Morgunblaðið - 16.03.1993, Qupperneq 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
FRJALSAR / HM
Glæsilegt
heimsmet
O’Briens
BANDARÍKJAMAÐURINN Dan O’Brien
setti glæsilegt heimsmet f sjöþraut á
heimsmeistaramótinu innanhúss, sem
fram fór í Toronto f Kanada um helgina.
Hann er þar með fyrsti maðurinn 181 ár
. sem á heimsmet ítugþraut, sjöþraut og
fimmþraut á sama tíma.
Bandaríkjamaðurinn hlaut 6.476 stig í sjö-
þrautinni, en Frakkinn Christian Plaziat
átti gamla metið, 6.418 stig.
Inessa Kravets frá Úkraínu setti einnig
heimsmet á sunnudag er hún stökk 14,47 m í
þrístökkskeppninni.
Stórskemmtileg keppni var í 60 m grinda-
hlaupinu, þar sem Olympíumeistarinn Mark
McKoy frá Kanada fagnaði sigri gegn æfíngafé-
laga sínum og vini, Wales-búanum Colin .Jack-
son. McKoy hljóp á 7,41 sek. en Jaekson á
7,43, sama tíma og Tony Dees, Bandaríkjunum,
en Bretinn varð sjónarmun á undan.
Þá kom Harry „Butch“ Reynolds, sá og sigr-
aði í 400 m hlaupinu. Hann hefur verið í banni
• í tvö og hálft ár vegna ágreinings um lyfja-
próf, en náði nú fimmta besta tíma sögunnar
í greininni; 45,26 sek.
Irina Privalova frá Rússlandi sigraði í 200 m
hlaupinu með glæsilegum hætti; var langt fyrst
á 22,15 sek.
Fyrsta gull Breta á HM
Yvonne Murray sigraði í 3.000 m hlaupi
kvenna á laugardag og varð þar með fyrsti
Bretinn til að vinna til gullverðlauna á heims-
meistaramóti innanhúss. Hún fékk besta tíma
ársins — 8 mín. 50,56 sek. Hún stakk keppi-
nauta sína af eftir fimm hringi (2.000 m) og
var um 100 metrum á undan þeirri næstu í
mark! Margareta Keszeg frá Rúmeníu varð
önnur, rúmlega 12 sek. á eftir.
Murray sagðist hafa gert sér góða grein
fyrir styrk sínum, og það hefði gefið sér aukinn
kraft á lokakaflanum þegar hún nálgaðist þær
síðustu í hlaupinu; kominn heiium hring á und-
an.
Rússneska stúlkan Olga Kovpotina, sem átti
besta tíma ársins, 8:56,15, þar til á laugardag,
varð síðust í hlaupinu.
Frábært einvígi
Stefka Kostadinova frá Búlgaríu endur-
heimti heimsmeistaratitilinn í hástökki, eftir
frábært einvígi við þýska ólympíumeistarann
Heike Henkel. Stúlkumar stukku jafnhátt; báð-
ar fóru yfír 2,02 m í síðustu tilraun, en báðum
mistókst að komast yfír 2,04. Það þurfti því
að skoða frammistöðuna fyrr um daginn og sú
búlgarska hreppti gullið þar sem hún fór yfír
2 metra í fyrstu tilraun en Henkel ekki fyrr en
í annari.
„Ég er mjög hamingjusöm. Þetta er fyrsti
sigur minn gegn Heike eftir uppskurðinn,"
sagði Kostadinova, en hún fótbrotnaði á vinstra
fæti árið 1990. Henkel hefur, aftur á móti,
ekki tapað fyrr á stórmóti síðan hún varð þriðja
á HM innanhúss í Búdapest 1989. Þá fagnaði
Kostadinova sigri.
írinn Marcus O’Sullivan sigraði í 1.500 m
hlaupi í þriðja sinn í röð. Hlaupið var mjög
„taktískt" og tíminn ekki góður; 3.45,00.
Þrístökkið var betra, því Frakkinn Pierre
Camara frá Frakklandi stökk 17,59 m, — í síð-
ustu tilraun — sem er fjórði besti árangur sem
náðst hefur innanhúss.
Rússinn Radion Gataullin stökk 5,90 í stang-
arstökkinu og fékk gullið. Heimsmethafínn
Sergej Bubka — sem á best 6,15 m innanhúss
— var ekki með á mótinu. Þetta var fjórða
heimsmeistaramótið innanhúss; Bubka varð
meistari 1987 og 1991, en Gataullin 1989.
Kúbumaðurinn Ivan Pedrosa sigraði í lang-
stökki; stökk 8,23 m. Bandaríkjamaðurinn Jos-
eph Green stökk 8,13 m og varð annar.
Devers fljótust
Bandaríski ólympíumeistarinn í 100 m hlaupi
. frá því í Barcelona, Gail Devers, sigraði rússn-
eska heimsmethafann Irinu Privalovu í frábæru
60 m hlaupi kvenna á föstudagskvöldið. Bar-
átta þeir var gríðarleg en Devers setti heims-
meistaramótsmet er hún hljóp á 6,95 sek., sem
er annar besti tími sem náðst hefur í greininni
innanhúss.
■ Úrslit / B10
Frábært mark
Frakkinn Jean-Pierre Papin gerði glæsilegt mark gegn Lazio um helg-
ina og var sæll og glaður með það eins og sjá má.
Hu. w # tt f ■ - Ketuer
Storgóð frammistaða
Englendingurinn Paul Gascoigne lék mjög vel með Lazio gegn AC
Milan og gerði annað markið í 2:2 jafntefli.
Meistaraheppni
Lazio sótti mun meira gegn óvenju daufu liði AC Milan í Róma-
borg en náði þó aðeins jafntefli með marki undir lok íeiksins
LEIKMENN AC Milan eru greinilega þreytt-
ir. Liðið hefur ieikið níu leiki á síðustu 27
dögum og þreyta og meiðsi eru farin að
gera vart við sig. Á sunnudaginn gat Cap-
ello þjálfari aðeins teflt fram tveimur af
sex útlendingum hópsins gegn Lazio, ann-
ars vegar Frakkanum Jean Pierre Papin
og hins vegar Króatanum Boban. Samt sem
áður náði Lazio ekki að nýta sér slæma
stöðu Mflanófélagsins, liðin gerðu 2:2 jafn-
tefli og staða efstu liða því óbreytt, en
helstu keppinautar AC Milan gerðu allir
jafntefli um helgina.
Jean Pierre Papin náði forystunni fyrir Milan
með frábæru marki; þrumaði í netið utan
teigs með viðstöðulausu skoti, en síðan bætti
Hollendingurinn Winter hjá Lazio
Birgir öðru marki við, þegar hann skor-
Breiðdal aði í eigið net. „Blóðið fraus í
skrifar æðum mínum, þegar ég sá bolt-
ann í markinu," sagði hann eftir
leikinn. Paul Gascoigne minnkaði muninn fyrir
Lazio rétt undir lok fyrri hálfleiks. Markið þótti
meira en lítið vafasamt; þrír af leikmönnum
Lazio voru rangstæðir þegar boltinn barst inn
fyrir vörn Milan og vakti það furðu að Boggi,
dómari, sem var einnig staðsettur fyrir innan
vömina, skyldi ekki hafa dæmt neitt. Bergodi
jafnaði síðan þremur mín. fyrir leikslok.
„Við erum þreyttir," sagði Papin, „en við erum
ekki dauðir heldur úrvinda. Breiddin er ekki leng-
ur til staðar og við leikum alltaf eins. Mars hef-
ur verið mjög erfiður og meiðsl leikmanna hafa
gert ástandið enn verra.“
„Juventus án hjarta“ var fyrirsögnin í íþrótta-
blaðinu Tutto Sport eftir 0:2 tap Tórínóliðsins
gegn Brescia, fjórða neðsta liðinu. Þetta var
fyrsti ósigur Juve heima gegn Brescia í 28 ár.
„Ég hef ekkert um þetta að segja, í guðanna
bænum ekki nuða í mér. Þið þekkið mig — ég
segi ekki orð,“ sagði Trapattoni, þjálfari Juve.
í búningsherberginu heyrðist í honum öskrandi
á leikmennina. „Það er ekki hægt að tapa á
þennan máta. Þetta er niðurlæging."
Inter og Roma gerðu 1:1 jafntefli. Inter skor-
aði á lokamínútu fyrri hálfleiks og eftir hlé fengu
leikmennirnir mörg marktækifæri, en það var
Argentínumaðurinn Caniggia sem jafnaði. „Hon-
um er borgað fyrir að skora,“ sagði þjálfari
Roma.
Toto Schillaci hjá Inter fór meiddur af velli í
síðari hálfleik. „Óheppnin eltir mig á röndum.
Ég fann mig vel og hefði átt að skora, en hins
vegar er ég aftur kominn í sömu sporin og áður.
Ég vona bara að ég verði orðinn góður fyrir
leikinn gegn Juve a'sunnudaginn.“
„Þið ætlið þó ekki að segja mér að við höfum
sigrað vegna þess að mótheijinn er í neðsta
sæti? Ef svo er þá mun ég reiðast,“ sagði eig-
andi Fiorentina eftir að fyrsti sigur liðsins í 99
daga leit dagsins ljós. Fiorentina vann Pescara
2:0, Effenberg skoraði úr aukaspyrnu og Bati-
stuta eftir gegnumbrot. Þetta var fyrsti sigurinn
undir stjórn Aldos Agroppis, sem tók við liðinu
í byijun janúar.
Sven Goran Erikson, þjálfari Sampdoria,
breytti útaf venjulegri leikuppstillingu gegn
Cagliari og fagnaði 2:0 sigri. „Ég vona að ég
hafí fundið réttu leiðina,“ sagði þjálfarinn.
Huard hefur
haldið hreinu
í916mín.
Gaetan Huard, markvörður
Bordeaux, setti nýtt met á
fóstudagskvöldið, er hann heim-
sótti sína gömlu félaga í Mar-
seille. Leikurinn var markalaus,
og Huard hefur nú haldið marki
Bordeaux hreinu í 916 mínútur.
Hann bætti þar með met „gömlu“
kempunnar Jean-Luc Ettori, mar-
kvarðar Mónakó, sem hann setti
í síðasta mánuði.
Mónakó gerði einnig marka-
laust jafntefli á föstudagskvöldið,
gegn St Etienne á útivelli, og
heldur því efsta sætinu. Marseille
hefur jafn mörg stig, en lakari
markahlutfall.
Spjöldin á lofti
Mikill hiti var í leikmönnum
Feyenoord og PSV á laugardag-
inn, en liðin gerðu 1:1 jafntefli
og eru enn efst og jöfn í hol-
lensku deildinni. Dean Goree,
miðjumaður Feyenoord, jafnaði á
síðustu sekúndunum.
Danski vamarmaðurinn Jan
Heintze lijá PSV var rekinn af
velli fímm mínú.tum fyrir leikslok,
en hann var einn sex manna
PSV, sem voru bókaðir. Tveir hjá
Feyenoord fóru einnig í svörtu
bókina.