakrabbameina nú hægt að gera á íslandi
RANNSÓKNASTOFU Krabbameinsfélags íslands í sameinda- og frumu-
líffræði barst nýlega tæki að gjöf frá kvennadeild Reykjavíkurdeildar
Rauða krossins. Það verður einkum notað til rannsókna á erfðaþáttum
bijóstakrabbameina.
Dr. Jórunn Erla Eyfjörð sameinda-
iíffræðingur hefur umsjón með rann-
sóknum á erfðaþáttum bijósta-
krabbameins. Samstarfsmenn henn-
ar eru Steinunn Thorlacius og dr.
Sólveig Grétarsdóttir. „Á síðasta ári
höfum við aðallega rannsakað einn
ákveðinn erfðaþátt í frumum úr
krabbameinsæxli í bijósti og borið
saman við efni úr heilbrigðum frum-
um. Niðurstöður benda til tengsla
milli stökkbreytinga á þessum erfða-
þætti og batahorfum sjúklinga."
Jórunn sagði að mikilll fengur
væri að nýja tækinu því nú gæti allt
rannsóknarferlið farið fram hér. Gott
samstarf við rannsóknarstofu Há-
meinsfélagsins auðveldaði starfið.
Niðurstöður þessara rannsókna
hafa vakið athygli erlendis, m.a. í
Bandaríkjunum. „Sýni úr 110 konum
voru rannsökuð, en nú verður tekið
mun stærra úrtak og í ýmsum öðrum
Evrópulöndum. Verði niðurstöður
hinar sömu er ekki ólíklegt að tekið
verði mið af þeim í læknismeðferð.
Þeim mun meira sem við vitum um
breytingar sem leiða til krabba-
meins, þeim mun meiri líkur eru á
hnitmiðaðri meðferð. Hins vegar líð-
ur alltaf langur tími frá því niður-
stöður liggja fyrir þar til hægt er
að nýta þær sjúklingum til góða/
skólans og krabbameinsskrá Krabba-