Morgunblaðið - 21.07.1993, Side 36

Morgunblaðið - 21.07.1993, Side 36
9V0pnn(lftfetí> óskaÍIlífeyrir iið /x'nii m/i/ M*. Simi 91-692X00 3 RE'.................. SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 21. JULI 1993 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Nafnvextir banka og sparisjóða hækka í dag um allt að 2%% Viðskiptaráðherra segir full langt seilst SIGHVATUR Björgvinsson viðskiptaráðherra segist telja að bankarn- ir seilist full langt með vaxtahækkunum sem verða í dag og nefnir sérstaklega vexti og vaxtamun íslandsbanka sem hann segir allmik- inn. Hann segist óska greinargerðar um málið frá Seðlabankanum í dag og kveðst grípa til aðgerða ef eitthvað óeðlilegt komi í ljós. Bankar og sparisjóðir, aðrir en Landsbankinn, hækka óverðtryggða útlánsvexti í dag. Mesta vaxtahækkunin er hjá Búnaðarbanka, 2,5%, og er bankinn nú með hæstu meðalvexti í almennum skuldabréfaút- lánum. Vextir íslandsbanka hækka almennt um 2% og sparisjóðanna nálægt 1%. Hluti innlánsvaxta hækkar jafnframt hjá Búnaðarbanka og sparisjóðunum. Gylfi Arnbjörnsson hagfræðingur ASÍ segir að sér virðist bankarnir meta verðbólguna á mælikvarða lánskjaravísi- tölunnar miklu hærri en forsendur séu fyrir. ísólbaði Morgublaðið/Ingvar HÖFUÐBORGARBÚAR lögðu margir leið sína í sundlaugar í gær til að njóta sólarinnar en dagurinn var sá heitasti sem komið hefur á suð-vestur- horninu í sumar. Hitinn í Reykjavík mældist rúmlega 17 stig þegar hlýj- ast var og klukkan 21 í gærkvöldi var hitinn í Keflavík 16 stig. Þar var þá hlýjast á landinu en það er afar sjaldgæft, að sögn veðurfræðings á Veðurstofu íslands. Norðan- og austanlands var svalt í gær, 5 til 9 stig og súld. Veðurstofan býst við svipuðu veðri í dag. Fundust heilir á húfi TVEIR veiðimenn fundust heilir á húfi í nágrenni Þórisvatns í gær en þeirra hafði verið saknað á sunnudagskvöldið er þeir skiluðu sér ekki til byggða á áætlun. Mennirnir höfðu fest sig og orðið strandaglópar á þessu svæði en ákváðu að halda kyrru fyrir og bíða eftir hjálp. Lögreglan á Hvolsvelli segir að engin hætta hafi skapast; þeir hafi verið vel vistaðir auk þess sem veður hafi verið gott á þessum slóðumi Mennirnir voru með fjarskiptatæki en lögreglan segir notkun þeirra mjög erfiða á þessum slóðum. Búnaðarbanki og íslandsbanki segja að hækkun nafnvaxtanna sé vegna verðlagsáhrifa gengisbreyt- ingar og að hækkunin sé fyrr á ferð- inni en áætlað hafi verið vegna þess að verðhækkanir komi fyrr fram en búist hafi verið við. „Óhjákvæmilegt er að þessi tímabundna bylgja verð- hækkana segi til sín í nafnvöxtum, þannig að þeir fylgi verðbreytingum í stórum dráttum," segir í fréttatil- kynningu íslandsbanka. Jón Adolf Guðjónsson, bankastjóri Búnaðar- bankans, tekur í sama streng, segir að bankinn hafi ekki efni á því að draga vaxtahækkun þegar svona snögg hækkun verðlags ríði yfír og því hafí hluti af hækkuninni verið tekinn strax inn í forsendur vaxta- ákvarðana. Jón Adolf og Björn Bjömsson framkvæmdastjóri íslandsbanka segja að þrátt fyrir þessa hækkun nafnvaxta séu þeir lægri að raun- gildi en vextir vísitölubundinna lána. Því telja þeir líklegt að nafnvextir muni hækka enn frekar á næstunni en muni svo hjaðna aftur í lækkandi verðbólgu með haustinu. Ekki einir í heiminum Sighvatur Björgvinsson viðskipta- ráðherra segir að sum fyrirtæki hafí ekki látið afleiðingar gengislækkun- arinnar koma að fullu fram í verði til að reyna að ná verðlagsáhrifum Meðalvextir almennra skuldabréfalána frá21.júlí 1993 14,9% 14,8% 13,4% Akropolisskákmót Sigurmn blasir við Hannesi HANNES Hlífar Stefánsson hefur unnið sjö fyrstu skákir sínar á Akropolisskákmótinu sem nú stendur yfir í Aþenu og þarf hálfan vinning úr tveimur síðustu skákum sín- um til að tryggja sér sigur á mótinu. Tíu stórmeistarar taka þátt í mótinu auk Hannesar, þar á meðal Margeir Pétursson en hann er í 2.-7. sæti með 5'/2 vinning. Áttunda umferð verð- ur tefld í dag en mótinu lýkur á fímmtudag. Þetta er annað mótið sem Hannes teflir á síðan hann var útnefndur stórmeistari. hennar eins fljótt niður og hugsan- legt sé. „Mér fínnst að bankamir verði að gera sér það ljóst að þeir hafa einnig ábyrgð í þessu efni, bankamir eru ekkert einir í heimin- um,“ segir Sighvatur. Gylfi Arnbjömsson hagfræðingur ASÍ segir að þessi vaxtahækkun geti í sjálfu sér stuðlað að því að verðbólguvæntingar bankanna verði að veruleika. Hún leiði til hækkunar verðlags og því séu bankamir að búa sér til forsendur fyrir vaxtahækkun. Fólksbíll valt í þoku FÓLKSBÍLL valt við Háls í Ljósavatnsskarði seint í gær- kvöldi og hafnaði utan vegar. Engin slys urðu á fólki en bíllinn er mikið skemmdur. Lögreglan á Húsavík segir að orsakir slyssins megi. að nokkru rekja til slæmra aðstæðna en þoka grúfði yfir blautum veginum. Harður árekstur varð einnig í gær í umdæmi Húsavíkurlögregl- unnar þegar tveir bílar skullu sam- an á brú yfir Jökulsá á Fjöllum. Þar urðu slys engin en eignatjón varð nokkurt. Finnur Jónsson listmálari látinn á 101. aldursári NESTOR íslenskra myndlistar- manna, Finnur Jónsson, lést að- faranótt þriðjudags á Hrafnistu í Reykjavík. Hann var á 101. ald- ursári. Finnur var einn helsti frumkvöðull íslenskrar myndlist- ar á þessari öld og brautryðjandi í listgrein sinni. Verk hans eru víða þekkt, bæði innan- og utan- lands. Hann starfaði meðal annars með þekktum brautryðjendum nútímalistar og er talinn upphafs- maður afstraktlistar á Islandi. Hann snéri þó ungur frá þessari stefnu og helgaði list sína raunsæi og natúralisma, málaði bæði land og fólk og þá ekki síst sjómenn og báta og úfið haf við Islands- strendur. Fullyrða má að Finnur Jónsson hafi verið einn þekktasti myndlistarmaður landsins enda sérstæður og mikilvirkur fulltrúi listar sinnar. ‘Finnur Jónsson fæddist 15. nóv- ember 1892 á Strýtu í Hamarsfirði, sonur hjónanna Jóns Þórarinssonar og Ólafar Finnsdóttur. Hann lærði gullsmíðar við Iðnskólann í Reykja- vík 1915-1919 og teikningu hjá Þór- ami B. Þorlákssyni listmálara og Ríkarði Jónssyni bróður sínum. Finn- ur stundaði einnig listnám og gull- smiðanám í Kaupmannahöfn, Berlín og Dresden. Finnur hélt fyrstu málverkasýn- ingu sína árið 1921 á Djúpavogi. Árið 1925 voru myndir eftir hann Finnur Jónsson við mynd sína Óður til mánans, sem hann málaði 1925. valdar á vorsýningu Der Sturm í Berlín og síðar sýndar á alþjóðlegum sýningum í Bandaríkjunum. Sama ár sýndi Finnur afstraktverk í Reykjavík sem vöktu mikla athygli. Ári síðar hóf Finnur að vinna við gullsmíðar á ný. Hann rak einnig um tíma myndlistarskóla í Reykjavík ásamt Jóhanni Briem listmálara og starfaði sem kennari við Flensborg- arskóla og Menntaskólann í Reykja- vík. Hann starfaði mikið að félags- málum myndlistarmanna og gull- smiða. Hann var einn af stofnendum Félags íslenskra myndlistarmanna árið 1941 og fyrsti formaður Mynd- listarfélagsins 1961. Finnur Jónsson var sæmdur stór- riddarakrossi Fálkaorðunnar 1976 fyrir myndlistarstörf og var í heiðurs- launaflokki Alþingis frá 1973. Hann var heiðursfélagi í Félagi íslenskra myndlistarmanna, Félagi íslenskra gullsmiða, Accademia Internationale í Róm og Accademia Italia delle Arti e del Lavoro i Parma. Eftirlifandi eiginkona Finns er Guðný Elísdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.