Morgunblaðið - 21.07.1993, Page 11

Morgunblaðið - 21.07.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993 11 Jaanus Mikk Morgunblaðið/Einar Falur Tríó Grande; f.v.: Hjörleifur Valsson, Hávard Oieroset og Marius Flatby. Sólon íslandus Síðustu tón- leikar hjá Tríó Grande SÍÐUSTU opinberu tónleikar Tríós Grande, sem hefur leikið víða um land undanfaríð, verða á efri hæð kaffihússins Sólons íslandus á morgun, fimmtudag- inn 22. júlí kl. 20.30. Tríóið er norskt-íslenskt, skipað þeim Hjörleifi Valssyni, fiðluleik- ara, Hávard Oieroset, gítarleikara, og Marius Flatby, kontrabassaleik- ara. Þeir félagar hafa ferðast um landið undanfarnar vikur, m.a. um Vestur- og Norðurland, en norski hluti tríósins heldur nú til Noregs og er þetta því síðustu forvöð að berja það augum. Lagaval tríósins spannar allt frá tónlist ABBA, Led Zeppelin og Evert Taube til ungverskrar og rússneskrar þjóðlagatónlistar. Þre- menningamir sjá sjálfir um allar útsetningar auk þess sem frumsam- in tóniist er ávallt á efnisskrá. í frétt um tónleikana segir að léttleikinn verði „í fyrirrúmi á tón- leikunum og lögð áhersla á að tón- leikagestir njóti tónlistarinnar með öllum skilningarvitum og líkams- hlutum". Efnisskrá tónleikanna verður kynnt jafnóðum. ------» ♦ ♦ Þjóðminjaráð lýsir vanþókn- un á blaða- mennsku Pressunnar Á FUNDI þjóðmiiyaráðs í Þjóð- minjasafni Islands þriðjudaginn 13. júlí var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: „Hinn 1. júlí sl. birtust í fyrir- sögnum í vikublaðinu Pressunni grófar aðdróttanir í garð nafn- greindra einstaklinga um misferli með opinbert fé og voru þær lagðar í munn þjóðminjavarðar. Hann hef- ur nú borið þær til baka sem rang- túlkun á orðum sínum innan í blað- inu. Þjóðminjuaráð lýsir megnustu vanþóknun á þessari blaða- mennsku.“ Norræna húsið Fyrirlestur o g kvik- mynd um Eistland Sumartónleikar Mannréttindi í Eistlandi er efni fyrirlestrar og kvikmyndar sem verður á dagskrá í Nor- ræna húsinu í kvöld, miðviku- daginn 21. júlí kl. 20. Jaanus Mikk, sem starfar sem ráðgjafi hjá Norrænu upplýsinga- skrifstofunni í Tallinn, heldur fyrirlesturinn og talar á norsku. Ennfremur verður sýnd kvikmynd með enskum texta: „Are Human rights being abused in Estonia?“ Sýningartíminn er 38 mín. Janus Mikk er staddur hér á landi til að læra íslensku á nám- skeiði, sem stofnun Sigurðar Nor- dal stendur að. Hann hefur áður stundað nám við háskólann í Tertu og hefur lesið norsku í Noregi í hálft annað ár. ÁSHILDUR Haraldsdóttir, flautuleikari, og Þorsteinn Gauti Sigurðsson, píanóleikari, halda á næstu dögum tónleika víðsvegar um landið. Þau koma fram á ísafirði mið- vikudagskvöldið 21. júlí, á Dalvík fímmtudagskvöldið 22. júlí, á Akureyri laugardaginn 24. júlí, í Ráðhúsi Reykjavíkur, þar sem aðgangur er að venju ókeypis, sunnudaginn 25. júlí kl. 16, og að endingu á Höfn í Homafírði þriðju- dagskvöldið 27. júlí. Ashildur og Þorsteinn Gauti hafa hvort í sínu lagi getið sér gott orð fyrir leik sinn bæði hér á landi og erlendis, en koma nú fram Áshildur Haralds- Þorsteinn Gauti dóttir Signrðsson saman í fyrsta sinni. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Marin-Marais, Ben- Amtos, Ibert, Berio, Bach og Böhm. Lúxus garðstóll með háu baki Nú 2 stk jj@9cr.- 2500.- Risasólhlíf 3m í þvermál Framleidd úr gegnheilu gæða timbri og sterkum striga Ótrúlegt verð ATH. fótur ekki innifalinn 996(1.' 4900.' Krínglótt garðborð 90 sm í þvermál Ótrúlegt verð 2§0Cf.- 1990.- 2990. 2490. Hjólavagn Með 4 hjólum 2 hillum og sæti fyrir flösku. St. 80x50 sm keifunm 13 Auðbrekku 3 Norðurtanga 3 eykjavík Kópavogi Akureyri 11168 74 99 (9114 04 60 (9612 66 62 Tangagötu 1 Vestmannaeyjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.