Morgunblaðið - 31.03.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 31.03.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 11 Leðurblakan á Akureyri Ljósmynd/Páll Á. Pálsson Ingibörg Marteinsdóttir (Rósalinda) og Jón Þorsteinsson (von Eis- enstein) og fleiri í hlutverkum sínum. Guðrún Jónsdóttir (Adele) ásamt Þuríði Baldursdóttur (Orlovsky) og Bryndísi Bragadóttur (Ida). ________Tónlist Ragnar Björnsson í leikskrá leikfélags Akureyrar segir um Leðurblökuna eftir Jó- hann Strauss að þetta sé í fjórða skipti sem óperettan sé sett upp á íslandi, tvisvar áður í Þjóðleikhús- inu, einu sinni í íslensku óperunni og nú í fjórða sinn sé komið að Leikfélagi Akureyrar „að fást við þessa einstöku perlu tón- og leik- listarinnar". Þetta mun rétt vera, en hvernig voga þeir sér Akur- eyringar að ráðast í þessa perlu, hafandi ekki fullskipaða sinfóníu- hljómsveit, hafandi engan starf- andi dansflokk — ballett — ekki möguleika á að skipta um sviðs- mynd og setja síðan fímm af sex aðalhlutverkunum í hendur fólks sem hefur litla eða enga reynslu af að syngja í óperum eða óperett- um? En þetta er ekki aðeins söng- ur heldur einnig leikur og óperett- an krefst góðs leiks og minna en gott í þeim geira verður gjarnan ömurlegt. En vogun vinnur — eða tapar og sveltur sitjandi. Leikféiag Akureyrar veðjaði á áhættuna og sigraði. Sýningin er lifandi og skemmtileg, sumt er vel gert og allt upp í frábært, veikir hlekkir eru reyndar einnig fyrir hendi. I sýningu sem þessari er þáttur ieik- stjórans kannske stærstur. Hann mótar heildina, hann mótar per- sónusköpun einstaklingsins og, án þess að hann alltaf átti sig á sjálf- ur, mótar hann að miklu leyti söng einsöngvarans á sviðinu. Þetta hefur tekist mjög vel hjá leikstjór- anum Kolbrúnu Kristjönu Hall- dórsdóttur, þótt um frumraun hafi verið að ræða. Sviðssetningin er eðlileg og lítið leiksvið gamla leik- hússins virkar aldrei of lítið. Mjög vafasamt er þó að láta einsöngvar- ana hringsnúast mikið í samsöng, þrátt fyrir að sumir leikstjórar leyfí sér hringdansa af þessu tagi og er það ekki talin góð latína í betri óperuhúsum, áhrifunum er hægt að ná á annan hátt. I þessum hin- um sömu húsum er forðast að láta söngvarana syngja með bakið í áheyrendur og það af mörgum afar skiljanlegum ástæðum, t.d. missir söngvarinn samband við hljómsveitastjórann og söngröddin berst þá fyrst og fremst til þeirra sem standa bakatil á leiksviðinu og þeirra sem standa á bak við leiktjöldin, en ekki til þeirra sem ætlast er til að músíkin nái fyrst og fremst tökum á, þ.e. áheyrenda í salnum. En þrátt fyrir þessa ágalla náði Kolbrún miklu út úr lítt reyndum efniviði og samvinna hennar við leikmynda- og búninga- hönnuð, Karl Aspelund, hlýtur að hafa verið góð, því sama leikum- gjörðin í gegn um alla þijá þættina virkaði aldrei fátækleg eða leiði- gjörn. Óperettan krefst leiks og það góðs og stílíseraðs leiks. Eng- inn skyldi reyna sig við þetta form án þess að eiga þessa hæfileika í farteskinu. Óperan er ekki eins, né á sama hátt krefjandi á þessa hæfni söngvarans, og að því leyt- inu til hættuminna að byija á óperu. Jón Þorsteinsson fær það leiðinlega hlutverk að túlka Gabrí- el von Eisenstein, tenór, sem hvorki er illmenni né heldur al- mennilegur flagari og þar að auki heldur húmor-snauður. Jón er einn þeirra fáu söngvara í sýningunni sem hefur töluverða reynslu á leik- sviðinu og því bjargaði hann sér leiklega mjög vel frá hlutverkinu. Raddlega hefur Jón aftur á móti orðið fyrir áfalli og er ekki fyllilega búinn að ná sér upp úr því ennþá. Raddlega átti hann því í nokkrum erfiðleikum með að ná yfír, sem vonandi er bara tímabundið. Rósalinda von Eisenstein og Adele, herbergisþerna hennar, eru þær dömur tvær sem halda spilinu í sýningunni uppi, og ef þær finnast ekki góðar „nokk“, er eins gott að leggja Leðublökuna á hill- una aftur og reyna ekki að fá hana til að fljúga. Ingibjörg Mar- teinsdóttir syngur Rósalindu, létt- úðuga, glæsilega konu Eisen- steins, sem með sinni kvenlegu slægð stýrir spilinu í lokin. Vitað var að Ingibjörg hefur óvenju góða náttúrurödd, og hefur röddin skól- ast mikið og „stabílíserast" og er vel jöfn á öllu raddsviðinu, en radd- svið hefur Ingibjörg mjög breitt. Gerði hún og margt gæsilega og þarf nú aðeins að fá fleiri tæki- færi á leiksviðinu. Meira kom á óvart að henni tókst vel að sýna slóttugheit og tilfinningasveiflur Rósalindu sem öllu snýr eftir sínu höfði í lok sýningarinnar. Mest viðbrögð frumsýningargesta vakti þó líklega Guðrún Jónsdóttir, sem var eins og steypt inn í hlutverk Adele, herbergisþernu Rósalindu. Engin deili vissi ég áður á Guð- rúnu og kom hún mér fyrir eins og Aþena forðum úr höfði Seifs. Adele þarf ekki að leika á margar nótur í túlkun sinni á herbergis- þernunni, en hún verður að styðja rétt á þær og það tókst henni sann- arlega. Raddágæti Guðrúnar kom ekki áberandi í ljós í þessu hlut- verki, en hæðin er stundum sár og það þarf hún að lagfæra. Ekki kom Aðalsteinn Bergdal neitt á óvart í hlutverki ítalska tenórsins Alfredo og ekki þýðir að ásaka Aðalstein fýrir að á sínum tíma var ómögulegt að telja hann á að verða ítalskur tenór, þrátt fyrir ágæta söngrödd. Dr. Falke, sem kemur öllu spilinu af stað, var ieik- inn af Steinþóri Þráinssyni, hvers gervi gat fyrst og fremst passað í þennan spilagosa, en söngröddin virðist lítið skólagengin. Michael Clarke leikur fangelsisstjórann Frank án þess að gera hann sér- staklega minnisstæðan. Eitt er það hlutverk sem leikstjórinn leggur á annan veg en venjulega er gert og mér finnst skakkt. Orlovsky prins er algjör andstaða við veislu- gesti annars þáttar. Hann er orð- inn náttúrulaus prins, sem nennir lítið að hreyfa sig og ánægja hans, ef einhver er, og fullnæging er að horfa á gesti sína sleppa fram af sér því beisli sem hann nennir ekki að gera sjálfur. Þuríður Bald- ursdóttir hefði verið vís til að skila hlutverkinu þannig, hefði henni verið stýrt í þá átt, það er vandi, en þannig verður hlutverkið skilj- anlegt. Þráinn Karlsson lék fanga- vörðinn Frosch. Þetta vel skrifaða gamanhlutverk lék Þráinn listilega skemmtilega og verður áreiðan- lega í minnum haft. Málafærslu- manninn Blind lék Már Magnús- son, Idu, systur Adele, lék Bryndís Bragadóttir og Rajiv, þjón Orlov- skys, lék Sigurþór Heimisson. Dansmeyjar voru þijár í sýning- unni kórinn 14 manns og var eðli- lega nokkuð þunnskipaður og hljómvana. Þótt hljómsveitin að þessu sinni hafí verið þunnskipaðri en sú á frumsýningunni í Theater en der Wien þá hljómaði niðurskurður Roars Kvam á hijómsveitinni, nið- ur í 10 hljóðfæraleikara, ekki óeðli- lega, en miklu hefði þó munað í hljóm, ef kostur hefði verið á að bæta við 2-3 fiðlum, auk þess að sólístískt skipuð hljómsveit á erfítt með að spila alveg hreint, nema um úrvals hljóðfæraleikara sé að ræða. Líklega hefur stjórnandinn, Roar Kvam, fyrst og fremst verið með í huga að halda öllu saman í tónlistinni, en kannske bitnaði það á einhveiju öðru, því stjórn hans var nokkuð litlaus, hraðaval (tempi) oft spennulaust. Taktslag- ið var heldur ekki alltaf samkvæmt „tradition", sem eðlilega kom niður á músíkinni, t.d. var Sardasinn hálfpartinn sleginn af sem Csárdás af þessum ástæðum. Þýðing Böð- vars Guðmundssonar kom þægi- lega fyrir, við fyrstu heyrn a.m.k. Leikfélagi Akureyrar skal óskað til hamingju með mjög skemmti- legan sýningu á Leðurblökunni, sem vafalaust á eftir að svífa oft yfir Pollinn á Akureyri. Stjórnunarfélag íslands TIME MANAGER TMI HUGMYNDAFRÆÐI, SKIPULAGNING 0G STJÓRNUN FYRIR ALLA. Námskeið þar sem farið er yfir hvernig þú getur náð betri árangri heima og f vlnnunni með því að: Skapa heildarmynd, raða verkefnum f forgangsröð, setja þér markmið, tengja markmiðið við raunveruleikann þ.e. hrinda hugmyndum f framkvæmd, beita tfmastjórnun, nýta leiðir til samskipta, stuðla að eigin vexti ogannarra. Tími: 15.-16. apríl kl. 8-18. Leiðbeinandi: Haukur Haraldsson Stjórnunarfélag Islands MARKVISS FUNDARÞÁTTTAKA Á námskeiðinu verða kynntar aðferðir við skipulagningu og stjórnun funda og nefndarstarfa hjá opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum. Rætt er um nefndar- og fundarstörf og helstu gryfjur sem menn falla í. Hvernig verða fundir markvissir? Niðurstaða fundar og/eða útkoma fundar. Árni Sigfússon, framkvæmdastjóri SFÍ, fær til sfn gestina Þórð Sverrisson hjá Eimskipafélagi islands, Hildi Petersen hjá Hans Petersen og Jón Ásbergsson hjá Hagkaup. Tími: 6.-7. apríl kl. 13-17. Leiðbeinandi: Árni Sigfússon Stjórnunarfélag íslands Stjórnunarfélag Islands ,,PH0ENIX“, LEIÐIN TIL ÁRANGURS Brian Tracy leiðir námskeiðið á myndbandi þar sem hann kynnir hvernig ná megi persónulegum árangri. Námskelðið er upplifgandi og spennandi, eykur jákvæðni og sjálfsöryggi og stuðlar að breyttum og betri lífsstíl. Kenndar eru aðferðir og hugmyndir sem eru hvergi annars staðar kenndar. Aðferðir sem gera bæði karla og konur meðvitaðri um það hvernig hver og einn getur náð framúrskarandi árangri i starfi, áhugamálum og einkalífi og ekki síst árangri i samskiptum við aðra. Myndböndin eru á ensku. i Tíml: 14.-16 apríl, 5.-7 maíkl. 16-22. Brian Tracy á myntfbandi. Leiðbeinandi: Fanný Jónmundsdóttir. „THE PEAK PERFORMANCE W0MAN“ Námskeiðið með Brian Tracy á myndbandi. Brian hefur séð um ráðningu og þjálfun hundraða kvenna til stjómunarstarfa. Námskeiðið er ætlað konum sem vilja ná árangri i einkarekstri sem og fyrir metnaðarfullar konur sem vilja ná meiri árangri í 'starfi og einkalífi. „Peak Performance Woman“ er byggt á viðamiklum rannsóknum á þröfum og væntingum nútímakvenna. Meðal efnis: Hvernig ná má auknum árangri með bættri framkomu og framsögn? Hvernig á að setja sér markmið og ná þeim? Hvernig á að leita að starfi sem leiðir til aukins frama? Tfmi: 20.-21. apríl kl. 8.30-13. Brían Tracy á myndbandi. Leiðbeinandi Fanný Jónmundsdóttir. 1 Stjórnunarfélag Islands SIMSVÖRUN OG ÞJÓNUSTA í SÍMA -1 Það að svara í sima er tækni sem er ekki öllum jafn eðlislæg. Þvl er mikið atriði að það sé gert af kunnáttu og á fágaðan hátt. Símanámskeið eru einnig mikið tekin fyrir fyrirtæki í heild og er þá unnið með þau atriði sem varða fyrirtækið sem heild og reynt að skapa heilsteypt viðmót gagnvart viðskiptavinum með „Gæða-sfmaþjónustu“. Markmið: Að stuðla að auknum skilningi á gæða simsvörun. Að ná fram því besta í fari þess sem er hinum megin á linunni. Að veita skjót og góð svör. Að jákvætt viðhorf sé haft að leiðartjósi. Tími: 28.-29. apríl kl. 8.30-13. Leiðbeinandi: Fanný Jónmundsdóttir Stjórnunorfélog Islands Anonoustum 75, sími 621066 - INNRITUN HAFIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.