Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 2
(
2 C
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993
ÓHÁD LISTAHÁTÍD
ÓHÁÐ listahátíð er nú haldin í annað skipti, en skammt er
að minnast velheppnaðrar hátíðar í fyrrasumar sem kallað-
ist Loftárás á Seyðisfjörð. Sem oft fyrrum virðist stríð
hafa vikið fyrir frjósemi því henni hefur að þessu sinni
verið valið nafnið Ólétt ’93. Aðgangnr að hátíðinni er opinn
og lýðræðislegur, en auglýst er með góðum fyrirvara að
hátíðin sé í burðarliðnum og fólki boðið að leggja fram
krafta sína. Þannig skráðu sig nær 100 myndlistarmenn,
um 85 hljómsveitir sem spila rokk og spuna, milli 10 og
15 hópar er leika sígilda tónlist o.s.frv. eða allt í allt um
700 listamenn af ýmsum stærðum og gerðum, nema hvað
flestir eiga sameiginlegt að tilheyra yngri kynslóðum þjóð-
arinnar.
Enn fleiri hafa eflaust gælt við
hugmyndina um þátttöku,
því forráðamenn hátíðarinn-
ar segja að reynslan frá fyrra ári
sýni að fjöldi þeirra sem mæti til
þátttöku í upphafi grisjist af sjálf-
dáðum. Eftir standi aðeins þeir sem
búa yfir metnaði og vinnuþreki til
að starfa ótrauðir til loka. Hátíðin
var að stofni til andsvar við efnis-
vali Listahátíðar í Reykjavík og
áherslu hennar á erlenda listámenn,
auk þess að minna á menningar-
hlutverk Iðnós, en segja má að
andófið hafi vikið fyrir iðandi
skemmtan yfir því að gera æsku-
fjöruga, íslenska listahátíð sem best
úr garði.
En hátíð sem þessi er ekki aðeins
fjölmenn, heldur einnig háð ýmsum
ytri skilyrðum og því getur umfjöll-
un um hana aldrei orðið tæmandi.
BÓKMENNTIR OG LEIKLIST
Dagskrárliðir sem innihalda upp-
lestur eða leikræna tjáningu af ein-
hveijum toga á Óháðu listahátíðinni
eru allmargir:
Hanastél nefnist dagskrá sem er
nokkurs konar hræringur af tónlist,
leiklist, gjörningum og upplestri.
Dagskráin verður flutt tvisvar, fyrst
14. júní og síðan 22. júní, og breyt-
ist innihaldið nokkuð á milli þessara
tveggja daga. Meðal flytjenda þessi
kvöld má nefna Vigdísi Grímsdótt-
ur, Kristínu Ómarsdóttur, Elisabet
Þorgeirsdóttur, Þórarinn Eldjárn
Jóhönnu Jónasar, Vilhjálm Hjálm-
arsson og stóran hluta þess hóps
sem kemur fram í Tjarnarsal Ráð-
hússins en þar verða tónleikar og
Ijóðakvöld fimmtudaginn 24. júní.
Einnig munu Arna Krístín Einars-
dóttir, flautuleikari, og Asdís Arn-
arsdóttir, sellóleikari, flytja 1. kafla
úr „The Jet Whistíe" eftir H.V.
Lobos. í Tjarnarsal 24. júní lesa
m.a. Sigurður Pálsson og Bragi
Ólafsson ásamt þremur nýgræðing-
um, þeim Bertu Ósk, Höskuldi
Schram og Margréti Gústavsdóttir.
Arna Kristín Einarsdóttir, flautleik-
ari, óg Arndís Björt Ásgeirsdóttir,
píanóleikari, flytja „Fantasie" eftir
George Húe og Arngeir Heiðar
Hauksson, Jón Guðmundsson og
Kolbeinn Einarsson, gítarleikarar,
flytja „Vitae in Carnefassus“ eða
Líf í kjötfarsi eftir Jón Guðmunds-
son, og enn fremur mun Benóný
Ægisson leika söngleikjalög á
píanó. Líf í kjötfarsi verður flutt
stakt í Tjarnarsal 20. júní næstkom-
andi.
Þijár næstu helgar fer hópur
þáttakanda á kaffihúsaráp og rekur
inn nefið á Café List, 22, Café
Splitt, Café París og Ráðhúskaffi
seinni part dags undir yfírskriftinni-
„Eirðarleysi". Reynt verður að
halda þessum dagskrárlið lifandi
og má nefna að þar koma fram
upplesarar, trúbadorar og fólk með
gjörning í farteskinu.
Búið er að safna yngri og óþekkt-
ari skáldum hátíðarinnar saman í
kver sem selt verður samhliða
henni, nefnist það Kviður og vísar
titillinn væntanlega til áhuga hátíð-
armanna á fóstrum og fylgjum.
Fjölleikur nefnist umfangsmikil
og fjölskrúðug dagskrá sem flutt
verður tvívegis í Faxaskála og sam-
anstendur af sex stuttum leikþátt-
um er renna í eina heild. Meðal
annars verður frumflutt nýtt frum-
samið verk fyrir leikara og hljóm-
sveit eftir Benóný Ægisson, en
meðal höfunda annarra brota eru
N. Richard Nash, Sigurður Pálsson
og Anton Cheka. Fjöllistahópurinn
Inferno 5 stendur einnig fyrir uppá-
komu. Leikstjóri er Guðjón Sig-
valdason.
Dagskráin verður frumsýnd
sunnudaginn 20. júní og endurflutt
næsta dag.
Líf úr kviði nefnist leikþáttur sem
fluttur verður alls fjórum sinnum á
meðan hátíðinni stendur af leik-
hópnum Brennidepli, annars vegar
á kaffihúsunum Café París og 22
en hins vegar á útitaflinu við Lækj-
argötu. Agnar Jón Egilsson annast
leikstjórn auk smíði texta og þýð-
inga. Vérkið íjallar um fóstur sem
örlögin og eðlið leiða inn í heim
samkynhneigðar.
Uppákoma af ætt dansins birtist
í Faxaskála laugardaginn 26. júní
en auk þess lesa Sveinn Óskar,
Berta Ósk, Höskuldur Schram,
Brynja Þorgeirsdóttir og Sigurrós
Jóhannsdóttir úr verkum sínum.
Þar munu Lilja ívarsdóttir og Guð-
björg Árnadóttir flytja verk Lilju
sem nefnist Fugl, Anna Ríkarðs-
dóttir dansar Höfuðverk, Ástrós
Gunnarsdóttir flytur Óð til eldsins,
Ása Lind flytur dansverk við ljóð
Jónasar Þorbjarnarsonar, Maurico
Marques flytur dansverk við ljóð
Þórunnar Valdimarsdóttur og Ingó
Björn Sigurðsson flytur ónefnt
dansverk.
MYNDLIST
Sú leið var farin í myndlist hátíð-
arinnar að útvega eins stórt vegg-
pláss og mögulegt var og fá sem
flesta myndlistarmenn til samstarfs
og sýna þannig breidd þá sem gæt-
ir meðal myndlistarmanna, og verða
sýningar settar upp í tíu galleríum,
kaffihúsum og veitingastöðum í
miðbæ Reykjavíkur, auk Faxa-
skála. Allnokkrar samsýningar
verða: í Sneglu þar sem u.þ.b. 15
listamenn sýna, í Listmunahúsinu
þar sem u.þ.b. 13 listamenn sýna,
m.a. Dröfn Guðmundsdóttir, Krist-
Ólétturokk
með tilbrigðum
ÓHÁÐ Listahátíð hófst í annað sinn síðastliðinn miðvikudag með mikl-
um slagverksspuna við útitaflið í Bakarabrekkunni. Áberandi á lista-
hátíðinni, sem kallast Ólétt ’93, eru rokk- og sveimsveitir, en alls kem-
ur á níunda tug hljómsveita fram á hátíðinni sem leika allar hugsanleg-
ar gerðir tónlistar.
Bílskúrshljómsveitum hefur ekki
verið gert hátt undir höfði á
hérlendum listahátiðum, enda hall-
ast margur að þvi að slíkri lágmenn-
ingu ætti ekki að hampa úr hófi
og einnig hefur stefnan verið velja
siglda og sjóaða listamenn í stað
þess að nota tækifærið og kynna
ferskt og óreynt Iistafólk. Aðstand-
endur Oháðrar listahátíðar tóku
snemma þá ákvörðun að gera ekki
upp á milli listgreina og þetta ár
vex rokk- og sveimi enn fiskur um
hrygg, því hljómsveitir eru allmiklu
fleiri en áður, aukinheldur sem
tvennir blústónleikar verða á hátíð-
inni.
FJÖLBREYTNI
Halldór Auðarson, framkvæmda-
stjóri Óléttrar ’93, segir að ekki
hafi annað komið til greina hjá
aðstandendum að leyfa öllum sem
á annað borð hafa nennu og vilja
til þess að vera jjleð án nokkurs
gæða- eða getumats. Annað væri í
andstöðu við hugmyndafræði hátíð-
arinnar; að velja og hafna hljóm-
sveitum eftir persónulegum skoðun-
um eða mati. „Hljómsveitaval
Óléttrar ’93 sýnir vel ótrúlega mikla
grósku í íslensku rokki. Hljómsveit-
imar eru vitanlega misjafnar og
þeirra á meðal margar sem eru að
stíga sín fyrstu skref á sviði, en
þær hljómsveitir koma einmitt til
með að græða mest á því að taka
þátt í hátíðinni." Inn á milli eru svo
hljómsveitir sem áberandi hafa ver-
ið í íslenskum poppheimi síðustu
ár og tekið þátt í sumar- og jóla-
slag, en Halldór segir það einmitt
í anda óháðrar listahátíðar að
hljómsveitir mega spila ef þær vilja,
enda fær engin greitt fyrir.
SLAGVERKSVEISLA
Upphaf Óléttrar ’93 var mikil