Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 2
2 B fjQOf y WGIGAJ8MU05I0M MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993 f SÆLUDAL fl&h. eftir Elínu Pálmadóttur í SÆLUDAL í fjalllendi í Suður-Frakklandi eru þúsund ára gamlar klausturrústir. Giselle Jónsson tók að veita þeim at- hygli, en hún og Sigurður Jónsson sjávarlíffræðingur maður hennar eiga þar skammt frá gamlan „kastala“. Hún tók að teikna upp rústimar, hélt sýningu á teikningunum í París og vakti fólk í nágrenninu til vitundar um þessi menningarverð- mæti, svo að nú er búið að stofna félagsskap-um varðveislu þeirra. Og Giselle hefur komið þeim á opinbera skrá yfir frið- uð þjóðarverðmæti í Frakklandi og fenginn er styrkur úr Friðunarsjóði til að heíja í vor varðveislu rústanna. Giselle er mikill grúskari engu síður en Sigurður maður hennar og hefur í söfnum leitað og fundið ýmislegt sem viðkemur íslenskri sögu. Á nýlegri ráðstefnu um franska ferðalanga á Norðurlönd- um á 19. öld flutti hún fyrirlestur um Xavier Marmier, þann sem ferðaðist um ísland í leiðangri Gaimards og sem Jónas Hallgrímsson og Benedikt Gröndal notuðu í skopsögum sínum. Hún er m.a. með einkadagbók hans, þar sem m.a. kemur ýmislegt fram um konumar í lífi þessa kvennamanns í Reykja- vík, en sögur af því lifa enn á íslandi. Og hún hefur fundið lýsingu á faldbúningi þeim sem ein þeirra og bamsmóðir hans, Fríða, ber á frægri mynd eftir August Mayer. Þar kemur í ljós að búningurinn er í kolvitlausum litum í nýútkominni bók, „íslandsmyndir Mayers 1836“. Sjá má hvernig all ar dyr eru hlaðnar án stoða og lykilsteinn lokar bog- anum. Úr kiausturrústum Notre Dame de de Bonheur. Giselle teiknaði þær eins og þær eru nú. Sést vel þessi fallega hleðsla á húsum kanúkanna. Hús þeirra Gisellu og Sigurðar í kastaníuskóginum í Sevennafjöll- um. Elsti hlutinn er frá 12. öld en sá yngsti frá 1801. iselle Jóns- son segir mér frá þessu forna klaustri og aðdrag- anda þess að það verður nú varðveitt, í íbúð þeirra Sigurðar í aldagömlu húsi í fimmta hverfi Parísar, sem með öllum sín- um gömlu bókum og fomu munum sem þau hafa safnað, er út af fyr- ir sig safngripur. Klausturrústirnar em í Vallé du Bonheur, eða Sæludal á íslensku, í 1.200 metra hæð í Savennafjöll- um norðvestur af Monpelier. I 25 km fjarlægð í sama sveitarfélagi keyptu þau hjónin um 1956 gam- alt illa farið hús, sem að stofni til er frá 12. öld, með kastaníuskógi allt um kring. Þá lá enginn vegur þangað, ein rafmagnspera var til lýsingar og vatn sótt í læk skammt frá. I fyrstu bjuggu þau í smáhýsi skammt frá þegar þau komu þang- að og horfðu bara á nýja húsið. Þá var hafist handa, allt styrkt án þess að breyta nokkm. Yngsti hluti hússins er frá 1801. Efri hæðirnar vom þá mest notaðar fyrir silkiormarækt, en íbúðarhlut- inn er þar undir. Þá er í bygging- unni hnetukjallari, þar sem reykt- ar vom hnetur, enda ekki skortur á þeim í kastaníuskóginum í kring. Þar eru líka villisvín, sem þau leyfa veiðiklúbbi staðarins að njóta og fá í staðinn villisvínakjöt. Áð auki eiga þau beitiland upp í fjöllin. Á þennan stað leituðu þau Giselle og Sigurður í öllum sínum fríum með Sólveigu dóttur sína meðan hún var að vaxa úr grasi og nú oft með sonarsyninum Sveini, sem er 13 ára. Nú em þarna öll þæg- indi, meira að segja gríðarstórt baðherbergi, en öllum nútímaþæg- indum er þannig fyrir komið að þau eru auganu falin. Húsið heldur sínu gamla yfirbragði. Sigurður Jónsson var til skamms tíma rannsóknastjóri á Rannsóknastöð franska ríkisins. Giselle vann margvísleg störf við sömu stofnun, sá þar í mörg ár um útgáfustarfsemi um fornleifa- rannsóknir. Sigurður er doktor í sjávarlíffræði en hún í grasafræði. Þúsund ára saga í Sæludal í héraðinu Languedoc em þessar merku rústir af klaustr- inu Notre Dame de Bonheur. Á þeim slóðum er sem kunnugt er Nú eru öll nútímaþægindi í hús- inu, en falin svo að hið.gamla útlit njóti sín. mikið af merkum minjum frá tím- um Grikkja og Rómveija og á klaustrið rætur í þeirri sögu allri. Þetta var mjög fjölbýlt svæði, Gallar vom þar á 2. og 3. öld f. Kr., settust að í Monpelier, fóm að hafa kindur og búa í þorpum. Þeir tóku að leita upp í fjöllin undan hitunum á lágsléttunni, á þær slóðir þar sem hús Sigurðar og Giselle er, og mynduðust fjár- götur. Þessar steinlögðu fjárgötur, „des drailles“, em enn notaðar, ein slík liggur um lóð þeirra. Þeg- ar Rómveijar komu fóru þeir með tæki sín eftir þeim. Nokkrum kíló- metrum frá húsinu má sjá hjólför- in eftir leiðangra Cesars. Trúbad- orarnir fóru þarna um og þetta urðu verslunarleiðir milli norðurs og suðurs. Um árið 1000 varð þessi leið yfir Sevennafjöllin sem- sagt að þjóðleið og héraðið- blómstraði. Aðalsmenn byggðu fjölda kastala á hæðum til að vernda leiðirnar og tóku gjöld af vegfarendum. Einn þeirra, Henry de Roquefeuil, hefur eflaust viljað fá syndaaflausn, því hann lagði svo fyrir í erfðaskrá sinni árið 1002 að stofnað yrði sjúkraskýli fyrir fátæka á landi sem nefnist Bonheur, þar skyldi komið fyrir stórri klukku sem spítalahaldarinn léti hringja nótt og dag til að leið- beina ferðamönnum og fátækum um fjöllin. Lagði hann til digran sjóð og 400 ferkílómetra lands. Segir Giselle að vel hafi verið val- inn staðurinn, því þetta var við verslunarleið og skattar greiddir til héraðsins. Sonur Henrys stofn- aði klaustrið 1143 með samþykki biskups. í Frakklandi er sjaldgæft að klaustur eigi sér skráða máldaga. Giselle hefur tekið saman sögu Notre Dame de Bonheur. Úttektir eru til frá 10. og allt fram á 15. öld og á 16. og 17. er á hvorri öld til ein úttekt á klaustrinu.JSein- asta úttektin er þegar klaustrið er selt í frönsku stjórnarbylting- unni. Frá um 1000 og fram um 1300 er gullöld í héraðinu. Þá eru 6 kanúkar við klaustrið, sem þá hefur stórkostlega rómverska kirkju úr stórum steinum og klausturhúsin umlukin glæsilegum múrum. Þar eru hús kanúkanna með stórkostlegum hlöðnum boga- dyrum. Giselle hefur teiknað allt klaustrið upp, eins og rústirnar eru nú. Kirkjan er krosskirkja með metraþykkum hlöðnum veggjum og án stuðningsstoða. Lykilsteinn lokar bogunum í dyrunum. Frá 1300 og fram að stjórnarbyltign- unni er saga Sevennahéraðs undir- lögð ránum og eyðileggingu, rib- baldaflokkar rændu ferðamenn. Um 1560 komu mótmælendur til sögunnar. Þá eyðileggja Huge- nottar kirkjuna. Af henni standa eftir rústirnar, langskipið farið en þverskipið er þarna. Sama var að segja um klausturbyggingarnar. En hnignunin hélt áfram. Friðsam- legt var um sinn og var þverskipið og kórinn þá viðgert og reistur varnarmúr til hlífðar. 1610 voru kanúkarnir svo reknir úr klaustr- inu og hnignunin varð varanleg. Sjá síðu 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.