Morgunblaðið - 26.02.1993, Síða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993
ÞEKKTU sjálfan þig betur
en sá sem um þig talar.
WOLOF
HVERNIG
VAR FLUGIÐ
í Atrfkuferð með Air
Malawi og Air Namibia
ÓHÆTT er að fullyrða að starfsmenn Kamazu alþjóða flugvallar-
ins í Lilongwe, höfuðborgar Afrikurikisins Malawi, eiga ekki
við sama stressvandamál að etja og við íslendingar ef marka
má afköst gluggaþvottamanna og annarra ræstitækna vallarins.
Þrátt fyrir neyðartilvik eftir matarsýkingu í ráðherraveislu, flýtti
maðurinn, sem átti að sjá um klósettpappírsbirgðamar, sér
hægt. Eg náði þó brottfararspjaldinu án nokkurra vandkvæða
og glaðir tóku þeir Malawar við 20 dollurunum sem þeir rukka
útlendinga um þegar farið er úr landi. En þegar komið var að
því að fá staðfest flug, sem ég síðar þurfti að fara í, var svarið
þetta: „Því miður, tölvukerfið virkar ekki sem stendur." Og
þegar ég því næst reyndi að fá bjórsopa á flugvallarbaraum
svaraði barþjónninn: „Því miður. Núna er ég að fara í morgun-
mat.“
Ég sat hin rólegasta og spjall-
aði við einkennisklædda malaw-
íska blómarós með hríðskota-
byssu um öxl. Eftir drykklanga
stund vatt sér að mér starfsmað-
ur og spurði
hvort ég hefði
ekki hugsað
mér að fara
með Air
Malawi til Jó-
hannesarborg-
ar. „Jú jú, ég
er á þeirri leið,“
stundi ég hugs-
andi um morgunmat Darþjónsins.
„Þá skaltu hraða þér í gegnum
öryggiseftirlitið. Það tekur alltaf
sinn tíma.“ Ég tók til fótanna.
Konan með hríðskotabyssuna
óskaði mér góðrar ferðar.
Þótt Malawar hafi tekið tækn-
ina, sem oftar en ekki virkar
ekki, í sína þjónustu, virkaði hún
í þetta sinn. Ég var send í gegn-
um öryggishlið og handfarangur
á færiband, en þar með var ör-
yggiskröfum ekki fullnægt. Næst
var ég leidd inn í lokaðan klefa
ásamt „þuklara", sem í mínu til-
viki var kona. Þegar þeirri athöfn
var lokið vildi hún sjá hversu
mikla peninga ég ætti og að lok-
um var mér sagt að skrifa undir
yfirlýsingu þess efnis að ég hafi
ekki haft neinar kvartanir fram
að færa varðandi öryggiseftirlit
flugvallarins.
Klukkan nákvæmlega 11 hóf
Boing 737-300 þota Air Malawi
sig á loft og tók þá við hin huggu-
legasta þjónusta. Flugtimi til Jó-
hannesarborgar var áætlaður
tveir tímar og fimmtán mínútur
og ætlunin var að fljúga í 35
þús. feta hæð. Rauðklæddar,
elskulegar, malawískar flugfreyj-
ur dekruðu við okkur farþegana
og byrjuðu á því að bjóða drykki
til sölu, t.d bjór á tvo kwacha sem
er 30 ísl.kr. Þess má geta að Flug-
leiðir selja bjórinn á 100 krónur
um borð í sínum flugflota og má
geta þess til gamans að af þeim
sex flugfélögum, sem ég ferð-
aðist með í þessari ferð, eiga Air
Malawi og Flugleiðir það sam-
merkt að rukka fyrir drykki sém
veittir eru um borð. Drykkir voru
fríir hjá SAS, KLM, Air Namibia
og South African Airlines.
í hádegisverð stóð val um
nautagúllas eða chambo, sem er
airmalawi
Africa's friendly airline
AirNamibia
einn helsti nytjafiskur úr Malawi-
vatni. Og þegar sessunautur minn
sagðist eiginlega vilja smakka á
hvoru tveggja brosti flugfreyjan
breitt og kvað lítil vandkvæði á
því. Suður-afríska rauðvínið Ned-
erburg árgerð 1988 varð fyrir
valinu sem borðvín.
Á Jan Smuts flugvellinum í
Jóhannesarborg var lent kl.
13.15. Þar sem ég hafði tékkað
farangurinn alla leið til Windho-
ek, höfuðborgar Namibíu sem var
ákvörðunarstaður minn að þessu
sinni, var ekkert annað að gera
en reyna að þreyja þorrann og
ramba um fríhafnarsvæðið því
4ra tíma bið var eftir næsta flugi.
Þar mátti m.a. kaupa 250 g af
skoskum reyktum laxi á 800 kr.,
Winston karton king size á 440
kr., 50 ml af Chanel nr. 5 ilm-
vatni á 2.900 kr., 50 ml af Lac-
oste rakspíra á 1.520 kr., 400 g
Toblerone á 490 kr., 24 mynda
Kodak Gold II 100 ASA á 200
kr, lítra af Smirinoff Vodka á 400
kr., Ballantines 12 ára whiský á
1.740 kr., og 700 ml af Remy
Martin koníaki á 4.420 kr.
Air Namibia stóð undir vonum
og væntingum líkt og Air Malawi'
nema hvað farþegar loshuðu við
allt káf í öryggisgæslunni. Tækn-
in var látin duga í það skiptið.
Flugfreyjur namibíska flugfé-
lagsins buðu upp á lambakjöt eða
grænmetisfæði í kvöldverð og
eftir eins og hálfs kiukkustundar
þægilegt flug yfir Kalahari eyði-
mörkina var ég lent á namibískri
grund. ■
Jóhanna Ingvarsdóttir
Frá ísafirði
Til ísafjarðar á skíði
ÍSAFJÖRÐUR er í margra hugum skíðabær og má með sanni
segja að hann standi undir því nafni. Skíðasvæðið á Seljalandsdal
bregst varla vegna siyóleysis og gönguskíðaferðir um heiðarnar
í kringum bæinn eru vinsælar fram á vor.
í vetur voru
lyftur settar af
stað í nóvember
og nú er góður
snjór á svæðinu.
Lyftur eru 4 og
ein bamalyfta. Sú
efsta og brattasta
er í 630 m hæð.
Þá eiga ísfirðing-
ar tvo snjótroðara
sem eru í stöðugri
notkun og allar
skíðabrekkur eru
flóðlýstar.
Skíðasvæðið á
Seljalandsdal er
opið alla daga, á
mánud. miðvikud.
og föstud. frá kl. 13-18 en þriðjud
og fimmtud. frá 10-22. Um helgar
er opið frá 10-17 og þá er barna-
gæsla í boði, þar sem minnstu
krökkunum eru kennd undirstöðu-
atriði í listinni. Samgöngur eru
mílli svæðisins og bæjar oft á dag.
Verð á lyftukortum fyrir fullorðna,
hálfan dag er 650 og 300 fyrir
börn, dagskort eru á 800 og 400,
helgarkort á 1.400 og 600 og viku-
Ferðakynning
á Hótel Ork
Á SUNNUDAGINN verður
ferðakynning á Hótel Örk í
Hveragerði milli kl. 14 og 17.
Verða þar sýndir sumarbækl-
ingar ferðaskrifstofanna og
starfsfólk gefur upplýsingar
um ferðir og verð og tekur
við pöntunum.
Auk þess að kynna bækling sinn
Út í heim mun Flugleiðir segja frá
nýja Atlaskreditkortinu. Ferða-
málasamtök Suðurlands verða
með sýningu á Ijósmyndum frá
stöðum þar og kynna starfsemi
sína. Ferðamálakynningin er öllum
opin. ■
kort á 3.250 og
1.500 fyrir börn.
Flugleiðir og
Hótel ísafjörður
hafa sérstakt til-
boð sem kostar
t.d. 13.600 fyrir 2
nætur í tvíbýli og
er þá flug, akstur
frá flugvelli, gist-
ing og morgun-
verðir, ferðir til
og frá skíðasvæði
og lyftukort inni-
falið. Fleiri gisti-
kostir eru fyrir
hendi, t.d. Gisti-
heimilið að Aust-
urvegi 7 og.
Gestahúsið í Bolungarvík og Fönd-
urloftið við Mjallargötu 5.
Þá eru nokkrir ágætir veitinga-
staðir og pöbbinn Krúsin að
ógleymdum Sjallanum á Ísafirði,
félagsheimilinu í Hnífsdal og Vík-
urbæ í Bolungarvík.
Um páskana verður skíðalands-
mótið haldið á ísafirði og segir frá
því í Ferðablaði þegar nær dregur.
Japanir og þjóðveijar neisneyddir rómantík?
Á ÞESSUM síðustu tímum þegar aðkallandi virðist vera að gera
könnun á öllu milli himins og jarðar hefur vitanlega verið gerð al-
þjóðleg úttekt á því hvaða þjóðir séu rómantískastar /órómantískast-
ar af Harlequin-fyrirtækinu í Tórontó. Þar kvarta japanskar konur
sáran undan því hvað karlar þar séu gersneyddir rómantík. Hið
sama er upp á teningum með afstöðu karla; þeir eru miður sín yfir
því hvað japanskar konur séu órómantískar. Á hér vel við máltækið
að þar hæfi kjafti skel.
Þjóðverjar eru númer tvö yfír þær
þjóðir sem hvað minnst sýna af
rómantík og er sama gagnkvæma
óánægjan þar. Pólveijar eru þriðju
órómantískastir í heiminum. Aftur
á móti eru grískir karlmenn taldir
bera af, séu rómantískir, næmir á
konur og svo framvegis. Grískar
konur eru að mati grískra karla
ekki nógu vel af guði gerðar að
þessu leyti, hvernig sem það fer svo
sem saman.
Sem mælikvarði á hvort karlmað-
ur er rómantískur eða ekki er hvort
Grískir karl-
menn eru tald-
ir bera al, séu
rómantískir,
næmir á konur
og svo fram-
vegis.
aðrar konur sem á
orðið.
hann segir
öðru hveiju
við konu sína
„ég elska
þig“. Af jap-
önskum körl-
um höfðu
34% aldrei
nokkurn tíma
stunið upp
þessum orð-
um hvorki við
eiginkonu né
vegi þeirra hafa
Snjódýpt á
skíðastöðum í
Austurríki ídal á fjalli
Badgastein/
Bad Hofgasten 10 200
Flachau/Wagrain 20 85
Ischgl / Galtur 0 130
Kitzbuhel/
Kirchberg 10 70
Lech/Zurs - -
Saalbach/
Hinterglemm 15 90
Sölden/
Höchsölden - 70
St. Johann/
Oberndorf 15 50
Zell am See/ Kaprun 15 100
Þýskalandi
Braunlage 25 25
Brocken - 60
Oberhof 0 18
Oberstdorf 16 189
Zugspitze 5 255
Tölur frá 19. og 20. febrúar