Morgunblaðið - 31.03.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.03.1993, Blaðsíða 29
MORGÖNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 29 Baldvin Stefán Jónsson — Minning Hann Baldi mágur minn er dá- inn. Hann kvaddi þetta jarðlíf á einhveijum fallegasta degi vetrar- ins 23. mars sl. Himinninn heiður, sólin farin að hækka á lofti og snjór- inn lá yfir öllu eins og hvít mjúk sæng. Þegar sorgarfréttir berast á slíkum degi hættir manni til að gleyma sólskininu og birtunni og gefa sig sorginni á vald. En ef til vill er tilgangur með þessu öllu, ef- til vill var þetta það allra besta fyrir hann Balda mág minn að fá að deyja svo snögglega og deyja með reisn. Þurfa ekki að þjást og verða öðrum til byrði. Eigi að síður kom andlát hans okkur öllum í opna skjöldu, aðeins fáeinir dagar frá því að hann greindist með krabbamein. Þorsteinn bróðir hans heimsótti hann kvöldið áður en hann lést og áttu þeir saman mjög góða stund. Engan óraði fyrir að það yrði síð- asta heimsóknin. En ekki dugir að æðrast, lífið heldur áfram og eitt er víst að þetta er leiðin okkar allra. Það hefði heldur ekki verið í anda hans mágs míns að við létum sorg- ina taka völdin. En þrátt fyrir það getum við ekki að því gert að okk- ur setur hljóð við þetta ótímabæra dauðsfall. Hann hét fullu nafni Baldvin Stefán Jónsson, f. 29 júlí 1932, sonur hjónanna Kristjönu Þor- steinsdóttur og Jóns Baldvinssonar. Hann var yngstur fjögurra systkina og ólst upp í föðurhúsum í Neskaup- stað. Systkini eru auk hans Þor- steinn Jóhannes, Ólafur Helgi og Steinunn. Ungur að árum hleypti hann heimdraganum, fluttist suður og lærði bifvélavirkjun. Vann hann við það árum saman, en síðustu árin vann hann hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Árið 1932 kvæntist hann Álfhildi Ingimarsdóttur, eða Sísí eins og hún er kölluð. Börn þeirra eru Jón Ingi, f. 1952, kvænt- ur Guðrúnu Egilsdóttur, Ásta Fríða, f. 1957, gift Þorsteini Elíssyni, Baldvin Ragnar, f. 1959, kvæntur Hafdísi Hilmarsdóttur, og Ásdís Fanney, f. 1967, gift Siguijóni Sig- urðssyni. Barnabörnin eru 12 og eitt barnabarnabarn. Árum saman bjó fjölskyldan á Langholtsvegi 34, en fyrir átta árum fluttust þau að Efstahjalla 19 í Kópavogi. Sú sem þetta skrifar kynntist Balda fyrir tæpum hálfum þriðja áratug. Mér féll strax vel við þenn- an stóra glettna mann. Ég sé hann fyrir mér með stórar þykkar hendur sem bókstaflega flugu um nótna- borðið á píanóinu eða harmónikk- unni. Aldrei neinar nótur, en næm- ið fyrir tónum og hljómum var ein- stakt. Hann naut þess að spila og hlusta á tónlist og mig grunar að einhvers staðar í hugskoti hans hafí bærst sá strengur að geta helg- að sig tónlistinni. En gera verður fleira en gott þykir. Það hefði efa- laust þótt saga til næsta bæjar á árum áður ef ungur maður hafði farið í tónlistarnám í stað þess að læra eitthvað nýtilegt. Baldi var hár, grannur og glæsi- legur að velli. Hann hafði ríka kímnigáfu, en skynjaði vel alvöru lífsins. Það voru góð heim að sækja Baldi og Sísí. Ég segi þau, því að vart er hægt að nefna nafn annars án þess að nafn hins fylgi með, svo nátengd eru þau í huga mínum. Við sem eftir stöndum megum ekki gleyma sólskininu og birtunni sem hann færði okkur í lifenda lífi. Með það að leiðarljósi kveð ég elskulegan mág og þakka fyrir sam- fylgdina. Elsku Sísí og bömin öll, guð veri með ykkur. Blessuð sé minning Baldvins Stefáns Jónssonar. Áshildur Emilsdóttir. í dag kveð ég Balda í hinsta sinn. Á slíkri stundu þjóta ótal minningar gegnum hugann. Minningar sem hlýja mér um hjartarætur. Hugur- inn leitar aftur til þeirrar stundar er ég var kynnt fyrir tilvonandi tengdafjölskyldu minni í fyrsta sinn. Ég var full kvíða um hvernig mér yrði tekið. Sá kvíði reyndist svo sannarlega óþarfur, j>ví um leið og dyrnar opnuðust mætti ég brosandi hlýlegum andlitum þeirra yndisleg- ustu hjóna sem ég hef kynnst. Heimili Balda og Sísíar var alveg sérstakt. Maður laðaðist að þeim eins og bífluga að hunangi enda var þar alltaf fullt hús. Þær voru ófáar bæjarferðirnar þar sem ætl- unin var að fara í heimsókn til kunningja en alltaf enduðum við hjá Balda og Sísí. Baldi var einstakur maður, alltaf svo brosmildur, léttur og hlýr. Hann sýndi svo vel.sinn innri mann í því hvernig hann tók dóttur minni Söru strax sem sínu eigin bamabarni og er hann alltaf í hugum barnanna heimsins besti afi. Það voru ófá skiptin sem afi tók yngstu dóttur okkar og gekk með hana um gólf eða spilaði fyrir hana á píanóið þegar henni leið illa. Söknuðurinn er mikill og ég á erfítt með að trúa því að Baldi eigi ekki eftir að koma brosandi á móti okkur þegar við förum í heimsókn í Efstahjallann. En eftir sitja yndis- legar minningar um dýrmætar sam- verustundir seiti þó voru enganveg- inn nógu margar. Ég þakka Drottni fyrir að hafa kynnst þessum yndis- lega manni og ég vildi óska þess að ég hefði alltaf slíkan mann ná- lægt mér. Bless Baldi minn, og takk fyrir allt það sem þú hefur verið okkur. Þú munt ávallt lifa í hugum okkar allra. Elsku Sísí, Jón Ingi, Ásta, Balli og Ásdís, missir ykkar er mikill, Guð styrki ykkur öll í sorg ykkar. Hafdís. Elsku afi okkar. Það verður þú alltaf þótt þú sért farinn. Við mun- um sakna þín. Kveðja frá barnabörnum. Hverfur margt, huganum förlast sýn, þó er bjart þegar ég minnist þín. Allt er geymt, allt er á vísum stað, enp gleymt, ekkert er fullþakkað. (Oddný Kristjánsdóttir í Feijunesi.) Með þessu ljóði langar okkur að minnast Balda afa okkar. Það var mikið áfall fyrir okkur að frétta hversu alvarlega veikur hann var og erfitt að sætta sig við andlát hans. í hinu árlega fjöl- skylduboði síðustu jól var hann hrókur alls fagnaðar. Við minnumst hans sitjandi við píanóið spilandi af fingrum fram, því hann kom varla inn í hús þar sem var píanó án þess að spila nokkur lög. Einnig minnumst við sumarbú- staðaferðanna þar sem oft hittist svo á að hal'dið var upp á afmælið hans í júlí. Það verður skrýtið að heimsækja ömmu í Kópavoginn og hafa afa ekki lengur þar. En við erum þakk- látar fyrir að hafa þekkt hann og notið samveru hans og munum við varðveita minningarnar. Elsku amma, guð gefí þér styrk á þessum erfiðu stundum. Magnea og Erna Margrét. Með þessum fáu orðum vil ég kveðja vin minn og okkar hjóna, Baldvin Jónsson, Balda eins og hann var ávallt kallaður. Honum kynntist ég fyrir rúmum fjórum áratugum þegar hann trúlofaðist vinkonu minni Sísí. Það er sjaldgæft að kynnast manni eins og Balda. Hann var í orðsins fyllstu merkingu gull að manni. Rétt um tvítugsaldur giftist hann Sísí vinkonu minni og flyst þá á Langholtsveginn í sama hús og tengdaforeldrar hans, sem var öðlingsfólk, en þó ekki allra. Vinur minn Baldvin varð strax sem þeirra sonur. Fjölskyldan á Langholtsveg- inum er síðasta stórfjölskyldan, sem ég hef þekkt. Baldi var hógvær maður, heill og hreinskiptinn og vinur vinsa^ sinna, það reyndi ég. Aldrei hallaði hann orði á aðra. Baldi var músík- alskur, spilaði bæði á píanó og harmonikku og gladdist á góðum stundum. Uppeldi hans og ætt þekkti ég ekki, utan að ég veit að hann var fæddur og uppalinn á Norðfirði. Lærði bifvélavirkjun hér í borg, og var þekktur af vandvirkni og heið- arleik. Baldi var góður heimilisfaðir og eiginmaður. Hjónaband hans og Sísíar var traust og fallegt. Góður maður er genginn of fljótt. Sísí mín, Jón Ingi, Asta, Balli og Ásdís, þið hafi misst það besta sem þið áttuð. Minningar eigið þið góðar. Við Ingólfur og börn okkar sendum ykkur samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur. Vilhelmína Böðvars. BOSCH TILBOÐ, SEM ÞÚ GETUR EKKI HAFNAÐ! BOSCH ÍSSKÁPAR Tilboðsverð M. FRYSTI stgr. KGV 2601 54.012 150 cm. KGV 3101 56.794 170 cm. KGV 3601 59.576 185 cm. Síðast seldist allt saman upp! Hvað gerist nú? p m Jóhann Ólafsson & Co SIINDABOKIi U • 104 KKYKJAVfK • SfMI 0KH SK8 Opnunartími mánudaga til föstudaga 9-12 og 13-18. Lokað á laugardögum. MA BJOÐA ÞER AÐ PROFA þennan ódýra, góða og heimilislega mat? Lifur er ódýrt hráefni sem fæst allt árið um kring. Það er tilvalið að lækka matarreikninginn með því að hafa rétti úr lifur á borðum minnst einu sinni í viku. Hér eru tvær góðar og einfaldar uppskriftir að ljúffengum og fljódegum réttum úr lifur. Gerið svo vel og verði ykkur að góðu. 1 lifur, um 450 g 3 msk hveiti salt ogpipar 2 laukar, í sneíbum smjörlíki eba olía 4 dl vatn Brúnið laukinn létt í smjörlíki eða olíu á pönnu. Setjið hann í pott. Hreinsið lifrina og skerið hana í þunnar sneiðar. Bætið feiti á pönnuna. Veltið lifrar- sneiðunum létt upp úr hveid með sald og pipar saman við, og snöggsteikið þær báðum megin. Snúið sneiðunum við þegar safinn kemur fram á hliðinni sem upp snýr. Takið lifrina af pönnunni. Sjóðið vatnið á pönnunni og síið það síðan í potdnn. Hrærið það sem efdr var af hveidnu saman við kalt vam og þykkið soðið hæfilega. Látíð sósuna sjóða í 5 mín. og bætíð við saltí og pipar ef með þarf. Setjið lifrina út í sósuna og látíð hana sjóða með stutta stund. Athugið að sjóða hana ekki lengur en nauðsynlegt er svo að hún haldist mjúk og safarík. Berið lifrina fram með soðnum kartöflum eða kartöflustöppu, soðnu græn- metí og sultu. K A R R I K R Y D D U Ð L A M B A L I F U R M E Ð T O M A T S O S U 1 lambalifur, um 450 g 1-2 msk olía salt ogpipar 1-2 tsk madras-karrí (eda venju- legt) 1 laukur, saxaður 1 dós tómatar Hreinsið lifrina, skerið hana í þunnar litlar sneiðar og þerrið þær. Hitið olíu á pönnu og snöggsteikið sneið- arnar. Kryddið með salti, pip- ar og karríi. Hreyfið lifrina tíl á pönnunni og látið hana steikjast með karríinu stund- arkorn við vægan hita. At- hugið að fullur skammtur af madras-karríi gerir réttinn nokkuð sterkan. Takið lifrina mýkið í henni lauk og hvít- lauk. Setjið soð og tómata út í og látíð sjóða við vægan hita í 5-10 mín. Setjið þá lifrina út í og látið hana sjóða með stutta stund. Athugið að lifr- in má ekki soðna um of held- ur á hún að vera mjúk og gjarnan ljósrauð innst. Berið réttínn fram með hrís- grjónum eða góðu brauði. 1-2 hvitlauksrif söxuð smátt 1 dl grœnmetissoð (af teningi) síðan af pönnunni. Bætíð olíu á pönnuna og SAMSTARFSHÓPUR U M SÖLU LAMBAKJÖTS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.