Morgunblaðið - 16.03.1993, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
B 7
INíunda og síðasta mark Sigurðar Sveins-
sonar gegn Bandaríkjamönnum á laugar-
dag var 600. mark hans með landsliðinu
nu fram í Svíþjóð
ríflokki
ti sterku
er langt frá því sem þeir bjuggust við
og vonuðust eftir. Leikurinn þótti slakur
enda mikið í húfi fyrir bæði lið.
Þjóðirnar sem urðu í 3., 4. og 5. sæti
í B-keppninni í Austurríki, Islendingar,
Svisslendingar og Danir komust hins
vegar áfram í milliriðla. Annað sem vek-
ur mikla athygli er að Egyptar komust
áfram. Egyptar leika ekki ósvipaðan
handknattleik og fyrrum A-Þjóðveijar
gerðu enda var Paul Tiedeman þjálfari
hjá þeim um þriggja ára skeið, en hann
var lengi landsliðsþjálfari A-Þjóðverja.
Spennan í A og B-riðli var mikil og
þurfti að grípa til hinnar „frægu“ 25%
reglu til að fá úr því skorið hvort Sviss
eða Frakkland yrði í fyrsta sæti riðils-
ins. Þar hafði Sviss betur og er því i
öðru sæti milliriðilsins með tvö stig. 1
fyrsta sæti eru Spánveijar með 3 stig
en ' Sviss, Rúmenía, Frakkland og
Egyptaland eru öll með 2 stig og samein-
að lið Tékka og Slóvena er með 1 stig.
SIGURÐUR Sveisson náði þeim
áfanga, þegarhann skoraði
níunda mark sitt gegn Banda-
ríkjamönnum - eftir gegnum-
brot, að skora sitt 600. lands-
liðsmark frá því að hann skor-
aði sitt fyrsta mark í landsleik;
gegn Bandaríkjamönnum í
Reykjavík 1979. Sigurður er
kominn í annað sætið yfir þá
leikmenn sem hafa skorað flest
mörk. Kristján Arason á marka-
metið -1.090 mörk.
Þeir félagar hafa leikið i hlut-
verki vinstrihandarskyttu í
landsliðinuN síðustu ár. Bogdan
Kowalczyk, fyrrum landsliðsþjálfari
íslands, hélt Sigurði lengi úti í kuld-
anum og þá var Sigurður einnig
að beijast um sæti við Kristján
Arason, sem var skytta númer eitt
á hægri vængnum. Sigurður er nú
sá leikmaður sem landsliðið byggist
á og má segja að týndi sonurinn
sé kominn heim. Sigurður átti stór-
an þátt í því að landsliðið komst til
Svíþjóðar, þar sem hann fór á kost-
um í B-keppninni í Austurríki, þar
sem landsliðið tryggði sér farseðil-
inn í HM með því að hafna í þriðja
sæti.
Með erlendum liðum
Þeir vinstrihandarmenn sem hafa
leikið stór hlutverk í landsliðinu í
gegnum árin, eiga það allir sameig-
inlegt að hafa leikið með erlendum
félagsliðum; Ágúst Svavarsson lék
með félögum í Svíþjóð og Þýska-
landi, Viggó Sigurðsson á Spáni og
Þýskalandi, Kristján Arason í
Þýskalandi og Spáni, Sigurður
Sveinsson í Svíþjóð, Þýskalandi og
Spáni og Gunnar Einarsson, sem
lék nokkra landsleiki, í Þýskalandi.
Sex leikmenn hafa náð því að
skora yfir 500 mörk í landsleik.
Geir Hallsteinsson varð fyrstur til
að ná þeim áfanga.
Yfirburðir
Islenska liðið hafði mikla yfir-
burði gegn því bandarsíska þeg-
ar liðin léku síðasta leikinn í C-
riðli. ísland vann 34:19 eftir að
hafa haft 14:7 yfir í leikhléi. Þor-
bergur notaði tækifærið og breytti
um lið þannig að nú hafa allir
fengið að reyna sig á HM. Eins og
í öðrum leikjum Bandaríkjamanna
mátti sjá að þar fóru miklir áhuga-
menn sem eiga langt í land til að
ná þeim bestu í heiminum. Derrich
Heath (nr. 11) var engu að síður
vinsælasti leikmaðurinn í Gauta-
borg enda hefur kappinn ótrúlegan
stökkkraft sem hann nýtir sér vel.
Allir íslensku leikmennirnir
skoruðu í leiknum og enginn færri
en tvö mörk. Patrekur varð þó að
vera snöggur því dómurunum var
eitthvað illa við hann og ráku hann
útaf þriðja sinni í byijun síðari
hálfleiks. Frammistaða leikmanna
var góð því nafnarnir Sigurður
Sveinsson og Bjamason voru báð-
ir með 100% nýtingu í skotum sín-
um eins og Gunnar og Geir, en
aðrir 66% nema hvað Júlíus var
„bara“ með 62% nýtingu.
ísland - Bandaríkin 34:19
Scandinavium i Gautaborg, HM í handknattleik, laugardaginn 13. mars 1993.
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 5:2, 6:5, 9:5,10:7,14:7,17:8, 20:10, 24:16, 27:18, 83:18,34:19.
Mörk íslands: Sigurður Sveinsson 9/5, Gunnar Gunnarsson 5, Júlíus Jónasson 5, Geir
Sveinsson 3, Patrekur Jóhannesson 2, Bjarki Sigurðsson 2, Valdimar Grímsson 2, Sigurð-
ur Bjarnason 2, Gústaf Bjamason 2, Konráð Olavson 2.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 9/1.
Utan vallar: 12 minútur.
Mörk Bandaríkanna: Tom Fitzgerald 6/4, Matt Ryan 5, Darrick Heath 4, Luke Travins
2, Kevin Withrow 1, Brian Parath 1.
Varin skot: Dan Hennessey 4.
Utan vallar: 4 minútur.
Áhorfendur: 12.418, nýtt sænskt met.
Dómarar: Pólverjariiir Marek og Jacek og voru jafn hræðilega slakir og í ieiknum gegn
Svíum.
Fullt hús hjá Svíum
Magnús Andersson, hinn smá-
vaxni en knái leikmaður
Svía, tryggði þeim sigur gegn Ung-
veijum í C-riðli á laugardaginn.
Anderson, sem gerði níu mörk gegn
Islendingum, skoraði sigurmarkið
þegar aðeins þijár sekúndur voru
eftir af leiknum.
Leikurinn var bæði vel leikinn
og spennandi. Ungveijar byijuðu
betur og komust í 4:1 en Svíar jöfn-
uð 8:8 og höfðu 12:9 yfir í leik-
hléi. „í leikhléi hélt ég að við mynd-
um sigra með 5 til 7 mörkum,“
sagði Bengt Johanssen þjálfari Svía
eftir leikinn. „Ungveijarnir börðust
vel og sigurinn hefði getað lent
hvorum megin sem var, en þetta
var okkar dagur og ég er mjög
ánægður," sagði hann.
Ungveijar jöfnuðu 16:16 þegar
9 mínútur voru eftir og síðan var
jafnt á öllum tölum þar til Anders-
son gerði sigurmarkið við gríðarleg-
an fögnuð áhorfenda.
Svíar fóru því í milliriðilinn með
fullt hús, 4 stig, Rússar með 3 stig,
Þjóðveijar og Islendingar 2, Danir
eitt og Ungveijar ekkert stig.
Stetán og Rögnvald
höfðu í nógu að snúast
Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson höfðu í nógu að snú-
ast, þegar Austurríkismenn lögðu Egypta, 26:23. Austurríkis-
menn voru utan vallar ,í átta mínútur og Egyptar í tíu mínútur þar af
var einn, sem ekki hafði verið rekinn af velli áður, rekinn útaf fyrir
brot þegar 12 mínútur voru eftir. Austurríki var yfír mest allan leik-
inn, 14:9 í leikhléi en Egyptum tókst þó að jafna 15:15. „Þrátt fyrir
tapið er ég ánægðasti maður í heimi,“ sagði Asem El-Sadany þjálfari
Egypta enda nokkuð ljóst að þeir áttu möguleika á að komast áfram,
sem og varð raunin. Þeir voru með einu marki minná í mínus en
Austurríkismenn og komut því áfram.
■ SIGURÐUR Sveinsson var út-
nefndur besti leikmaður Islands
gegn Bandaríkjunum og er þetta
í annað sinn sem hann fær þá út-
nefningu. Línumaðurinn Rayan
Matt var útnefndur bestur Banda-
ríkjamanna.
■ RICHARD Jakombs fékk sér-
staka viðurkenningu frá mótshöld-
urum því hann er fyrsti heyrnar-
lausi leikmaðurinn sem tekur þátt
í HM. __
I GÚSTAF Bjarnason skoraði
750. mark ísiands í HM, er hann
skoraði síðasta markið gegn
Bandaríkjamönnum, 34:19.
■ AÐSOKNARMET var sett á
handboltaleik í Svíþjóð á laugar-
daginn. Þá mættu 12.418 áhorfend-
ur í Scandinavium í Gautáborg, til
að sjá leik Svía og Ungverja.
I SÆNSKU varadómararnir
Krister Broman og Kent Bla-
demo dæma ekki meira á HM.
Blademo snéri sig á fæti í leik
Sviss og Rúmeníu og var þá skipt
um dómarapar. Rússarnir Kiashko.
og Kiselev munu taka stöðu þeirra
sem varadómarar.
■ TALIÐ er að þetta hafi verið
síðasta HM-mót þeirra sænsku því
Blademo er 47 ára og Broman
árinu yngri.
H FARÞEGAR frá Samvinnu-
ferðum-Landsýn lentu heldur bet-
ur í hrakningum á leiðinni frá
Gautaborg til Stokkhólms. Fari"
var með rútu frá Grétari Hanssyni
um hádegisbilið á sunnudag.
■ ÞEGAR ferðalangarnir áttu
160 kílómetra eftir, en þetta er 500
kílómetra leið, fór olíurör í sundur
og olía lak yfir vélina með þeim
afleiðingum að kviknaði í.
■ GRETAR brá skjótt við og
slökkti eldinn en bíllinn var stopp
og þegar farþegarnir loks komust
á hótelið voru liðnar tólf klukku-
stundir frá því ferðin hófst, en
venjulega hefði ferðin tekið um sjö
klukkustundir.
■ MARGIR hafa undrað sig á að
leikur Svía gegn Rússum skuli leik-
inn á miðvikudaginn - í stað þriðju-
dagsins eins og aðrir leikir. Ástæð-
an er að sjónvarpa á leiknum og
þótti miðvikudagurinn hentugri.
Gert var ráð fyrir þessu strax frá.
upphafi og því er þetta ekki „bragð“
hjá Svíum eins og margir hafa
haldið.
■ GEIR Sveinsson, fyrirliði
landsliðsins og Vals, leikur hugsan-
lega á ný á Spáni næsta vetur.
■ AVIDESA, sem Geir lék með
á Spáni áður en hann snéri heim
á ný í fyrra, hefur gert honum til-
boð og líkur eru á því að Geir semji
við félagið til tveggja ára.
■ SJÖTÍU manns fóru í síðari
hópferðina á HM í Svíþjóð á vegum
ferðaskrifstofunnar Urvals-Útsýn-
ar. Nokkrir bættust við eftir sigur-
inn gegn Bandaríkjamönnum á
laugardag, en hópurinn hélt utan í
gærmorgun og kemur heim á-
sunnudaginn.
■ ÍSLENSKA landsliði náði
fjórða besta árangrinum í riðla-
keppninni - fékk fjögur stig. Svíar
fengu sex stig, en Rússar og Spán-
verjar fimm stig.
■ NORÐMENN höfnuðu í fjór-
tánda sæti, með eitt stig, S-Kóreu-
menn voru í fimmtánda sæti með
eitt stig og Bandaríkjamenn ráku
lestina, með ekkert stig.
■ ÁTTA efstu Evrópuþjóðirnar í
HM i Svíþjóð tryggja sér farseðil-
inn á HM 1995 á Islandi og níu^
efstu ef íslendingar verða í einu’
af átta sætunum. Tíunda sætið
gæti einnig dugað, en þá verða
Egyptar að vera í eins af átta efstu
sætunum ásamt íslendingum.
■ 24 þjóðir taka þátt í HM á ís-
landi 1995. Fimmtán Evrópuþjóðir
-verða með á íslandi og fá sex til
sjö þjóðir farseðilinn í Evrópukeppni
landsliða.