Morgunblaðið - 05.11.1993, Síða 7

Morgunblaðið - 05.11.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1993 C 7 LIÍANOI LANDKYNNINC LlfANOI LANDKYNNING FRJÁLSA FLUGFÉLAGID Salernisgjöld í Finnlandi EKKI ERU allir á eitt sáttir við gjöld sem heimt eru af þeim sem nota salernisaðstöðu á aðalbraut- arstöðinni í Helsinki. Gjaldið nem- ur 5 finnskum mörkum, eða um 60 íslenskum krónum. Blue Wings, flugfélagsblað Finna- ir greinir frá þessu í síðasta tölu- blaði. Gert er góðlátlegt grín að gjaldinu og vakin athygli á að sumir væru líklega reiðubúnir að greiða enn hærra gjald, ef þannig stæði á hjá þeim. Fyrir tæplega tvisvar sinnum hærri upphæð er hægt að ferðast með strætisvögnum borgarinnar í klukkustund. í Blue Wings er greint frá manni nokkrum sem kærði gjaidheimtuna til borgaryfirvalda en ekki munu þau hafa tekið afstöðu til málsins. Blaðið hermir að viðhorf yfirvalda einkenn- ist af gömlu góðu hagfræðikenning- unni um framboð og eftirspurn. ■ HJETT AD SI6LA TIL DOVER FRA OOSTENDE Þjóðverjar framleiða handunnar brúður sem sjá má í verslunum. I Trier er einnig leikfangasafn með miklu úrvali leikfanga. ur kirkjuna, þannig að hliðið varð- veittist í upprunalegri mynd. KlæAi Krlsts í dómkirkjunni Porta Nigra er langt frá því að vera eina byggingin í borginni sem byggt hefur verið við eða breytt hefur verið um stíl á. Sömu sögu er að segja um dómkirkjuna og frú- arkirkjuna sem stendur við hlið hennar. í dómkirkjunni má einnig sjá aldagamlar skreytingar, en einn- ig nýtísku listaverk. Hægt er að fara innst í kirkjuna og líta klæði Krists augum, en þau eru varðveitt í glerskáp í gólfi kórs- ins. Þá er eitt stærsta pípuorgel í Evrópu í dómkirkjunni í Trier með 5.000 pípum. Var okkur sagt að nokkrir Kínvetjar hefðu komið inn í kirkjuna þegar verið var að spila á orgelið nýlega. Þeir höfðu Glerlistmunir í listhúsi Fyrir þá sem hafa gaman af fall- egum hlutum vil ég benda á listamið- stöðina „Kunsthandwerkerhof, Simeonstiftplatz 2, sem er í næstu götu fyrir neðan Porta Nigra. Þar eru verkstæði nokkurra glerlista- manna og hægt er að fá að fylgjast með hvernig verkin verða til. Einkar skemmtilegar eru handblásnar jóla- kúlur sem hægt er að setja spritt- kerti í. Jólakúlurnar eru einnig seld- ar á jólamarkaðnum á markaðstorg- inu, sem stendur frá 26. nóvember til 23. desember. Þeir sem vilja njóta góðra léttvína eru á réttum stað í Trier, því úrval- ið frá bændunum úr Mósel- og Saar- dalnum er mikið í verslunum. Blaða- menn, sem voru á ferð í Trier ný- lega, fengu að skoða kampavíns- verksmiðjuna SMW-Winzersekt GmbH, en þar er hægt að ganga inn og kaupa kampavín ódýrara en í verslun. Þess má geta að á Trier- svæðinu eru framleidd 50% af öllu kampavíni í Þýskalandi. ■ Hildur Friðriksdóttir ■TSjpær Alls hafa komið út sex myndbönd en fleiri munu vera væntanleg inn- an tíðar. á öldum notað gönguprik sitt sem kylfu og lambaspörð sem kúlu. Bú- fénaður hafi séð um að gera sand- gryfjur og því eigi kylfingar nútím- ans skoskum landbúnaði til forna margt að þakka. í stuttu máli, of stuttu að mínu áliti, er greint frá skotapilsum og köflótta efninu sem víðfrægt er, en skotapils eiga sér langa og merki- lega sögu í hálöndum Skotlands. Úr sveitasælu er aftur farið inn í skoskar borgir og áhorfendum sagt frá ýmsum markverðum stöðum sem sannarlega eru þess virði að heim- sækja. Myndbönd með landkynningu eru ný af nálinni hér á landi eftir því sem ég kemst næst og eru að mínu áliti góður kostur fyrir þá sem ekki hafa áhuga á ferðabókum. Þarna fer saman afþreying og fróðleikur sem hlýtur að vera áhugaverður fyrir þá sem hyggja á ferðir til viðkomandi staða. Umfjöllun á þessum tveimur myndböndum ristir ekki mjög djúpt enda heilt land tekið til umfjöllunar á tæpum klukkutíma. Hún er samt sem áður góð svo langt sem hún nær. ■ Brynja Tomer LEYFIR REYKINGAR FRJÁLSA flugfélagið, eða Freedom Air sem er hið rétta nafn félagsins, flýgur með far- Morgunblaðið/HF Markaðstorgið í Trier breytir um svip þegar jólamarkaðurinn hefst 26. nóvember. Vinstra megin á mynd- inni rétt glittir í St. Peters gosbrunninn. aldrei áður heyrt spilað á svona hljóðfæri, settust því niður og hlust- uðu hugfangnir. Að tónleikunum loknum stóð organistinn upp - langt fyrir ofan þá því orgelið stendur hátt uppi á vegg - og hneigði sig. Þá varð Kínverjunum að orði: Hvar eru allir hinir? Þeir trúðu því ekki að einn maður gæti stjórnað svo miklu hljóðfæri einn og sér. Þeir sem hafa áhuga á sagnfræði eða mannkynssögu ættu að koma við í Landesmuseum, sem er eitt þekktasta safn Þýskalands vegna margra sjaldgæfra muna. Safnið var sett á laggirnar 1877, en um leið var Trier gerð að miðstöð fornleifa- rannsókna og lista. Þar má sjá alls kyns gamla rómverska muni auk lík- ans af borginni eins og hún var á tímum Rómveija. Þá bjuggu þar um 80.000 manns, en nú búa um 100.000 manns í Trier. Auk Landesmuseum má benda á Amphi-leikhúsið sem er opið hring- leikahús og tók 30.000 manns í sæti á tímum Rómveija, rústirnar af rómversku böðunum, Karl-Marx- safnið og að lokum Leikfangasafnið. þega sem vilja reykja í innan- landsflugi í Bandaríkjunum. í fyrstu flugferð félagsins, sem var frá Chicago til Los Angeles, voru 60 farþegar að sögn frétta- blaðsins International Inside. Bo- eing 727-vél var notuð til flugsins og er það 165 sæta vél. f International Inside segir að farþegar sem kjósa að fljúga með Fijálsa flugfélaginu, verði að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis að þeir séu meðvitaðir um skað- semi reykinga. Plaggið verða þeir að undirrita áður en vélin fer í loftið. Reykingar eru bannaðar í öllu flugi innan Bandaríkjanna en Fijálsa flugfélagið fer í kringum lögin með því að fljúga í leigu- flugi, alla vega að nafninu til. Þá innheimtir félagið um 1.400 kr. gjald af öllum farþegum, sem sagt er vera ævilangt félagsgjald í Hinn fijálsa klúbb reykjandi flugfarþega. ■ FERJUFERÐUM á milli Oostende í Belgiu og Dover í Englandi verð- ur hætt nú um áramótin eftir 147 ára ferjutengsl borganna. í stað- inn verður siglt frá Oostende til Ramsgate í Englandi. Belgíska rekstrarfélagið RTM, sem er ríkisfyrirtæki, endurnýjaði ekki samninginn við belgíska feijufé- lagið P & O og samdi í staðinn við breska keppinautinn Sally Lines um siglingar frá Oostende tií Englands. Sally Lines gerir út frá Ramsgate en bærinn er um 22 km norðan við Dover. RTM sagði að Sally Lines byði upp á hagkvæmari rekstur og því væri gamla feijuleiðin lögð niður. Brautarstöðin er falleg og salern- isaðstaðan dýr Á Trier-svæðinu eru framleidd 50% af öllu kampavíni Þjóðverja. Hér má sjá Pólverja í uppgripavinnu við vínberjatínslu. Vínbóndinn sér um að þjappa beijum dagsins. Meðal annars eru verk eftir Francis Bacon í safninu NÝTT SAFN ÍOSLÓ NÝTT SAFN var nýlega opnað í Osló þar sem eingöngu verða til sýnis verk frá því eftir stríð. Sýningarsalir eru 400 fermetrar og þegar safnið var opnað í byijun október héngu þar meðal annars á veggjum verk í einkaeigu eftir Franc- is Bacon, Anselm Kiefer, K.B. Kitaj og Jim Dine. Einnig eru þar verk eftir norska listamenn og má til dæmis nefna Knut Rose og Arne Ekeland. Safnið hlaut nafnið Astrup Fearn- ley í höfuð fyrirtækisins sem með fjárframlangi sínu gerði kleift að opna safnið. Safnið er til húsa í Grev Wedels Plass 9 í Osló. ■ Hversu hlýr er 1 sjórinn? \ Hiti i nóvember \ °C Acapulco, Mexíkó \ 26 Agadir, Morokkó 21 Aþena, Grikkland 19 Barcelona, Spánn 16 Kaíró, Egyptaland 21 Kaupmannah., Danmörk 8 Bangkok, Tæland 27 Faro, Portúgal 17 Hong Kong 24 Honolulu, Hawaii 26 Istambúl, Tyrkland 15 Las Palmas, Kanaríeyjar 21 Lisabon, Portúgal 17 Los Angeles, Bandaríkin 17 Malaga, Spánn 17 Malta 19 Miami, Bandaríkin 25 Kombasa, Kenía 27 Napolí, Ítalía 18 Nice, Frakkland 16 Palma, Mallorca 18 Rio, Brasilía 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.