Morgunblaðið - 21.03.1993, Side 16

Morgunblaðið - 21.03.1993, Side 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MARZ 1993 AF SPJÖLDIIM SÖGUNNAR f Sjallanum á Akureyri er nú verið að rifja upp lög úr söngleiknum Evitu, sem naut mikilla vinsælda fyrir nokkrum árum. En hver var hún, þessi dularfulla fegurðardís, sem um skeið var ein voldugasta kona heims? Forsetahjónunum fagnaó Evita og Juan Perón forseti áríð 1951. eftir Guðmund Halldórsson EVA Perón lézt 1952, en á ýmsu gekk áður en hún fékk að hvíla í friði í brynvarinni grafhvelfingu í kirkjugarði i Buenos Aires. Smurt lík hennar var í dularfullri útlegð í 16 ár áður en endanlega útför hennar var gerð í Argentínu. Allan þann tíma sáu aðdáendur hennar til þess að enginn fengi að gleyma vígorðinu „Skilið líki Evítu!“ Evíta var gælunafn, sem fá- tæklingar Argentínu gáfu hinni fögru eiginkonu Per- óns forseta. Sjálfir voru þeir kallaðir descamisados — „hinir skyrtulausu" — og þeir dýrkuðu Evu svo mjög að þeir gerðu hana að einni voldugustu konu heims um skeið. Eva var óskilgetin, ólst upp í fá- tækt langt frá höfuðborginni og var fædd 1919, þótt hún segðist þremur árum yngin en hún var. Fimmtán ára gömul fluttist hún til Buenos Aires með fyrsta elskhuga sínum og ætlaði að gerast leikkona. Hún var 24 ára þegar hún kynntist Juan Perón of- ursta, sem var helmingi eldri en hún. Þá vann hún í útvarpsstöð og fékk 10 dollara á viku fyrir að kynna hljómplötur og koma fram í sápuó- peru stöðvarinnar. Perón og aðrir ráðherrar herfor- ingjastjórnarinnar komu í útvarps- stöðina til að auglýsa eftir fjárfram- lögum handa fólki, sem átti um sárt að binda eftir jarðskjálfta. Ofurstinn var 48 ára gamall og heillaðist strax af Evu, sem fékk það starf að efna til samskota fyrir félagsmálaráðu- neytið, sem heyrði undir Perón. Þar með varð hún málsvari Peróns. „Glæsilegir einkennisbúningar skipta hann engu rnáli," sagði hún. „Einu vinir hans eruð þið — hinir skyrtu- lausu." Santa Evita Perón tók sér alræðisvald og þegar honum var bolað frá völdum 1945 skipulagði Eva af eigin rammleik stuðningslið ungra liðsforingja og verkamanna til þess að koma honum aftur til valda. Tveimur mánuðum síðar giftust þau. Árið eftir var Perón kosinn forseti með stuðningi skyrtu- leysingjanna og öflugra verkalýðsfé- laga. Eva sýndi á sér ólíkar hliðar þegar hún varð forsetafrú. Hún var glysgjöm, jafnan prýdd demöntum og klædd dýrum pelsum, en stóð fyr- ir félagslegri aðstoð og skipulagði dreifingu á notuðum klæðnaði meðal landbúnaðarverkamanna og íbúa fá- tækrahverfa. Alþýðan heillaðist af henni, dýrkaði hana og dáði. Síðan veiktist Eva af ólæknandi krabbameini. Þá sjaldan hún kom fram opinberlega varð Perón að styðja hana. „Eg er svo lítil að ég þoli ekki svona mikinn sársauka," sagði hún. Eva lézt 26. júlí 1952. Lík hennar var flutt í skyndi til meinafræðings af spænskum ættum, Pedro Ara, sem var viðbúinn því að til hans yrði leit- að. Smuming líksins tók hann eitt ár og hann fékk 100.000 dollara fyr- ir vikið. Allan þann tíma syrgði öll argent- ínska þjóðin Evu. Hún fékk viður- nefnið Santa Evíta og þegar lík henn- ar lá á viðhafnarbörum gengu tvær milljónir manna fram hjá kistu henn- ar. Til stóð að reisa henni minnis- merki vfðs vegar í Argentínu, en lítið varð úr framkvæmdum því að í júlí 1955 varð óðaverðbólga Perón að falli. Líkið í Alþýðuhúsinu II líder, eins og Perón var kallað- ur, fór í útlegð til Spánar og krafðist þess að nýi forsetinn, Eduardo Lon- ardi hershöfðingi, sendi lík Evu þang- að. Lonardi neitaði að verða við þeirri bón og hóf þess í stað ófrægingarher- ferð gegn Perón. Hann opnaði heim- ili Peróns almenningi og efndi til sýn- ingar á 15 sérsmíðuðum sportbílum hans, 250 bifhjólum og peningaskáp- um með 10 milljónum dollara í reiðufé. Einnig voru til sýnis íbúðir, sem Perón átti í Buenos Aires og notaði til ástafunda með unglings- stúlkum, þar á meðal 16 ára hjákonu sinni, Nelly Rivas. Nýja herforingjastjómin sýndi líka glæsilega gimsteina Evu. Það hafði þó engin áhrif á þann Ijóma, sem lék um minningu hennar, enda hafði hún aldrei leynt því fyrir þjóðinni að hún væri velefnuð. Þvert á móti jókst dýrkunin á Evu um allan helming á fyrstu mánuðunum eftir fall Peróns. Lonardi hershöfðingi reyndi að taka á sig rögg og eyða smurðu líki Evu, sem var geymt í herbergi nr. 40 í höfuðstöðvum verkalýðssambands- ins í Buenos Aires — Alþýðuhúsinu. Áður en hann gat komið því í verk var honum sjálfum steypt af stóli í nóvember 1955 og Pedro Aramburu hershöfðingi tók við völdum. Nýi leið- toginn gerði sér strax grein fyrir því að hættulegt var að geyma lík Evu í opinberri byggingu í höfuðborginni, þar sem allir höfðu greiðan aðgang að því. Eva gat orðið sameiningar- tákn perónista ef þeir reyndu að ná aftur völdunum og Aramburu Iét fjar- lægja líkið á laun. í desember hvarf lík Evu og það fannst ekki aftur fyrr en 16 árum síðar. Líkinu rænt Sama kvöld og líkinu var rænt fór Ara læknir í herbergi nr. 40 til að skoða líkið eins og hann var vanur að gera öðru hveiju. Allt í einu heyrði hann þungt fótatak í stiganum. Dym- ar opnuðust og Carlos Mori-Koenig ofursti, yfirmaður leyniþjónustu hers- ins, skálmaði inn í herbergið ásamt nokkrum hermönnum. „Ég er kominn til að sækja líkið,“ sagði hann. Hann lét sem hann heyrði ekki þegar Ara læknir maldaði í móinn og skipaði mönnum sínum að taka lík Evu af líkbörunum, koma því fyr- ir í venjulegri líkkistu og bera kistuna út í herflutningabíl, sem beið fyrir utan. Ara fékk þá einu skýringu að líkið ætti að fá„sómasamlega útför“. Fljótlega fréttist að líkinu hefði verið rænt og flokkur perónista efndi til mótmæla, þótt hann væri bannað- ur. Þátttakendur í mótmælagöngum um land allt báru myndir af Evu og spjöld, þar sem þess var krafizt að líkinu yrði skilað. Aramburu hers- höfðingi þagði eins og steinn og sá kvittur komst á kreik að Juan Perón hefði skipulagt líkránið. Þótt leiðtog- ar hersins í Argentínu gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að bæla niður mótmæli perónista magnaðist reiðin yfir líkhvarfmu jafnt og þétt. Skyrtuleysingjarnir töldu líkránið glæp aldarinnar — glæp sem aldrei væri hægt að fyrirgefa. Málið var undirrót stöðugrar reiði í 16 ár og allan þann tíma var argentínsku þjóð- inni og Perón sjálfum það hulin ráð- gáta hvar líkið væri niðurkomið. Líkíð á flækingi Margt er enn á huldu um það sem síðan gerðist. Þó er vitað að þegar herflutningabíllinn ók frá Alþýðuhús- inu 22. desember 1955 hætti Aramb- uru hershöfðingi við fyrirætlanir sín- ar um að eyða líkinu af ótta við reiði almennings. Mori-Koening ofursti fyrirskipaði að bílnum yrði ekið á afvikinn stað í herbúðum í nágrenni höfuðborgarinnar og þar var bifreiðin um nóttina meðan ofurstinn beið frekari fyrirmæla. Hann hefði fúslega eytt líkinu á hvem þann hátt sem yfirmenn hans hefðu óskað, því að hann hafði rika ástæðu til að hata Perón; hann hafði lækkað hann í tign í forsetatfð sinni þegar þeim varð sundurorða. Skipun um að eyða líkinu barst hins vegar aldrei. Ofurstanum var aðeins sagt að fela það. Lík Evu var látið í kassa, sem var fluttur í vörugeymslu skammt frá aðalstöðvum leyniþjónustu hersins. Þar var líkið í mánuð, en síðan var það á hrakhólum og geymt í alls sex vöruhúsum og skrifstofum í Buenos Aires og nágrenni unz það hafnaði að lokum í glæsilegri íbúð staðgeng- ils Mori-Koenings, Antonios Antonios Arandias majórs. Um þessar mundir leituðu útsend- arar perónista enn að líki Evu í höfuð- borginni. Arandia óttaðist að slóðin yrði rakin til sín og tók upp á því að sofa með skammbyssu undir kodd- anum. Einn morguninn vaknaði hann kófsveittur. Sér til skelfingar heyrði hann fótatak nálgast dyrnar að svefn- herberginu. Þegar þær opnuðust þreif hann til skammbyssunnar undir koddanum og skaut tveimur kúlum á skuggann í gættinni. Þunguð kona hans, sem hafði verið í baðherberg- inu, hneig niður örend. Síðan var kassinn með líki Evu fluttur upp á fjórðu hæð í aðalstöðv- um leyniþjónustu Mori-Koenigs. Á kassann var stimplað „útvarpsvið- tæki“ og hann var geymdur á sama stað og nokkrir aðrir kassar, sem voru nákvæmlega eins. Nokkrum mánuðum síðar var of- urstinn sviptur störfum og við af honum tók yfírmaður leyniþjónustu forsetans sjálfs, Hector Cabanillas ofursti, sem varð hneykslaður þegar hann komst að því að líkið var enn falið í aðalstöðvunum og fyrirskipaði að það yrði fjarlægt. Frá Mílanó til Spánar Enginn veit hver skipulagði næsta þátt í þessum skuggalega feluleik. Einhver lét smíða nokkrar kistur, sem voru nákvæmlega eins, og fylla þær möl. Kisturnar voru sendar ásamt kassanum með líki Evu til nokkurra landa Suður-Ameríku og flæktust jafnvel til landa í öðrum heimsálfum. í september eða október 1956 fór líkið aftur á flakk þegar því hafði verið komið fyrir í nýrri kistu og var fyrst sent til Rómar og þaðan til Mílanó. Kaþólsk nunna, Giuseppina Airoldi, fylgdi því síðasta spölinn 27. maí 1957. Henni hafði verið talin trú um að hún væri að fylgja líki ítal- skrar ekkju, Maríu Maggi de Magistr- is, sem hefði látizt í Rosario í Argent- ínu. Líkið var jarðsett í reit nr. 86 í Mussocco-kirkjugarði í Mílanó og kross með nafni Evu var settur á leiðið. Þar fékk það að hvíla í friði um skeið og mjög fáir vissu hvar það var niðurkomið. Á þessum árum tók hver herfor- ingjastjómin við af annarri í Argent- ínu. Að lokum ákvað leiðtogi einnar stjórnarinnar, Alejandro Lanusse hershöfðingi, að bjóða Juan Perón aftur heim til Argentínu, þótt Perón hefði borið ábyrgð á því að hann hafði verið dæmdur í ævilangt fang- elsi 20 árum áður. En fyrst gerði Lanusse ráðstafanir til þess að Perón yrði skilað líki eiginkonunnar. Annan september 1971 var maður, sem kallaði sig Carlos Maggi, við- staddur þegar lík „systur" hans var grafið upp og komið fyrir í líkvagni, sem flutti það frá Mílanó áleiðis til Madrid. „Carlos" þessi var enginn annar en Hector Cabanillas, leyni- þjónustuforinginn sem nú var setztur í helgan stein. Eftir viðkomu í Perpignan í Frakk- landi kom líkvagninn til heimilis Per- óns í Madrid næsta dag. Þar beið Perón, sem nú var orðinn 74 ára, ásamt síðari konu sinni, ísabellu, sem var 39 ára og hafði kynnzt honum í næturklúbbi í Panama 20 árum áður, og'Ara lækni. Kista Evu var lögð á legubekk og Cabanillas opnaði hana. Peron brast í grát þegar hann leit löngu liðna konu sína aftur augum. Hárið var í óreiðu, en hún var jafnfög- ur og þegar hún kvaddi þennan heim tuttugu árum áður. „Hún er ekki lát- in,“ sagði Perón. „Hún er sofandi." Heim úr útlegð Langri útlegð Peróns lauk 1972, þegar honum var leyft að snúa aftur til Argentínu. Hann ákvað að skilja lík Evu eftir í Madrid. Ári síðar var hann aftur kjörinn forseti og ísabella varaforseti, en hann var ekki lengi við völd. Hann lézt 1. júlí 1974. ísabella varð forseti og samkvæmt fyrirmælum hennar var lík Evu flutt heim flugleiðis frá Spáni. Þúsundir grátandi Argentínubúa stóðu með- fram leiðinni, sem ekið var um frá flugvellinum, og fleygðu blómum að líkvagni hinnar dáðu forsetafrúar, sem lengi hafði verið kölluð Santa Evita. Lík hennar var aftur látið hvíla á viðhafnarbörum, að þessu sinni við hliðina á kistu Juans Peróns í forseta- höllinni í Olivos. ísabella syrgði þau bæði og reyndi að baða sig í ljómanum frá nafni Evu. Hún hélt völdunum í tvö ár, en þá vék enn ein stjóm herforingja henni frá völdum. Nýju leiðtogamir reyndu að þurrka út nafn Peróns af spjöldum sögunnar. Perón hafði verið grafinn skömmu eftir að lík hans lá á viðhafnarbörun- um, en líki Evu aftur verið komið fyrir í geymslu. Leiðtogar þjóðarinnar höfðu ekki getað náð samkomulagi um hvar hún skyldi lögð til hinztu hvíldar. Að lokum ákvað ný herfor- ingjastjórn í október 1976 að smurðu líki Evu skyldi komið fyrir í grafhýsi í Recoleta-kirkjugarði í Buenos Aires. Grafhýsið er eins rammgert og traustustu bankageymslur og það á að koma í veg fyrir að önnur tilraun verði gerð til að ræna líki Evu Peróns.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.