Morgunblaðið - 24.10.1993, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.10.1993, Blaðsíða 14
14 B MORGDNBLÁÐIÐ FOLK I FtíSrnMsMJMm 24. OKTÓBER 1993 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson form. sambands sveitarféiaga gægist ofan I tösku Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra, en Davíð Odds- son forsætisráðherra biður þá að gæta stillingar. SENDLAR Hvað er í töskunní Friðrik? Þessi skemmtilega mynd kom í leitimar fyrir skemmstu. Hún var reyndar tekin í tilefni þess að þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Davíð Odsson og Friðrik Sophus- son voru allir sendlar hjá Oskari í Sunnubúðinni, sem rétt glittir í fyrir aftan Friðrik. Þótti okkur myndin skemmtileg, einnig ef litið er á hana út frá sameiningu sveit- arfélganna. Formaður sambands sveitarfélaga athugar innihald rukkaratöskunnar hjá fjármála- ráðherra, en forsætisráðherra bið- ur þá að gæta stillingar. Pálmi Gíslason lætur nú um helgina af starfi formanns Ungmennafélags Islands á sam- bandsþingi UMFÍ sem haldið er á Laugarvatni. Pálmi hefur verið formaður í fjórtán ár. „Þetta hefur verið skemmtilegur tími og starfið gengið vel. Gott fólk hefur valist til starfa hjá ungmennafélags- hreyfíngunni og starfíð verið í góðu lagi allan þennan tíma,“ sagði Pálmi í samtali við Morgunblaðið. Hjóluðu um landið til að hvetja fólk að velja íslenskt Pálmi hefur alltaf haft sérstakan áhuga á umhverfis- og útivistar- málum og að hreyfíngin reyndi að leggja íslenskri framleiðslu lið. Taldi hann að átakið „Eflum ís- lenskt" sem UMFÍ stóð fyrir á 75 ára afmælisári sínu 1982 væri eitt af minnisstæðustu verkefnunum á formannsferli hans. Þá var hjólað hringinn í kringum landið í þeim tilgangi að hvetja fólk til að velja íslenska framleiðslu. Af vettvangi umhverfísmálanna nefnir hann tvö verkefni, „Tökum á - tökum til“ og „Fósturbörn“. í fyrmefnda verkefninu sem var 1989 hreins- uðu 8.000 ungmennafélagar með- úmm^aKÍ Átak í fitubrennslu LOKA FITU BREIUIUSLA SÍÐUSTU KÍLÓIN Þetta námskeið er tilvalið fyrir sem hafa stundað leilcfimi áður Lokaður hópur • Fitumæling í byrjun • og lok námskeiðs • Vigtun og mæling • Matarlisti • Persónuleg framfarabók • Stuðningsviðtöl • Grindabotnsæfingar • Fræðsla og fyrirlestrar • Engin hopp • atak GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ FÉLAGSSTÖRF Pálmi Gíslason hættir sem formaður UMFI GIFTING Brúðkaup í vændum í Mónakó Frönsk blöð hafa skýrt frá því að Rainer Mónakófursti hafi gefið samþykki sitt fyrir því að Karólína prinsessa megi giftast Vincent Lindon. Hann hefur verið unnusti hennar undanfarin tvö ár, þó svo að hann hafi ekki verið sam- þykktur opinberlega ennþá, að minnsta kosti ekki fram til þessa. Talað er um að brúðkaupið verði í byijun næsta árs. Sögusagnir gengu í sumar um að- einhveijir brestir væru komnir í sambandið, en trúlega hefur ekki verið fótur fyrir því. Það sem virðist hafa gert útslag- ið um viðurkenningu Rainers er að Vincent, sem er gyðingur, hefur samþykkt að taka kaþólska trú eins og furstafjölskyldan. Þá eru böm Karólínu, Andrea 9 ára, Charlotte 7 ára og Pierre 6 ára, sögð vera mjög hrifín af Vincent. Síðsumars eyddu Karólína, Vincent og börnin þijú nokkrum tíma á heimili móður hans á frönsku Rivierunni. Vincent var orðinn þekktur sem leikari áður en hann hóf samband sitt með Karólínu. Nú er hann sagð- ur standa einna fremst meðal fran- skra leikara. Furstafjölskyldan fær því enn á ný leikara inn i fjölskyld- una með giftingu þeirra Karólínu og Vincents. Kynningarfundur verður haldinn laugardaginn 30. okt. á milli kl 10-13. 1 S. STRAX *S. 65 22 12 HRFSS IJKAMSRÆKT OG LJÓS BÆJARHRAUNI 4 /VIÐ KEFtAVlKURVEGINN/SlMI 65 22 12 Pálmi Gíslason formaður UMFÍ segir að eitt af minnisstæðustu verk efnunum hafi verið átakið „Eflum íslenskt" sem fram fór árið 1982. fram um 6.000 km af vegum lands- ins. Sagði Pálmi að það hafi valdið ákveðinni hugarfarsbreytingu hjá fólki, minna af drasli hefði verið hent úti í náttúrunni fyrstu árin á eftir. Landsmót á Laugarvatni Hann nefndi einnig landsmótin sem eru hápunkturinn í starfí ung- mennafélaganna og hreint ævin- týri í sjálfu sér. A þeim fjórtán árum sem Pálmi hefur verið for- maður hefur hann sótt vel á þriðja hundrað þing og aðalfundi ung- mennasambanda og yfír 600 fram- kvæmdastjómarfundi hjá UMFÍ. Hann sagði að gildi landsmótanna kæmi vel í ljós á þessum þingum, sérstaklega þegar landsmót væri að nálgast. Aðalmálið á þingi UMFÍ um helgina var undirbúningur næsta landsmóts sem verður á Laugar- vatni 14. til 17. júlí í sumar. Pálmi sagði að undirbúningur gengi mjög vel. Bygging íþróttavallar stæði yfír og þegar hann kæmist í gagn- ið yrði skemmtileg íþróttaaðstaða á Laugarvatni. Hann sagði að mik- ill ljómi væri yfír landsmóti á þess- um stað því landsmótið á Laugar- vatni 1965 væri mjög eftirminni- legt. Þangað hefðu komið 25 þús- und manns í einu besta veðri sem komið hefði á Suðurlandi. Brúðkaup Karólínu og Vincents Lindon verður væntanlega rétt upp úr áramótum. Elísabet: Það er ekki langt siðan ég byrjaði i Hress en ég er strax búin að missa nokkur kíló. Sjálfstraustið hefur aukist og ég ve/t að ég á eftir að missa fleiri kíló. Það gladdi mig mest að geta aftur notað fótin sem ég hafði ekki passað i lengi. r ~ W 'WSI ' - '«8*. ATTA VIKNA NAMSKEIÐ Árangursríkt námskeið fyrir þær sem vilja betri líðan og breyttan llfsstil Verð 8.900 kr. 3-5 tímar á viku Barnagæsla innifalin í verði Skráning í síma 65 22 12 Sigríður Einarsdóttir Iþróttakennari Rósa Björg Karlsdóttir (Didda) Iþróttakennari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.