Morgunblaðið - 11.09.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.09.1993, Blaðsíða 1
 JIIorjjíimi&TaÍJÍ*) MENNING USTIR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1993 BLAÐ' f Morgunblaðið/J6n Svavarsson PANSKFLUGAN Spanskflugan kemur mörgu góðborgarahjartanu til að slá hraðar í samnefndum gamanleik sem Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir í Borgarleikhúsinu á föstudaginn eft- ir viku. Flugan eftir Franz Arnold og Ernest Bach er gamal- reyndur gleðigjafi hjá leikfélaginu, fyrst sýnd þar fyrir nærri sextíu árum og svo aftur fyrir 23 árum. I það sinnið hleypti Guðrún Asmundsdóttir lífi í leikinn og það gerir hún aftur nú, með trukki og dýfu og vinsæium söngvum frá fyrstu áratugum aldarinnar við texta Böðvars Guðmunds- sonar. Leikhúsgestum er vísað til stofu hjá vel stæðri þýskri fjöl- skyldu á árunum milli stríða; sinnepsbaróninum Klinke, siða- vandri en fram úr hófi forvitinni konu hans og gjafvaxta dóttur sem ekki sér sólina fyrir flagara að nafni Gerlach. I stofuna kemur líka vinkona dótturinnar og frænka, vonbið- ill, frændur og velgjörðarmenn fjölskyldunnar - eða svo skyldi maður halda þar til annað sannast. Þar leynast tón- listarmenn undir kúlúhöttum og Ijúfum minningum skýtur upp þegar minnst varir. Tilviljanir og leyndarmál spinnast í ólík- indalegan misskilning út frá spanskflugunni, allir eru meira og minna flæktir í vefinn og eins og vera ber greiðist ekki úr honum fyrr en í leikslok. Spanskflugan er raunar aðeins minning í leiknum, gam- all flammi nokkurra heiðurskarla. En pappírar um gömul ævintýri með henni og barn sem fæddist að þeim loknum hafa áhrif á fjárhag og hugarró sinnepskaupmannsins og fleiri mektarmanna. Hræðslan við að upp komist um hneyksli grefur um sig, yngri kynslóð botnar ekki í tiltektum hinna eldri og gerir hvað hægt er til að fara sínu fram óháð ráðríkum mæðrum og ráðvilltum feðrum og frændum. Leikstjórinn Guðrún As- mundsdóttir segir að Spanskflugan hafi hal- að drjúgt inn i hús- byggingarsjóð fyrir tæpum aldar- fjórðungi. Þetta hafi verið fyrsta sýningin sem hún setti upp. „Vió sýndum í Austurbæjarbíói fyrir fullu húsi þennan vetur og árið eftir var Spanskflugan sýnd áfram í Iðnó. Mér finnst óskaplega skemmtilegt að gera þetta aftur hér í Borgarleikhúsinu. A sínum tíma valdi ég söngva í leikritið og fékk Böðvar til að semja texta við þá í snarheit- um. Svo bætti hver sínum línum í handrit eftir því sem lög- in voru æfð og þetta lenti auðvitað úti um allt eftir sýning- arnar. En við höfðum sem betur fer segulbandsupptökur frá því um árið og skrifuðum nú söngtextana eftir þeim. Við fengum 50 þúsund gesti á Spanskfluguna 1970 og það var skínandi ánægja með hana. Nú vonum við bara að við náum góðu flugi og bjóðum fólk velkomið að skemmta sér með okkur ! leikhúsinu." Hljómsveitina sem leikur á sviðinu skipa þeir Árni Schev- ing, Guðmundur Steingrímsson og Carl Möller, sem jafn- framt er stjórnandi tónlistar í sýningunni. Dansana, sem koma sýningunni til að iða með músíkinni, sér Guðmunda Jóhannesdóttir um. Steinþór Sigurðsson hefur annast leik- mynd og lýsing er í höndum Ogmundar Þórs Jóhannesson- ar. Búninga teiknaði Þórunn E. Sveinsdóttir. Þýðing leikrits- ins er eftir Guðbrand Jónsson. Og síðast en ekki síst: Þeir sem beita bellibrögðum og undanbrögðum í Spanskflugunni eru Bessi Bjarnason sem leikur kaupmanninn Klinke, Edda Heiðrún Backman sem leikur Pálu dóttur hans, Guðrún Marínósdóttir sem leikur Wallý vinkonu hennar og Helga Þ. Stephensen sem leikur frú Klinke. Herramennina sem venja komur sínar til fjölskyld- unnar leika Guðmundur Olafsson, Karl Guðmundsson og Marínó Þorsteinsson en Valdimar Örn Flygenring og Þor- steinn Guðmundsson leika giska ólíka unga menn á biðils- buxum. Foreldra hins óreyndari af þessum tveimur leika Soffía Jakobsdóttir og Theodór Júlíusson. Valgeróur Dan er vinnukona Klinke-fólksins, sem gera þarf öllum til hæf- is, og spanskfluguna sjálfa leikur Ragnheiður Elfa Arnar- dóttir. . . Þ.Þ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.