Morgunblaðið - 21.07.1993, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993
SHIQ auglýsingctr
Grasaferð í Þorskafjörð
Náttúrulækningafélagið ásamt
Heilsuhringnum, félaginu
Svæðameðferð, Félagi íslenskra
nuddara og Garðyrkjufélaginu,
gengst fyrir grasaferð í Þorska-
fjörð dagana 23.-25. júll.
Upplýsingar og skráning I síma
91-28191.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma I kvöld
kl. 20.00.
Miðilsfundir
Miðillinn Colin Kingschot er
kominn aftur. Upplýsingar um
einkafundi, áruteikningar og
heilun í síma 688704.
Silfurkrossinn.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur kl. 20.30.
Ræöumaður Hafliði Kristinsson.
Efni: Þjónustugjafir Heilags anda.
Allir hjartanlega velkomnir.
SÍK, KFUM/KFUK, KSH,
Háaleitisbraut 58
„Saman í kærleika."
Samkoma I Kristniboðssalnum í
kvöld kl. 20.30.
Fjölnir Guðmundsson, Krist-
björg Gísladóttir og Aðalsteinn
Thorarensen tala.
Leikræn.tjáning.
Samkoman er öllum opin.
Þú ert velkomin(n).
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
VIÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Fjölbreyttar sumarleyfis-
ferðir Ferðafélagsins
Næstu ferðir:
1. 30/7-4/8: Flateyjardalur-
Fjörður-Látraströnd
Bakpokaferð að hluta. Tjaldgisting.
2. 30/7-4/8: Flateyjardalur-
I Fjörðum. Tjaldbækistöð.
3. 31/7-6/8: Þjórsárver-Kerl-
ingarfjöll. Bakpokaferð.
4. 4.-11/8: Lónsöræfi. (Dvöl í
Múlaskála). Gönguferðir.
5. 5.-11/8: Snæfell-Lóns-
öræfi-Hesteyri. Ferðina má
stytta.
7. 8.-17/8: Bakpokaferð:
Hornvík-Fljótavfk-Hesteyri.
8. 12.-15/8: Núpsstaðar-
skógar-Lómagnúpur. Tjaldferð.
9. 18.-22/8: Litla hálendis-
ferðin. Leppistungur-Hvera-
vellir-lngólfsskáli-Vonarskarð-
Nýidalur.
10. Grænlandsferð 16.-23/8.
Spennandi ferð eingöngu fyrir
félaga í Ferðafélaginu. Ferð um
Suður-Grænland sem margir
hafa beðið eftir. Pantið strax því
pláss er takmarkað. Einnig er í
boði 10 daga fjallaferð um Jötun-
heima í Noregi 21.-30. ágúst.
5 og 6 daga gönguferðir milli
Landmannalauga og Þórsmerkur
í júlí og ágúst. Brottför föstu-
dagskvöld og miðvikudags-
morgna. Laust pláss i' nýja auka-
ferð um „Laugaveginn" 10.-15.
ágúst. Uppselt er í margar ferð-
anna. Minnum einnig á ferðir í
ágúst um gönguleiðina milli Hvít-
ámess og Hveravalla.
Ódýra sumardvölin í Þórsmörk
er alltaf vinsæl. Ferðir á föstu-
dagskvöldum, sunnudags- og
miðvikudagsmorgnum.
Kynnið ykkur ferðirnar um versl-
unarmannahelgina: Landmanna-
laugar-Eldgjá; Þórsmörk; Yfir
Fimmvörðuháls; Lakagigar-
Síðumannaafréttur (á slóðum
Þorvaldar Thoroddsen); Núps-
staðarskógar.
Leitið upplýsinga á skrifstofunni,
Mörkinni 6, sími 682533.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
Miðvikudagur 21. júlí:
Kl. 20.00 Seljadalur - Nessel
(kvöldganga). Verð kr. 600,-.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, farmiðar við
bíl.
Helgarferðir 23.- 25. júlí:
1) Laugar - Eldgjá - Álftavatn,
hringferð að Fjallabaki. Gist að
Laugum og Álftavatni.
2) Þórsmörk - gist í Skag-
fjörðsskála. Gönguferðir við
allra hæfi um Mörkina.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofunni, Mörkinni 6.
Ferðafélag (slands.
Flugtak
ÞAÐ er alltaf spenna í loftinu þegar svifdrekarnir leggja af stað í flug.
Arni Gunnarsson Islands-
meistari í svifdrekaflugi
íslandsmót FMÍ í svifdrekaflugi þetta árið var haldið í Búrfelli
við Búrfellsvirkjun 3.-9. júlí. Gist var á Leirubakka, þar sem gisti-
aðstaða er hin besta sem völ er á á þessum slóðum. Svifdreka-
keppni fer fram á svipaðan hátt og svifflugmót, þar sem keppt er
í ákveðnum þrautum, svo sem að fljúga á ákveðinn ákvörðunar-
stað. Veðrið setti nokkurn svip á mótið og náðust ekki nema 3
gildir dagar. íslandsmeistari varð Arni Gunnarsson.
Fyrsti dagur; 19 flugmenn mættu
til leiks og var vaknað kl. 9:00 laug-
ardagsmorguninn 10. júlí. Veðrið
lofaði góðu og voru menn allspennt-
ir. Bílafiotinn, 8 jeppar, lagði af stað
upp á Búrfell kl. 10:30 eftir að búið
var að ræða við verðurfræðing um
horfur dagsins. Dagurinn lofaði góðu
framan af, en svo fór að draga fyr-
ir sólu seinnipartinn, sennilega hefur
myndast hitalægð norðvestan við
Vatnajökul sem myndaði norðaustan
átt. Til þess að þessi dagur gilti sem
mótsdagur, þurfti hver flugmaður
að fljúga yfir 10 km vegalengd frá
byijunarstað, en það tókst ekki og
féll því þessi dagur niður.
Annar dagur: Næsti dagur leit
mun betur út. Vestan átt var í lofti,
sem er góð átt við Búrfellið og var
ákveðið af Sveinbirni Sveinbjörns-
syni mótsstjóra að hafa mark á
Hvolsvelli (42 km) með möguleika á
áframhaldandi flugi niður á strönd,
en menn fengu refsistig ef þeir færu
fram hjá Hvolsvelli en ekki ná 10
km. lengra. Þessi þraut reyndist
frekar erfið, þar sem flogið er í hlið-
arvindi alla leið, en tveir menn ,
Ámi Gunnarsson (56 km) og Einar
Eiríksson (54 km ), náðu að ljúka
þrautinni og gott betur því þeir héldu
áfram í átt að Bakkaflugvelli við
ströndina. Flestir komust nokkuð
langt þennan dag, en Haukur Sig-
urðsson lenti nærri Hvolsvelli og var
því þriðji þennan daginn.
Hellidemba og ekkert flogið
Þriðji dagur: Hellidemba, ekkert
flogið. En menn létu það ekki á sig
fá þar sem aðstaðan á Leirubakka
er frábær, gufa og heitir pottar.
Grillaðstaða og góð tún þar sem
hægt er að lenda mótordrekum, sem
voru óspart notaðir á lygnum kvöld-
um. Staðarhaldararnir Ásta Begga
og Gísli fengu jafnvel að sjá staðinn
í nýju ljósi. Einnig er stutt að
skreppa í golf á Hellu. Um kvöldið
gerðu menn sér dagamun og
skruppu á Laugarvatn þar sem við
fengum veislumáltíð á veitingahús-
inu Lindinni.
Fjórði dagur: Þriðjudagurinn 13.
júlí, en þá var suðvestan átt og
skýjahæðin frekar lítil u.þ.b. 1.200
m við Búrfell, og þótti ólíklegur til
afreka. Mótsstjórn ákvað því að setja
tvær þrautir þennan dag; annars
vegar Þjórsádalslaug (10 km) sem
gaf 100 stig en hins vegar Hrau-
neyjafossvirkjun (36 km) og 200
stig. Þrír keppendur náðu því að
RAÐAUGIYSINGAR
Hallgrímskirkja
óskar að ráða starfsmann til líknar- og öldr-
unarþjónustu í söfnuðinum frá 1. sept. nk.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu á
þessu sviði.
Um er að ræða 80% starf.
Umsóknir sendist fyrir 27. júlí til Hallgríms-
kirkju, pósthólf 651, 121 Reykjavík.
Sölufólk - hópstjórar
Við leitum að jákvæðu og duglegu fólki til
heimakynninga. Söluvaran er ALADINO:
Vara sem á erindi inn á öll heimili. Auðveld
söluvara, augljós þörf, selst sem raunveruleg
kjarabót.
Þetta er tækifæri, sem góður sölumaður eða
góð sölukona lætur ekki fram hjá sér fara.
Upplýsingar í síma 676869 miðvikudag,
fimmtudag og föstudag.
Alþjóða verslunarfélagið hf.,
Skútuvogi 11, Reykjavík.
Þýskukennsla
Vegna fjölgunar nemenda vantar Mennta-
skólann á Laugarvatni stundakennara
í þýsku næsta skólaár.
Upplýsingar hjá skólameistara
í síma 98-61121.
Sumarbústaður óskast
Óska eftir að kaupa sumarbústað á Suður-
eða Vesturlandi, nálægt vatni eða á með
veiðiréttindum. Þarf að vera gróðursæll staður.
Vinsamlega hafið samband við Vigdísi
í síma 91-42045.
IÐNSKÓUNN í REYKJAVÍK
Að tilmælum undanþágunefndar framhalds-
skóla eru kennarastöður við Iðnskólann í
Reykjavík nú auglýstar í þriðja sinn.
Auglýstar eru fjórar stöður kennarar í tölvu-
fræðum, tvær í hársnyrtigreinum, þrjár í raf-
iðnagreinum, tvær í rafeindavirkjun, ein í fag-
greinum málara, hálf staða í rekstrargrein-
um, ein í prentsmíði, hálf í bakaraðin, ein í
matvæla- og efnafræði, ein í bókfærslu
og verkstjórn, tvær í stærðfræði og ein í
klæðskurði.
Umsóknir skulu hafa borist Iðnskólanum í
Reykjavík í síðasta lagi 28. júlí nk.
Sumarhústil sölu
Höfum til sölu 42 fm T-sumarhús í landi
Svartagils, Norðurárdal.
Myndir og nánari upplýsingar á skrifstofu
okkar. KR-sumarhús,
Hjallahrauni 10, sími 51070.
Uppboð á lausafjármunum
verður haldið við lögreglustöðina í Neskaupstað, Meiagötu 1A,
fimmtudaginn 29. júlf 1993, ð eftirfarandi lausafjármunum í neðan-
greindri röð:
Jeppabifreiðin: LZ-706, Jeep Cherokee, árgerð 1989.
Fólksbifreiðarnar: EP-640, N-459 Subaru, árgerð 1977.
GK-059, R-50264 Volvo 244, árgerð 1979.
Sýslumaðurinn í Neskaupstað,
1. júlí 1993.