Morgunblaðið - 16.03.1993, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
KORFUKNATTLEIKUR
Brotið blað í
sögu Skallagríms
Skallagrímur sigraði Val að
Hlíðarenda í lokaumferðinni
í úrvalsdeildinni og tryggði
liðið sér þar með rétt til að leika
mmmmmm í úrslitakeppninni í
PéturH. fyrsta sinn í sögu
skrífarSS°n félagsins. Leikurinn
var æsispennandi
og réðust úrslitin ekki fyrr en á
lokasekúndunum er Henning
Henningsson tryggði liði sínu sig-
urinn með því að skora úr tveimur
bónusvítaskotum er 12 sekúndur
voru eftir af leiknum. „Ég verð að
viðurkenna að mér leið illa á vít-
alínunni. Ég hef verið frekar kald-
ur á vítalínunni í undanförnum
tveimur leikjum, en reyndi svo að
einbeita mér að skotunum og það
tókst,“ sagði Henning Hennings-
son eftir leikinn.
Borgnesingar byrjuðu leikinn
betur og höfðu frumkvæðið framan
af fyrri hálfleik, ákaft studdir af
fjölmörgum áhorfendum sem
höfðu fylgt liðinu í leikinn. Bæði
lið léku maður á mann vörn í byij-
un og var leikurinn mjög hraður.
Valsmenn jöfnuðu leikinn um miðj-
an fyrri hálfleik, en eftir það var
allt í jámum-. í hálfleik leiddu Vals-
menn með tveimur stigum, 45:43.
Borgnesingar byijuðu seinni
hálfleikinn af krafti og náðu fjög-
urra stiga forystu. Eftir það skipt-
ust liðin á forystunni og var
munurinn aldrei meiri en 4 stig.
Lokamínútur leiksins voru æsi-
spennandi. Er tvær mínútur voru
eftir höfðu Borgnesingar sjö stiga
forystu og sigurinn virtist í sjón-
máli. En Valsmenn gáfu ekkert
eftir og með þremur þriggja stiga
körfum tókst þeim að jafna leikinn
82:82. Á síðustu mínútunni gerði
Elvar Þórólfsson þriggja stiga
körfu fyrir Skallagrím, Brynjar
Harðarson svaraði fyrir Valsmenn
með tveim stigum og tuttugu sek-
úndur eftir. Borgnesingar náðu að
láta knöttinn ganga á milli manna
þar til Valsmönnum tókst að bijóta
á Henning Henningssyni. Hann
skoraði úr bónus vítaskotunum sín-
um eins og áður segir. Undir lok
leiksins reyndi Taft þriggja stiga
skot til að jafna leikinn en knöttur-
inn dansaði á hringnum en vildi
ekki ofaní. Gífurleg fagnaðarlæti
brutust út á meðal leikmanna og
fjölmargra áhangenda Skallagríms
og mátti halda að titillinn væri í
höfn.
Borgnesingar voru drifnir áfram
af stórleik Ermolinski sem skoraði
grimmt, ásamt því að eiga stórleik
í vörninni. Meðal annars blokkaði
hann 5 skot Valsmanna í leiknum.
Valsmönnum gekk mjög illa að
fást við Ermolinski og söknuðu
greinilega Magnúsar Matthíasson-
ar, en hann gat ekki leikið með
vegna meiðsla. Henning Hennings-
son átti einnig frábæran leik. Hann
gætti Tafts mjög vel í vörninni og
hvatti sína menn áfram. Enn frem-
ur skoraði hann mikilvæg stig fyr-
ir liðið. Hjá Val var John Taft best-
ur. Matthías Matthíasson byijaði
vel en lenti fjótlega í villuvandræð-
um.
Blikasigur í Ljónagiyfjunni
Það má segja að þessi úrslit lýsi
best gengi okkar í vetur. Við
vorum alltof kærulausir í lok leiks-
mmmmmmm ins og þeir voru
Björn fljótir að refsa okkur
B!or,dal,. fyrir,“ sagði Teitur
Njarövk Örlygsson þjálfari
og leikmaður Njarð-
víkinga eftir að lið hans hafði borið
lægri hlut fyrir Breiðabliksmönnum
100:99 í Ljónagryfjunni í Njarðvík
á sunnudaginn í leik þar sem heima-
menn virtust vera með sigur innan
seilingar. Þegar um 2 mínútur voru
til leiksloka voru Njarðvíkingar með
10 stiga forystu 98:88, sem þeim
tókst á óskiljanlegan hátt að glopra
niður og það voru Blikar sem fögn-
uðu sigri í leikslok.
Blikarnir féllu í 1. deild, þeir
náðu aðeins að sigra í 3 leikjum í
vetur og þar af voru tveir gegn
Njarðvíkingum sem í vetur áttu sitt
slakasta tímabil í mörg ár. „Þessi
sigur kemur of seint og það má
segja að menn hafi viljað falla með
sæmd með því að sigra Njarðvík-
inga í síðasta leiknum. Þeir voru
full kærulausir í lokin og lítið gekk
upp hjá þeim, en á sama tíma gekk
næstum allt upp sem við reyndum,"
sagði Sigurður Hjörleifsson þjálfari
Breiðabliks.
Bestir í liði UMFN voru Teitur,
Rondey og Jóhannes, en hjá Blikum
þeir Joe Wright sem skoraði 41
stig og þar af voru 9 3ja stiga körf-
ur, David Grissom og Hjörleifur
Sigurþórsson.
Öruggt
hjá IBK
KR slapp
fyrir hom
Snæfell missti af sæti í úrslitakeppninni
að vantaði alla baráttu hjá
okkur í síðari hálfleik og það
var eins og að menn væru með
aðra hendi fyrir aftan bak. En leik-
■■■■■■■■ urinn skipti ekki
máli og það kann
skrifarlá að skýra hugarfar-
Keflavík ið,“ sagði Ingvar
Jónsson þjálfari
Hauka eftir að lið hans hafði bor-
ið lægri hlut fyrir ÍBK í Keflavík
á sunnudagskvöldið. Lokatölur
Ieiksins urðu 101:87 fyrir ÍBK sem
nú mætir Borgnesingum í undan-
úrlitakeppninni um Islandsmeist-
aratitilinn en Haukar leika gegn
Grindvíkingum.
Keflvíkingar náðu fljótlega af-
gerandi betri stöðu og virtust ætla
að stinga af, en Haukamir börð-
ust vel og náðu að halda í við
heimamenn í fyrri hálfleik. Hauk-
arnir áttu hins vegar ekkert svar
við hröðum leik heimamanna í síð-
ari hálfleik. Þeir voru ofurliði born-
ir þegar í upphafi og átti sér aldr-
ei viðreisnar von eftir það.
„Þetta gekk ágætlega og þar
sem úrslit leiksins skiptu ekki
máli notuðum við tækifærið til að
reyna ýmislegt nýtt sem á eftir
að koma sér vel í úrslitakeppn-
inni,“ sagði Jón Kr. Gíslason þjálf-
ari ÍBK.
Bestir í lið ÍBK voru Bow, Hjört-
ur, Guðjón, Albert og Kristinn en
hjá Haukum var John Rhodes yfir-
burðarmaður.
KR-INGAR sluppu við að leika
aukaleiki um sæti í úrvalsdeild-
inni þegar þeir sigruðu Snæ-
feli i spennandi leik á Seltjarn-
arnesi á sunnudagskvöidið,
með 77 stigum gegn 66. Snæ-
fellingar aftur á móti, sem hafa
verið í efsta sæti B-riðils sfð-
ustu mánuði, misstu með
ósigrinum af sæti í úrslita-
keppninni.
Leikurinn var spennandi frá
fyrstu mínútu og augljóst að
bæði lið höfðu að einhveiju að
mmmmmm keppa. KR-ingar
Stefán náðu fimm stiga for-
Eiriksson skoti eftir jafna
sknfar byijun, en Snæfell-
ingar gerðu þá 11
stig í röð og náðu forskoti sem
þeir héldu út hálfleikinn. Staðan í
hálfleik var 34:39.
Það var gjörbreytt KR-lið sem
mætti til leiks í síðari hálfleik. Með
því að skora sex fyrstu stigin náðu
þeir að komast yfir og ná forskoti
sem þeir juku jafnt og þétt allt til
leiksloka. Þeir þéttu vörnina og slíp-
uðu sóknarleikinn, og meðan þeir
héldu sama hraða döluðu Hólmar-
ar. Leikinn unnu þeir síðan með 11
stigum, 77:66.
„Það var vömin sem vann þetta,“
sagði Friðrik Rúnarsson þjálfari KR
eftir leikinn. „Við vissum að þetta
yrði barningur, að leikurinn yrði í
járnum frá byrjun. En þegar vörnin
small saman og við spiluðu upp á
góð skot í sókninni gekk þetta upp.“
Keith Nelson átti sannkallaðan
stjörnuleik í vörninni í síðari hálf-
leik, eftir vægast sagt dapran fyrri
hálfleik. í þeim síðari hirti hann
hvað eftir annað háar sendingar inn
í teiginn og tók fjöldan allan af
fráköstum. Hermann Hauksson
blómstraði einnig í síðari hálfleik,
gerði fjórtján stig og alls nítján í
leiknum og var stigahæstur KR-
inga. Guðni Guðnason lék vel og
Tómas Hermannsson og Óskar
Kristjánsson vöktu athygli fyrir
góða baráttu.
Shawn Jamison var bestur í liði
Snæfells, hélt Nelson vel niðri í
fyrri hálfleik, en hafði lítið í hann
að segja í þeim síðari. Bárður Ey-
þórsson gerði 14 stig en hefur oft
leikið betur. Snæfellingar voru aug-
ljóslega þreyttir, þeir höfðu ekkert
svar við öflugum leik KR-inga í síð-
ari hálfleik og gáfust hreinlega upp
undir lokin. Dapur endir hjá þeim
á annars frábæru tímabili.
Blrgir Mlkaelsson hefur gert góða
hluti með Skallagrím, sem leikur í
fyrsta sinn í úrslitakeppninni.
■ LEIKUR KR og Snæfells tafðist
um tíu mínútur. Þegar liðin voru
komin út á völlin kom í ljós að þau
voru bæði í hvítum treyjum, og urðu
því KR-ingar að kalla eftir nýjum
búningum.
■ KEITH Nelson, Bandaríkjamað-
urinn í liði KR, átti pantað far til
Bandaríkjanna í gær, strax daginn
eftir leikinn við Snæfell. Hann lék
ekki vel í fyrri hálfleik og var KR
fjórum stigum undir í hálfleik.
■ í LEIKHLÉINU var honum vin-
samlegast bent á að ef KR tapaði
leiknum gæti hann fekki farið heim
fyrr en í fyrsta lagi eftir viku, tíu
daga, því þá þyrfti liðið að leika
aukaleiki við lið úr 1. deild um sæti
í úrvalsdeildinni.
■ ÞETTA hafði þau áhrif að Nel-
son tók sig saman í andlitinu, og
sýndi sannkallaðan stjörnuleik í síð-
ari hálfleik og átti stóran þátt í ell-
efu stiga sigri KR.
NBA-DEILDIN
Dumars yfir
tíu þús.
stiga
múrinn
JOE Dumars var í aðalhlut-
verki, þegar Detroit tók á móti
Chicago á sunnudag og vann
101:99. Dumars skoraði 27 stig
og fór yfir 10.000 stiga múrinn,
en Michael Jordan skoraði ekki
fyrir gestina síðustu nfu mínút-
urnar. Charlotte var einnig í
sviðsljósinu, en liðið sigraði í
fyrsta sinn í Boston.
Terry Mills skoraði 23 stig fyrir
Pistons og Isiah Thomas var
með 21 stig og 10 stoðsendingar.
Jordan gerði 28 stig
Frá Gunnarí fyrir Chicago og B.
Valgeirssyni J. Armstrong 22,
í Bandarikjunum sem er persónulegt
met á tímabilinu.
Detroit er efst í austurdeild og Isiah
Thomas var ánægður. „Við höfum
leikið vel í vetur, þegar allir hafa
verið ómeiddir. Ég held að ef við
náum í úrslitakeppnina eigum við
eftir að gera þar mikinn usla.
Chicago er samt enn besta liðið í
deildinni og gefst aldrei upp eins
og sönnum sigurvegara sæmir."
Alonzo Mourning skoraði 25 stig
og tók 11 fráköst fyrir Charlotte,
sem vann 96:93 í Boston. Larry
Johnson skoraði 23 stig og tók 16
fráköst fyrir gestina.
New York Knicks hélt áfram á
sigurbraut og sigraði í 1. heima-
leiknum í röð, vann Indiana auðveld-
lega, 121:90. John Starks skoraði
31 stig og átti 10 stoðsendingar,
en Patrick Ewing skoraði 29 stig
fyrir heimamenn. Reggie Miller og
Detlef Schrempf voru stigahæstir
hjá gestunum með 19 stig hvor, en
þetta var níundi tapleikur Indinana
í röð á útivelli.
Shaquille O’Neal skoraði 29 stig
fyrir Orlando, en allt kom fyrri ekki
og heimamenn töpuðu 105:97 fyrir
Seattle, fimmta tap Orlando í síð-
ustu sjö leikjum. Shawn Kemp skor-
aði 27 stig fyrir Seattle og tók 12
fráköst.
Phoenix er með besta árangurinn
á heimavelli, en tapaði þar í þriðja
sinn, 124:91 gegn New Jersey Nets.
Drazen Petrovic skoraði 29 stig fyr-
ir gestina, en Kevin Johnson var
stigahæstur hjá Phoenix með 23
stig. Charles Barkley, sem byijaði
leikinn sem fímmti stigahæsti mað-
ur deildarinnar (25,6 stig að meðal-
tali í leik) og fjórði í röðinni varð-
andi fráköst (12,7 í ieik), skoraði
aðeins 15 stig og tók fjögur frá-
köst, en hann var lengst af á bekkn-
um i seinni hálfleik.
Houston, „heitasta“ liðið í deiid-
inni, vann Utah 104:95,13. sigurinn
í röð, en liðið hefur sigrað í 26 af
síðasta 31 leik. Hakeem Olajuwon
fór á kostum, skoraði 38 stig og tók
14 fráköst. Kenny Smith var með
21 stig og sjö stoðsendingar í þess-
um 1.000. sigri Houston.
Slæmt gengi Portland hefur vak-
ið athygli, en liðið tapaði 108:99 í
San Antonio. Antoine Carr skoraði
27 stig fyrir heimamenn, Sean Elli-
ott 24 og David Robinson 23 stig,
en hann tók líka 19 fráköst, átti
fímm stoðsendingar og varði fjögur
skot.
Úrsfitakeppnin
Lokaumferðin í úrvalsdeildinni fór fram um síðustu helgi og þá réð-
ist það hvaða lið mætast í úrslitakeppninni. Fyrsti leikur urslita-
keppninnar verður i Keflavík á laugardaginn og þá mætast ÍBK og
Skallagrímur kl. 15.00. UMFG og Haukar leika ( Grindavík daginn eft-
ir, 21. mars kl. 20.00. Skallagrímur og ÍBK leika í Borgarnesi 22. mars
kl. 20 og síðan Haukar og UMFG f Hafnarfirði 23. mars kl. 20. Það lið
sem fyrr vinnur tvo leiki leikur til úrslita um íslandsmeistaratitilinn.
ÍBK og KR leika til úrslita um íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna
og fer fyrsti leikurinn fram í Keflavík í kvöld kl. 20.30. Það lið sem
fyrr vinnur þrjá leiki hlýtur titilinn.