Morgunblaðið - 22.05.1993, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAI 1993
B 7
Nigel Kennedy
urvegari kom hann fram sem ein-
leikari með Juilliard hljómsveitinni
undir stjórn Jean Morel.
Lipovetsky fer árlega í tónleika-
ferðir víða um heim. Hann heldur
einnig reglulega fyrirlestra í ýmsum
menningarstofnunum og kennir
píanóleik við tónlistardeild Háskól-
ans í Flórída.
Tónleikar Leonidas Lipovetsky
verða í Hafnarborg mánudaginn 14.
júní kl. 20:30.
Kolbeinn Bjarnoson og
Guðrún Óskarsdóttir
Kolbeinn Bjamason tók lokapróf
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
1979. Hann nam flautuleik hjá
Manuelu Wiesler, einnig í Sviss og
Bandaríkjunum. Síðan stundaði
hann barokkflautunám í Amster-
dam.
Kolbeinn hefur komið fram á
mörgum tónleikum síðan 1982, m.
a. á Myrkum músíkdögum, Listahá-
tíð í Reykjavík, Sumartónleikum í
Skálholtskirkju og víða erlendis.
Hann hefur frumflutt ijölda tón-
verka og tekið þátt í „barokkendur-
væðingunni" á íslandi. Kolbeinn er
einn stofnenda Caput-hópsins.
Guðrún Óskarsdóttir semballeik-
ari lauk píanókennaraprófi frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík 1986.
Árið 1987 hóf hún sembalnám hjá
Helgu Ingólfsdóttur og stundaði
síðan sembalnám í Amsterdam hjá
Anneke Uittenbosch. Síðastliðin tvö
ár hefur hún numið kammertónlist
í Basel og stundað sembalnám í
París. Hún hefur spilað með Bach-
sveitinni í Skálholti undanfarin ár.
Kolbeinn og Guðrún hafa spilað
mikið saman á tónleikum síðan
1989. Á efnisskrá þeirra nú eru
m.a. verk eftir Leif Þórarinsson og
Þuríði Jónsdóttur. Tónleikarnir
verða í Hafnarborg þriðjudaginn
15. júní kl. 20:30.
Ghena Dimitrova
Ghena Dimitrova er rómuð sópr-
ansöngkona frá Búlgaríu. Að loknu
námi í heimalandinu söng hún við
Óperuna í Sofíu. Hún vann fyrstu
verðlaun í fjórðu alþjóðlegu keppni
ungra einsöngvara í Sofiu 1970.
Eftir það hefur hún við góðan orð-
stír sungið mörg óperuhlutverk i
fjölmörgum Evrópulöndum og í
Bandaríkjunum.
Ghena Dimitrova syngur með
Sinfóníuhljómsveit íslands undir
stjóm Christo Stanischeff í íþrótta-
húsinu í Kaplakrika föstudaginn 18.
júní kl. 20:30.
Sigurður Flosason og Norrsni
jasskvintettinn
Sigurður Flosason saxófónleikari
lauk einleikaraprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík 1983. Þá
hélt hann til framhaldsnáms í
Bandaríkjunum og lék þar jöfnum
höndum jass og sígilda tónlist. Eft-
ir heimkomuna hefur Sigurður ver-
ið í hópi virtustu jassleikara. Hann
hefur unnið til ýmissa verðlauna
og viðurkenninga á alþjóðavett-
vangi, þar á meðal fyrstu verðlaun
Hoagy Carmichael tónsmíðasam-
Leonidas Lipovetsky
keppninnar í Bandaríkjunum 1987.
Ulf Adaker trompetleikari hefur
verið áberandi í sænsku jasslífi
undanfarin þrjátíu ár og síðustu tvo
áratugina hefur hann verið at-
kvæðamikill í jasshljómsveit
sænska útvarpsins, bæði sem
trompetleikari og tónskáld. Margar
plötur hafa komið út með tónlist
og leik Adakers. Hann er kennari
við Tónlistarháskólann í Stokk-
hólmi.
Eyþór Gunnarsson píanóleikari
er einn af stofnendum hljómsveitar-
innar Mezzoforte og höfundur
kunnasta lags hennar, Garden
Party. Eyþór hefur leikið víða og
hvarvetna hlotið góðar viðtökur.
Hann hefur m.a. leikið með hinni
þekktu bandarísku söngkonu,
Randy Crawford.
Lennard Ginnman kontrabassa-
leikari er talinn einn fremsti bassa-
leikari Dana af yngri kynslóðinni.
Hann hefur vakið eftirtekt víða og
hlotið mikið lof gagnrýnenda. Ginn-
man vakti fyrst athygli fyrir leik
sinn með kvintettinum Page One
sem vann til margra alþjóðlegra
verðlauna og gaf út tvo hljómdiska.
Ginnman hefur nýlega sent frá sér
hljómdisk sem unninn er í samvinnu
við bandaríska píanóleikarann Kirk
Lightsey.
Pétur Östlund trommuleikari er
íslendingum að góðu kunnur frá
því að hann lék með bítlahljómsveit-
inni Hljómum snemma á sjöunda
áratugnum. Hann fluttist til Sví-
þjóðar fyrir aldaríjórðungi og skip-
aði sér fljótlega í fremstu röð
trommuleikara' þar í landL Pétur
hefur liljóðritað með mörgum af
fremstu jassleikurum heims og má
í því sambandi nefna trompetleikar-
ann Art Farmer, munnhörpuleikar-
ann Toots Thilemans og klarínettu-
leikarann Putte Wikman. Pétur hef-
ur einnig leikið með stórstjörnunum
Lee Konitz og Thad Jones.
Pétur Östlund er virtur trommu-
leikari í Svíþjóð og hann hefur ver-
ið aðal trommukennari Tórtlistarhá-
skólans í Stokkhólmi.
Sigurður Flosason og Norræni
jasskvintettinn leika i Hafnarborg
laugardaginn 19. júní kl. 20:30.
Ólafur Árni Bjarnason og Ólafur
Vignir Alberfsson
Ólafur Ámi Bjarnason stundaði
söngnám hjá Guðrúnu Tómasdóttur
og Sigurði Demetz Franzsyni og
síðar hjá Klöru Barlow við Tónlist-
arháskólann í Bloomington í Indí-
ana. Eftir nám sitt þar var hann
ráðinn fyrsti tenór við óperuna í
Regensburg í Þýskalandi. Þar söng
hann m.a. Don José í Carmen,
Macduff í Makbeth, Erik í Hollend-
ingnum fljúgandi, Hertogann í Ri-
goletto og Rodolfo í La Bohéme.
Ólafur hefur fengið mikið hrós
og ágætis dóma í þýskum blöðum
og virtum alþjóðlegum tímaritum.
Hann vann til sérstakra verðlauna
í alþjóðlegri samkeppni ungra
söngvara 1991. Á síðastliðnu ári fór
Ólafur með hlutverk Rodolfo í upp-
færslu Óperusmiðjunnar á La Bo-
héme og hlutverk hertogans í Rigo-
letto hjá íslensku óperunni á Lista-
hátíð Reykjavíkur. Ólafur hefur
sungið aðal tenórhlutverkin í Don
Giovanni og Sígaunabaróninum við
óperuna í Gelsenkirchen þar sem
hann er nú ráðinn til tveggja ára.
Auk þess syngur hann sem gestur
við önnur óperuhús í Þýskalandi.
Ólafur Vignir Albertsson píanó-
leikari lauk prófí frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík 1961 og stnndaði
framhaldsnám, með samleik með
söngvurum að sérgrein, við Royal
Academy of Music í London
1963-65. Hann hefur kennt píanó-
leik og er nú skólastjóri Tónlistar-
skólans í Mosfellsbæ. Ólafur hefur
unnið mikið með söngvurum á tón-
leikum hér og í mörgum Evrópu-
löndum.
Ólafur Árni Bjarnason og Ólafur
Vignir Albertsson koma fram á tón-
leikum í Hafnarborg sunnudaginn
20. júní kl. 20:30.
Musica Antiqua
Musica Antiqua var stofnað 1981
af Camillu Söderberg, Ólöfu Sess-
elju Óskarsdóttur og Snorra Erni
Snorrasyni og stóð hópurinn að
fjölda tónleika. Árið 1984 stofnuðu
þau Cainilla, Ólöf Sesselja og Snorri
Órn tríóið Musica Antiqua Island
og hafa þau haldið tónleika hér
heima, í Finnlandi, Noregi, Svíþjóð
og Austurríki. Eins og nafnið ber
með sér sérhæfir hópurinn sig í
flutningi gamallar tónlistar, nánar
tiltekið í endurreisnar- og barokk-
tónlist.
Snorri Örn Snorrason stundaði
nám í klassískum gítarleik hjá Karli
Scheit við Tónlistarháskólann í Vín-
arborg og lauk þaðan einleikara-
prófí 1976. Hann stundaði fram-
haldsnám í gítarleik í Basel og var
að auki í tímum í lútuleik. Snorri
hefur leikið á tónleikum víða og í
útvarp og sjónvarp. Hann kennir
gítarleik við Tónlistarskóla FÍH. og
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Camilla Söderberg nam við Tón-
listarháskólann í Vínarborg hjá
René Clemencic og Hans Maria
Kneihs og lauk einleikaraprófí það-
an 1970. Hún var við framhaldsnám
í Basel. Camilla hefur leikið á tón-
leikum víða um heim og komið fram
í útvarpi og sjónvarpi í mörgum
löndum. Hún hefur búið á íslandi
frá 1980 og kennt á hljóðfæri sitt
við Kennaraháskóla íslands og Tón-
listarskólann í Reykjavík.
Ólöf Sesselja Óskarsdóttir hefur
leikið á viola da gamba frá árinu
1981, með Camillu Söderberg og
Snorra Erni Snorrasyni og öðrum
sem fást við túlkun barokktónlistar
á gömui hljóðfæri. Hún hefur leikið
með tríóinu Musica Antiqua Island
á ferðum þess um Norðurlönd og
Austurríki. Hún hefur notið leið-
sagnar Laurence Dreyfus og Wie-
land Knijken á námskeiðum í túlkun
gamallar tónlistar. Ólöf Sesselja
starfar sem sellóleikari í Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Sverrir Guðjónsson hóf kornung-
ur söngnám hjá Sigurði Demetz
Franzsyni. Fyrsti kennari Sverris
sem kontratenórssöngvara var Rut
Magnússon. Framhaldsnám stund-
aði Sverrir í London um þriggja ára
skeið hjá David Mason, Sigriði Ellu
Magnúsdóttur og hinum þekkta
kontratenórsöngvara Michael
Chance. Sverrir hefur komið fram
í stórum hlutverkum á vegum Þjóð-
ieikhússins og tekið þátt í flutningi
margra helstu verka barokktímans.
Auk þess að starfa með Musica
Antiqua syngur Sverrir með ís-
lenska tónlistarhópnum Vocis Thul-
is og þýska endurreisnarhópnum
Capella Media.
Tónleikar Musica Antiqua verða
í Straumi mánudaginn 21. júní kl.
20:30.
Ghena Dimitrova í Aidu eftir Verdi
Tregasveitin
Tregasveitin var stofnuð 1989
af Pétri Tyrfingssyni og átti ekki
að verða opinber hljómsveit. Raunin
varð þó önnur. Geisladiskur hljóm-
sveitarinnar sem kom út fyrir jólin
í fyrra mæltist vel fyrir og hljóm-
sveitin hefur verið að sækja í sig
veðrið að undanfömu. Tregasveitin
er blúshljómsveit og lagavalið fjöl-
breytilegt. í kynningu stendur að
Tregasveitin spili blúsana „í sínum
stíl með sínum sérstaka hljómi“.
Auk Péturs Tyrfingssonar sem
syngur og spilar á gítar eru í hljóm-
sveitinni Sigurður Sigurðsson, Guð-
mundur Pétursson, Stefán Ingólfs-
son og Jóhann Hjörleifsson.
Tregasveitin og gestir er með
tónleika í Straumi föstudaginn 25.
júní kl. 21:30.
New Czech Trio
New Czech Trio frá Tékkóslóv-
akíu er talið hafa náð mjög góðum ^
árangri í tónlistarflutningi sínum
heima og erlendis. Þeir sem skipa
tríóið eru ungir tónlistarmenn sem
hlotið hafa margar viðurkenningar
fyrir list sína. Þeir eru Jaromír
Klepác píanóleikari, Petr Macecek
fiðluleikari og Margit Klepácová
sellóleikari.
Tónleikar New Czech Trio eru í
Hafnarborg sunnudaginn 27. júní
kl. 20:30.
Antidogma Musica
Antidogma Musica er ítölsk
kammersveit sem hóf feril sinn á
alþjóðlegu tónlistarhátíðinni í Tor-
ino 1977. Antidogma Musica er lík-
lega þekktust fyrir flutning nýrrar
tónlistar, en þáttur gamallar tónlist-
ar er veigamikill á efnisskrá henn-
ar. Antidogma Musica hefur fengið
sérstaka viðurkenningu fyrir
óvenjulegt og fjölbreytilegt verk-
efnaval og metnaðarfullan tónlist-
arflutning.
Antidogma Musica leikur í Hafn-
arborg þriðjudaginn 29. júní kl.
20:30.
Nigel Kennedy
Nigel Kennedy er talinn í hópi
færustu fíðluleikara sem fram hafa
komið fyrr og síðar. Hann var nem-
andi Yehudi Menuhins frá því hann
var sjö ára til sextán ára aldurs og
nam síðar í Juillard tónlistarskólan-
um í New York. Hann hætti þar
eftir tveggja ára nám til að taka
fjölmörgum tilboðum um tónleika-
hald-.
Nigel Kennedy hefur valdið óróa
i hinum klassíska tónlistarheimi
Bretlands, ekki síst með klæðaburði
sínum og framkomu. Sjálfur segir
hann að það sé öllum hollt sé hann
að bijóta niður múra milli
klassískrar tónlistar og rokks. Það
hefur hann hugsað sér að gera hér
því að á ef-nisskrá eru Beethoven,
Jimi Hendrix og jass. Listahátíð í
Hafnarfirði lofar einum „stærsta
tónlistarviðburði á íslandi fyrr og
síðar“.
Tónleikar Nigels Kennedy verða
í íþróttahúsinu í Kaplakrika mið-
vikudaginn 30. júní kl. 20:30.