Morgunblaðið - 09.10.1993, Síða 1
I-
MENNING
USTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1993 BLAÐ
DÓTTIR
SÆKONUNGSINS
EFTIR BERGLJÓTU ARNALDS
Það kom mér skemmti-
lega á óvart þegar
hringt var í mig síðasta
vor og mér boðið að
taka þátt í sýningu á
Edinborgarhátíðinni. Þessi sýning
er liður í „The Book-Festival“, bók-
menntahátíð sem haldin er annað-
hvert ár og er liður í Edinborgarhá-
tíðinni. Á bókmenntahátíðinni eru
umræður um bókmenntir og kynnt-
ar bækur frá ýmsum löndum. Höf-
undar lesa úr eigin verkum og svara
fyrirspumum. I ár mættu yfir tvö
hundruð höfundar þar á meðal Dor-
is Lessing, Terry Jones (Monty Pyth-
on), Jeanette Winterston, Terry
Pratchett, Ben Okri, Roy Hattersley
og margir fleiri. Hátíðin er haldin á
Charlotte Square í miðborginni og
er allt torgið lagt undir hana. Tjöld
eru sett upp og tengd saman og
gátu stærstu tjöldin tekið allt að
íj'ögur hundruð áhorfendur. í tjöld-
unum fara fram ýmsar uppákomur,
bóksala og fleira og svo geta menn
hvílt sig á kránni, sem er allsérkenni-
legt tjald klætt speglum.
í júní mættii ég á samlestur. Ég
var kynnt fyrir leikhópnum svo var
leikritið lesið yfir og rætt. Isobel
Mieras var mætt með hörpuna sína
og spilaði fyrir okkur nokkur stef
sem hún var að vinna að, en hún
er höfundur að allri tónlist í sýning-
unni. Þá ræddi leikstjórinn Marillyn
Gray um höfund verksins George
Mackay Brown og las fyrir okkur
bréf sem hann hafði sent hópnum.
Brown er fæddur árið 1921 í Orkn-
eyjum. Hann hefur skrifað bæði
sögur og leikrit, en er einna þekkt-
astur fyrir ljóð. Þetta er í fyrsta
sinn sem leikritið hans „The Sea-
Kings Daughter" eða „Sjávarkon-
ungsdóttirin" er sett upp.
Leikritið fjallar um sannsöguleg-
an atburð sem gerðist árið 1290.
Sjö ára stúlka, Margrét, var flutt
frá Noregi til Skotlands. Þar átti
að krýna hana drottningu og gifta
hana Edward II. Englandsprinsi og
þar með sameina Skotland og Eng-
land. Á leiðinni gerir storm og þeg-
ar skipið kemur til Orkneyja þá er
Margrét látin úr lungnabólgu. Mar-
grét var dóttir Eiríks 11. Noregskon-
ungs og barnabarn Alexanders III.
konungs Skotlands. Margrét missti
móður sina stuttu eftir að hún
fæddist og þegar hún var aðeins
þriggja ára gömul deyr afi hennar
Alexander III. Hún var eini afkom-
andi hans og því réttmætur erfingi
skosku krúnunnar. Leikritið fjallar
um siglinguna, frá því þau leggja
af stað frá Noregi þar til þau lenda
í Orkneyjum.
Texti verksins er mjög ljóðrænn.
Það eru engar samræður aðeins
eintöl. Verkið er skrifað fyrir sjö
konur, drottninguna ungu og fylgd-
arkonur hennar. Þær fara með ein-
tölin í sömu röð í hvetjum þætti,
þannig að Olga talar alltaf fyrst í
hveijum þætti og María alltaf síð-
ast, en leikritið er í fimm þáttum.
í síðasta þætti, þegar drottningin
er látin, þá er þögn þar sem vænst
er þess hún tali.
Marillyn ákvað að hafa tvo karl-
leikara með í uppsetningunni, skip-
stjóra og skipveija. Einnig hafði
hún aðeins sex leikkonur og skipti
Maríu-eintölunum á milli hinna per-
sónanna. Þessi Maríu-eintöl eru
nokkurs konar ályktun á því sem
gerst hefur í þættinum og virkuðu
þau eins og kórinn í forn-grísku
harmleikjunum. Myndaðist þá ris í
lok hvers þáttar, eins konar draum-
ur eða undirmeðvitund drottningar-
innar.
SJÁ NÆSTU SÍÐU