Morgunblaðið - 26.02.1993, Side 8

Morgunblaðið - 26.02.1993, Side 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ PÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993 íslandsvinirnir á hðtel Pullman í Löxemborg ALLAR götur sídan Loftleiðir hófu áætlunarflug til Lúxemborg- ar í maí 1955 hefur þetta litla en fagra land í hjarta Evrópu verið uppáhaldsviðkomustaður fjöl- margra ferðalanga. Sumir dvelja þar skamma hrið en aðrir lengur því að í Lúxemborg er margt merkilegt að sjá. Fólkið er líka gestrisið og við- felldið og samvinna íslendinga og Lúxemborgara á sér langa sögu. „Að koma á hótel Pullman eftir langa viðkomu í mörgum Evrópulöndum er eins og að koma heim,“ sagði maður sem mikið ferð- ast í viðskiptaerindum. Þá væri að- eins eftir að koma sér út á flugvöll og upp í Flugleiðaþotuna sem er bæði auðvelt og þægilegt. Trúlega geta margir tekið undir þessi ummæli. Hótel Pullman hefur um árabil verið annað heimili landans í Lúxemborg. Það hét áður Holiday Inn og þar gistu flugáhafnir Loft- leiða/FIugieiða meðan sá háttur var á hafður að hafa viðdvöl yfir nótt. Nú er öldin önnur og áhafnir fara í flestum tilfellum fram og aftur sam- dægurs. Sé á hinn bóginn gist er hótel Pullman staðurinn. Enda þó hótelið skipti um nafn og yrði þá enn fínna hefur sami hótel- stjóri haft veg og vanda af stjómun þess í meira en 20 ár. Það er Karel H. Hilkhuysen og allan þann tíma hefur frú Helma staðið dyggilega við hlið hans í hótelrekstrinum. Þau láta ekki duga að taka á móti Iöndum, þau ere bæði miklir íslandsáhuga- menn og hafa margoft komið hingað til lands. Hótel Pullman tilheyrir franska hótelhringnum Pullman Int. og stendur í hverfí sem Evrópubanda- lagið hefur í seinni tíð næstum gert að sínu, nánar tiltekið í grennd við aðalbyggingu EB. í hótelinu er flest sem góð gistihús má prýða, stór og rúmgóð herbergi, glæsilegir veitinga- salir og matur eins og hann gerist bestur á meginlandinu. Það státar af sundlaug og líkamsræktaraðstöðu og þar eru fundarsalir og aðstaða fyrir ráðstefnur. Herbergi á heilli hæð eru reyklaus. Starfsfólkið er vel að sér og ávallt reiðubúið að veita aðstoð og svara spureingum og segja villugjömum íslendingum til vegar ætli þeir að skreppa út í borgina á bílaleigubíl eða tQ nágrannalanda. Aki þeir ekki sjálfir taka þeir ókeypis far með hót- elbQnum til flugvallar og að járe- brautarstöðinnL Starfsliðið er alþjóð- legt og þar má fínna fulltrúa flestra Evrópuþjóða, þar á meðal myndar- stúlku frá íslandi. í júní nk. verður Hótel Pullman stærsta hótel í Lúxemborg. Þá verður tekinn í notkun nýr hluti — 104 her- bergja hótel sem hefur einnig 20 fundar- og samkomusalL Þau Karel og Helma eru sem sagt ekki byijendur í bransanum, hann hóf störf 1958 á Grand í Stokkhólmi og starfaði þar í þijú ár. Síðan nokk- ur ár á hótelum í Sviss og á Spáni en réðst svo tO Hilton-keðjunnar. Það var þá sem ung stúlka frá Þýska- landi kom tQ starfa sem fulltrúi hótel- stjóra og upp frá því hafa leiðir þeirra legið saman. Þau giftu sig eftír frek- ar stutt kynni; voru bæði viss. Eftir þrjú ár á Hilton réðst Karel til Holiday Inn og þau héldu tQ Lúxem- borgar þar sem opnað var nýtt Holiday Inn hótel 1971. Þetta gekk með eindæmum vel og á næstu árum opnaði hann hótel í Frankfurt, í Belg- íu, í Vierheim í Þýskalandi og fyrir Hflton enduropnaði hann Hilton Marabella á Spáni. Árið 1987 urðu eigendaskipti og Pullman-hótelhringurinn tók við. Segja má að þau hjón hafi fylgt með í kaupunum því forráðamenn Pull- man óskuðu eindregið eftir að njóta þeir vel að meta sem hafa unnið að íslenskri landkynningu. Það fer ekki á mflli mála að Karel býr yfír mikflli reynslu og hefur náð frábærum árangri í markaðsmálum og stjóreun. Fyrir tveimur árum heiðraði stórher- togi Lúxemborgar hann fyrir mikil og góð störf að ferðamálum. Að eiga slíka vildarvini sem þau Karel og Helma Hilkhuysen er íslandi og ís- lenskum ferðamálum ómetanlegur stuðningur. ■ Sveinn Sæmundsson Hvrsu mikil er bensinnotkunin? Tökv ftá 1969 um bensvmotkun á hvem tbúa. rteimild; Asiaweek. Land Utraráári Bandarikin 1.272 Lúxembofg 11-019 Quatar 977 Kanada 947 Ástralía 741 Bnjnei 671 Kúveit 632 Sam. Arab. Fustad. 582 Sviss 531 Sviþjóð H 515 jjff ísland 496 NýjaSjáland 485 V-Þýskaland 456 SaudL Arabía j|8B|§ 456 Holland 437 Noregur m£SÍ%k 1 433 Bretland 421 Rnníand 417 Austuiriki 344 Frakkland -- 344 1 Trinidad & Tobago 342 Libýa i 308 Hl ísrael 302 ' !''Wí: Nýja flugstöðin á Schiphol opnuð í maí UNNIÐ er af lutppi við viðbyggingu flugbafnarinnar á Schiphol í Amsterdam og stefnt að því að opnað verði 10. maí. Þar með á að vera hægt að afgreiða 27 mifljónir farþega á ári. Síðasta ár fórn 19 milljónir manna um völlinn og mátti ekld öllu meira vera. Hollendingum er mikið í mun að gera nýju flughöfnina þannig úr garði að hún glati ekki vinalegu yfir- bragði og persónulegu andrúmslofti sem hefur þótt einkenna Schiphol. Einnig er hugsað fyrir því að öll afgreiðsla við farangur gangi skjótar fyrir sig, farþegar eiga ekki að þurfa að fara á miUi bygginganna tveggja né í gegnum önnur tollgæsluhlið ef þeir eru að ná flugi áfram. Veitingasalir verða í nýju flug- höfíúnni, bæði fyrir komu- og brott- fararfarþega, verslanir af ýmsu tagi, rúmgóður almennur salur og sér- stakar setustofur fyrir farþega á C- og F-farrýmum, hvíldarherbergi og sérstök aðstaða fyrir foreldra með smábörn, auk góðs leikrýmis fyrir eldri krakka. í brottfararsal verða 132 innritunarborð. ■ Hótel Pullman. Karel og Helma Hilkhuysen. krafta þeirra áfram í Lúxemborg. Allt frá því flugáhafinir Loftleiða byijuðu að gista hjá þeim og góð kjmni tókust með þeim og flugliðum hefur íslandi verið gert hátt undir höfði. Ótaldar eru þær íslandskynn- ingar og fslandsvikur sem þau hjón hafa staðið fyrir á hótelinu ásamt íslenskum aðilum. Þar hafa margir komið að, s.s. Flugleiðir, Ferðamála- ráð, Útflutningsráð, sendiráð íslands í Benelux-löndunum o.fl. Svona framtak er einstakt og það kunna Virgin Atlantic besta flugfélagið Hundalíi hunda í Madrid BÖRGARSTJÓRINN í Madrid hefur bannað hlaup á gangstéttum og bannið nær einnig til fjórfætlinga. Hundum er nú skytt að trítla hægt og virðulega á gangstéttunum og segir borgarstjórinn að þessar regl- ur muni gera alla umferð gangandi fólks og hunda öruggari. Þá er hundum uppálagt að vera eru við því ef hundar eru ekki réttu aðeins hægra megin á stéttinni. megin á gangstétt eða fara yfir Ekki fylgdi sögunni hvaða viðurlög leyfílegan gönguhraða. ■ VIRGIN ATLANTIC flugfélagið er besta flugfélagið, að dómi les- enda breska ferðaritsins Exeeu- tive Travel. Það fékk hæstu ein- knnn sem besta flugféiag á leið- inni yfír Atlantshaf, fyrir besta viðskiptamannafarrými, besta flugmat og vín, bestu afþreyingu á flugi, státaði af þægilegustu flugliðum og bestu setustofum á flugvöllum. „Þetta er einstakur árangur," segir í umsögn ET. Númer tvö var Cathay Pacific, flugfélag Hong Kong, þijú Singa- púr Airlines og númer flögur flug- félag Dubai, Emirates. Sé gluggað í frekari sundurliðun fékk British Airways viðurkenn- ingu fyrir áhrifamestu augiýsinga- herferðina og var talið besta flugfé- Iag tfl Suður- og Mið-Ameríku. Besta flugfélag til Austurlanda fjær var ástralska féiagið Qantas, til Miðausturlanda Emirates og það fékk einnig besta vitnisburð fyrir almennt farrými, Y. Besta flugfélag tfl Afríku var South African Airways. American Airlines þótti besta félagið í bandarísku innan- landsflugi og Cathay Pacific þótti hafa besta fyrsta farrými. Bestu fríhafnarbúðir voru að mati lesenda á flugvöllum í Dubai, Amsterdam og Singapúr í þessari röð og bestu flugvellir Singapúr, London Heathrow og Amsterdam.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.