Morgunblaðið - 31.03.1993, Page 42

Morgunblaðið - 31.03.1993, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1993 KNATTSPYRNA Stefna til Bandaríkjanna Chris Woods, markvörður enska landsliðsins, og framheijinn Ian Wright verða í eldlínunni í Izmir í Tyrklandi í dag í undanriðli heimsmeistarakeppninnar. Wright bendir hér á Bandaríkin á landakorti — en þangað stefna þeir félagarnir næsta sumar, ásamt mörgum öðrum. Grikkir á nálum ■ RYAN Giggs er helsta von Wales, sem tekur á móti landsliði Belgíu í 4. riðli HM í kvöld. ■ ENZO Scifo og samheijar virð- ast öruggir í úrslitakeppnina eftir sex sigra í sex leikjum, en Wales, sem tapaði 2:0 í fyrri leik þjóð- anna, berst við Rúmeníu og Tékkóslóvakíu um annað sætið. ■ GIGGS, sem er 19 ára, hefur fimm sinnum komið inná sem vara- maður í landsleik, en aldrei verið í byijunarliðinu. ■ TERRY Yorath, landsliðsþjálf- ari* Wales, sagði að Wales yrði helst að sigra til að komast- í loka- keppnina: „En ég sé ekkert sem á að koma í veg fyrir sigur okkar. Við erum á heimavelli, erum með nokkra góða leikmenn og unnum Belga 3:1 á sama velli í síðustu Evrópukeppni.“ ■ KEVIN Ratcliffe, fyrrum fyr- irliði Wales, verður hugsanlega í miðvarðarstöðunni í staðinn fyrir Kit Symons, sem datt útúr hópnum vegna meiðsla. Ratcliffe, sem er 32 ára, hefur ekki leikið með lands- liðinu í 18 mánuði. ■ MARGIR lykilmanna Englend- inga eru meiddir og verða ekki með gegn Tyrkjum í 2. riðli í Izmir í kvöld. ■ ENGLAND er í þriðja sæti í riðlinum tveimur stigum á eftir Noregi og Hollandi, en á leik til góða. ■ LES Ferdinand, framheiji frá QPR, bættist á sjúkralista Eng- lendinga á mánudag, en æfði þó aftur í gær og verður í byijunarlið- inu. ■ JOHN Barnes, leikmaður Liv- erpool verður hins vegar á vara- mannabekknum. ■ AÐEINS fimm leikmenn í enska hópnum eiga meira en 20 landsleiki að baki, en Graham Taylor, landsliðsþjálfari, segist vera sannfærður um sigur enda hafi liðið aðeins tapað tveimur úti- leikjum s.l. tvö og hálft ár. ■ TAYLOR er ef til vill ekki eins öruggur og sýnist — þegar hann yfirgaf hótel liðsins og ætlaði út á flugvöll í Luton fór hann áleiðis heim til sín í Birmingham! M TOMMY Wright, markvörður 'Norður-írlands, er meiddur á hné og er tæpur fyrir leikinn gegn írum í 3. riðli. ■ ALAN Fettis, varamarkvörður Hull, er í viðbragðsstöðu, en hann á aðeins einn landsleik að baki. ■ PORTÚGAL gerir ekki ráð fyr- ir sigri gegn Sviss í Bern í fyrsta riðli. „Kraftaverk þarf til að við sigrum,“ sagði þjálfarinn Carlos Queiros. ■ ROY Hodgson, þjálfari Sviss, segist ætla að fá fimm stig úr næstu þremur Ieikjum gegn Port- úgal, Möltu og Ítalíu. ■ FLEMMING Povlsen, lands- liðsmaður Dana, segir að til að Vigra Spánveija í 3. riðli verði liðið að sækja stíft. „Við verðum að sýna að við getum stjómað leik. Það gengur ekki að treysta á gagnsókn- ir eins og við gerðum í Evrópu- keppninni." ■ ÞJÓFAR komust inn í búnings- herbergi enska landsliðsins leik- manna 21 árs og yngri, meðan það lék við lið Tyrklands í Izmir í gær og stálu skartgripum, peningum og úri frá þremur leikmanna. Þess má geta að leikurinn var markalaus. Grikkir eiga mikla möguleika á að tryggja sér sæti í úrslita- keppni HM í fyrsta sinn og með stigi gegn Ungveijum í Búdapest í kvöld verður staða þeirra mjög vænleg í 5. riðli. Island og Lúxem- borg eiga ekki möguleika á að kom- ast áfram, en Rússar eru sigur- stranglegastir í riðlinum. Heimamenn þurftu að yfirgefa æfíngabúðir sínar fyrir utan Búda- SKÍÐAMÓT ísfands verður sett formlega annað kvöld kl. 20 í Akureyrarkirkju en mótið stendur fram á sunnudag. Mótið hefst með keppni skíða- göngu kl. 13.00 á morgun. Um 80 keppendur eru skráðir til leiks, 60 í alpagreinum og 20 í norrænum greinum, göngu og stökki. röstur Guðjónsson, formaður Skíðaráðs Akureyrar, sagði að undirbúningur hefði gengið vel pest á mánudag vegna veðurs, en Grikkir undirbjuggu sig í höfuð- borginni. Gestirnir kom atil með að leggja áherslu á vörnina til að tryggja stigið, en Alketas Panago- ulias, þjálfari, sagði að takmarkið væri að sigra með farseðilinn til Bandaríkjanna í huga. „Það eru engin vandamál hjá okkur og andinn í hópnum er mjög góður. Hins vegar eru Ungveijar og nægur og góður snjór væri í Hlíðarfjalli. „Þetta er alltaf spurn- ing um veður og ef það verður okk- ur hagstætt gæti mótið orðið mjög skemmtilegt. Það er búist við jafnri keppni í öllum greinum,“ sagði for- maðurinn. Eins og áður segir hefst keppni í lengri göngugreinunum á morgun kl. 13.00. Á föstudag verður keppt í stórsvigi karla kl. 10 og svigi kvenna kl. 11. Einnig verður keppt í skíðastökki og göngu í norrænni tvíkeppni. Á laugardag hefst keppni kl. 10.00 með stórsvigi kvenna og síðan svigi karla kl. 11. Ganga - styttri vegalengdir verða kl. 13. Á með sterkt lið og við verðum að gæta okkur sérstaklega á miðheij- unum, sem eru snöggir," sagði þjálfarinn. Liðin gerðu markalaust jafntefli í Salonika í nóvember og þá voru Grikkir óheppnir að ná ekki að sigra. Ungveijar eru með þijú stig eftir þijá leiki og verða að sigra til að eiga möguleika. „Ef við skorum snemma göngum við frá þeim,“ sagði Jenei þjálfari. sunnudag lýkur mótinu með keppni í samhliðasvigi karla og kvenna og boðgöngu. Keppni í norrænni tvíkeppni, stökki og göngu, er nú tekin upp aftur en síðast var keppt í nor- rænni tvíkeppni á landsmóti 1988. Búist er við spennandi keppni í alpagreinum, sérstaklega vegna þess að Kristinn Björnsson frá Ól- afsfirði og Ásta Halldórsdóttir frá ísafirði eru ekki á meðal keppenda, en þau hafa verið í nokkrum sér- flokki síðustu tvö árin. Daníel Jak- obsson frá ísafirði verður að teljast sigurstranglegastur í göngugrein- unum. Knattspyrnufélagið Valur Unglingaráð Knattspyr nuþj álfar i Óskum að ráða þjálfara fyrir einn af kvennaflokkum félagsins sem fyrst. Upplýsingar gefur Helgi Kristjánsson í síma 623730 á skrifstofu knattspyrnudeildar Vals að Hlíðarenda. Unglingaráð knattspyrnudeildar Vals. Ingvi færði KSÍ allar handbækurnar að gjöf Ingvi Guðmundssonj fyrrum starfsmaður Knattspyrnusambands Islands færði samband- inu að gjöf á dögunum allar handbækur KSI frá 1971, þegar fyrsta bókin kom út, til 1991, en eftir það var brot bókanna stækkað. Ingvi hafði látið binda allar bækurnar inn í skinn- band. Ingvi sagði við þetta tækifæri að meðan hann starfaði hjá KSÍ fyrir nokkrum árum hefði hann komist að því að sambandið hefði ekki átt allar þessar bækur og því hefði hann tekið þetta til bragðs. Á myndinni þakkar Egg- ert Magnússon, formaður Knattspymusam- bandsins, Ingva fyrir gjöfina. SKIÐAMOT ISLANDS Keppni hefst á morgun „Búist við jafnri keppni íöllum greinum," segirformaðurSRA KORFUKNATTLEIKUR Ekkert óvænt í háskólakeppninni Undanúrslitaleikirnir í háskólakörfuboltanum í Bandaríkjunum verða á laug- ardaginn. Þar leika annars vegar lið Kentucky og Michigan og hins vegar Norður Karolínu og Kansas. Þetta eru fjögur af fimm bestu liðunum og því í fyrsta sinn í nokkur ár þar sem ekkert lið kemur á óvart og kemst í undanúrslit. RÚV sunnudag: Leikur Arsen- al og Spurs sýndur beint ÆT Akveðið hefur verið að fella niður fyrirhugaða útsend-' ingu í ríkissjónvarpinu frá leik Oldham og Wimbledon í úrvals- deild ensku knattspyrnunnar á laugardaginn, 3. apríl, og sýna þess í stað viðureign Arsenal og Tottenham í undanúrslitum bik- arkeppninnar kl. 11.15 daginn eftir, sunnudaginn 4. apríl. Sá leikur fer fram á Wembley-leik- vanginum í London. Miklar sektir f rá UEFA Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) sektaði marga ein- staklinga og félög um helgina. Hæstu sektina fékk Olympiakos í Grikklandi, 5,8 milljónir króna. Sektir þessar eru til komnar vegna óláta áhorfenda og leik- manna liðanna. Olympiakos var sektað um 5,8 milljónir króna og Atletico Madrid frá Spáni um 3,2 milljónir króna en áhorfendur og leikmenn lentu í ólátum á leik lið- anna í Aþenu þann 4. mars. Fyodor Cherenkov úr Spartak Moskvu var dæmdur í fjögurra leikja bann en honum var vikið af leikvelli í Moskvu 18. mars þegar Spartak lék við Feyenoord. Cher- enkov sparkaði viljandi í mótheija og hann mun fyrir bragðið missa af undanúrslitaleik Spartak og Antwerpen og úrslitaleiknum einn- ig, komist liðið svo langt. Ionel Fulga frá Steua Buchares fékk þriggja leikja bann vegna hásklegs leiks gegn Antwerpen og Rudy Taeymans hjá hollenska liðinu fékk eins leiks bann. Nokkrir leik- menn fengu tvo leiki í bann, þar á meðal Alain Roche (PSG), Walter Bonacina (AS Roma) og Mark Hateley (Glasgow Rangers). PSG, Real Madrid , Rangers, Benfica, Porto og Sparta Prague fengu öll sektir fyrir óspektir, frá 650 þúsundum og upp i rúmar tvær milljónir króna. Benfica fékk til dæmis 850 þúsnd króna sekt vegna þess að áhorfendur hentu flöskum í annan línuvörðinn. FELAGSLIF Firmakeppni Gróttu Firma- og félagakeppni Gróttu í innanhússknattspyrnu er um helgina í stóra sal íþróttahússins á Seltjarnar- nesi. Þátttökugj. er 8.500 kr. á lið. „Pollamót" Þórs Þór á Akureyri gengst fyrir „Polla- móti öldunga" í knattspyrnu fyrstu helgina í júlí eins og undanfarin ár. Nú verður fítjað upp á þeirri ný- breýtni að halda sérstaka keppni fyrir þá sem fæddir eru 1953 og fyrr, svo- kallaða lávarðadeildarkeppni, en lið geta tekið þátt bæði í henni og hinni hefðbundnu keppni Pollamótsins. Þátttaka tilkynnist fyrir 20. apríl. Upplýsingar: Benedikt (96-21210 og 96-23918) og Anton (96-12080). Esso-mót KA Eins og undanfarin ár mun knatt- spyrnudeild KA standa fyrir knatt- spyrnumóti hjá 5. flokki a, b, c og d-Iiða. Mótið verður sett miðvikudag 30. júní og keppni hefst daginn eftir. Úrslitaleikur verða síðdegis laugardag 3. júlí og mótsslit um kvöldið. Þátttökugjald er óbreytt frá síðasta ári, kr. 15.000 fyrir hvert lið og greið- ist inn á ávísanareikning nr. 1987 í Búnaðarbankanum Akureyri, fyrir 20. apríl. Þátttaka tilkynnist Gunnari Ní- elssyni í síma 96-22287 eða 96-23482.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.