Morgunblaðið - 21.07.1993, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.07.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993 25 Gróa Asmunds- dóttir — Minnlng silfurberg það sem nú skreytir hvelfinguna í Háskólakapellunni og krossinn í Akureyrarkirkju. Eftir að eiginlegur söngferill Sigurðar var að baki, starfaði hann um tíma við búfjártalningu á höfuðborgar- svæðinu og sem matsmaður í slát- urhúsum víða um land. Sjálf kynntist ég Sigurði fyrst i gegnum starf mitt hjá Ríkisútvarp- inu þegar hann varð viðmælandi minn í útvarpsþætti. Síðar skrifaði ég endurminningar Sigurðar „í söngvarans jóreyk" sem komu út árið 1991. Við vinnslu þeirrar bókar kynntist ég þeim hjónum vel og á milli okkar skapaðist óijúfanleg vin- átta og virðing. Stærstan hluta bókarinnar vann ég í sumarhúsi þeirra „Heiði“ sem staðsett er á heimaslóðum Snúllu í landi Miðdals. Þar sátum vjð löngum stundum og festum á blað ævi söngvarans og hestamannsins Sigurðar Ólafsson- ar. Þá naut ég ómetanlegrar aðstoð- ar Snúllu, sem fyllti upp í þær eyð- ur sem myndast höfðu hjá Sigurði, eftir að hann veiktist af heilablæð- ingu árið 1988. Með Sigurði Ólafssyni er genginn einn merkasti samtímamaður okk- ar. Að öðrum ólöstuðum lagði hann grunninn að hestaíþróttinni hér á landi á þann hátt sem honum einum var lagið. Á milli hans og hesta hans var ósýnilegur þráður sem skapaði eina heild. Hann bar virð- ingu fyrir hestum sínum og sagði jafnan að enginn gæti vænst árang- urs hjá vansælum hesti. Um leið og ég kveð vin minn með virðingu og þökk fyrir alltof stutt kynni leyfi ég mér að vitna í lokaorð hans sjálfs í æviminningun- um. Þau orð segja allt sem segja þarf um söngvarann og hestamann- inn Sigurð Olafsson: „Þegar ég hef verið spurður hvort ég hafi verið betri söngvari en hestamaður, hef ég svarað þvi eitt- hvað á þá leið að sigur í 250 metra skeiði sé mun sætari en dynjandi lófatak þakklátra áheyrenda. Lófa- takið deyr nefnilega út að lokum, en sigurinn á kappreiðabrautinni lifir áfram. Kannski svara ég þeirri spumingu einna best með því að segja hvers ég óskaði mér, ef ég mætti hverfa áratugi aftur í tímann og verða ungur á ný. Þá myndi ég vilja búa á reisulegum bóndabæ sunnan við Skorradalsvatn með Snúllu og bömunum. Á kvöldin myndum við ríða um moldargötum- ar við vatnið á Hetti og Glettu og njóta ilmandi kjarrlyktarinnar. Heima í hlaði biði okkar síðan heilt stóð af ljósum gæðingum. En söng- inn myndi ég hafa sem aukabú- grein.“ Svo mörg vom þau orð. Nú hverf- ur Sigurður á vit sinna gengnu gæðinga sem hann unni svo mjög og einkenndu lífshlaup hans. Um leið og ég votta Snúllu og fjölskyld- unni allri samúð mína er það ósk mín að minning hans lifi svo lengi sem slegið verður undir nára hér á landi. Ragnheiður Davíðsdóttir. Þeir tína tölunni gömlu snilling- amir sem lögðu grunninn að hesta- mennskunni eins og við þekkjum hana í dag. Sterkir persónuleikar sem sagan geymir. Eg var tæpra 14 ára þegar ég hitti fyrst Sigurð Ertídnkkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð íallegir salir og rniög göð þjónusía. Ipplýsingar ísíma22322 FLUGLEIÐIR aím tomíiiis Ólafsson og mér er það enn minnis- stætt hversu sterk áhrif hann hafði á mig. Það var auk þess mikil upp- hefð að vera í návist þessa manns sem söng með sinni hljómfallegu rödd í öllum helstu óskalagaþáttum útvarpsins. Maður varð ijóður í kinnum og hjartað sló örar þegar hann ávarpaði mann. í samskiptum við aðra voru lítil formlegheit á hlutunum hjá Sigga. Annaðhvort tók hann fólki eða ekki. Ég var einn þeirra lánsömu sem var í náðinni. Með okkur tókust löng og góð kynni sem urðu að vin- áttu. Ég ferðaðist með honum um landið þvert og endilangt. Við þræddum kappreiðar víða um land- ið, oft tveir saman með allt að þijá- tíu hross í rekstri. Siggi var listamaður í allri með- ferð hrossa. Hrossin hans báru af öðrum hrossum hvað fóður og hirð- ingu snerti. Hvítu hrossin hans, sem voru hans vörumerki, voru ævinlega hrein og strokin, sem ekki er vanda- laust með hross á húsi. Þau voru þétt á bolinn og feldurinn gljáandi. Andstætt við marga keppnismenn vildi Siggi hafa hrossin í góðri sæld og þéttu holdafari. Þannig sagði hann að þau myndu endast og hafa af einhveiju að taka. Ég hef haft þessa kenningu Sigurðar að leiðar- ljósi og sannfærst um réttmæti hennar. Oft var setið í eldhúskrókn- um í Laugarnesi og hlustað á spek- ingana rökræða um hesta og hesta- mennsku, rifjaðar upp hestaferðir og þegið eitthvað góðgæti hjá Snúllu. Þegar sagt er, að maður og kona séu eitt, þá átti það svo sannarlega við þau Sigga og Snúllu. Þar var allt gert af krafti og per- sónuleikar þeirra sköpuðu þá mögn- uðu spennu sem mér fannst um- lykja þessi heiðurshjón. Siggi var skapmikill og snöggur upp og manni lærðist fljótt að vera snöggur að framkvæma það sem til var ætlast og hlýða því sem hann sagði. Sama var með hrossin, þeim var kennt að hlýða með ákveðni en sanngimi. Mér er minnisstsætt er við eitt sinn vorum á ferð um Borg- arfjörð, tveir einir með þijátíu hesta hóp. Við riðum niður Skorradal í blíðskaparveðri og allt gekk vel. Siggi reið fyrir hópnum og ég á eftir. Það lá vel á okkur og ég söng hástöfum. Ég naut þess að vera til. Þegar í áningastað var komið, bað Siggi mig í guðanna bænum að hætta að syngja, því bændur sem heyrðu til okkar myndu vera þess fullvissir, að nú væri Siggi Óla dott- inn í það. Ég hætti að syngja, en of seint, því sagan flaug. Siggi var frábær sögumaður og eftirherma. Hann var hrókur alls fagnaðar á góðri stundu og sóttust menn eftir að vera í návist hans. Meðal hestamanna var Siggi ekki síður dáður fyrir snilld sína á hest- baki en fyrir sönginn. Á fjórðungs- móti í Borgarfirði var Siggi eitt sinn í dómnefnd gæðinga. Eigendur sýndu hesta sína fyrir framan dóm- nefnd, en síðan fór einn fulltrúi úr dómnefnd á bak og gaf öðrum nefndarmönnum umsögn, áður en endanlegur dómur var skráður. Þá kom það iðulega fyrir, að getulitlir gæðingar sem eigendur voru búnir að sýna dómnefnd, urðu. að flug- vökrum gæðingum, þegar Siggi prófaði þá, en þeir gæðingar sem annar fulltrúi dómnefndar fór á bak, virtust litlu bæta við sig. Þarna lenti dómnefndin í miklum vand- ræðum með að raða gæðingunum 5 sæti. Aðal vandamálið var því í rauninni snilli Sigga sem laðaði allt það besta fram í þeim hrossum sem hann kom á bak, en hin sýndust þurfa að gjalda knapa sinna. í skeiðkeppni var árangur hans og Glettu engu líkur. íslandsmet þeirra í skeiði stóð í áratugi. Siggi var mikill læknir, þó ólærð- ur væri. Ég veit þess ótal dæmi að hann kom sjúkum hrossum til bata sem lærðir dýralæknar voru búnir að gefa upp á bátinn. Hann taidi ekki eftir langar stundir og jafnvel heilu sólarhringana við að hjúkra veiku hrossi. Ánægjan með vel heppnaða aðgerð og hlýtt handtak eigandans voru laun hans. Hugsjón- in var þannig ætíð ofar veraldlegum gæðum. Það verða mikil viðbrigði fyrir Snúllu nú þegar Siggi er fallinn frá, eins samrýnd og þau voru. En kraftur hennar er mikill og ég er þess fullviss að henni verður mikill styrkur í því að finna samhug vina þeirra um land allt. Nú þegar við kveðjum listamanninn Sigurð Ólafs- son votta ég Snúllu og börnum þeirra samúð mína og þakka marg- ar góðar stundir. Sigurbjörn Bárðarson (Diddi). Erfiður vordagur var að kveldi kominn. Úti fyrir hesthúsinu lá reið- hestur minn illa haldinn af hrossa- sótt. Dýralæknirinn var búinn að koma í tvígang um daginn. Meira var því miður ekki hægt að gera. Ég var einn eftir í Víðidalnum og hesturinn minn var í dauðateygjun- um. Ég hringdi í ráðagóðan vin. Hvað átti ég að gera við blessaðan hestinn? Ekki gat ég komið honum í hús. Ekki gat ég látið hann bíða dauða síns úti í réttinni. Vinurinn ráðlagði mér að tala við Sigurð Ólafsson. Það gat ég ekki. Ég þekkti Sigurð ekki neitt, það væri komin nótt og auk þess ekkert sem hann gæti gert eins og nú væri málum komið. Hann bauðst til þess að hringja í Sigurð. Sagðýmér síðan að hann væri á leiðinni. Ég lét gott heita en sá þó litla glóru í þessu tilstandi. Nóttin var björt, veður hlýtt og stillt. Sigurður var sem í öðrum heimi. Einbeitingin, um- hyggjan og góðvildin skein úr hveij- um andlitsdrætti og hveiju hand- taki. Hann bar sig fagmannlega að verki. Það stafaði frá honum örygg- ið og sigurvissan. Kannski var þetta ekki vonlaus barátta. Það var kom- inn morgun þegar Sigurður kvaddi. Hesturinn lifði og varð sigursæll gæðingur. í huganum lifir ljúf minning um vornótt í Víðidal og mín fyrstu kynni af manni sem ungur átti sér stóran draum - að verða dýralæknir. Ragnar Tómasson. Það er við hæfi að ég láti.eftir fáein kveðjuorð vegna Gróu Ás- mundsdóttur. Að nokkrum vikum liðnum eru full 65 ár síðan kynni okkar hófust í ungmennaskóla séra Sigtryggs á Núpi haustið 1928. Hún var fædd á Akranesi 15. september 1910. Þar ólst hún upp með móður og stjúpa því að faðir hennar dó frá henni barnungri. í skóianum á Núpi fann hún lífsföru- naut sinn, Baldvin Þ. Kristjánsson. Þau giftust 15. apríl 1931 og áttu því 60 ára hjúskaparafmæli síðasta vorið sem bæði lifðu. Séra Sigtryggur ræddi við okkur nemendur sína um nöfn okkar og merkingu þeirra. Hann sagði að Jón Thoroddsen hefði unnið óhappaverk þegar hann skapaði Gróu á Leiti og valdi henni nafn. Vandfundið væri nafn sem betur hæfði góðri konu en Gróa. Og vel hefði Stefáni skólameistara sómt að velja bók sinni um íslenskar jurtir það nafn í stað þess að leita í latínuna. Þetta hefur mér orðið einna minnisstæðast þess er séra Sig- tryggur sagði um nöfn okkar. Mér fannst Gróa bera nafn sitt með sóma og svo hefur mér þótt jafnan síðan. Gróa Ásmundsdóttir hafði ákveðnar skoðanir og trú. Hún var hlédræg en hafði fastar hugmyndir um skyldur móður og konu og raun- ar mannlegar skyldur yfirleitt. Ég held að lífsskoðun hennar speglist allvel í sænsku erindi sem Baldvin lærði ungur og vitnaði gjarnan til, þegar hann vildi gera grein fyrir viðhorfum sínum. Ég held að hugs- unin skili sér óbijáluð ef við höfum þetta erindi svona á íslensku: Að gæta hófs að dekra sjálfan sig, en samúð glæða háum með og lágum, það greiðir okkar gðngu á betra stig þess guðsríkis sem öll við sífellt þráum. Hópur jafnaldranna þynnist óð- um. Það minnir okkur á takmörk okkar og að sá tími sem okkur er markaður hverfur óðum. Við höfum fengið okkar tækifæri. Og við kveðjum Gróu Ásmundsdóttur með þökk fyrir samfylgdina í fullri vissu þess, að hún notaði sín tækifæri vel. Halldór Kristjánsson. t Ástkaer eiginmaður minn, GUÐMUNDUR SIGMARSSON, Ólafsbraut 62, Ólafsvík, verður jarðsunginn frá kapellu kirkjugarðsins í Hafnarfirði fimmtu- daginn 22. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafélag Islands. Una Þorgilsdóttir. t Ástkaer móðir okkar, ÁSTA G. BJÖRNSON, áður til heímilis í Reynihlíð, Garðabæ, sem lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, þann 15. júlí, verður jarðsungin frá Garðakirkju föstudaginn 23. júlí kl. 13.30. Gunnar Björnson, Guðrún Humphrey, Guðmundur Björnson. t Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ÞORVALDAR KRISTINS ÞORVALDSSONAR, Grettisgötu 92. Steinunn H. Ólafsdóttir, Margrét R. Þorvaldsdóttir, Jeffrey R. Pease, Freyja Þorvaldsdóttir, Hörður Sigþórsson, Auöur Þorvaldsdóttir, Eli Halldórsson, Ólafur G. Egilsson, Sigrún Hannibaisdóttir, Eydís Egilsdóttir, Erna S. Egilsdóttir og barnabörn. + Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför GUÐNA LÚÐVÍKSSONAR, Keilufelli 23. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11E Landspítalanum fyrir einlæga og góða umönnun. Guð blessi ykkur. Guðný Eygló Gunnarsdóttir og börn, Lúðvík Guðmundsson, Guðrún Thorarensen, Ásta, Guðmundur Ingvar, Jón, Eygló Rut og Bryndís. + Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur hlý- hug og samúð vegna andláts og jarðarfarar móður okkar, JÓNÍNU ÓLAFSDÓTTUR, Droplaugarstöðum. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á Droplaugarstöðum fyrir frábæra umönnun og hlýju til hennar. Einnig þökkum við þeim, sem heimsóttu hana og styttu henni stundir eða veittu henni gleði á annan hátt. JóhannJónsson, Guðrún Milburn, Rannveig Sommer. + Innilegar þakkir fyrir vinsemd og samúð við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa JAKOBS LÖVE. Margrét Jónsdóttir, Þorvarður Jón Löve, Karl Jakob Löve, Laufey Elísabet Löve, Jón Ingi Herbertsson, Þóra Löve, Ómar Másson, Matthildur Löve, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.