Morgunblaðið - 26.02.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993
C 7
UTIVIST
SKÓLAGANGAN 5., áfangi
sunnud. 28. febrúar. í þessum
áfanga verður rifjuð upp saga
gömlu barnaskólanna og sögu-
fróðir fylgdarmenn með í för.
Þátttakendur fá sér-
stimplað göngukort.
Kl. 10.30 er skíða-
ganga á Hengils-
svæðinu og má
reikna með 4-5
klst. Minnt er á
skjólgóðan fatnað og
nesti. Brottför frá
bensínsölu BSÍ í báðar
ferðirnar.
Helgarferðir 5.-7.
mars. Þá eru tvær ferðir, annars
vegar í Tindfjöll og vetrarferð í
Bása við Þórsmörk. Brottför kl.
20 5. mars. Ferðin í Tindfjöll er
ætluð nokkuð vel þjálfuðu fólki
og ættu þátttakendur að vera á
göngu- eða Qallaskíðum.
I Básum á Goða-
landi verður
gist í góð-
um skála
Útivistar
og ættu
flestir að
finna göngu-
ferðir við sitt
hæfi, bæði fót-
gangandi og á
skíðum. ■
Eitu á leiO til Hafuai?
Norræna býöur upp á
ýmis sérfamiöld í sumar
hefiutrin/unginn!
NORRÆNA ferðaskrifstofan, sem
annast ferðir ferjunnar Norröna
milli íslands, Færeyja, Noregs
og Aberdeen, sendir senn
frá sér verðskrá um ferð-
irnar í sumar en Norröna
kemur til Seyðisfjarðar
í fyrstu ferð þann 3. júní.
Dæmi um verð fyrir 4ra
manna fjölskyldu (í 4ra
manna klefa til Danmerk-
ur og heim frá Bergen) er
frá kr. 65 þúsund kr.
í sumar verður nú siglt til Esbjerg
í Danmörku en þaðan er stutt að
keyra til Þýskalands. Norröna
kemur einu sinni í viku til
Seyðisfjarðar, alla
fimmtudaga til 2. sept-
ember. Ýmis konar sér-
verð er auk þess sem
nefnt var, s.s. fyrir skóla,
unglinga og íþróttahópa til
Færeyja og Noregs ef menn
kjósa að dvelja þar á meðan
feijan fer sinn hring. ■
FOR I
HNATTREISU
fyrir eina
HAPPAÞRENNU
FYRIR þá sem vilja lyfta sér
upp í andanum í heimsókn til
Kaupmannahafnar er ýmis-
legt í boði um þessar mundir.
Ballett, leikhús, bíó og sýn-
ingar svo eitthvað sé nefnt.
I Konunglega leikhúsinu við
Kóngsins nýja torg eru leikrit,
óperur og ballettar. Af óperum er
sem stendur verið að sýna Ariad-
ene á Naxos eftir Strauss í gullfal-
legri uppsetningu sænska leikstjór-
ans Folke Abeniuss með góðum
söngvurum. Óperan er sýnd öðru
hveiju út mars. í mars verða nokkr-
ar sýningar á Brúðkaupi Fígarós
eftir Mozart. Ef þekktir gesta-
söngvarar koma fram er yfírleitt
hærra verð, en óperumiðar kosta
frá um 1.000 og upp í rúmlega
2.000 ísl. kr. Ef ekki er uppselt
má fá miða á hálfvirði eftir kl. 17
á sýningar samdægurs.
Ballett Konunglega leikhússins
hefur borið hróður hússins víða um
heim. Á næstunni
er verið að sýna
tvo balletta Bo-
urnonvilles sem
var ballettmeist-
ari á síðustu öld.
Bournonville-
hefðin er sérgrein
hússins. Napoli
er fjörlegur ball-
ett um lífið í Na-
polí á Suður-ítal-
íu. Folkesagn
eða Þjóðsaga er
um samskipti
manna og álfa. - spennandi
Margrét Dana-
drottning hannaði leikmynd og
búninga í sýninguna, en hún er
mikill áhugamaður um ballett og
dansar reyndar sjálf.
Nokkrir ballettar bandaríska
meistarans Balanchines eru á dag-
skrá núna. í lok mars verður bal-
lettinn Rómeó og Júlía frumsýnd-
ur í uppsetningu höfundarins,
Bandaríkjamannsins John Neumei-
ers, en hann er einnig þekktur fyr-
ir að vanda mjög val dansara og
leggja ekki síður áherslu á sálar-
legu en tæknilegu hliðina.
Mörg áhugaverð verk í leikhúsunum
ballettsýningar.
Kaupmaðurinn í Feneyjum
eftir Shakespeare og Uppistand í
Chiozza eftir gamanleikjahöfund-
inn Goldoni eru á sviði Konunglega
leikhússins og á Hippodromen er
snilldarleg uppsetning Sveins Ein-
arssonar á Afturgöngum Ibsens á
sviði en það er erfítt að fá miða
með engum fyrirvara.
Söngleikurinn Vesalingarnir,
byggður á sögu Victors Hugos,
gengur fyrir fullu húsi. Verkið er
sýnt í Eystri gasstöðinni úti á Aust-
urbrú, örskotsbílferð frá miðbæn-
um. Og vilji einhver sjá danska
klassík er verið að sýna Ævintýri
á gönguferð í ABC-leikhúsinu á
Friðriksbergi, sömuleiðis aðeins
spottakom frá miðbænum.
Á nýuppgerðu og glæsilegu
Þjóðminjasafni stendur yfír stór og
mikil vikingasýning, farandsýning
sem kom hingað frá París. Úti í
Louisiana-safninu er sýning á
fraktalalist, eins konar tölvulist
byggð á stærfræðiformúlum. Hin-
um megin við sundið, í Málmey,
er stór sýningi á gulli Inkanna.
Flugbátamir í Nýhöfn selja bæði
miða á sýninguna og yfír sundið.
Á hveijum fímmtudegi eru sin-
fóníuhljómleikar í útvarpshúsinu
á Norðurbrú, skammt frá Ráðhús-
torginu. í og nálægt miðbænum
eru kvikmyndahús sem sýna bæði
gamlar og nýjar myndir. Yfírleitt
eru líka ágætis kaffihús þar. í
Grand rétt við Strikið og Ráðhús-
torgið eru oft góðar nýjar myndir.
í Husets biograf rétt hjá og Vest-
er Vov Vov á Vesturbrú ganga
eldri myndir. Mánudagar eru ódýr-
ir dagar í mörgum bíóum. ■
Sigrún Davíðsdóttir
1992 var metár í Singapúr
í FRÉTTABRÉFI ríkisferðaskrifstofu Singapúr segir frá því að ekki
hafi fleiri ferðamenn komið þangað en 1992 og voru þeir tæpar sex
milljónir og er það aukning um 10,6% miðað við 1991. Flestir koma
frá Bretlandi eða rúmlega 300 þúsund. Umtalsverð aukning er einnig
frá írlandi, HoIIandi og Italíu.
Úr reit Ferðafélags íslands í Heiðmörk.
Skíðaganga í Heiðmðrk
BORGARGANGA Ferðafélagsins er hafin. Hún er frá Ráðhúsinu og
upp í Bláfjöll og til baka. Gengið verður m.a. um skógarlundinn í
Öskjuhliðinni, um Elliðaárdalinn og um Heiðmörkina. Þótt gangan
sé ekki auglýst sem skíðaferð er ástæða til að vekja sérstaka athygli
á Heiðmörkinni sem skiðalandi.
Heiðmörk, friðland Reykvíkinga,
skartar nú vetrarskrúða. Greinar
svigna undan snjónum og samspil
hraunsins og barrtijánna skapa
framandi veröld. Skógræktarfélag
Reykjavíkur hefur á undanfömum
sumrum unnið að stígagerð í Heið-
mörk. Stígar hafa verið lagðir inn
með Vífilsstaðahlíðinni og liggja þar
m.a. um merkilegt safn tijáa.
Marga stíga er og að finna Rauð-
hóla megin í Heiðmörkinni. Þar er
m.a. unnt að ganga samfelldan stíg
7 km langan. Vert er að vekja at-
hygli á ágæti þessa stígs fyrir skíða-
göngumenn. Snjórinn. sest á stíginn
í skjóli tijánna og tré skýla göngu-
manni fyrir næðingi.
Lagning þessa stígs hófst í reit
Ferðafélags íslands. Þar liggur
hann milli stæðilegra tijáa að
hraunröndinni og sveigir með henni
að reit Félags Norðmanna á ís-
landi. Skógræktarfélagið og þau
félög sem ráða reitum sem stígurinn
liggur um, þurfa að gróðursetja í
nokkur bersvæði sem snjó vill blása
af. Stendur það vafalaust allt til
bóta. Kærkomið væri að fá snjó
ruddan af neðsta bílastæðinu á
Mörkinni. Vandalaust er þó að setja
á sig skíðin við Elliðavatn þótt til
nokkurra leiðinda sé að fylgja ak-
veginum að göngustígnum. Góða
ferð inn á skemmtilegt gönguskíða-
land. ■
Höskuldur Jónsson
Líbðnsk böm planta í isiael
Finnar minnka drykkju
FINNAR hafa minnkað áfengis-
neyslu um 3,6 prósent árið 1992
miðað við árið á undan. Meðal-
drykkja telst vera um 7,2 lítrar
af hreinu alkóhóli á mann.
í neyslukönnun um drykkjuvenj-
ur Finna sést að nú orðið hafa
menn tilhneigingu til að velja sér
drykki með lægri áfengisprósentu.
Neysla á borðvínum og léttbjór hef-
ur ekki minnkað en neysla sterkra
drykkja hefur dregist saman um
13% og á sterkum bjór um hvorki
meira né minna en 36%. ■
SKÓLAKRAKKAR úr nokkrum
bæjum á svokölluðu öryggis-
svæði ísraela I S- Líbanon, fóru
inn í ísrael um Gæðagerði á dög-
unum til að taka þátt í sérstöku
skógræktarverkefni og plöntuðu
þau tijám ásamt ísraelskum jafn-
öldrum við bæina Metulla og Ma'
alot rétt við landamærin.
ísraelsk blöð gerðu sér mat úr
þessu og sögðu það bæri vott um
friðarvilja og sáttfýsi og stuðning
við stefnu þeirra. Líbanir annars
staðar í landinu fordæmdu ísraela
fyrir að blekkja saklaus og fáfróð
börn og beittu þau hræðsluáróðri.
Ferðamenn hafa haft mjög stutta
viðdvöl í Singapúr, eða tvo daga, því
flestir eru að koma úr ferðum í ná-
grannalöndum eða Singapúr er
áfangi á lengri leið. Formaður ferða-
málaráðsins, Christopher Khoo, segir
að markmiðið sér að fá ferðafrömuði
sem koma með hópa til að vera leng-
ur, eða a.m.k. 4-5 daga. ■
FERÐIR
UM HELGINA
FERÐAFEIAGSINS