Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 MARGLIT BROT ÚR REYKVÍSKU LISTALÍFI HUNDRAÐ íslenskir listamenn sækja Reykjavíkurdaga á sumarlistahá- tíðinni í Bonn í Þýskalandi. Þeir hefjast í dag með dansverkinu Ertu svona kona? Á morgun verða opnaðar sýningar á verkum Kjarvals og sex íslenskra myndlistarkvenna og síðan rekur einn viðburður annan næstu tvær vikur. Þetta er viðamesta kynning hátíðarinnar á list annarrar borgar og jafnframt mesta listagleði sem Islendingar hafa efnt til í Þýskalandi og þótt víðar væri farið um álfuna. Bonn- hátíðin stendur sem endranær allt sumarið, hún hófst um miðjan maí og endar ekki fyrr en í september. Þó að listahátíðahöldum linni ekki á íslandi þessa dagana eru heilmiklir kraftar héðan sunnar í álfu; tónlistarfólk, leikarar, skáld og málarar. Bonner Sommer er árleg menn- ingarveisla sem efnt hefur verið til frá 1971 fyrir Bonn- búa og fólk úr grannbyggð- um. Andreas Loesch, yfirmaður á menningarskrifstofu Bonn-borgar, segir að hátíðin sé hin stærsta í Þýskalandi. Þar eru jafnan kallaðir til listamenn frá tveim evrópskum borgum, annarri þeirra austantil í álfunni. Nú varð Minsk fyrir valinu auk Reykjavíkur, í fyrra voru það Riga og Helsinki og næsta ár fá Þjóðveijar Feneyjafólk í heimsókn. Borgimar tvær, Bonn og Reykjavík, standa saman að fjármögnun list- kynningarinnar. Stór og mikil menningarhátíð Bonn-hátíðin er þannig upp byggð að sérhvert tímabil mánuðina fjóra sem hún stendur er tileinkað ákveðnu efni. I maí byijaði ballið með andófsviku gegn útlendinga- hatri, þá komu dansdagar og nú um helgina hljómar víða í borginni tón- list frá Indónesíu. Á eftir Reykjavíkurdögum fylgja rokktónleikar, síðan bókavika og því næst sígild tónlist mestan hluta júlí- mánaðar. Þá verða líka leikhúsvikur sem teygja sig inn í ágúst með sýn- ingum víða að úr Evrópu og kvik- myndasýningar fjölmargra nýrra mynda undir berum himni. Bonn- hátíðinni lýkur undir miðjan septem- ber með framsæknum útileiksýning- um frá ýmsum Evrópulöndum og Kenya. Loesch segir að hátíðin sé skipu- lögð tvö ár fram í tímann. Hvað gestaborgirnar varði sé áhersla lögð á að sýna hvað þar sé í raun að gerast þá stundina. „Við viljum lif- andi list,“ segir hann, „í Reykjavík reyndist af nógu að taka. Ur varð umfangsmesta borgarkynning sem verið hefur á Bonn-sumrinu. Þjóð- veijar þekkja svo lítið til Reykjavík- ur og listafólks þar, það kemur ör- ugglega ýmislegt á óvart næstu daga.“ Myndlistin Reykjavíkurborg stendur að þremur sýningum á hátíðinni. Mark- ús Örn Antonsson borgarstjóri opn- ar sýningu á verkum Jóhannesar Kjarvals í upphafi Reykjavíkurdag- anna, sex íslenskar myndlistakonur sýna verk sín í kvennasafni borgar- innar og ljósmyndir úr Reykjavík verða líka sýndar. Kjarvalssýningin verður í Kúnst- lerforum í Bonn. í Þýskalandi hefur aldrei áður verið svo stór sýning á verkum listamannsins. Í tengslum við hana er gefin út vönduð sýningarskrá, bók með lit- myndum af öllum myndum sýningarinnar og ritgerðum um Kjarval, meðal annars texta Halldórs Kiljan Lax- ness um málarann. Listakonumar sem verk eiga í kvennasafninu á Reykjavíkurdögunum eru Brynhildur Þorgeirsdóttir, Hulda Hákon, Rúrí, Stein- unn Þórarinsdóttir, Svala Sigurleifsdóttir og Svava Bjömsdóttir. Vegna sýn- ingar þeirra hefur einnig verið vandað til sýningar- skrár með myndum af verk- um og höfundum auk til- heyrandi texta. Ein mynda Kjarvals á sýningunni ■ Bonn. Reykjavíkurborg stendur ennfremur að upplýsinga- sýningu um borgina í sam- vinnu við Ferðamálaráð. Þar gefur að líta ljósmyndir úr borginni og upplýsingar ýmiskonar. Þetta verk eftir Huldu Hákon er meöal þeirra sem veröa til sýnis i kvennasafn- inu neestu daga. Dans, leikur og bækur Dansleikhúsið Svalan sýnir í dag verk Auðar Bjarnadóttur, Ertu svona kona? Á morgun geta dansunn- endur í Bonn fylgst með tíu félög- um úr íslenska dansflokknum í þrem nýjum verkum. Það em Evri- dís eftir Nönnu Ólafsdóttur við tónlist Þorkels Sigurbjömssonar og tveir ballettar eftir William Soleau við tónlist eftir Bach og Stravinski. Fyrri verkin tvö vom fmmsýnd í Ráðhúsi Reykjavíkur í febrúar við góðar undirtektir en hið þriðja er nýtt. Sveinn Einarsson hefur sett á svið Bandamannasögu með leik- hópnum Bandamönnum og gefur að líta afraksturinn í Bonn á nærri klukkustundar sýningu á mánu- dagskvöld eftir rúma viku. A vegum þýsk-íslenska bók- menntafélagsins Fram halda til Bonn rithöfundarnir Einar Hei- misson, Einar Kárason, Sjón og Steinunn Sigurðardóttir og kynna verk sín í næstu viku. Halldór Guðmundsson bókmenntafræð- ingur og Wolfgang Schiffer rithöf- NY PERSONUDYRKUN Fjögurra mán- aóa ffiölþjóó- leg listahátíó í Bonn undur ætla líka að fjalla um íslensk- ar bókmenntir. Að Fram stendur ungt þýskt áhugafólk um íslenskar bókmenntir og listir, Sabine Barth og Frank Möller. Bíó og tónlist Á hátíðinni í Bonn verða sýndar kvikmyndir eftir íslenskar konur; Ásdísi Thoroddsen, Guðnýju Hall- dórsdóttur, Ingu Lísu Middelton, Kristínu Jóhannesdóttur, Margréti Rún og Svölu Hannesdóttur. Kvik- myndagerðarkonumar verða við- staddar sýningar mynda sinna, sem dreifast á fjögur kvöld milli 20. og 25._ júní. Ýmsir íslenskir tónlistarmenn koma fram á Reykjavíkurdögum. Blásarakvintett Reykjavíkur flytur verk eftir Áskel Másson og Pál Pampiehler Pálsson og Reykjavíkur- kvartettinn ásamt Steinunni Birnu Ragnarsdóttur píanóleikara verk eft- ir Jón Leifs og Leif Þórarinsson. Sigurður Bragason baritónsöngv- ari og Hjálmur Sighvatsson píanó- leikari flytja lög eftir Atla Heimi Sveinsson og Jón Leifs undir yfir- skriftinni „Söngvar ljóss og myrk- urs“, og Guðmundur Emilsson stjórnar Ensamble de Instrumental Grenoble með einleikurunum Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, Bryndísi Höllu Gylfadóttur, Elísabetu Waage, Martial Nardeau og Sigrúnu Eð- valdsdóttur, og einsöngvurunum Maríu de Alvear og Sigurði Braga- syni. Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Alliciu Terzian, Atla Heimi Sveinsson, Jón Nordal, Maríu de Alvear, Mist Þorkelsdóttur og Þorkel Sigurbjömsson. Ofangreindir tón- leikar fara fram í Kammermúsíksal Beethoven-hússins í Bonn, sem er einn þekktasti salur Iandsins af þessu tagi. Á hátíðinni koma einnig fram þjóðlagasveitin Islandica og Jazz- kvartett Reykjavíkur. í höfuðkirkju borgarinnar, Múnsterbasilíkunni, mun Hörður Áskelsson leika íslenska orgeltónlist eftir Jón Nordal, Pál ísólfsson og Þorkel Sigurbjömsson. Með orgel- tónleikunum lýkur úthaldi reykjavík- skra listamanna í Rínarlöndum. Eftir JÓHANN HJÁLMARSSON í nágrannalöndum okkar hefur vegur bókmenntagagnrýninnar og umræða um hana aukist. Finnski gagnrýnandinn Mic- hel Ekman skrifaði nýlega grein (Nya Argus nr. 2, 1993) um nokkur ný bók- menntafræðileg verk og kallaði hana Að ihuga hið óskiljanlega. Höfundar þessara verka eru margir hvetjir kunnir gagnrýn- endur. Heiti greinar Michels Ekmans er ekki valið út í bláinn. Sú hætta er alltaf fyrir hendi að bókmenntafræðingar skrifi þannig texta að hann sé óskiljanlegur þorra manna. Allur sá strúktúralismi og andstrúktúralismi (ég þori varla að nefna femínisma sem hefur náð sér á strik á Norðurlöndum og lifir nú í senn ris og fall) sem hefur stýrt evrópskri bókmennta- umræðu getur beinlinis fælt venjulega lesend- ur frá bókmenntum. Þá er gengið út frá því að bókmenntir séu ekki einungis skilaboð milli fræðimanna og skrif um þær sömuleiðis ekki æfingar háskólamanna í röklist. Persónan og skilgreiningin Michel Ekman bendir á það einkenni bók- anna sem hann íjallar um að í þeim öllum megi finna vaxandi tilhneigingu til að gera persónur rithöfundanna gildar í bókmennta- skilgreiningunum. Meðal þessara bóka eru bækur eftir gagn- rýnendurna Anders Olsson um Gunnar Ekelöf og Ebbu Witt-Brattström um Mou Martinson. Aðrar hafa fræðilegri markmið, t.d. Livets skrift eftir skáldið Magnus William-Olsson og Den svindlande texten, átta röster om poes- ianalys, þar sem Mikael van Reis safnar sam- an ritgerðum lærdómsmanna á borð við Walt- er Benjamin, Juliu Kristevu og Paul de Man. Það sem Michel Ekman telur óleyst þrátt fyrir góða viðleitni fræðimannanna er það „vandamál“ hvers vegna bókmenntir verða til, hvers vegna er skrifað. Persónan áhrifameiri en verkin í danska tímaritinu Krítik hefur átt sér stað viss andlitslyfting með nýjum ritstjórum, Frederik Stjernfelt og Poul Erik Tojner. Þeir ræða í nýjasta heftinu (nr. 102) um það hvem- ig persóna rithöfundar, ævi hans verður áhrifameiri í umfjöllun en verkin sjálf. Jorn Erslev Andersen skrifar í framhaldi af því grein sem hann nefnir Nýja persónudýrkun. Þar ræðir hann ævisögur Keld Zeruneith um dönsku skáldin Emil Aarestrup, Johannes Ewald og Sophus Claussen. Áhyggjur fræðimanna af þessum ævisögum og „vinsælum“ ævisögum yfirleitt snúast um að verið sé fyrst og fremst að koma til móts við kaupendur, lesendur vilji fyrst og fremst bækur um rithöfunda sem lifað hafi viðburða- ríku og átakamiklu lífi. Með því móti geti rit- höfundar sem lagt hafi meira upp úr listinni en ,,lífinu“ beinlínis horfið í skuggann. Án þess að fara út fyrir Danmörku má í þessu sambandi minna á Karen Blixen. í sam- Michelangclo: Lor- enzo' de Medici. Hluti grafskreytingar. Myndin er úr tímarit- inu Kritik. Þarff texti bók- menntaffræó- inga oó vera óskiljanlegur? tali Marianne Juhl í sama Kritik-hetti við Peer Hultberg, nýjan verð- launahafa Norðurlanda- ráðs, lýsir hún því yfir að þeg- ar hún lesi Syv Fantastiske Fortællinger eftir Blixen verði henni ljóst hve mikið af hennar eigin ævi, persónum og atburðum, sé þar að finna. Á þessu átti maður sig vegna hinna mörgu bóka um ævi Blixen og einnig bréfasafna. Juhl dregur þá ályktun að Requiem Hult- bergs sé aftur á móti bók um fjölmörg mis- munandi örlög sem ekki bindist höfundinum sjálfum eða varði hann persónulega. Svar Hultbergs kemur ekki beinlínis á óvart: „Það er nú meira af mér í bókinni en menn halda. Og eins og þú segir þá er ævisaga Karenar Blixen þekkt. Mín er það ekki.“ Nýr Brandes? Ein af þeim bókum sem Michel Ekman getur um er Stilen och lyckan eftir Horace Engdahl. Frederik Stjernfelt telur að með Engdahl sé hugsanlega kominn nýr Brandes, en enginn Brandes eftir Brandes hafí verið sýnilegur á Norðurlöndum fyrr. Horace Engdahl hefur afrekað það m.a. að semja rit um sænska rómantík og hann er afkastamikill gagnrýnandi hjá Dagens Nyhet- er í Stokkhólmi, skrifar um bókmenntir, heim- speki og ballett. Hann gerir sér grein fyrir mikilvægi kenninga og fræða, en er engu að síður litinn hornauga af háskólamönnum. Að hans mati eru kenningarnar gervi sem geta hjálpað til skilnings á bókmenntunum. Kostir Engdahls eru að margra dómi hvernig hann skrifar, framsetningin, stíllinn. Hann er talinn hafa það á valdi sínu að skrifa fagurbókmennt- ir um fagurbókmenntir. Þessi nýi Brandes hefur til að bera það sem svo marga bókmenntafræðimenn og gagnrýn- endur skortir. Þeir verða líkt og hann að finna þá millileið sem veldur því að fleiri en útvald- ir hafi áhuga á skrifum þeirra og njóti þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.