Morgunblaðið - 16.03.1993, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 16.03.1993, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993 B 3 HANDKNATTLEIKUR / HM I SVIÞJOÐ Draumurinn sem hvarf * Islendingar eiga litla möguleika á góðu sæti eftir sjö marka tap gegn Þjóðverjum ÞAÐ er sem betur fer ekki á hverjum degi sem maður skammast sín fyrir að vera ís- lendingurá handknattleiksleik. Því miður var sú raunin í gær- kveldi þegar við lékum við Þjóð- verja, sem flestir töldu að við ættum að sigra vegna þess að þeir væru með ungt og óreynt lið. Mikið rétt þeir eru með unga stráka sem þeir ætla að hafa á toppnum á Olympíuleikunum í Atlanta 1996. í gær léku þeir sér að íslenska liðinu, sem lék af- skaplega illa og hefði átti í strögli með flest lið hér f keppn- inni með sifkum leik, líka þau sem leika í Eskilstuna um 13. - 16. sætið. Lokatölur urðu 16:27 eftir að staðan fleikhléi hafði verið 5:10! Það byrjaði ekki gáfulega hjá lið- unum og greinilegt að menn voru taugatrekktir. Þjóðverjar voru fyrr f gang og kom- Skúli Unnar ust í 6:0 og það var Sveinsson ekki fyrr en eftir tíu skrifarfrá mínútur og 22 sek- Stokkhólmi úndur að Júlíus tók af skarið og gerði fyrsta mark Is- lands. Hann hélt síðan uppteknum hætti og gerði næstu þijú mörk okk- ar en Þjóðveijarnir gerðu jafnmörg mörk á sama tíma. Áhugaleysi Ekki kann ég skýringu á því áhugaleysi og þeirri ringulreið sem einkenndi lið íslands í fyrri hálfleik. Það var eins og bannað væri að koma við Þjóðveijana í upphafi. Varnar- menn okkar horfðu bara á þegar þeir skutu og reyndu varla að koma í veg fyrir það.' Tólf sinnum lá knött- urinn í íslenska markinu eftir lang- skot og í flestum tilvikum voru varn- armenn okkar ekkert að hafa fyrir því að trufla skyttur Þjóðveija. Vörn- in lagaðist reyndar heldur þegar skipt var úr 6-0 yfir í 3-2-1, en ekki nóg. Þegar vörnin er slök fylgir oftast að markvarslan er slök og þannig var það einnig í gær. Guðmundur byijaði í markinu og kom ekki við boltann, nema til að taka hann úr netinu, fyrstu 19 mínútumar en þá fór Bergsveinn í markið. Hann náði sér á strik í smá stund en síðan ekki söguna meir. Áhorfendur glotta Sóknarleikurinn var ekki heldur Sigurður BJarnason í harðri baráttu við tvo Þjóðveija. uppá marga fiska og þetta er fyrsti landsleikurinn sem ég sé með íslend- ingum þar sem áhorfendur glotta, brosa eða jafnvel hlæja að leik ís- lenska liðsins. Vonandi kemur það ekki fyrir aftur. Það eina sem var jákvætt við sóknarleikinn var að tvö hefðbundin mörk komu úr vinstra hominu og hægri hornamennimir fengu tvö dauðafæri, sem misfómst reyndar. Þetta hefur ekki sést hingað til á mótinu. Möguleikamir minnka Þegar íslendingar vom að komast inní leikinn og munurinn var aðeins tvö mörk, 10:12, komu tvær heldur hæpnar brottvísanir hjá slökum dóm- urum leiksins. Við þetta dró úr liðinu enda hafði baráttan verið mikil til að reyna að vinna upp hinn mikla mun. íslendingar gerðu ekki mark fyrstu 10 mínúturnar. Undir lok leiksins brotnaði íslenska liðið síðan alveg og niðurstaðan varð sjö marka tap og nú em litlir möguleikar á að Morgunblaðið/RAX liðið nái að leika um 5. sætið því markamunurinn er mjög óhagstæð- ur. ■ ■ ■ Ekkert kom á óvart, en Það er f rauninni ekkert í leik íjóðveija sem kemur á óvart. Við vissum að þeir mættu mjög ákveðnir til leiks og vissum hvað þeir vom að spila og allt það. Þeir vom einfaldlega miklu miklu grimmari og höfðu miklu meiri áhuga á því sem þeir vom að gera,“ sagði Þorbergur Aðal- steinsson, landsliðsþjálfari. „Ég hef enga útskýringu á hvemig þetta gerðist. Við lendum 6:0 undir og síðan er alltaf á brattann að sækja hjá okkur. Ég get ekki útskýrt hvað veldur því að menn koma svona daprir til leiks. Undirbúningurinn er alveg eins hjá okkur. Allur aðdragandi er sá sami, skoða mótheijana, aðdragand- inn að leiknum, maturinn og allt eins og venjulega. Markvarsian kom aldrei inn hjá okkur en það er auðvitað hlutur sem verður að vera í lagi. Þeir skora mikið fyrir utan án þess að við séum í þeim. Allar aðgerðir þeirra vom mun markvissari og þeir vom ákveðnir". 23,8 % nýting fyrir hlé Island - Þýskaland 16:23 Globen í Stokkhólmi, HM í handknatleik, milliríðlill, mánudaginn 15. mars 1993. Gangur lciksins: 0:6, 2:6, 2:9, 5:9, 5:10, 7:10, 8:12, 10:12, 10:14, 12:15, 12:18, 14:20, 16:21, 16:23. Mörk íslands: Júlíus Jónasson 5/2, Sigurður Sveinsson 4, Geir Sveinsson 2, Gunnar Beinteinsson 2, Bjarki Sigurðsson 1, Gunnar Gunnarsson 1, Héðinn Gilsson 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 8 (þaraf þrjú til mótherja), Guðmundur Hrafnkels- son 2. Utan vallar: 10 minútur. ■Auk þess léku Valdimar Grímsson, Sigurður Bjamason og Einar G. Sigurðsson, en Sigmar Þ. Óskarsson, Patrekur Jóhannesson, Gústaf Bjamason og Konráð Olavson hvfldu. Mörk Þýskalands: Bemd Roos 6/3, Volker Zerbe 5, Jean Barath 5, Jörg Kiinze 4, Christian Schwarzer 1, Karsten Kohlhaas 1, Mike Fiihrig 1. Varin skot: Andreas Thiel 12 (þaraf fjögur til mótheija). Utan vallar: 14 mínútur og þ.a. tveir menn útilokaðir. Dómarar: Jug og Jeglic frá Slóveníu. Áttu jafn slakan dag og islenska liðið. Sóknamýting íslenska liðsins var að- eins 23,8% í fyrri hálfleik gegn Þjóð- veijum, en strákamir fengu 21 sókn og skoraðu úr fimm þeirra. Þeir bættu sig eftir hlé, gerðu þá 11 mörk úr 19 sóknum og vora því með 40% sóknamýtingu í leiknum. Strákarnir gerðu fjögur mörk með langskotum, þijú komu eftir gegnum- brot, þijú af línu, tvö eftir hraðaupp- hlaup, tvö úr vinstra hominu og tvö úr vítum. •Júlíus Jónasson gerði 5/2 mörk úr 9/3 skotum, sem er 44,4% nýting. Hann tap- aði boltanum tvisvar, en átti tvær stoð- sendingar og fískaði eitt víti. • Sigurður Sveinsson gerði 4 mörk úr 9 tilraunum — 44% liýting. Hann átti fjórar stoðsendingar, en tapaði boltanum tvisvar. •Geir Sveinsson var með tvö mörk úr þremur tilraunum, 66,6% nýting, og fískaði tvö víti. •Gunnar Beinteinsson var með sömu nýtingu og Geir, tvö mörk úr þremur skotum, en tapaði boltanum einu sinni. • Bjarki Sigurðsson skoraði úr eina skoti sínu, 100% nýting, en tapaði boltanum einu sinni. •Gunnar Gunnarsön var með tvö skot og eitt mark, en tapaði boltanum tvisvar. • Héðinn Gilsson var með þijú skot og eitt mark, 33,3% nýting, en tapaði boltan- um tvisvar. •Valdimar Grímsson lét veija eina skot sitt og tapaði boltanum einu sinni. • Sigurður Bjamason átti eina stoðsend- ingu. • Einar G. Sigurðsson tapaði boltanum tvisvar. Gríðariegir yfirburðir Rússa Rússar höfðu gríðarlega mikla yfirburði í fyrsta leik í milli- riðlunum í gær þegar þeir mættu Ungveijum. Rússar hreinlega gerðu það sem þá langaði til og hafði maður það á tilfinningunni að sigur þeirra hefði getað orðið miklu stærri, en leiknum lauk með 29:22 sigri Rússa. Allir leikmenn liðsins tóku mjög virkan þátt í leiknum og það var sama hver var, allir eru frábærir handknattleiksmenn og Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Stokkhólmi „minni spámennirnir" eru engir við- vaningar. Ungveijar voru ekki öfundsverðir af hlutskipti sínu því Rússar voru miklu betri á öllum sviðum. Lavrov markvörður þeirra varði til dæmis 15 skot og skipti við varamarkvörð- inn snemma í síðari hálfleik. Hrað- aupphlaupin hjá þeim eru frábær og miðað við þennan leik, og þá leiki sem Svíar hafa leikið, þá er ekki spurning um hvor þjóðin er með betra lið. Það eru Rússar. Þeir leika talsvert öðruvísi en önnur lið, nokkuð kerfisbundinn sóknarleik en þó ekki svo að leik- menn bijóti kerfin ekki upp og geri laglega hluti á eigin spýtur. Gegn Ungveijum léku þeir 3-2-1 vörn lengstum og voru mjög framarlega, mun framar en önnur lið hafa verið til þessa. Varnarmúrinn er hár, mjög hár, og það virtist ekki skipta þá nokkru máli þegar þeir voru ein- um færri í vöminni. Leikmenn, sem eru flestir mjög stórir og þungir, voru samt ekki seinir að bruna fram í hraðaupphlaup þegar færi gafst og mörg þeirra vom geysilega vel útfærð. Íslenska liðsins bíður erfitt verk- efni í dag, og ef Rússar leika eins og þeir gerðu á móti Ungveijum í gær er hætt við að mörkin verði ekki mörg sem við gerum gegn þeim. Það ber þó að hafa í huga að við höfum oft leikið mjög vel gegn Rússum og virðumst hafa eitt- hvert tak á þeim. Vonandi dugar það í dag. Fj. leikja u j T Mörk Stig SPÁNN 3 2 1 0 56: 49 5 FRAKKLAND 3 2 O 1 73: 66 A SVISS 3 2 O 1 70: 66 4 RÚMENÍA 3 1 0 2 57: 61 2 EGYPTALAND 3 1 0 2 58: 63 2 TÉKKÓSL. 3 0 1 2 57: 66 1 SVÍUM getur mistekist þó flest gangi snurðulaust hjá þeim. Þegar þjóðsöngur Islands var leikinn var klippt aftan af honum þannig að hann hljómaði ekki nema rétt rúm- lega hálfur. GEIR Sveinsson var valinn besti leikmaður íslands en Andre- as Thiel hjá Þjóðverjum. BERND Ross (nr. 10) hjá Þjóð- veijum meiddist í leiknum gegn íslendingum. Hann sneri sig á ökkla og ekki er enn vitað hvort hann getur verið með gegn Svíum á fimmtudaginn. ÞYSKIR blaðamenn spurðu Þorberg Aðalsteinsson hvemig honum hefði þótt lið Þjóðverja leika miðað við hvernig það lék á Ólympíuleikunum. Þorbergur sagði liðið mun betra núna. Það væru ungir og áhugasamir strákar í því og þeir léku með hjartanu, en væru ekki í fríi eins og „görnlu" mennirnir sem voru í liðinu í Barc- elona. MILLIRIÐILL 1 SVISS- EGYPTALAND ......26:23 SPÁNN - RÚMENlA...-.....20:16 FRAKKLAND- TÉKKÓSL......26: 18 í DAG: Rúmenía - Egyptaland, Sviss - Tékkóslóslóvakla, Frakkland - Spánn. MILLIRIÐILL 2 ISLAND - ÞÝSKALAND......16:23 RÚSSLAND- UNGVERJAL.....29:22 SVlÞJÓÐ- DANMÖRK .......23:20 Fj. lelkja U J T Mörk Stig SVÍÞJÓÐ 3 3 0 0 64: 55 6 RÚSSLAND 3 2 1 0 74: 59 5 ÞÝSKALAND 3 1 2 0 62: 55 4 ÍSLAND 3 1 0 2 57: 65 2 DANMÖRK 3 0 1 2 58: 69 1 UNGVERJAL. 3 0 O 3 62: 74 0 í DAG: Danmörk - Ungverjaland kl. 17 og ísland - Rússland kl. 19. Svíþjóð - Þýska- land leika á morgun. Eskilstuna-ridill Keppt er um 13. - 16. sætið: Austurríki - Bandaríkin..31:19 Noregur - S-Kórea........30:28 Staðan Austurríki......1 1 0 0 31:19 2 Noregur.........1 1 0 0 30:28 2 S-Kórea.........1 0 0 1 28:30 0 Bandar..........1 0 0 1 19:31 0 FRJALSIÞROTTIR Þórdís ekki í úrslit Þórdís Gísladóttir fór yfir 1,79 m í hástökki á HM í frjálsíþróttum innanhúss í Tórontó um helgina, en komst ekki áfram í úrslit. Stefka Kostadinova frá Búlgaríu sigraði, stökk 2,02 m eins og þýska stútkan Heike Henkel, sem varð í öðru sæti. Inga Babakova frá Úkraínu fór tvo metra slétta og fékk bronsverðlaunin. Ikvöld KÖRFUKNATTLEIKUR: Fyrsti leikur lA og ÍR í úrslitum 1. deildar karla verður kl. 20.30 i íþrótta- húsinu við Vesturgötu. Forsala hefst kl. 18.30. Keflavík - KR leika fyrsta úrslita- leikinn I 1. deild kvenna I Keflavlk kl. 20.30. HANDKNATRTLEIKUR: Valur og Fram leika fyrsta leik sinn I 8-liða úrslitum í 1. deild kvenna kl. 20 að Hliðarenda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.