Morgunblaðið - 31.03.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.03.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 OSKARSVERÐLAUNIN Hátíðleg afhending Óskarsverðlaunanna eftirsóttu í Los Angeles Besla myndin „Unforgiven" Besti leikarinn Al Pacino i „Scent of a Woman" Besta leikkonan Emma Thompson í „Howards End" Besti leikari i aukahlutverki Gene Hackman i „Unforgiven" Besta leikkona i aukahlutv. MarisaTomei f „My Cousin Vinny* Besti leikstjóri Clint Eastwood fyrir „Unforgiven* Besta erlenda myndin „Indochine" (Frakkland) Reuter Sætur sigur CLINT Eastwood með Oskarana tvo, sem hann hlaut fyrir bestu leiksljórn og bestu myndina, „Hina vægðarlausu“. Þau Jack Nicholson og Barbara Streisand afhentu honum verðlaunin. Áróður og yfirlýsingar Pólitískar yfírlýsingar eða áróður fyrir ákveðnum málefnum þótti setja sinn svip á Óskarsverðlaunahátíðina að þessu sinni. Leikarinn Richard Gere, sem er búddatrúar og baráttu- maður fyrir sjálfstæðu Tíbet, réðst harkalega á Deng Xiaoping, leiðtoga Kína, og ástand mannréttindamála þar í landi og Elizabeth Taylor bað um betri umönnun þeirra, sem þjást af alnæmi. Thompson sagði, að síð- asta ár hefði verið eitthvert hið versta fyrir konur í sögu kvikmyndanna, og Susan Sarandon talaði máli alnæ- missjúkra flóttamanna frá Haiti. Þá var einnig hvatt til aukinna mann- réttinda í Panama. TIL átaka kom í gær við læknastöð í London sem sinnir fóstureyðingum. Laust þar saman fylgjend- um og andstæðingum fóstureyðinga og voru þeir síðarnefndu einkum frá Bandaríkjunum. Veldur það breskri lögreglu áhyggjum en hún óttast að þeir beiti harðari aðferðum en þeim sem breskir mótmælendur láta sér duga. Handtók enska lög- reglan 19 manns á mótmælafundinum í gær. Tekist á um fóstureyðingar Reuter Steypuþantanir: Sími 68 58 33 Aðalskrifstofa: Bíldshöfða 7 Pósthólf 12440 132 Reykjavík Sími 680 600 Fax 68 93 66 Kt. 530669-0179 Vsk. nr. 11798 t/ S teinaverksmiðja: Breiðhöfða 3 Pantanasími 68 50 06 Skrifstofurnar fluttar í nýtt húsnæði! Aðalskrifstofa B.M. Vallá er flutt að Bíldshöföa 7. Aðalskrifstofa B.M. Vallá er flutt í nýtt húsnæði að Bíldshöfða 7. Öll starfsemi fyrirtækisins er því nú á einum stað. Athugið að síma- og faxnúmer eru óbreytt en póstáritun hefur breyst. Steinsteypa er spennandi byggingarefni í nýju skrifstofubyggingunni er að finna mörg dæmi um nýjar og spennandi vörur úr steinsteypu sem B.M. Vallá hefur þróað. B.M.VALLÁi Veriö velkomin Fórnarlamb HILLARY Clinton og maður hennar hafa þegar orðið fyr- ir barðinu á slúðursögum. Kastaði Hillary Biblíu í Clinton? Washington. Daily Telegraph. SÖGUR um stirða sambúð bandarísku forsetahjón- anna, Bills Clintons og Hill- ary, eiginkonu hans, hafa að undanförnu birst í slúð- urdálkum fjölmiðlanna og meðal annars hefur því ver- ið haldið fram, að forset- afrúin hafi í bræðiskasti grýtt öskubakka og jafnvel heilagri ritningu í bónda sinn. Talsmaður Hvíta húss- ins segir um þennan sögu- burð, að hann sé ekki aðeins fáránlegur, heldur hlægi- legur. Allt frá því þau hjónin settust að í Hvíta húsinu hafa verið sagðar sögur um ósætti þeirra í millum og bæði eru þau sögð amast við starfsmönnum leyni- þjónustunnar, sem gæta öryggis þeirra. Er því haldið fram, að þau gruni leyniþjónustumennina um að hafa komið kviksögunum á kreik. Otrúlegar sögur Margar sögurnar eru heldur ótrúlegar, til dæmis, að Hillary hafi hrellt mann sinn með því að kveikja sér í sígarettu og blása á hann reyknum. Clinton þolir ekki tóbaksreyk, hefur raunar ofnæmi fyrir honum, og Hillary sjálf hefur bannað reyk- ingar í Hvíta húsinu. Rétt mun vera, að þeim hjón- um líki illa við yfirgang öryggi- svarðanna og sagt er, að Hillary hafi orðið æf þegar hún upp- götvaði, að þeir töldu sér heim- ilt að valsa um íbúðina þeirra að vild. Hún bannaði það og sagði þeim að halda sig fjarri svefnherbergi þeirra hjóna. Þjóðaratkvæði í Danmörku 18. maí DANSKA þingið samþykkti í gær að 18. maí yrði efnt á ný til þjóðaratkvæðis um aðild Danmerkur að Maastricht- samningnum. Þingið samþykkti einnig sjálfan samninginn með fyrirvara um þjóðaratkvæðið. Noir sakaður um spillingu MICHEL Noir, borgarstjóri Lyon, var á mánudag formlega skýrt frá því að verið væri að rannsaka hvort hann ætti aðild að miklu spillingarmáli. Hann var endurkjörinn á franska þingið á sunnudag. Semja við EFTA UNGVERJAR og Búlgarir hafa undirritað fríverslunarsamning við Fríverslunarbandalag Evr- ópu, EFTA. Samningurinn nær m.a. til iðnaðarvarnings, unn- inna landbúnaðarafurða og sjávarafurða. Belgar semja um fjárlög BELGÍSKU stjórnarflokkarnir náðu í gær samkomulagi um fjárlög. Mun samsteypustjórn Jean-Luc Dehaene, er fyrir viku sagði af sér, því sitja áfram. Kolanámum lokað STJÓRN Johns Majors, forsæt- isráðherra Bretlands, bar í fyrradag sigur úr býtum í at- kvæðagreiðslu í breska þinginu um lokun kolanáma þrátt fyrir að nokkrir þingmenn íhalds- flokksins greiddu atkvæði gegn stjóminni. Talið er að tugþús- undir námamanna muni missa atvinnuna. Clint Eastwood hrósaði loks sigri Los Angeles. Reuter. CLINT Eastwood og fleiri sjálfstæðir kvikmyndagerðar- menn voru sigurvegarar Óskarsverðlaunahátíðarinnar í Los Angeles í fyrrakvöld. Mörg eftirsóttustu verðlaunin, sem áður voru næstum því frátekin fyrir stóru kvikmynda- félögin, féllu nú þeim í skaut og eftir 39 mögur ár gat Eastwood fagnað tvöföldum sigri. Var mynd hans, vestrinn „Hinir vægðarlausu“, valin besta myndin og hann sjálfur besti leikstjórinn. Þá lauk einnig 20 ára eyðimerkurgöngu A1 Pacinos með því að hann var valinn besti leikarinn fyr- ir hlutverk sitt í myndinni „Konuilmi“. „Hinir vægðarlausu" sópaði til sín verðlaununum, besta myndin, besti leikstjórinn (Eastwood), besti ieikari í aukahlutverki (Gene Hackman) og besta klippingin, og Eastwood klökknaði þegar hann kom upp í annað sinn til að taka við þeim. Hann hafði beðið lengi eftir þessari stund og viðstaddir fögnuðu honum vel og innilega. „Þið hafið rofíð álögin," sagði Ai Pacino þegar hann tók við sínum verðlaunum en hann var orðinn held- ur vonlítill um að hreppa þau eftir að hafa verið útnefndur til þeirra sex sinnum og í sjöunda sinn nú. Besta leikkonan var kjörin Emma Thomp- son fyrir hlutverk sitt í myndinni „Howards End“ og var þetta í fyrsta sinn, sem hún er tilnefnd. Aðeins frá jólum hefur hún fengið sex önnur verðlaun fyrir leik sinn í myndinni og er talin ein skærasta stjarnan á kvikmyndahimninum um þessar mundir. Önnur verðlaun Hackmans Marisa Tomei fékk verðlaunin sem besta Ieikkona í aukahlutverki í myndinni „My Cousin Vinny“ og kom það mjög á óvart. Höfðu flestir veðj- að á ýmsar aðrar leikkonur, til dæm- is Joan Plowright, Vanessu Redgrave, Miröndu Richardson og Judy Davis. Besti leikari í aukahlut- verki var kjörinn Gene Hackman, sem leikur spilltan lögreglustjóra í „Hinum vægðarlausu", en hann fékk Óskarsverðlaunin fyrir bestan leik árið 1971 og þá fyrir hlutverk í myndinni „Franska sambandið". Besta erlenda myndin var valin „Indochine“, frönsk mynd um hrun franska nýlenduveldisins í Indókína.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.