Morgunblaðið - 26.02.1993, Síða 9

Morgunblaðið - 26.02.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993 C 9 Sjominjasafnið opið lengur næsta sumar Á SJÓMINJASAFNI íslands í Hafnarfirði hefur verið • ákveðið að breyta sýning- artíma nk. sumar eftir ábendingum frá ýmsum í ferðaþjónustunni. Verður safnið opið alla daga frá kl. 13-17 frá 1. júní tU 30. sept og er gangseyrir fyrir full orðna 200 kr. en 100 er fleiri en 10 manna hópar koma samtímis. Sjóminjasafnið er til húsa í 130 ára gömlu pakkhúsi og er verið að vinna að Staflíkneski því að setja af barkskip- upp nýja inu Eos. fastasýningu sem verður til- búin í vor. í fréttatilkynn- ingu segir að hún muni gefa góða og heillega yfir- litsmynd af siglinum og sjósókn íslendinga frá landnámi til okkar daga. Sýningarskrá verður á ýmsum tungumálum og panta má leið- sögn um safnið og þar verða minja- gripir til sölu. Til greina kem- ur að gestir geti bragðað á harð- fiski, sölum og öðr- um sjávarafurðum. Þá verður öðru hverju bryddað upp á sérsýn- ingum og uppákomum þegar tilefni gefast. ■ Frá afhendingu verðlauna, t.f.v. Arbe Bang Mikkelsen, forsljóri Bella Center, Fleming Rosen, stöðvarstjóri Flugleiða í Kaupmanna- höfn með verðlaunaspjaldið, Derya Sahar frá tyrkneska sendiráð- inu, en það spjald varð númer 2, og Roy Odd Schöyen frá norsku ferðamálaskrifstofunni sem varð í 3. sæti. Verðtaun fyrir veggspjald FLUGLEIÐIR fengu verðlaun fyrir besta veggspjaldið á árlegri ferðaskaupstefnu, Ferie 93, sem var í Bella Center i Danmörku nú í febrúar. í veggspjaldasamkeppnina voru ur öðrum fyrir tveimur árum. send inn 28 veggspjöld. Flugleiðir Ferðakaupstefnuna sóttu um 40 létu gera veggspjaldið ásamt þrem- þúsund gestir. ■ Krðnprins sýnir vatnslitamyndir í mánaðarlegu fréttabréfi Breska ferðamálaráðsins segir að Karl krónprins Breta ætli að opna málverkasýningu í London í vor. Þar sýnir hann 35 vatnslita- myndir og eru þær ekki aðeins frá Englandi, heldur einnig myndir málaðar á Ítalíu, í Sviss, á Spáni, í Egyptalandi, Óman, Botswana og Hong Kong. Mynd- irnar verða fyrst til sýnis í Holy- roodhouse í Edinborg til mars- loka en formleg opnun er svo í London 5. apríl. Gestir eiga kost á að kaupa bók hans þar sem hann skrifar um þetta áhugaefni sitt og hvað varð til að hann fór að mála fyrir 25 árum. í bókinni eru litó- grafíur af mynd- um frá Windsor- og Balmore-köst- ulum. Allur ágóði rennur í sér- stakan sjóð sem prinsinn stofnaði fyrir allmörgum árum og er veitt fé úr honum til aðskiljanlegra líkn- ar- og menningarmála. ■ Hvað búa margir borgunum? Hlutfall Land íbúa Kúba 75% Frakkland 74% írak 71% Ítalía 69% Grikkland 63% Tyrkland 61% Finnland 60% Sviss 60% íriand 57% Ekvador 56% Túnis 54% Mongólía 52% Costa Rica 47% Gabon 46% Kamerún 41% Guatemala 39% Albanía 35% Portúgal 34% Pakistan 32% Jemen 29% Namibía 28% Indland 27% Frá kvennaathvarfi í Manila á Filippseyjum. í greininni er sagt frá viðbrögðum lögregluyfirvalda þar við kærum kvenna um ofbeldi. Konur era líka lamdar oi kúgaðarí Asíi í ASÍU á sér nú stað vakning vegna heimilisofbeldis og hafa kvennaathvörf verið opnuð í stærstu borgum nokk- urra Asíulanda. Umræðan sem þar er núna er ekki ólík þeirri umræðu sem hófst fyrir tíu árum hér á landi og enn fyrr í sumum nágrannalöndum okkar. „Ofbeldismenn eru ekki endi- lega fátækir, alkóhólistar eða eiturlyljaneytendur. Þeir eru í öllum stéttum þjóðfélagsins," segir í viðamikilli grein um efnið í tímaritinu Asiaweek. Þetta voru einmitt sumir af áhersluþáttum Samtaka um kvennaathvarf, er þau voru stofnuð hér á landi fyr- ir tíu árum. Haft er eftir Teresu Azuino Oreta að umræða af þessu tagi eigi erfítt uppdráttar í mörgum Asíulöndum, því ekki sé hefð fyrir því að utanaðkom- andi skipti sér af heimilislífí eða mislyndi hjóna innan veggja heimilisins. Þá sé algengt að litið sé svo á að ef eiginmaður lemji konu sína hljóti hún að hafa til þess unnið. Barsmíðar og kúgun Enn eiga indverskar konur á hættu að vera brenndar á báli. Talið er að tæplega 1.200 konur hafi látið Iífið á þennan hrotta- lega hátt á fyrstu þremur mán- uðum síðasta árs. á þennan hátt á fyrstu þremur mánuðum síðasta árs. Richa Chauhan, sem rannsakað hefur morð af þessu tagi, segist vita dæmi um að eiginmenn hafí myrt konur sínar fyrir það eitt að fara út á vinnumarkaðinn og taka þátt í fjáröflun heimilisins. Þau læra það sem fyrir þelm er haft Phyllis Wong hefur skipulagt kynningarstarf fyrir kvennaat- hvarf í Hong Kong. Hún hefur gefíð fólki einfaldar leiðbeining- ar og upplýsingar, sem ættu að gilda hvar sem er í heiminum, a.m.k. þar sem til eru fórnarlömb ofbeldisfullra manna. Hún legg- ur áherslu á að áfengisvandamál og ofbeldi séu aðskilin vandamál og maður lemji konu sína ekki vegna þess að hann sé drukkinn, heldur séu önnur vandamál fyrir. „Börn eru viðkvæm fyrir spennuþrungnu og ofbeldisfullu andrúmslofti á heimilum. Rann- sóknir sýna að böm sem alast upp við ofbeldi á heimili sínu eru líklegri en önnur böm til að sýna ofbeldi er þau vaxa úr grasi. Þegar börn ná skólaaldri ættu þau að vera nægilega þroskuð til að hægt sé að tala opinskátt við þau um ástandið á heimilinu og það ættu foreldrar að gera. Börnin átta sig yfirleitt á hve illa foreldmnum líður,“ segir Phyllis. Hún bendir konum á að hika ekki við að leita til fjölskyldu, vina eða opinberra aðila og biðja um hjálp. „Konur eiga ekki að skammast sín fyrir að biðja um fjárhagsaðstoð, því það er brot á mannréttindum að búa við of- beldi vegna Q'árhagslegs óörygg- is.“ Phyllis bendir á að margar konur gjaldi í sömu mynt þegar þær eru beittar líkamlegu eða andlegu ofbeldi, en mælir gegn því, því slíkt sé eins og að hella olíu á eld. Vinum þeirra sem búa við ofbeldi á heimili ráðleggur Phyllis að hlusta af einlægni á það sem vinkonan segir. Eitt af því versta sem hægt sé að gera konu undir slíkum kringumstæð- um sé að skamma hana eða nið- urlægja. ■ Brynja Tomer Asísku brautryðjendurnir fjalla ekki eingöngu um líkam- legt ofbeldi, heldur eru þeir einn- ig að kynna hugtakið „andlegt ofbeldi". Af greininni að dæma er umræðunni fyrst og fremst beint til kvenna og þær hvattar til að láta ekki misbjóða sér. Abdoul Aziz Abdoullah, yfir- læknir geðspítalans í Kuala í Malasíu, hefur lagt málstaðnum lið. í viðtali við Asiaweek segir hann að flestir hinna ofbeldis- fullu eiginmanna sem hann hafí kynnst eigi það sameiginlegt. að vera tiltölulega ungir, undir fer- tugu. „Þeir eru oft háðir eigin- konum sinum, hafa lélega sjálfsí- mynd og eru afbrýðisamir út í atvinnu eiginkvenna sinna. Kon- urnar verða taugaveiklaðar og óöruggar, en halda í þá von að einn góðan veðurdag muni allt falla aftur í ljúfa löð.“ Elnkamál hjóna? Lög og hefðir vinna oft með ofbeldismönnum og á móti fórn- arlömbum þeirra, segir Raquel Tiglao, forstöðukona kvennaat- hvarfs í Manila. Hún segir að lögregluyfirvöld á Filippseyjum láti kvartanir og kærur kvenna um ofbeldi sem vind um eyru þjóta. „Þeir líta á barsmíðar sem einkamál hverrar fjölskyldu," segir hún. Hún bendir á að til að kæra sé tekin alvarlega þurfí konur að sýna læknisvottorð sem sanni alvarlega líkamsáverka. í greininni segir að vænta megi nýrra lagaákvæða á Filippseyj- um, sem ættu að auðvelda gang mála af þessu tagi. Verði frum- varp þess efnis samþykkt, er gert ráð fyrir að fleiri athvörf rísi og umræða um heimilisof- beldi nái til fleiri en nú. Brúðlr á báll Á Indlandi kemur enn fyrir að brúðir eru brenndar á báli, þó landslög banni slíkt. Sam- kvæmt Asiaweek var ákveðin hefð fyrir því að eiginmaður myrti brúði sína, brenndi hana stundum á báli, ef fjölskylda hennar neitaði að láta heiman- mund fylgja. Yamin Hazarika, lögreglufulltrúi í Delhi, segir að á fyrstu sex mánuðum sl. árs hafí deild hennar fengið 81 slíkt mál í hendur. Blaðið telur ástæðu til að ætla að alls hafi tæplega 1.200 indverskar konur látið lífið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.