Morgunblaðið - 21.07.1993, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993
fclk í
fréttum
COSPER
Rucanor^
ÍHróttagallar
(fóðraðir)
Verð kr. 5.490
Stærðir: S - XXL
Sendum í póstkröfu
5% staðgreiðsluafsláttur
»hummel1r
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40 • Slmar 813555 og 813655
EYJAPEYI
Draumur Gísla rættist
að hafði verið draumur Gísla
Helgasonar frá því hann var
lítill drengur að komast út í úteyj-
ar Vestmannaeyja. Þessi ósk hans
rættist í síðustu viku þegar blaða-
mannafundur vegna Þjóðhátíðar-
innar var haldinn í Elliðaey. Nokk-
uð erfítt getur verið að komast út
í eyjamar því klífa þarf kletta og
sæta lagi við að komast úr báti í
land. Eins og flestir íslendingar
vita hefur Gísli verið sjóndapur frá
fæðingu.
„Við vorum tveir sem áttum
þennan draum, Ási í Bæ og ég,“
sagði Gísli þegar Morgunblaðið
ræddi stuttlega við hann. pEin-
hvem tímann þegar ég hitti Ása á
fömum vegi sagði hann mér að
Ámi Johnsen væri bara með betri
mönnum, en Ása hafði ekki líkað
alltof vel við Áma á köflum. Sem
sagt; Árni hafði drifíð í því að fara
með Ása út í eina af úteyjunum.
Hann var með gervifót sem var
alltaf að detta undan honum. Það
hafðist þó að lokum að komast upp
og þessari lífsreynslu gleymdi Ási
aldrei."
Kveið svolítið fyrir
Þegar blaðamannafundurinn var
haldinn úti í Elliðaey bauðst Gísla
óvænt tækifærið, sem hann not-
færði sér. „Ég kveið ansi mikið
fyrir að fara upp, en var svo hepp-
inn að Ámi Johnsen var um borð
og hann studdi mig mjög dyggi-
lega. Þetta var í sjálfú sér ekki svo
mikið mál, því að það er frekar
auðvelt að fóta sig í berginu. Mað-
ur þarf þó að feta sig eftir stöllum
og ég verð að viðurkenna að mér
stóð ekki á sama þegar við voram
utan í berginu, en það bjargaðist
allt saman.“
En hvemig var svo tilfinningin
þegar komið var upp á eyjuna?
„Mér fannst stórkostlegt að
koma þama upp. Ég skil núna
hvaða dálæti menn hafa á þessu
úteyjalífi. Náttúran er alveg
ósnortin og óspillt. Kyrrðin er al-
gjör, nema þegar einstaka fúgl
rýfur hana. Veiðihúsið er í dalverpi
þar sem er skjól fyrir norðan- og
sunnanátt, þannig að þama er al-
gjör veðurparadís."
Á rétti hillu
Þegar Gísli var að lokum spurð-
ur hvort hann gæti sagt frá ein-
hveiju skemmtilegu sem komið
hefði upp á svaraði hann: „Ja, það
væri ekki nema þegar við Ámi
vorum komnir upp og voram að
leggja af stað upp kindagötur. Þá
stoppuðum við á smá klettasyllu
og Ámi minnti mig á að ég hefði
einhvem tímann sagt að þarna
væri hann best geymdur eða á
réttri hillu. Nú væri ég kominn á
sömu hilluna!"
KVIKMYNDIR
Ekkimikið
mál
aðleika
Mason Gamble er kotroskinn
sjö ára strákpjakkur sem
leikur Denna dæmalausa í kvik-
mynd sem verið er að taka upp
um þessar mundir. Heppnin var
með honum því mótleikari hans
er Walter Matthau, en hann leik-
ur Wilson gamla. Mason hefur
áður leikið í auglýsingum, en
þetta er í fyrsta skipti sem hann
leikur í kvikmynd. Mason sagð-
ist ekki þurfa neina tilsögn í
leiklist. „Walter sagði mér ekk-
ert sem ég vissi ekki nú þegar,“
sagði hann rogginn.
Þeir sem hafa lesið teikni-
myndasögurnar um Denna dæ-
malausa vita að hann er alltaf
að gera eitthvert at í Wilson.
Mason segist að Walter hafi
aðallega sagt honum brandara,
en skemmtilegasta atriðið hafi
verið þegar Denni átti að skjóta
aspirín-töflu upp í munninn á
Wilson. „Walter lést vera sof-
andi og opnaði munninn alltaf
öðru hvoru þegar hann þóttist
hijóta. Stundum hitti ég í tenn-
umar, en oftast hitti ég beint
upp í munninn,“ sagði Mason.
Þetta er mynd af Hans frænda, sem hékk á stofuveggn-
um þar til við komumst að því að hann átti ekki græna-
neyri.
með kaupin á efstu hœðinni í Hlíðarsmára 8,
Kópavogi, Miðjunni. ^
\ ) i i FAGHUShf Frjáistframtak
FJARMUNIR
Djásn að
verðmæti 28
milljónir kr.
Sýningarstúlkan Jennifer Porter
sýnir hér einstaka Cartier
skartgripi; hring, armband, hálsmen
og eyrnalokka á kynningu sem hald-
in var á fágætum Cartier skartgrip-
um í Sidney, Ástralíu nýlega. Verð-
mæti skartgripanna á myndinni, sem
eru allir með tígrismynstri, er
400.000 dollarar (28 millj. ísl.
króna), en þeir voru hannaðir eftir
fyrirsögn Wallis Simpson fyrrver-
andi hertogaynju af Windsor.
Það er ekki á hvers manns færi
að bera skartgripi fyrir tæpar 30
milljónir króna.
Mason
Gamble
leikur
Denna
dæma-
lausa.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Siglt og sungið. Gísli Helgason og Eyjólfur Kristjánsson taka lagið
við undirspil hafgolunnar.