Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 4
4 C
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993
C 5
LISTAHÁTÍÐ H AFN ARFJ ARÐAR
HURÐARLAUST
HELVÍTI
ÁRNI Ibsen vakti fyrst athygli á sér sem leikritaskáld með
snjöllu verki um samskipti Ijóðskáldanna Ezra Pound og
Williams Carlos Williams; Skjaldbakan kemst þangað líka.
Skepnur og óljós landfræðileg staða birtist líka í titli nýs
verks eftir hann sem frumsýnt verður á Listahátíð á Hafnar-
firði næstkomandi miðvikudag og heitir Fiskar á þurru landi.
Verkið var skrifað sérstaklega að pöntun Pé-leikhópsins
fyrir hátíðina og styrkt af Hafnarfjarðarbæ. Þrátt fyrir skyld-
leika titlanna eru verkin óskyld.
Knútur og Emma hírast í
ónefndum smábæ úti á
landsbyggðinni og reka þar
gistiheimili ásamt tilheyr-
andi matsölu. Hún er nokkuð við
aldur og tók hann að sér þegar
hann var þrítugur, upp í skuld
móður hans eftir því sem Knútur
segir. Samkvæmt gamalgrónum
leikreglum hefðarinnar eru þau
hneppt í fjötra rýmisins; kalkaður
veggur liggur í hálfhring um vista-
verur þeirra, rofinn af hurðargátt-
um. Annað hvort minnir þetta á
almenning er veit að dilkum, grískt
fangelsi eða hurðarlaust helvíti.
Líf þeirra er í föstum skorðum og
engra breytinga að vænta. Knútur
annast allt stritið á heimilinu utan
happdrættin, lottóin og útvarps-
leikina, þar er vettvangur Emmu
og e.t.v. hulin tekjulind þeirra,
enda þykist hún vera ófresk. Milli
þessa að spá í talnaraðir vikunnar
romsar hún út úr sér orðtökum og
stuðluðum frösum. Spakmæli
hennar enduróma sérlundaðan,
einangraðan hugarheim.
SKÖTUHJÚ MÆTA TIL
LEIKS
En dag einn ber nýtt við. Knút-
ur virðist vera kominn með vilja
og eins og hann segir sjálfur er
„ferlega ónotalegt að vilja eitt-
hvað.“ Ein sér hefði fæðing viljans
tæplega nægt til að velta kyrrstöð-
unni úr sessi, en umheimurinn ger-
ir einnig vart við sig í líki tveggja
nýrra gesta og heimsóknin sú ræð-
ur úrslitum. Skötuhjúin Guðbjörg
Jónsdóttir, kölluð Gúa, og Guð-
mundur Greipsson, kallaður
Gummi, mæta til stuttrar dvalar.
Erindi þeirra er óljóst en Emma
telur að Gummi, búinn skjalatösku
og enskum leðurheila, sé kominn
að sunnan til að setja eitthvert
fyrirtækið á hausinn í þessu
krummaskuði. Gummi er maður á
flótta að hennar mati;„einhvers
konar fjárglæframaður“, segir
hún, en „allt löglegt." Hann er
þræll reglu sem er að buga hann
andlega og aðeins spönn frá
taugaáfalli. Geðsveiflur hans bitna
fyrst og fremst á Gúu sem hann
segist sífellt vera að dytta að og
punta svolítið upp á til að gera
hana „samboðna sér“ en er ekki
sáttur við „hennar innri mann“ þó
hann „vegsami hana líkamlega."
Hún maular megrunarfæði.
Valdið í verkinu birtist raunar í
III
a*n9urwm j,
horéri hendL j
spegli; vald Emmu yfir fóstursyni
sínum er af svipuðum toga og vald
Gumma yfir Gúu. En þegar harð-
stjóri hittir harðstjóra verður gest-
urinn að lúta lögum gestgjafans.
Átökin eru þó dulbúin sem um-
hyggja Emmu og Knúts, ýkt gest-
risni sem er í raun slettirekuháttur
er stafar kannski af ógeði á öllum
gestum að fomu og nýju. Þau plaga
gesti sína með afskiptasemi. En
Gúa heillast af þessari umhyggju
Knúts, enda vön vendinum í dag-
lega lífinu. Eins og hann greinir
hún hjá sér löngun til að hafa vist-
arskipti, nýta þær sex útgönguleið-
ir sem veggimir geyma, en veit
Morgunblaðið/Bjami
Gummi (Ari Matthiasson)
vegsamar likama Gúu (Aldis
Baldvinsdóttir) en finnst
innri maóur hennar ekki
samboóinn sér.
ekki hvert stefnir. „Ég vildi geta
séð inn í framtíðina,“ segir hún
um hæfileika Emmu en Knútur
eyðir því tali: „Það getur verið leiði-
gjarnt eins og annað.“
Og þegar framtíðin er ótrygg
er nærtækt að kanna þætti ástar-
innar eða holdlega þætti, allt eftir
því hvernig á málin er litið. Knútur
og Gúa. Slík stefnumót leiða óhjá-
kvæmilega til uppstokkunar á inn-
byrðis tengslum persónanna og
valdahlutföllum. Þá taka leikar að
æsast.
Andrés Sigurvinsson leikstýrir
verkinu en með aðalhlutverk fara
Guðrún Ásmundsdóttir, Ólafur
Guðmundsson, Aldís Baldvinsdóttir
og Ari Matthíasson. Úlfur Karlsson
hannar leikmynd, Helga Rún Páls-
dóttir hannar búninga, Alfreð
Sturla Böðvarsson annast lýsingu
en Hilmar Örn Hilmarsson sér um
tónlist í sýninguna.
SFr
HVAÐ gerist þegar við höfum bara hvort annað? Amer-
íkanar hafa misst áhugann þegar Rússagrýlan er dauð,
umhleypingar í Evrópu, atvinnuleysi í landinu og ástand
í fjölskyldunni. Hvernig er eiginlega þetta ástand? Hópur
leikara hefur búið í listamiðstöðinni Straumi í Hafnar-
fjarðarhrauni í mánuð og athugað málið. Sett saman ís-
lenska sápuóperu á Listahátíð í Hafnarfirði, fjölskyldu-
harmleik með gríni og alvarlegum atriðum og dansi og
söng. Þar svífur súrrealismi yfir að sögn forsprakkanna
sem fóru ekki miklu nánar út í efni leiksins, sögðu hann
í mótun fram að frumsýningu þann átjánda. Það væri
þeirra aðferð.
Morgunblaðið/Þorkell
Úr íslenskum fjölskylduharmleik i Slraumi vió Hafnarfjöró. Árni Pétur Guójónsson og Steinunn
Ólafsdóttir.
Ámi Pétur Guðjónsson og Rún-
ar Guðbrandsson eru aðalhöfundar
„Streymis ’93“ en aðrir þátttak-
endur Steinunn Ólafsdóttir og
Harpa Arnardóttir, Björn Ingi
Hilmarsson og Anna E. Borg. „Og
fjöldinn allur af aukaleikurum,“
segir Rúnar, „úr Leiksmiðju
Reykjavíkur sem við höfum verið
með í Kramhúsinu fyrir áhugafólk.
En við sem útbúum þessa sýningu
heitum Lab leiksmiðjan og Ara-
leikhúsið er svona hattheiti yfir
allt saman. Eiginlega ættum við
að tala svolítið um Lab.“
Hún varð til í vetur og starfaði
í Hafnarhúsinu en hefur nú feng-
ið inni í Héðinshúsinu til tveggja
ára ásamt leikhópnum Fröken
Emilíu. Heima er best hét fyrsta
sýning Lab sem var í Gerðubergi
og gaf tóninn fyrir það sem koma
skal, en hópurinn stefnir áð tveim
stykkjum til viðbótar Streyminu
á þessu ári.
„Það sem er sérstakt við Lab
er að við vinnum saman daglega,
hvort sem sýning er á næsta leiti
eða ekki. Við æfum röddina og
líkamann og þróum með okkur
ákveðinn stíl. Rétt einsog dansari
eða tónlistarmaður þarf leikari á
þessu að halda. Og tengslin milli
leikaranna, fjórða víddin svokall-
aða, skipta mjög miklu máli. Ég
er leikstjóri hópsins," segir Rún-
ar, „en í mér býr andlegi leiðtog-
inn/‘ útskýrir Árni Pétur.
Ég held tíma kominn til þess
fyrir leikara að nota það sem þeir
hafa eins og þeim sjálfum líkar.
Fá þjálfun sem nær dýpra en sem
nemur æfingum og sýningum á
einu verki í senn og finna hvað
hægt er að gera. Ég vil hafa ein-
hvem stað, bara kassa, til að
gera eitthvað skemmtilegt. Hitta
þar vini mína og hafa gaman.
Leikari verður að fá að njóta vinn-
unnar, það er hart ef manni þyk-
ir þetta hjartans mál ljótt og leið-
inlegt.“
Lab fólki hefur ekki leiðst að
undanfömu, engin þurrð á efni-
viðnum. Tilvistarvanda þjóðar
með sjálfsímyndina í molum. Árni
Pétur og Rúnar lýsa þannig út-
gangspunkti í fjölskyldusögunni
sem á sér stað í Straumi.
„Við vinnum mikið í spunum,“
Lab leiksmiöj-
an frumsýnir
fjölskyldu-
harmleik i
Straumi næsta
föstudag
segja þeir, „handritið verður smám
saman til og hefur ekki tekið end-
anlega mynd þótt fmmsýningin
sé næsta föstudag. Svona viljum
við vinna. Leikarinn er aðalatriðið,
í honum býr sýningin, ekki í leik-
mynd eða búningum.“
Fimm sýningar verða á íjöl-
skyldudramanu í Straumi, þann
18., 20., 23., 24. og 29. júní. í
leiknum er tekið mið af aðstæðum
á staðnum, horft til Álversins
öðru megin húss og á hraunið
hinum megin, byijað og endað
úti við. „Leikritið er stefnumót
fjögurra leikpersóna og einnar
öðru vísi. Það gerist þarna, á þess-
um tíma. Áhorfandinn sér hvað
verður um okkur hér og nú.“
Þ.Þ.
LISTAHATIÐ SINNIIS-
LENSKRI MENNINGU
HALLDÓR Auðarson fram-
kvæmdastjóri segir hug-
myndafræðina á bak við Óháða
listahátíð fyrst og fremst þá
að auka samskipti á milli lista-
manna úr ólíkum listgreinum
og framkalla geijun í fram-
haldi af því. „Að listamenn,
yngri eða eldri, þekktir eða
óþekktir, skiptist á skoðunum
og geti út frá því sem þeir
finna í fari hvers annars fram-
kallað nýja strauma í íslenskri
listsköpun.“
Halldór segir líka vilja að-
standenda að sýna fram á að
menningarlíf sé samfélagslegt
afl sem hægt er að virkja á já-
kvæðan hátt. „Hátíðin byggist
að mestu á sjálfboðastarfi, það
er mjög lítið um opinbera styrki,
og þá finnur fólk hjá sér að þó
það fái ekki allt upp í hendumar
þá er hægt að framkvæma og
ef hugarfarið er jákvætt og þor-
ið, þá er hægt að hrinda ótrúleg-
um hlutum í framkvæmd.“
„í fyrra sá ég óháðu listahátíð-
ina sem ákveðið andsvar við
Listahátíð í Reykjavík, sem mér
fannst ekki sinna íslenskri menn-
ingu nægilega og sérstaklega
ekki þeirri menningu sem er að
þroskast. Aðalgallinn við Lista-
hátíð í Reykjavík er það hve lögð
Morgunblaðið/Kristinn
Halldór Auðarson.
hefur verið mikil áhersla á að
flytja inn listamenn. Það er mjög
gott að fá hingað erlenda lista-
menn og leyfa okkur að sjá hvað
þeir eru að gera, hvað er að
gerast úti í hinum stóra heimi,
en það er miklu mikilvægara að
leggja rækt við þá starfsemi sem
er í gangi hérna og listahátíð á
fyrst og fremst að sinna ís-
lenskri menningu. Við erum ekki
í menningarlegri einangrun leng-
ur og það er mjög auðvelt að
fara út og kynnast því sem þar
er á ferli. Listahátíð í Reykjavík
hefur lokast inni í hring, þar sem
menn fylgja fyrirfram ákveðnum
leiðum út frá gefnum forsendum,
en list er ekki eitthvert fyrirfram
ákveðið, hún er geijun þess sem
er í gangi í samfélaginu hveiju
sinni og hátíð á fyrst og fremst
aðsýna það.
í óháðu listahátíðinni eru allar
listgreinar eru jafn réttháar og
með því að leyfa öllum að vera
með, draga engin mörk erum við
að sýna að það er rangt að það
séu einhverjir aðilar sem velja
og hafna, sem ákveða hvað er
góð list og hvað ekki. List er
einstaklingsbundin skynjun- og
það á enginn að segja við okkur
hvað er góð list og hvað ekki.“
Á.M.
REIÐIROKK
í KAPLAKRIKA
HEIMSÓKNIR erlendra hljómsveita hingað til lands hafa
gengið brösulega undanfarin ár, enda oft reynt í sparnaðar-
skyni að fá hingað hljómsveitir sem hafa þegar sungið sitt
síðasta, eða ekki getað unnið sér nafn. Best hefur tekist til
þegar hér hafa komið hljómsveitir sem eru í þá mund að slá
í gegn; standa á hengifluginu albúnar til flugs. Ein slík
sveit, Rage Against the Machine, heldur tónleika í íþrótta-
húsinu í Kaplakrika í kvöld á Listahátíð Hafnarfjarðar.
Rage Against the Machine er
í hópi ferskustu rokksveita
sem fram hafa komið í
Bandaríkjunum síðustu ár,
en sveitin sendi frá sér sína fyrstu
breiðskífu seint á síðasta ári.
SÓSÍALÍSK LÍFSSKOÐUN
Rage Against the Machine er
skipuð þeim Tom Morello gítarleik-
ara, Zack de la Rocha söngvara,
Brad Wilk trommuleikara og
Timmy C. bassaleikara. Andlit
hljómsveitarinnar út á við eru þeir
Tom Morello og Zack de la Rocha,
en þeir aðhyllast báðir sósíalíska
lífsskoðun og segja reyndar að sú
skoðun hafi orðið hreyfíafl hljóm-
sveitarinnar í upphafi. Tom Morello
hefur vakið athygli fyrir frábæran
gítarleik, þó hann segist sjálfur lítt
vera gefinn fyrir „flugeldasýning-
ar“ á gítarinn, og á plötu hljóm-
sveitarinnar má heyra hann ná
ótrúlegustu hljóðum úr gítamum
án þess að leita á náðir tölvutækn-
innar. Tom er sonur fyrrum liðs-
manns Mau Mau-hreyfingarinnar
kenýsku sem barðist gegn yfirráð-
um Breta þar í landi, en móðir
hans hefur verið áhrifamikil í bar-
áttunni fyrir málfrelsi rokktónlist-
armanna og rappara. Tom er reynd-
ar tamt að vitna í pólitískar hetjur
á við Che Guevara þegar rætt er
við hann, en hann er hámenntaður
til viðbótar við gítarleik sinn; út-
skrifaðist með láði frá Harvard-
háskóla 1986.
Zack de la Rocha ólst upp hjá
móður sinni í Kaliforníu. í æsku
hafði hann helst dálæti á pönki,
t.a.m. Sex Pistols, en kynntist síðar
hardcorerokki, s.s. Bad Brains og
Henry Rollins, og fann þar reiði
sinni og fírringu farveg. Hann ólst
upp við ágæt kjör í efri miðstéttar-
hverfi, en fannst hann alltaf vera
utanvelta. Zack er ekki síður sann-
færður sósíalisti en Tom, en hann
hætti snemma í skóla til að helga
sig tónlistinni.
Minna ber á þeim Brad Wilk
trommuleikara og Timmy C. bassa-
leikara, en glöggir merkja þegar
vægi þeirra í hljómsveitinni og þeir
heyra til hennar, endar eru þeir
hvor um sig frábærir hljóðfæraleik-
arar.
Rage Against the Machine má
rekja til þess að Tom Morello var
að reyna að þrauka í fönksveitinni
Lock Up í Los Angeles, sem meðal
annars komst á samning hjá Geff-
en. Ekki kunni Tom verunni í Lock
Up og samstarfinu við Geffen nema
rétt mátulega, enda hafði hann hug
á að setja saman sósíalíska rokk-
sveit í anda Clash. Hann kynntist
Brad Wilk og saman fóru þeir að
leita að fleiri meðlimum í sveitina.
Þriðji inn var Timmy C. bassaleik-
ari og loks slóst í hópinn Zack de
la Rocha, sem þá var í hardcore-
sveitinni Inside Out.
Snemma náðu þeir félagar eyr-
um ráðsettari sveita og fengu með-
al annars það hlutverk að hita upp
fyrir stjörnur eins og Ice-T og sveit
hans Body Count, Public Enemy
og hljómsveit Perrys Farrels, Porno
for Pyros. Tom hefur lýst því að
þetta hafí gefíð hljómsveitinni for-
skot á jafnaldra: „Það var lán okk-
ar að hafa vakið athygli þessara
sveita sem gáfu okkur kost á að
hita upp fyrir sig, þannig að flestir
fyrstu tónleikar okkar voru hálf-
gerðir stórtónleikar, þar sem við
spiluðum fyrir mannhaf í fyrsta
flokks hljóðkerfi.“ Sú reynsla átti
líka eftir að koma sveitinni til góða
þegar hún fór í hljóðver að taka
upp sína fyrstu plötu. Áður en að
því kom tók Rage Against the
Machine upp tólf laga snældu sem
seld var á tónleikum og seldist á
skömmum tíma í fimm þúsund ein-
tökum.
MADONNU HAFNAÐ
Tónleikavelgengni sveitarinnar
og áðurnefnd kassetta varð eðlilega
til þess að vekja á henni athygli.
Með þeim fyrstu sem leituðu eftir
því að fá sveitina á samning var
Madonna, sem gera vildi hana að
flaggskipi þá nýstofnaðrar útgáfu
sinnar. Rage-liðum fannst það þó
lítt eftirsóknarvert og segja að per-
sóna Madonnu hefði um of skyggt
á málstað hljómsveitarinnar og
dregið brodd úr boðskapnum. Eftir
miklar samningaviðræður, þar sem
þeir félagar héldu til streitu full-
komnu frelsi sínu, gengu þeir á
mála hjá Sony-merkinu Epic, sem
gaf svo út fyrstu breiðskífuna.
Plötuna tóku þeir félagar upp
líkt og væru þeir að setja upp tón-
leika, enda vakti fyrir að hafa plöt-
una eins hráa og unnt væri. Þann-
ig settu þeir upp gríðarmikið hljóð-
kerfi í hljóðverinu og tóku upp
nánast beint. „Okkur fannst ekki
skipta máli þó allar rásir væru ekki
alveg hreinar,“ segir Tom, „frekar
var málið að ná kraftinum og reið-
inni, sem einkennir alla tónleika
okkar.“
Á TOPPINN Á ÍSLANDI
Þessi frumsmíð Rage Against
the Machine hefur vakið meiri at-
hygli en útgáfan og sveitin sjálf
átti von á og til að mynda skaust
hún á topp íslenska breiðskífulist-
ans mörgum að óvörum og er nú
í öðru sæti listans. „Við áttum aldr-
ei von á að komast á toppinn á
íslandi,“ sagði Tom Morello í við-
tali fyrir stuttu og bætti við að
þeir félagar hafi síst átt von á að
platan ætti eftir að komast á topp-
inn neins staðar, enda tónlistin
ekki líkleg til að falla öllum í geð.
Tom Morello segist geta lofáð
að finnist mönnum eitthvað til plöt-
unnar koma eigi þeir eftir að fara
yfirum á tónleikum, enda sé Rage
Against the Machine og tónlist
hennar sérsniðin fyrir tónleikahald.
TÓNLEIKAHASAR
Rage Against the Machine kemur
hingað í lok Evrópuferðar sveitar-
innar, annarrar slíkrar ferðar á
þessu ári, og ef marka má umsagn- _
ir blaða er engu upp á hljómsveitina
logið þegar tónleikahasar er annars
vegar. Tom Morello sagði reyndar
í áðurnefndu viðtali að hljómsveitar-
menn væru jafnan úrvinda eftir
hveija tónleika, en þessir tveir tímar
á sviðinu gæfu þeim þeim kraft til
að halda út löng og leiðinleg ferða-
lög á milli staða. Héðan heldur
hljómsveitin til Bandaríkjanna í
fjögurra daga frí, en þá hefst Sum-
argleði þeirra Bandaríkjamanna,
Lollapalooza, og verður þetta í ann-
að sinn sem Rage-liðar taka þá í
þeirri skemmtan.
Ekki er gott að segja hvort Rage
Against the Machine eigi eftir að
linast í hugmyndafræðinni við vel-
gengnina, en Tom segir þá félaga
ekki sprottna úr sárri fátækt, líkt
og margir pólitískir rapparar, sem
hafa misst fótanna við að verða
vellauðugir. „Fyrir okkur eru um-
skiptin ekki svo gríðarleg að hætta
sé á að við töpum áttum.“ Tom seg-
ir þá félaga gera sér neinar grillur
um að þeir muni breyta bandarísku
þjóðfélagi í einni svipan, en segir
þá hafa að leiðarljósi orð Ches Guev-
aras að ákveðinn og vel skipulagður
hópur sem reyni að breyta þjóðfélag-
inu geti áorkað miklu, sama hvað
hann sé lítill. „Við gerum það sem
við getum til að hafa áhrif á fólk
og vekja það til umhugsunar,“ segir
Tom og óhætt er að lofa í það
minnsta áhrifamiklum tónleikum
Rage Against the Machine í Kapla-
krika í kvöld.
Á.M.