Morgunblaðið - 16.03.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.03.1993, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993 KNATTSPYRNA Ólafur Þórðarson með gegn Skotum SKAGAMAÐURINN Ólafur Þórðarson leikur með U-21 árs landsliðinu í knattspyrnu, sem mætir Skotum í vináttulands- leik á Rugby Park í Kilmarnock n.k. mánudag. Liðin mega vera með tvo eldri leikmenn, en Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari, ákvað að vera að- eins með einn slíkan. Miðvallarleik- maðurinn Pat McGinlay hjá Hibern- ian verður annar eldri maður Skota. Eftirtaldir leikmenn fara til Skot- lands: Ólafur Pétursson, ÍBK; Frið- rik Þorsteinsson, Fylki; Óskar Þor- valdsson, KR; Lárus Orri Sigurðs- son, Þór; Pétur Marteinsson, Leiftri; Sturlaugur Haraldsson, ÍA; Steinar Guðgeirsson, Hejultje; Finnur Kol- beinsson, Fylki; Ásgeir Ásgeirsson, Fylki; Ólafur Þórðarson, ÍA; Hákon Sverrisson, UBK; Kristófer Sigur- geirsson, UBK; Ágúst Gylfason, Val; Kristinn Lárusson, Val; Þórður Guðjónsson, ÍA, og Arnar Gunn- laugsson, Feyenoord. BLAK / ISLANDSMOTIÐ HK-ingar orðnir deildarmeistarar HK tryggði sér deildarmeist- aratitilinn í blaki karla með því að vinna KA á Akureyri í þrem- ur hrinum gegn tveimur um helgina. Stúdentar sýndu að þeir eru ekki dauðir úr öllum og lögðu Þrótt Reykjavík í fimm hrinu leik. HK byijaði ekki vel á Akureyri, tapaði fyrstu tveimur hrinun- um. Útlitið var heldur ekki bjart ■■■■■■ framan af þriðju Guömundur hrinu, en KA komst Helgi í 9-6. Leikur KA Þorsteinsson hafði fram að því verið mjög góður og sóknir liðsins gengu með eindæm- um vel þótt uppspilið hafi nánast verið smassað úr afturlínu á köflum. En nýkrýndir bikarmeistarar HK höfðu ekki sagt sitt síðasta orð, sneru á KA, sigruðu í næstu þrem- ur hrinum og tryggðu sér deildar- meistaratitilinn. Stúdentar á uppleið Stúdentar, sem hafa átt í veru- legum erfíðleikum seinni hluta tímabilsins, náðu loks að rífa sig upp úr mikilli niðursveiflu og skelltu Þrótti Reykjavík 3-2. Stúdentar töpuðu fyrstu tveimur hrinunum, en sýndu mikinn styrk og sigruðu í næstu þremur. Þróttur er í öðru sæti, en ÍS á möguleika á sæta- skiptum en til að svo fari verður liðið að sigra KA og Þrótt Neskaup- stað, en Þróttur R. að tapa 3-0 fyrir HK. Fullvíst má telja að stúd- entar mæti Þrótti í úrslitakeppn- inni, en HK leiki gegn KA. Spennufall í Víkinni Stúdínur lögðu nýkrýnda bikar- meistara Víkings 3-2. Stúdínur byijuðu mjög vel og var móttaka, sóknir og uppspil í betri kantinum í fyrstu tveimur hrinunum. Vík- ingsliðið var allt annað og betra í næstu tveimur hrinum og þurfti úrslitahrinu. Hún var löng og spennandi og undirrituðum er til efs að slík hrina með ótrúlegum kaflaskiptum hafi verið spiluð áður hér á landi. Víkingsstúlkur voru með pálmann í höndunum og leiddu 14-9, þar sem röng uppstilling kost- aði Stúdínur m.a. tvö stig. En kaflaskiptin urðu lygasögu líkust. Stúdínur náðu að jafna og komast yfir, 15-14. Bæði liðin neit- uðu að gefast upp og það var ekki fyrr en eftir mikila baráttu að Stúd- ínur sigruðu 21-19 á dramatískan hátt þar sem Víkingsstúlkur sátu eftir með sárt ennið. Liðsheildin var sterk hjá Stúdínum með þær Þóreyju Haraldsdóttur og Úrsúlu Junemann skæðar á köflum. KORFUKNATTLEIKUR Keflavfkurstúlk- urnarnáðu að merja sigur gegn Grindavík „VIÐ náðum ekki að nýta okkur hæðarmismuninn og einnig höfðu þær reynsluna fram yf ir okkur þegar mest reið á í lokin. En þetta var spennandi leikur sem gat farið á hvorn veginn sem var,“ sagði Pálmi Ingólfsson þjálfari kvennaliðs Grindavíkur sem var hársbreidd frá að slá lið ÍBK úr keppninni um íslandsmeistara- titilinn í Keflavík á sunnudaginn. Þvar þriðji leikur Iiðanna og hreinn úrslitaleikur um hvort liðið mætir KR í úrslitum og náðu Keflavíkurstúlkurn- Björn ar að meija sigur, Blöndal 59:56 eftir æsi- skrifar frá spennandi leik að viðstöddum um 500 Keflavik áhorfendum. Úrslit leiksins réðust ekki fyrr en á síðustu mínútu leiksins þegar Kristín Blöndal skoraði úr tveimur vítaskotum og tryggi liði sínu þar með sigur í leiknum. Grindavíkur- stúlkurnar voru yfir, 55:56, þegar tæp mínúta var til leiksloka en Keflavíkurstúikurnar náðu að skora 4 síðustu stigim í hálfleik var stað- an 26:20 fyrir ÍBK. Kristín Blöndal var atkvæðamest í liði ÍBK, en Anna Dís Sveinbjörns- dóttir hjá UMFG. „Stelpurnar áttu frekar slaka leiki gegn Grindvík en þær náðu samt að sigra. Ég trúi að mesta spennan sé farin úr liðinu og að stelpurnar séu tilbúnar í slag- inn geg KR-stúlkunum,“ sagði Sig- urður Ingimundarson þjálfari ÍBK. HANDKNATTLEIKUR / HM í SVÍÞJÓÐ Þeir hafa sk laimArason Sígurðuf Sœinssor Þorgils OtfárMatth Alfreð Gíslason Júlíus Jónasson Sigurður Sveinsson skoraði tíu mörk gegn Ungveijum og níu gegn Bandaríkjamönnum. jGpirHallsteinsson IBH r LOKaKennn nroi i aennum imina Árangur Ar Gestgjafi Islands Fjöldi þjóða Heimsmeistarar 1938 Berlín - 4 Þýskaland 1954 Svíþjóð - 6 Svíþjóð 1958 A-Þt /skaland 10 16 Svíþjóð 1961 V-Þi skaland 6j 12 Rúmenía 1964 Tékí óslóvakíaJ 16 Rúmenfa 1967 Svíþjóð / - 16 Tékkóslóvakía 1970 Frakkiandr „ æ:i. 16 Rúmenía 1974 Á-ÞýskptafíT" 14 16 Rúmenía 1978 Dan 13 16 V-Þýskaland 1982 V-Þýskafand - 16 Sovétríkin 1986 Sviss ' 6 16 Júgóslavía 1990 Tékkóslóvakía' 10 16 Svíþjóð 1993 Sviþjöð' \ ? 16 ???????? IMorðmenn kenna dóm- urum um ófarimar íeiki að undirbúa liðið með góðu móti fyrir þessa keppni, þegar svona slakir dómarar væru látnir dæma. í safntali við norska sjón- varpið eftir tapleikinn gegn Sviss sagði Pettersen að betra liðið hefði sigrað en hann bætti við að norska liðið hefði engu að síður verið mjög óheppið að komast ekki áfram. Tor Lian, formaður norska handknattleikssambandsins, var raunsærri um gengi liðsins I keppninni. „Liðið hefur ekki næga reynslu til að ná árangri: í slíkri keppni og marga þætti f leik liðs-' ins verður að bæta ef betri árang- ur á að nást. Þar má meðal ann- ars néfna niarkvörslu og sóknar- leik liðsins." Norðmenn fóru á HM í Svíþjóð með því hugarfari að halda 10. sætinu, en hlutskipti þeirra er annað. Þeir leika um 13. til 16. sæti og kenna dóm- urum um ófarirnar. Eftirtvo fyrstu leiki Norðmanna á HM voru flestir fjölmiðlar f Noregi uppteknir af slakri dóm- gæslu á mótinu. Osigur Norð- manna í leik gegn Frökkum var að flestra áliti dómur- um að kenna. Eftir leikinn sagði Gunnar Pettersen, þjálfari Norðmanna, í viðtali við Aftonposten að ekki væri mögu- Erlingur Jóhannsson skrifar frá Noregi Nýirspútnikarkor Egyptai meðþeii j^fcjóðirnar sem léku til úrslita í síðustu B-keppni, Noregur og Austurríki, komust ekki áfram í milliriðla á laugar- daginn, en það munaði þó ekki miklu. Austurríkismenn unnu Egypta 26:23 en sátu eftir með einu marki meira f mínus en Egyptar. í B-riðlinum sátu frændur vorir Norðmenn eftir með sárt ennið. Norðmenn sem voru svo glaðir þegar þeir sigruðu á Lottó-mótinu fyrr í vetur og töldu sig svo gott sem orðna heims- meistara samkvæmt norskum fjölmiðl- um. Nú vöknuðu þeir upp við vondan draum, eins og margar þjóðir hafa orðið að gera því í íþróttum er ekkert sjálfgef- ið. Norðmenn misnotuðu fjögur vítaköst í leiknum en höfðu funnkvæðið í fyrri hálfleik. Sviss komst 9:10 yfir skömmu fyrir hlé og bytjaði með þremur mörkum eftir hlé. Eftir það komust Norðmenn aldrei nærri þeim og féllu þar með úr keppninni, leika um 13. - 16. sætið, sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.