Morgunblaðið - 04.09.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1998
7
Haustslátrunin á Ströndum
3.500 fjár flutt
100 kílómetra
Trékyllisvík.
UM 3.500 fjár verður flutt frá Árneshreppi á Ströndum til slátrunar
á Hólmavik. Féð verður flutt með bílum rúma 100 km eftir vegi sem
kallaður hefur verið versti þjóðvegur á Islandi.
Björn Torfason, bóndi á Melurn í
Arneshreppi, sagði að bændur í
sveitinni hefðu áhyggjur af flutning-
unum vegna ástands vegarins til
Hólmavíkur. Vegurinn er mjög erfið-
ur yfirferðar og hætt er við að féð
22 millj-
ónir til SÞ
ÍSLENDINGAR greiða tæpar 22
milljónir króna til Sameinuðu
þjóðanna í ár. Benedikt Jónsson,
sendifuiltrúi hjá alþjóðaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins, segir að
sú athygli, sem að undanförnu
hefur beinst að fjárreiðum stofn-
unarinnar, stafi helst af auknu
innra eftirliti samkvæmt óskum
allsherjarþingsins.
íslendingar greiða fast gjald til
Sameinuðu þjóðanna, og er það 21,6
milljónir samkvæmt fjárlögum árs-
ins, að sögn Benedikts. Fylgst er
með afdrifum fjárins og starfsemi
SÞ gegnum fastanefnd íslands hjá
stofnuninni í New York.
Benedikt kvaðst telja að upphaf
athygli almennings á meintri óráðsíu
í fjárreiðum stofnunarinnar mætti
rekja til óska frá allsheijarþingi SÞ,
þar sem þess hafi verið farið sérstak-
lega á leit, að íjárreiðurnar yrðu
rannsakaðar.
kastist til á leiðinni. Bændur óttast
að dilkarnir falli í verði vegna flutn-
inganna. Flutningunum fyigir einnig
nokkur kostnaður og ekki er vitað
hvort flutningsstyrkur fáist frá
Framleiðnisjóði. Björn sagði að lík-
lega hefði fengist undanþága til
slátrunar í sláturhúsinu í Norður-
firði, en samstaða um það hefði ekki
náðst. Sláturhúsinu í Norðurfirði var
lokað í sumar vegna gjaldþrots
Kaupfélags Norðfjarðar.
Annar viðmælandi blaðsins sagði
að ýmsir bændur í hreppnum hefðu
tapað miklu fé vegna gjaldþrots
kaupfélagsins. Menn væru því tregir
til að taka þá áhættu sem því fylgdi
að slátra sjálfir og sitja kannski
uppi með kjötið ef það seldist ekki.
Einnig sagðist hann efast um að
sláturleyfi hefði fengist, til þess
skorti allar ytri aðstæður og þær
fjárhagslegu forsendur sem til
þyrfti. Þær umræður sem eru í þjóð-
félaginu um landbúnaðarmál setja
einnig strik í reikninginn og satt að
segja vita menn ekki í hvorn fótinn
þeir eiga að stíga.
Mikið tap fyrir sveitarfélagið
Gunnsteinn Gíslason, oddviti Ár-
neshrepps, sagði að flutningar þess-
ir þýddu mikið fjárhagslegt tap fyrir
sveitarfélagið, ekki síst vegna þess
að 25-27 manns hefðu að jafnaði
unnið við slátrun þijár vikur á haust-
*n' - V.Hansen.
Álseyingar hamfletta hluta af veiði sumarsins. Morgunbiaðið/Sigurgeir Jðnasson
Sumarveiðin hamflett
Vestmannaeyjum.
LUNDAVEIÐITÍMANUM er lokið og var veiði
með minnsta móti. Kenna veiðimenn þar fyrst
og fremst um sífelldri norðanátt og blíðviðri en
lundinn gefur sig yfirleitt lítið til við slíkar að-
stæður.
Lundaveiðimenn hafa undanfarið verið að ganga
frá eftir sumarúthaldið, hamfletta lunda í frystikist-
una fyrir veturinn og fleira sem fylgir haustverkun-
um hjá þeim. Þrátt fyrir að veiðitímanum sé lokið
situr enn mikill fugl uppi í lundabyggðinni en yfir-
leitt er lundinn farinn að tygja sig til ferðar á þess-
um tíma en kalt vor virðist hafa seinkað öllu hjá
fuglinum í ár enda er mikið af pysju enn í holunum.
Grímur
Tölvunefnd fundar vegna skráningar tímaritaáskrifta
Oskar frekari upplýsinga
TÖLVUNEFND hefur komið saman og fundað um lögmæti þeirra
áforma fjármálaráðuneytisins að fela Pósti og síma að halda skrá
yfir þau erlendu tímarit, sem berast einstaklingum í pósti vegna
greiðslu virðisaukaskatts af áskriftargjaldi þeirra. Nefndin hyggst
athuga hvort skráning þessi bijóti í bága við lög um skráningu og
meðferð persónuupplýsinga. Nefndarmenn komust ekki að niður-
stöðu á fundinum og ákváðu að óska frekari gagna frá fjármálaráðu-
neytinu, Pósti og síma og tollstjóra.
„Við treystum okkur ekki til að sagði Þorgeir Örlygsson, formaður
fullyrða að þessi skráning sé ólög- tölvunefndar, í samtali við Morgun-
mæt fyrr en við vitum nákvæmlega blaðið. „Hins vegar var það sam-
hvernig að henni verður staðið," dóma álit nefndarmanna að upplýs-
ingar um hvaða tímarit menn kaupi,
geti verið einkamálefni manna.
Hvort þessi skráning nákvæmlega
kemur til með að brjóta friðhelgi
einkalífsins, vitum við ekki fyrr en
við höfum fengið þær upplýsingar,
sem við óskuðum eftir.“
Tölvunefnd getur skipað aðilum
að hætta skráningu upplýsinga,
tetji hún að slíkt brjóti gegn lögun-
um um skráningu og meðferð per-
sónuupplýsinga.
MEIRI AFKÖST!
MEIRA REKSTRARÖRYGGI!
MEIRI SPARNAÐUR!
Nýja CAT 438B traktorsgrafan er búin fjöl-
mörgum nýjungum sem auka afköstin og
rekstraröryggið. • CAT 3054 hreyfillinn er hann-
aður með sparneytni og lágmarksmengun að
leiðarljósi. • Vélarhávaði er mjög lítill. • Nýr
gröfuarmur gefur færi á að grafa dýpra og
seilast lengra án þess að færa vélina. • Gröfu-
bóman er grennri og því er auðvelt að sjá á allar
skóflur. • Brotkrafturinn og lyftigetan eru einstök.
•Miðjulokað, álagsstýrt vökvakerfi skynjar hvar og
hvenær afls er þörf og velur sjálfkrafa rétt flæði
og þrýsting. • Hljóðeinangraður og loftræstur
stjórnklefinn
er með speglunar-
fríu gleri. Öll stjórntæki
eru þægiiega staðsett og
létt í notkun. «Traust umboð,
góðir starfsmenn og góð varahluta- og
viðgerðaþjónusta tryggir rekstraröryggið.
I
VERND
UMIIVtRHS
l|INIANA\|s‘IQS
HEKIA