Morgunblaðið - 22.05.1993, Blaðsíða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1993
— tt-WÍ.-H—-■ >■.‘■■■i'. I., --
RUREK JASSHATIÐIN 1993
Eini trompetleika
sem ég hef kysst
EFTIR GUÐJÓN
GUÐMUNDSSON
KOMA Freddie Hubbards á
Rúrek-hátíðina er stórtíð-
indi fyrir jassáhugamenn.
Hubbard er goðsögn allra
trompetleikara, tæknilegur
og með sterkan tón hvort
sem hann leikur ómengað
bíbopp eða bræðingstónlist.
Limelight gaf á síðasta ári
út disk með Hubbard og
kvintett hans sem tekinn var
upp á tónleikum á Fat Tu-
esday klúbbnum í New
York. A honum blæs Hub-
bard guðdómlega, en tenór-
, saxafónleikari með honum á
disknum er Javon Jaekson
sem leikur með kvintett
Freddie Hubbards í klúbb-
stemningu í Súlnasal Hótel
Sögu næstkomandi þriðju-
dag. Auk þessa verða um
tuttugu tónleikar á hátíðinni
íslenskra tónlistarmanna,
bandarískra, skandinaví-
skra og japanskra.
V'ðburður eins og Hubbard
er í sjálfu sér engu minni
en þegar Dizzy Gillespie
spilaði í Háskólabíó um
árið, því Hubbard hefur
verið ókrýndur konungur trompet-
leikaranna síðustu áratugina og fór
snemma sínar eigin Ieiðir á sólóskíf-
um. Hubbard hefur sagt að hans
mesti áhrifavaldur í tónlistinni hafi
verið Gillespie og þótt vart sé hægt
að ímynda sér ólíkari trompetleik eru
áhrifin samt augljós. Tónvefnaðurinn
er jafnríkulegur og báðir voru þeir
fremstir í notkun hálf-takka tækni.
Freddie Hubbard.
Hiroshi Minami.
Sven Asmussen.
Léttsveit Tónlistarskólans í Keflavík.
Vó, þetta er öðruvísi
Hubbard minnist iæriföðurins í
Down Beat sem var helgað minningu
meistarans: „Ég var staddur í Bó-
hema Café á horni 69.unda strætis
og Broadway. Hann Iæddist aftan
að mér, klappaði mér á öxl og þegar
ég sneri mér við, faðmaði hann mig
og kyssti mig á munninn. Mín fyrsta
hugsun var: „Vá, þetta er öðruvísi.
Er þetta virkilega Dizzy að kyssa
mig á munninn?" Hann er eini tromp-
etleikarinn sem ég hef kysst... sem
hefur kysst mig.“
Við sama tækifæri sagði Hubbard:
„Núna finn ég mig knúinn til að
fylgja fordæmi hans [Gillespiesj.
Ungu strákarnir eru ennþá í sínum
pælingum, en ég er kominn á þennan
' aldur. Ég hef gert nokkrar góðar
plötur og hef vermt efsta sætið yfir
bestu trompetleikarana. Því finnst
mér ég þurfa að taka upp þráðinn
þar sem hann skildi við hann. Það
er alveg eðlilegt að fólk vænti þess
að ég leggi það mikla natni við tón-
list mína að hún verði lögð að jöfnu
við tónlist Miles Davis eða Dizzys.
Og það ætla ég að gera. Því undan-
farin ár hef ég verið í afslöppun í
Kalifomíu, og lifað hinu Ijúfa lífi.“
Eins og svo margir jassistar af kyn-
slóð Hubbard, sem er fæddur 1938,
hefur hann ekki farið varhluta af
skynvíkkunarefnum og ku vera mik-
ið fyrir nösina gefínn.
Annar trompetleikari í fremstu
röð, Brasilíumaðurinn Claudio Rod-
iti, sem hefur leikið undanfarin ár
með Kúbveijanum Paquito D’Riviera,
segir að Hubbard hafi verið sinn
mesti áhrifavaldur. „Þegar ég var í
Brasilíu æfði ég sóló af plötum
Freddie Hubbard. Ég gerði meira af
því en að spila nóturnar mínar. Ég
á Freddie svo mikið að þakka og ef
það er eitthvert vit í því sem ég er
að gera þá er það því að þakka að
ég skrifaði niður sólóin hans. Freddie
var sá sem ég féll fyrir. Hljómurinn
og öryggi hans á lúðurinn. Hljóð-
myndunin. Ég dáist einnig að hug-
myndaflæði hans. Ég vildi hins vegar
óska þess að hann hætti að hafa
áhyggjur af háu nótunum, því hann
þarf ekki á þeim að halda,“ segir
Claudio Roditi.
Louis Hayes
Með Hubbard í Súlnasal leika
gömlu refirnir píanistinn Ronnie.
Matthews og trommarinn Louis Hay-
es. Matthews hefur áður leikið í sveit
með Hubbard, árin 1964-1966, en
hann hefur líka leikið með trommu-
leikurunum Max Roach og Art
Blakey. Margir kannast við Matt-
hews af spilamennsku hans á
Homecoming, tvöföldu albúmi Dext-
ers Gordons. Frábær píanisti sem á
það til að fara ótroðnar slóðir í tón-
tegundum, en kann flestum öðrum
píanistum betur á sveifluna.
Louis Hayes er einn þekktasti jass-
trommari heims. Hann er fæddur í
Detroit en fluttist til New York 1956
þar sem hann tók sæti Art Taylors
í Horace Silver kvintettnum. 1959-
1965 lék hann með kvintett Cannon-
ball Adderleys, en leysti þá Ed Thig-
pen af hólmi í tríói Oscar Petersons.
Frá 1967 hefur hann leikið með
Hubbard, Joe Henderson, Kenny
Barron og fleirum. Hann stofnaði
eigin sextett 1972 og kvintett ásamt
Woody Shaw 1975.
Javon Jackson tenórsaxófónleikari
leikur með Hubbard á upptökunni
frá Fat Tuesday. Hann er af yngri
kynslóð bandarískra jassista og er
algjört villidýr á saxófóninn. Hann
er einnig á disk Harper-bræðranna
frá 1991. Á bassa með kvintettnum
leikur Jeff Chambers.
Fiölarinn fró Danmörku
Svend Asmussen, fiðlarinn danski,
leikur sveiflu í Súlnasalnum föstu-
dagínn 28. maí. Að sögn kunnugra
hefur Asmussen sjaldan hljómað bet-
ur enda þótt hann sé kominn fast
að áttræðu. Með honum leika Jacob
Fisher á gítar, Aage Tandgaard á
trommur og Jesper Lundgaard, sem
er einn eftirsóttasti bassaleikari
Dana um þessar mundir. Asmussen
rinn
hóf að leika á fiðlu sjö ára gamall
en lagði síðar stund á nám í högg-
myndalist í Listaakademíunni í
Kaupmannahöfn. Fráfall föður hans
batt þó skjótan enda á feril hans á
sviði höggmyndalistar og hann var
nauðbeygður til að fara að vinna
fyrir sér. 1933 stofnaði hann eigin
hljómsveit, en 1937 og ’38 lék hann
með Mills-bræðrum og Fats Waller
þegar þeir voru í Kaupmannahöfn.
1943 hætti hann í tónlistinni og ætl-
aði að helga sig gamanleik, en byij-
aði að spila aftur að síðari heims-
styijöld lokinni. Benny Goodman
gerði ítrekaðar tilraunir til að fá
hljómsveit Asmussen til Bandaríkj-
anna en ströngum kerfiskörlum varð
ekki haggað vegna innflytjendalög-
gjafarinnar bandarísku. Fjölmargar
hljómplötur liggja eftir Asmussen.
Ísland-Japan
Matthías Hemstock trommuleikari
fékk styrk frá stjóm Rúrek til að fá
hingað til lands tvo skólafélaga sína
frá Berklee, þá Hiroshi Minami pían-
ista og Masa Kamaguchi bassaleik-
ara. Tríóið kemur fram á tvennum
tónleikum, á Sóloni íslandusi 26. maí
og. á lokakvöldinu í Súlnasal 29.
maí. Fyrr um daginn verður í Ráð-
húsinu norræn dagskrá, þar sem Dag
Arnesen-Olav Dale kvintettinn kem-
ur fram.
Þá er ógetið tónleika bandarísk-
danska gítaristans Doug Raneys,
sem leikur á Sóloni íslandusi 23. og
24. maí með Jazzkvartetti Reykjavík-
ur, en hann skipa Sigurður Flosason
altósaxófónn, Eyþór Gunnarsson
píanó, Tómas R. Einarsson bassi og
Einar Valur Scheving trommur. Ran-
ey er fæddur 1957 og lék fyrst inn
á plötu með föður sínum, gítaristan-
um Jimmy Raney 1977. Eftir hann
liggja a.m.k. níu plötur gefnar út af
danska jassrisanum Steeplechase. Á
The Doug Raney Quintet sem gefin
var út 1988 leikur hann m.a. með
Jesper Lundgaard. Á Nardis, sem
faðir hans er skrifaður fyrir, leika
þeir feðgarnir dúet. Platan hefur
hlotið mikið lof, með öllu laus við
kall-og-svar klisjumar sem gjaman
einkenna dúetta. Raney hefur búið
í Kaupmannahöfn frá 1980.
íslenska framlagið
Auk alls þessa verður fjöldinn all-
ur af tónleikum íslenskra flytjenda á
Rúrek hátíðinni. Stórsveit Tónlistar-
skóla FÍH leikur undir stjórn Ed-
wards Fredriksen við setningarat-
höfnina í Hátíðarsal FÍH, Hljómsveit
Gunnars Hrafnssonar ásamt Andreu
Gylfadóttur leikur á Sóloni 23. maí.
Hljómsveit Péturs Grétarssonar leik-
ur á tónleikum á Litla sviði Borgar-
leikhússins 27. maí. Þá verður börn-
um gert hátt undir höfði með sérstök-
um bamajassi í Ráðhúsinu. Léttsveit
Tónlistarskólans í Keflavík undir
stjórn Karenar Sturlaugsdóttur leik-
ur sem og Bossa Nóva band Tónlist-
arskólans á Seltjamarnesi. Þá verður
Stefán S. Stefánsson með Bai^najass-
smiðju.
Lokakvöldið
Á lokatónleikum hátíðarinnar í
Súlnasal 29. maí koma fram fjórar
hljómsyeitir og ber þar fyrstan að
telja Ámís kórinn frá Egilsstöðum
undir stjórn Árna Isleifssonar, en
undirleikarar með kórnum eru vel-
þekktir djammarar frá Hornafirði.
Kvartett Tómasar R. Einarssonar
kemur fram ásamt KK og þá treður
tríó Japanans Hiroshi Minami upp.
Hátíðinni lýkur með leik Kuran
Swing ásamt Agli Ólafssyni.